Morgunblaðið - 05.02.2000, Síða 35

Morgunblaðið - 05.02.2000, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000 35 Myndir sem enginn mátti sjá Ekki lýgur ljósmyndin var einu sinni sagt. En það er bara hálfur sannleikurínn og stundum argasta lygi. Dæmi þessa má nú sjá í Proud Galleries í London. Þar eru m.a. til sýnis ljósmyndir, sem máttu ekki koma fyrir augu almennings af því þær sögðu sannleikann, og svo aðrar, sem voru lagaðar til þess að ljúga að almenningi. Freysteinn Jóhannsson skoðaði sýninguna. Hitler æfir sig. Einræðisherrann taldi myndina skemma ímynd sína og skipaði opinberum ljðsmyndara sínum að eyðileggja filmuna. SÝNINGIN í Proud Galleries dreg- ur nafn af þeim ljósmyndum, sem við áttum ekki að fá að sjá á 20. öldinni, en sumar þeirra hafa ekki sézt opin- berlega fyrr en nú. I hópi bönnuðu myndanna er ein af Adolf Hitler, tekin 1925, þar sem hann æfir látbragðið undir gamalli ræðu. Hitler óttaðist að myndin kynni að eyðileggja ímynd hans sem ræðumanns og skipaði opinberum ljósmyndara sínum, Heinrich Hoffman, að eyðileggja filmuna. Hoffman óhlýðnaðist Hitler og nú er mynd hans talandi tákn um þá hlið ÁÆTLUNIN kallast Veg(g)ir og er henni ætlað að veita sex listamönn- um tækifæri til að tjá sig beint á langvegginn á gangi Kjarvalsstaða. Það var Hlynur Hallsson sem reið á vaðið, en þegar þessi greinarstúfur birtist mun Daði Guðbjömsson þeg- ar vera kominn í gang með sína út- gáfu. Hans þáttur mun standa fram til 24. febrúar. Þá tekur Ráðhildur Ingadóttir við og eftir henni Katrín Sigurðardóttir. Lestina munu svo reka þau Gunnar Örn og Ragnheiður Jónsdóttir. Svona sýningamynstur er gjaman kallað „Work in Progress" eða Verk í mótun. Það er þó sérstaða Veg(g)ja að þar tekur hver listamaðurinn við af öðram og byrjar þá á hvítum granni, því verk fyrri listamannsins hefur þá verið fjarlægt. Þannig er ekkert lát á mótuninni meðan lista- mennimir sex glíma við langvegginn M-2000 Laugardagur 5. febrúar Martino Tirimo Kýpverski píanóleikarinn Martino Tirimo heldur eina tónleika í íslensku óperanni. Miðasala fer fram í Islensku óperanni en tónleikarnir hefj- ast kl. 14:30. Rokk í Reykjavík Ný og óritskoðuð útgáfa af Rokki í Reykjavík með enskum texta sýnd í Háskólabíói kl. 23.00. foringjans, sem ekki mátti sjást. Ekki tókst yfirvöldum í Teheran heldur að koma í veg fyrir það 1989, að ljósmynd frá útför Khomeinis erkiklerks kæmist úr landi. Stjóm- völd gerðu upptækar og eyðilögðu allar aðrar filmur með myndum af því, er æst fólkið raddist að líkböran- um og tætti sundur líkklæðin í leit að minjagripum. Á myndinni, sem rat- aði frá íran, er lík erkiklerksins hálf- nakið og hálfdregið af líkbörunum. En það era ekki bara stjómvöld, sem vilja halda ljósmyndum frá al- menningi. Fjölmiðlar era fæstir því urinn leið sína á Kjarvalsstaði til þess að bæta einu dagbókarbroti við hin fyrri og svara spurningum for- vitins skólafólks. Auk textans, sem ritaður er beint á vegginn með filtpenna, fylgir fjölbreytilegt safn af ljósmyndum hverjum degi. Þar má sjá hvað þau feðginin höfðust að frá því þau vöknuðu eldsnemma á morgnana uns þau vora aftur kom- inn inn í draumaland næstu nætm-. Neðst, eftir veggnum endilöngum, fékk Lóa litla að athafna sig með liti sína og leikandi teiknistíl. Ef til vill er það ekki merkilegur hlutur að halda dagbók á veggjum Kjarvalsstaða, en þetta er þó eitt af þeim skrásetningarformum sem Hlynur hefur tileinkað sér með eftir- tektarverðum árangri á nokkurra ára veru sinni í Hannover í Þýska- landi. Þar er hann búsettur ásamt fjölskyldunni, en sér sér fært að koma öðra hvoru heim á Frónið til að taka þátt í sýningum. Ef til vill skýrir útlegðin þá merki- legu og fjölskrúðugu tilveru sem þau Hlynur og Lóa upplifa hér í land- legu. Þótt þau nái ekki alveg Tinna og litla hundinum hans er líf þeirra fullt af ævintýrum hversdagsins. Reyndar er merkilegt að sjá hinn mikla mun sem er á textanum á veggnum - og gestir geta lesið línu fyrir línu - og ljósmyndunum sem ramma hvert dagbókarbrot með frjálslegum og ókerfisbundnum hætti. Það er eins og miklu meira og markverðara gerist í ljósmyndunum en textanum þó að báðir miðlar fylgi hverjum degi eftir af mikilli natni og nákvæmni. Frásagnarstíll Hlyns er hlutlæg- ur, svo sumum finnst sem hann haldi markinu brenndir að birta hvað sem er, en oft hefur sjálfskipuð ritskoðun þeirra tekið ómakið af stjómvöldum. I marz 1944 var tekin mynd í Farr- ingdon í London af eftirleik loftárás- ar Þjóðverja. Picture Post birti ekki myndirnar, því þar á ritstjórninni töldu menn, að þær myndu draga kjarkinn úr stríðshrjáðum Lundúna- búum. Myndimar vora fyrst birtar 1948. Árið 1950 urðu aftur átök á Picture Post vegna ljósmynda, sem teknar vora í S-Kóreu af norðurkór- eskum stríðsföngum. Ritstjórinn, Tom Hopkinson, vildi birta myndirn- ar, en eigendur blaðsins töldu þær andstæðar vestrænum hagsmunum og Hopkinson varð að taka pokann sinn. Áröður og blekking Ljósmyndinni hefur löngum verið beitt í áróðursskyni. Fagurgljándi dráttarvélamar við sovézka sam- yrkjubúið 1933 vora uppstilling, sem átti að leyna hungursneyð og millj- ónum mannslífa. Einræðisherrar á borð við Stalín og Hitler létu taka myndir af sér með litlum börnum til að fólk mætti sjá, að þeir hefðu sínar mjúku hliðar. Tony Blair, forsætis- ráðherra Breta, er sagður snillingur í að búa til ljósmyndatækifæri til þess að koma málum sínum til fólks. Hlynur Hallsson við hluta af dagbókum sínum. sig til hlés að yfirlögðu ráði. Það er mesti misskilningur, enda hefur hann ekkert að fela eftir þvl sem næst verður komist. Þessi hlutlægi stíll hans fellur prýðilega að Ijós- myndunum því þær era þrátt fyrir nákvæmni miðilsins mun óraunsærri en textinn. Þar koma til öll veislu- höldin út af sýningunni og alls kyns kaffiboð sem ekki falla beinlínis að hugmyndum okkar um raunsæi og hlutlæga dagfarslýsingu. Getur ver- ið að ævintýrin hendi okkur hvers- dagslega í ríkari mæli en við viljum vera láta, en penninn hafi tilhneig- ingu til að breiða yfir þá staðreynd? Svo furðulega sem það kann að hljóma lýsir veggur Hlyns hlutlægri upplifun sem mannfagnaði og veislu- höldum, meðan huglæga tilverustig- ið gengur gegnum miklu hversdags- legri reynslu. Einhvern tímann var þessu öfugt varið. Menn hurfu á vit ævintýrisins, langt burt frá grá- myglulegum hversdagsleikanum. Nú upplifir hinn áþreifanlegi nú- tímamaður veislu nær daglega með vinum, kunningjum og vandamönn- um. Á meðan verður hugur hans að gera sér rútínuna í einangrun að góðu. Það er svona óvenjuleg upp- götvun sem gerir veggverk á borð við Hlyns að svo spennandi tjáning- arformi. Enginn veit fyrirfram hvaða ályktanir má draga af því og trúlega koma þær listamanninum jafnskemmtilega á óvart og okkur aðnjótendum. Halldór Björn Runólfsson Og 1999 birtist mynd af Elísabetu Englandsdrottningu að tedrykkju hjá Susan McCarron í Glasgow, en eftir lát Díönu prinsessu hafa drottn- ingin og fjölskylda hennar gert í því að bæta úr fjarlægri ímynd sinni í augum almennings. Og svo era það ljósmyndirnar, sem vora lagaðar að pólitískum þörf- um hvers tfma. Árið 1919 var tekin mynd í Moskvu af tuttugu fulltrúum á átt- unda þingi kommúnista. Þessi mynd hefur ekki sézt opinberlega fyrr, en á valdatima sínum lét Stalín taka ell- efu þingfulltrúanna af lífi og þrír aðr- ir sviptu sig lífi til að mótmæla stefnu hans. Opinberlega birtist að- eins lítill hluti myndarinnar, þrenn- ingin Stalín, Lenín og Kalinin. Síðan var Kalinin fjarlægður úr myndinni og 1938 var Lenín horfinn líka. Önn- ur mynd var tekin á Torgi hins himn- eska friðar, Tiananmentorgi í Kína 1976, þar sem Jiang Qing, ekkja Mao, og vinir hennar; fjórmenninga- klíkan, var viðstödd útför Mao. Síðar vora þau svo fjarlægð úr ljósmynd- um og þar á meðal þessari, sem var bætt með blómapottum og mynda- styttum! Moskva ’54 - New York ’99 En það er ekki bara að fólk sé látið hverfi úr myndum af sögulegri nauð- syn, heldur eru Ijósmyndir líka fals- aðar til að sýna fólk í öðru Ijósi en raunveraleikanum. Og þarf hvorki í austurveg né langt aftur í tímann til þess að rekast á dæmi þess. 1996 birti The London Evening Standard mynd af John Prescott, aðstoðarfor- sætisráðherra Verkamannaflokks- ins, sem þá var í stjómarandstöðu. Blaðið vildi sýna Prescott sem sósíal- ista hins ljúfa lífs og fjarlægði bjór- flösku hans úr myndinni þannig að svo virtist sem Prescott væri að drekka kampavín borðnautar síns. Listin hefur löngum reynzt vald- höfunum óþægur ljár í þúfu. Það er ekki munurinn á milli Krashchevs í Moskvu 1954 og Rudolph Giuhani í New York 1999. En eðlismunur, að á þessum tíma vora orð Krashchev lög og hann lét loka nýlistarsýningu með þeim ummælum að api hefði getað gert betur. Giuliani reyndi að kúga Brooklynlistasafnið til að úthýsa Sensationsýningunni brezku, en lög- in reyndust safnsins megin, þannig að Giuliani hafði ekki erindi sem erf- iði. En söm var gjörðin! Það væri ástæða til þess að nefna miklu fleiri ljósmyndir á þessari sýn- ingu. En nú á það heldur betur við, að sjón er sögu ríkari! Hér skal þó enn ein mynd tínd til; mynd sem tek- in var af nafnlausum Ijósmyndara í Santiago, Chile 1973. Á myndinni sést Salvador Allende forseti koma út úr byggingu í valdaráni hersins miðju. Myndin er tekin skömmu áð- ur en hann var myrtur, en hún og aðrar myndir á filmunni sönnuðu, að hann var enn á lífi, þegar herinn sagði hann hafa framið sjálfsmorð í forsetahöllinni. Myndin barst New York Times sex vikum síðar og eins og í tilfelli ljósmyndarinnar frá Teheran er ljósmyndarinn ókunnur. Það er í það heila tekið skelfing döpur veröld, sem blasir við okkur í ljósmyndunum í Proud Galleries. Undantekningamar eru teljandi á fingram annarrar handar. Dauðinn er víða nálægur, fangar og hermenn og hörmungar á hverju strái. Enda von; það era helzt skuggahliðar okk- ar, sem við viljum leyna í lengstu lög. Og umfram allt gleyma. En það er eins og stöðug áminning sé okkur nauðsynleg. Það era Ijósmyndir eins og hauskúpuhaugurinn í Tuoi Sleng- búðunum í Kambódíu, sem efla okk- ur í þvl að vilja ekki láta slíkt henda aftur. Þó ekki væri nema bara vegna þess, er tímanum í Proud Galleries vel varið. Proud Galleris eru við Buckin- hamstræti, steinsnar frá Charing Cross-stöðinni. Sýningin stendur til 25. febrúar. ------------------ Tónleikar Tirimos í dag TÓNLEIKAR píanóleikarans Martinos Tirimos verða í íslensku óperanni í dag, laugardag, kl. 14.30 en ekki á sunnudag, eins og ranghermt var í blaðinu í gær. Hann verður á ferð í Tónlistarskól- anum í Reykjavík á morgun. Á efnis- skrá Tirimos, sem þykir í fremstu röð í heiminum, era verk eftir Chop- in og Beethoven. 250 m2einbýlishús við Depluhóla í Reykjavík. Séríbúð í kjallara. Yfirbyggður sólskáli. Frábært útsýni. Eign í sérflokki. Upplýsingar í síma 552 0730 Dagbókin um veg(g)inn MYJVDLIST Kjarva1ssta ð i r TEXTI & LJÓSMYNDIR HLYNUR HALLSSON Hlutur Hlyns; til 3. febrúar. Opið daglega frá kl. 10 -18. Aðgangur kr. 300. milli sýningarsalanna. Hið eina sem þeir hafa að leiðarljósi er frelsið til að gera hvaðeina á vegginn og því má búast við eins margbreytilegri útkomu hjá hverjum og einum og þeir eru margir listamennirnir. Hlynur Hallsson kaus að gera dagbók á vegginn og skrá upplifun sína og Lóu, litlu dóttur sinnar, frá degi til dags meðan hlutur hans stæði yfir. Hvern dag lagði listamað- Morgunblaðið/Kristinn Martíno Tirimo
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.