Morgunblaðið - 05.02.2000, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 05.02.2000, Qupperneq 36
36 LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIP LISTIR Morgunblaðið/Jim Smart Yfírlitsmynd af sýningu Stefáns Geirs Karlssonar á Mokka Kammertónleikar í Garðabæ Fimm fj ölbreyttir tónleikar Fyndið föndur? MYJVDLIST Mokka, Skólavörðustíg lágmyndir stefán GEIR KARLSSON Til 7. febrúar. Opið daglega frá kl. 10 - 23:30, nema sunnudaga, frá kl. 14-23:30 LÁGMYNDIR Stefáns Geirs Karlssonar eru ekki merkileg smíð ef satt skal segja. Réttara væri að tala um föndur en list því Stefán Geir ýtir undir föndurbraginn með hugmyndarýrð sem hljómar eins og síendurtekinn brandari. Mynd- efni hans eru konubrjóst í öllum stærðum og gerðum, úr bambus- vafningum og öðrum föndurviði, sem hann skírir nöfnum á borð við „Rósa frænka“, eða „Fatafellan". Það er erfitt að geta sér til um hvað fyrir Stefáni vakir með þess- um verkum. Ef það er að skemmta gestum kaffihússins þá hefði verið betra að trimma sýninguna niður í fáein verk og segja sama „djókinn" í nokkur vel valin skipti. Þannig hefði hann varðveitt eilítið af ferskleik yrkisefnisins og þegið hjartanlegan hlátur að launum. En svo virðist sem vonin um að selja gripina hafi orðið húmornum og smekkvísinni yfirsterkari. Fyrir vikið eru veggir kaffihúss- ins alsettir röðum af föndruðum brjóstum í alls kyns mögulegum og ómögulegum útgáfum og leggur Stefán Geir greinilega á sig tölu- verðar pælingar til að finna ný sérkenni á viðfangsefninu. Sennilega hugsar hann eitthvað á þessa leið: „Allir vilja eiga svona brjóst eftir mig, en enginn vill eiga alveg eins brjóst og náunginn." Þörfin fyrir að gera hvert brjóst einstakt ýtir undir raðir af hall- ærislegum nafngiftum eins og þeim sem áður voru nefndar og auðvitað er vænn verðmiði við hvert nafn. Þannig verður útkom- an eins og brandari sem sögumað- ur ímyndar sér að hljómi nýr og ferskur bara af því orðalaginu er breytt lítilsháttar í hvert sinn sem hann er endurtekinn. Með fima fingur sína gæti Stefán Geir gert mun betur en hann gerir ef hann nennti að beita ímyndunaraflinu í staðinn fyrir að rembast við sama þemað út í hið óendanlega. En auðvitað er valið hans og ef til vill er það einmitt svona sem hann vill tjá sig. Halldór Björn Runólfsson MENNINGARMÁLANEFND Garðabæjar efnir nú fjórða árið í röð til kammertónleika í Garðabæ og verða fyrstu tónleikarnir laugardag- inn 11. mars nk. Ráðgerðir eru alls fimm tónleikar á þessu ári og verða þeir haldnir líkt og verið hefur í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vída- línsldrkju. Tónleikarnir verða á laugardögum og hefjast allir kl. 17, utan þeir fjórðu í röðinni, sem ráð- gerðir eru miðvikudaginn 11. okt- óber kl. 20. Listrænn stjórnandi kammertón- leika í Garðabæ hefur verið til þessa Gerrit Schuil en við starfi hans tekur nú Sigurður Bjömsson. Á efnisskrá fyrstu tónleikanna eru verk eftir J.S. Bach, W.A. Mozart, G. Verdi og J. Brahms. Þar kemur fram í fyrsta sinn á tónleikum Hljómkór- inn undir stjórn Gerrit Schuil og flyt- ur m.a. verk fyrir kammerkór og fjórhentan píanóleik. Píanóleikarar verða þeir Gerrit Schuil og Richard Simm. Á öðrum tónleikum, sem verða 8. apríl, er homleikarinn Hermann Baumann í aðalhlutverki en með honum leika Sigrún Eðvaldsdóttir á fiðlu og Gerrit Schuil á píanó. Efnis- skráin samanstendur af verkum eftir Mendelssohn-Bartholdy, W.A. Mozart, J. Brahms o.fl. Þriðju tónleikamir verða 16. sept- ember en þar kemur fram strengja- kvartett frá Miinchen, Cuvillés-- kvartettinn, sem leikur verk eftir J. Haydn, W.A. Mozart og L.v. Beet- hoven. Meðleikari á klarínett með þeim félögum frá Munchen verður Sigurður Ingvi Snorrason. Fjórðu tónleikamir, sem verða 11. október, em ljóðatónleikar. Ópem- söngvarinn Andreas Schmidt mun syngja ljóðasöngva eftir L.v. Beet- hoven, C. Löwe og H. Wolf. Píanó- leikari á tónleikunum verður Rudolf Jansen. Fimmtu og síðustu tónleikarnir í þessari tónleikaröð verða 14. nóv- ember og em það ljóða- og aríu- tónleikar. Elín Ósk Óskarsdóttir syngur ljóð við lög eftir F. Schubert, J. Brahms og R. Wagner og ennfrem- ur aríu eftir R. Wagner, C.M. Weber, G. Puccini og G. Verdi. P’íanóleikari með Elínu Ósk verður Gerrit Schuil. Carsten Greife sýnir í GUK SÝNING á verkum Car- sten Greife í GUK (Garður, Udhus, Kiiche) verður opnuð sunnu- daginn 6. febrúar. Carsten er fæddur í Bielefeld í Þýskalandi árið 1968 og lauk námi í myndlist frá Kunst Hochschule í Hannover árið 1997. Hann vinnur gjaman teikningar út frá „reglum skapalóns- ins“. Eftirfarandi orðsend- ing barst frá Carsten: „Mig langar til að senda fax-teikningar til ykk- ar. Mig vantar faxnúm- erin ykkar. Það þarf að vera gamaldags faxtæki með pappír á rúllu. í garðinn (Garður) langar mig til að senda fax af siðasta jólatrénu okk- ar. Vinsamlegast finnið góðan stað svo það geti aftur skotið rótum. ígarðhýsið (Udhus) langar mig til að senda fax af hesti nágrann- ans. Hann þarf þurran stað og glugga til að horfa út um. f eldhúsið (Kttche) langar mig til að senda fax af geymsl- unni okkar. Eg held þið þurfið stærra eldhús.“ Sýningin verður opnuð sunnudagjnn 6. febrúar kl. 14 á Islandi ogkl. 16 íDanmörku og Þýskalandi. Sunnudagana 5. og 19. mars verður opið milli kl. 16 og 18 að staðartfma en að auki er sýningin opin á öðr- um tímum eftir sam- komulagi. Hægt verður að fylgjast með sýn- ingunni á http://www.simnet.is/ guk. Þar er einnig hægt að skoða myndir af fyrri sýningum í GUK. Fax teikning af borði eftir Carsten Greife Hljómkórinn kemur í fyrsta sinn fram opinberlega á opnunartónleikum Kammertónleika í Garðabæ. Háskólanemi snýr heim ERLEIVDAR RÆKUR Spennusaga SKJÓL„SHELTER" eftir Chaz Brenchley. Hodder & Stoughton 1999. 295 síður. BRESKI spennusagnahöfundurinn Chaz Benchley hefur sent frá sér næstum tug bóka en sú nýjasta sem kemur út í vasabroti eftir hann heitir Skjól eða „Shelter" og er útgefin af Hodder og Stoughton. Þetta er sálfræði- legur tryllir um ungan háskólanema sem sendur er heim til sín eftir að félagi hans finnst myrtur á skólalóðinni. Hann er hálfveg- is grunaður um tíma en ekkert kemur út úr því. Hins vegar virðist fylgja honum einhver óáran því þegar heim kemur taka undarlegir og á endanum hroðalegir atburðir að gerast. Áhugaverður höfundur Chaz Benchley er áhugaverður höfundur sem leyfir sögunni að ráða för og hafnar endalokum sem róað geta lesandann. Engar málamiðlanir þar og jafnvel lausir endar fá að vera lausir og skilja lesandann eftir með óráðnar gátur í kollinum. Benchley er nokkuð sjóaður höfundur. Af öðrum bókum hans má nefna „Dispossession“ og fyrstu söguna um uppáhalds sögupersónu höfundarins, Ben Macalley, „Dead of Light“, en Ben má finna í nokkrum bókum. Einnig má nefna söguna „Light Errant“. Þessi nýjasta saga er haganlega samsett, kannski þungmelt stundum, en á endanum harkalegt ævintýri af drungalegri lands- byggðinni þar sem leynast hættur í dimmum skógum og varasamt er að fara um fjöll og dali. Skjól er metnaðarfyllra verk en gengur og gerist í spennusagnageiranum, djúpköfun í hugsanir manns um tvítugt, sem lesandinn veit ekki nákvæmlega hvað hann á að halda um. Frásögnin er sögð að mestu í fyrstu pers- ónu út frá sjónarhóli unga mannsins en skipt- ir stundum um sjónarhom þannig að lesand- inn verður alsjáandi og stundum er lesandinn sendur í skáletraða ævintýraveröld utan við sjálfa söguna. Aðalpersónan heitir Rowan Coffey, nítján ára og mjög vel greindur og hann veit vel af hæfileikum sínum. Þegar sagan hefst snýr hann til baka frá háskólanámi til heimabæjar síns sendur í ársfrí. Tilefnið: Ungur vinur hans finnst stunginn til bana skammt frá hýbýlum þeirra. Ekki er talin ástæða til þess að gruna drenginn. Tvíræðni Heimafyrir bíður móðir hans, einhleyp, vin- ir hans frá því í æsku, kennslukona sem hann sefur hjá en hún er því sem næst helmingi eldri en hann, bróðir hennar, sem á við vandamál að stríða, og hópur af flökkufólki sem áð hefur við skógarjaðarinn og vill ekki fara, m.a. faðir með tveimur börnum sínum. Innan um þetta fólk er morðingi og barnaníð- ingur sem eirir engu. Chaz Brenchley býr til úr byggðinni, ónota- legu veðrinu og fólkinu á staðnum einskonar ævintýraland. Það afmarkast af dalverpi, miklum skógi og hæðum og fjöllum þar sem hætturnar leynast. I miðju þess er lítið þorp þar sem finna má þrjár ölkrár er bjóða upp á misgott öl. Og fólkið sem landið byggir á hvert sína fortíð. Spennan felst ekki síst í af- stöðu lesandans tii sögumannsins, hins unga Rowans. Hann hefur eftir móður sinni að all- ar sögur feli í sér tvíræðan endi og það á sannarlega við um sögu hans sjálfs; hver myrti skólafélaga hans? Hvers vegna hvarf bróðir kennslukonunnar í skóginum? Reyndar er Skjól ekki sakamálasaga nema að takmörkuðu leyti. Hún er kannski fyrst og fremst lýsing á fólkinu í sveitinni, fólkinu sem Rowan umgengst, sambandi hans við kennslukonuna, æskuvini sína, móður og flökkufólkið sem tekur að búa í húsi hans, um sveitina sem hann býr í. Þetta er saga um það sem er yfirvofandi og jafnvel saga um sögu (á einum stað tekur Rowan völdin af sögu- manni). Allt er það trúverðugt nokkuð og sag- an öll hin athyglisverðasta. Arnaldur Indriðason
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.