Morgunblaðið - 05.02.2000, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
hlýleg dalverpi milli ávalra fjalla, um
hin fomu afréttarlönd Reynistaðar-
manna, þar sem nú er upprekstrar-
land margra bænda. Liggur þá leið
okkar m.a. nálægt rústum Staðarsels,
en þar hafði Jleynistaðarklaustur
íyrrum í seli og síðar stórbændur á
Stað allt fram á síðai-i hluta 19. aldar.
Má enn sjá glögg ummerki eftir
byggingar í grænu túni (kýr voru hér
einnig að sumarlagi auk annars bú-
smala). Af varðveittum heimildum
má ráða, að forðum daga hafi forráða-
menn á Reynistað haft mikið umleik-
is í selinu og mörg eru þau ömefnin,
sem ennþá minna á selið eða þá á
sauðabeit og fjárferð hér um slóðir.
Undir lokin liggur leiðin fram á
heiðarbrún sunnan undir fjallinu
Staðaröxl í Skagafirði, og blasir þá
við okkur meginhéraðið, svipfrítt og
sögnum vafið. Af þessum áfangastað,
og eftir 18 kílómetra göngu frá
Þúfnavallaskála í Víðidal, höldum við
eftir bröttum sneiðingi skáhallt niður
fjallið og rakleiðis til byggðar í Sæ-
mundarhlíð.
Gengið um Tröllabotna, Laxár-
dal, Víðidal og Skálarhnúksdal
Önnur skemmtileg gönguleið, sem
liggur eigi fjarri þeirri, er hér var
lýst, og fellur reyndar saman við hana
á stuttum kafla, liggur frá enda ak-
vegar nálægt eyðibýlinu Kálfárdal, í
samnefndum dal í Gönguskörðum,
vestur yfir Skálarhnúksdal og um
nokkurt deiglendi í dalbotninum, að
„Trölla“, ágætum skála Ferðafélags
Skagfirðinga framan undir Trölla-
botnum vestan dalsins. Þaðan höld-
um við upp í Tröllabotnana, áfram yf-
ir hátt skarð, Vesturárskarð, sunnan
íjallsins Tröllakirkju (hér er miðað
við staðsetningu þess ömefnis sam-
kvæmt Árbók Ferðafélags Islands
1964, bls. 41^13 með loftmynd; sumir
vilja þó hafa Tröllakirkju-heitið um
íjallið sunnan skarðsins en merking-
ar á kortum hafa verið misvísandi).
Farið er vestur úr því skarði, í fyrstu
um fremur seinfamar slóðir, niður í
Laxárdal fremri, sem við heimsóttum
í fyrri ferðinni, sem lýst var. Síðan er
förinni fram haldið suður þann dal og
m.a. gengið um hlað eyðibýlisins
Refsstaða, sem áður var getið um, en
þar var fyrrum góðbýli sem hélst í
byggð fram á fimmta tug þessarar al-
dar. Standa Refsstaðir undir Refs-
staðahnúk, svipmiklu og fríðu fjalli
austan megin Laxárdals, þar sem
dalurinn er hvað breiðastur og bú-
sældarlegastur. Þar næst örkum við
austur um Litla-Vatnsskarð og síðan
áfram norður Víðidal, vestan megin
dals, framhjá eyðibýlinu Gvendar-
stöðum (með glöggum rústum), er
liggur á sólríkum stað sunnan í
Hryggjafjalli. Þaðan höldum við um
sæmilegar og auðfamar götur upp
allháan háls áður en komið er inn á
fyrmefndan Skálarhnúksdal, sem
liggur norðan Víðidals, en í vesturhlíð
þess dals stendur einmitt okkar góði
ferðafélagsskáli - og lokast þá eins
konar hringur, sem göngumaðurinn
hefur farið þann daginn. Verður að
ætla sér dijúgan dag til göngu þess-
arar - en leiðin er sums staðar nokk-
uð seinfarin og á fótinn - og er ráð-
legt að eiga næturstað í skálanum
Trölla fyrir upphaf ferðar og eins að
henni lokinni, áður en haldið er til
byggðaáný.
A þessari hringleið okkar, sem hér
var lýst, ber margt fagurt og frásagn-
arvert fyrir sjónir. Skálinn Trölli
stendur nærri afar fríðum og skoðun-
arverðum fossi, er nefnist nú Trölla-
foss, en þaðan er ekki ýkja langt til
upptaka Tröllár, sem fossinn er í (lík-
legt er hins vegar að fyrrum hafi
Tröllafoss verið heiti á fossi neðar í
ánni). Tröllá fellur úr Tröllabotnum
norður um Skálarhnúksdal og þaðan,
undir heitinu Laxá, út í Laxárdal ytri
og að lokum til sjávar í Sævarlands-
vík, vestan Tindastóls. Á göngu okkar
frá skálanum og upp í Tröllabotna
höfum við m.a. gott útsýni yfir hluta
Skálarhnúksdals og að nokkm niður
um Gönguskörð auk þess sem við
blasa svipmiklir fjallhnúkar yfir
Botnunum. Gæta verður þess, að
harðfenni er oft í og við Vesturár-
skarðið, en að sumarlagi er það þó vel
fært gangandi mönnum sé varlega
farið. Stutt er - en að vísu bratt - úr
háskarðinu upp á Tröllakirkju, en þar
uppi er gömul landmælingavarða og
héraðamörkin liggja þar einnig um.
Sé sæmilega bjart borgar sig sannar-
lega að leggja þessa lykkju á leið sína,
því af fjallinu er einkar víðsýnt í allar
áttir og m.a. suður á miðhálendið þar
sem glampar á jökulskalla að heiða-
baki.
Farið um Kiðaskarð
Þriðja gönguleiðin, sem hér verður
getið, liggur mun sunnar í fjallgarðin-
um, er skilur að héruðin. Er það göm-
ul alfaraleið milli Svartárdals í Húna-
vatnssýslu og Skagafjarðar. Liggur
þar nú reyndar allþokkalegur jeppa-
slóði, sem jafnframt er ágætur reið-
vegur. Getur göngumaðurinn vitan-
lega notað þennan vegslóða telji hann
það henta sér, en víða má einnig
þræða gamlar hesta- og fjárgötur
meðfram honum eða í námunda við
bílslóðina. Leiðin liggur upp úr daln-
um eigi fjarri hinni nafnkunnu
Stafnsrétt, skilarétt margra hún-
vetnskra og skagfirskra bænda, sem
eiga upprekstur á Eyvindarstaða-
heiði, en réttin stendur fram undir
botni Svartárdals. Þaðan fetum við
okkur rólega upp austurhlíð dalsins,
en síðan er gengið yfir heiðaland um
allnokkra hríð uns komið er að fjöll-
unum, sem héraðamörkin fara um. Af
þessum breiða hjalla er mikil útsýn í
björtu veðri suður um heiðamar
miklu, er liggja fram af húnvetnsku
byggðunum, og allt til jöklanna á
vestanverðu miðhálendinu.
Brátt opnast djúpt skarð í fjall-
garðinn og liggur leið okkar nú um
það. Nefnist það Kiðaskarð. Um
skarð þetta lá fyrrum allfjölfarin leið
milli byggða. Ráku m.a. þeir bændur
úr Skagafirði, er áttu fé í Stafnsrétt,
fjársafn sitt austur um skarðið að
réttum loknum - og er svo enn.
Skarðið er þröngt en greiðfært. Á því
eru stórar bugður, sem hamla sýn
rakleiðis gegnum það. Leiðin um
skarðið verður flestum eftirminnileg.
Fjöllin beggja vegna eru myndarleg:
Stafnsfell og Kárahnúkur að vestan
en Reykjafjall og Selhnúkur að aust-
anverðu. Nokkru austar en í miðju
skarði gnæfir sérkennilegt fjaU yfir
okkur, Kirkjuburst, með þverhnípt-
um hamraþiljum, en þar um liggja
héraðamörkin. Við austurmynni
Kiðaskarðs blasir síðan við fremri
hluti Skagafjarðar og skammt er til
byggðar eftir að við höfum gengið yf-
ir mynni Mælifellsdals. Öll er leið
þessi auðfarin gangandi manni og
ekki nema þægileg dagsganga
byggða í millum.
Höfundur er prófessor og fyrrver-
andiforseti Ferðafélags fslands.
VIKII
M
LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000 39
Visindavefur Háskóla íslands
Hvert er eitraðasta
dýr í heimi?
Vísindavefur
Háskóla ís-
VISINDI
lands hefur hlotið afar góðar viðtökur. A
fyrstu fimm dögunum bárust um 140 spurn-
ingar. Starfsmenn Háskólans hafa strax haf-
ist handa um að svara og hófðu birst 15 svör
alls á fimmtudaginn. Vefurinn tekur stóðug-
um breytingum á hverjum degi, ýmist með
nýjum spurningum, nýjum svörum eða öðru
nýju efni, svo sem myndefni. Mörgum þykir
skemmtilegt að skoða spurningarnar sem
berast. Flestar spurningar hafa borist um eðl-
isfræði, hagfræði, líffræði, læknisfræði, sál-
arfræði og stjarnvísindi. Spurningar um þessi
svið eru velkomnar áfram, en þeir sem hafa
spurningar á öðrum sviðum eru sérstaklega
hvattir til að senda þær ínn.
Hvert er eitraðasta dýr í heimi?
SVAR: Eitraðasta dýr á jörðinni er talinn vera froskur
á Choco-svæðinu í Kólumbíu sem nefna mætti „gullna
eiturörvafroskinn“ á íslensku (Phyllobates terribilis á
latínu en Golden Poison Dart Frog á ensku). Vitað er um
nokkra tugi tegunda af eiturörvafroskum í Mið- og Suð-
ur-Ameríku en sá gullni er tuttugu sinnum eitr-
aðri en sá sem næstur kem-
ur. Hann er mjög
áberandi gulur á litinn og
nokkuð stór, getur orð-
ið meira en 30 sm
langur. Gullni eitur-
örvafroskurinn lifir á
termítum og öðru góð-
gæti á skógarbotninum og
er á ferli að degi til enda þarf hann
ekki að óttast áreitni rándýra. Eitrið er
framleitt í húðinni og snerting ein og sér
veldur mjög mikilli ertingu og jafnvel
dauða. Þó er til ein tegund snáka sem hef-
ur þróað ónæmi fyrir eitrinu og drepur
þessa froskategund sér til matar.
Aðeins þarf 2-10 míkrógrömm af
eitrinu til að drepa fullorðinn mann, en
eitt míkrógramm er einn milljónasti úr grammi. Eitrið í
húðinni á einum froski getur nægt til að drepa allt að
1500 manns! Indíánar í Kólumbíu nota þetta eitur til
þess að veiða apa og fleiri dýr sér til matar, auk þess
sem þeir notuðu það áður fyrr í ófriði við óvini sína. Til
þess að ná eitrinu, veiða þeir einn svona frosk en gæta
þess vitanlega að snerta hann ekki. Síðan hengja þeir
hann á afturfótunum yfir litlum eldi og þegar froskurinn
tekur að hitna, fer hann að „svitna“ eitri. Þá nudda þeir
örvaroddunum í eitrið. Ekki beinlínis mannúðleg aðferð!
Gullni eiturörvafroskurinn og aðrir skyldir froskar
www.opinnhaskoli2000.hi.is
eru sérstakir að því leyti að þeir verpa ekki í vatn, held-
ur á jörðina. Faðirinn gætir eggjanna. Þegar þau klekj-
ast út, skríða lirfumar upp á bakið á föðumum sem flyt-
ur þær síðan í nálægan poll, tjöm eða læk þar sem þær
stækka og umbreytast að lokum í froska sem ganga á
land.
Páll Hersteinsson
Hvert er minnsta spendýr í heimi?
SVAR: Minnsta þekkta núlifandi spendýrið er leður-
blökutegund sem hefur verið nefnd hunangsblaka á ís-
lensku (Craseonycteris thonglongyai á latínu en Kitti’s
Hog-nosed Bat og Bumblebee Bat á ensku). Massi henn-
ar er aðeins um 2 g á þyngd; lengd frá trýni að afturenda
(hún er skottlaus) er 29-33 mm en lengd framhandleggs
er 22-26 mm. Hún hefur eingöngu fundist á litlu svæði,
Sai Yoke í Kanchanaburi-sýslu í vestanverðu Taílandi.
Aðeins fáein eintök af henni era til í söfnum og lítið er
vitað um hana annað en að hún virðist fyrst og fremst
lifa á skordýrum. Því er íslenska nafnið e.t.v. ekki sér-
lega heppilegt.
Hunangsblakan hefur tiltölulega stór
eyru og lítil augu og nær hárbrúsk-
ur yfir augun svo að þau
.... ,, , sjást illa. Hún er á ferli á
4'' nóttunni og
notar hátíðni-
hljóð til þess
að rata og
finna bráð
eins og al-
gengt er meðal
leðurblakna. Á
nóttunni hefst
hún við innarlega
litlum kalksteins-
hellum. Þá hangir
Vitað eru um nokkra tugi tegunda af eitur- hún á afturfótunum
örvafroskum í Mið- og Suður-Ameríku. ofarlega á veggjum hellis-
ins. Hunangsblökur era
ekki sérlega félagslyndar miðað við margar aðrar leður-
blökutegundir því að einungis eru 19-15 einstaklingar
saman í helli og þær halda góðu bili milli sín meðan þær
sofa.
Fyrir nokkrum árum fundust í Wyoming í Banda-
ríkjunum steingerðar leifar spendýrs sem var líklega
enn minna en hunangsblakan. Um er að ræða kjálka og
tennur úr skordýraætu sem uppi var fyrir um það bil 65
milljónum ára og hefur verið gefið nafnið Batodonoides.
Stærð kjálkans bendir til að dýrið hafi aðeins vegið 1,3 g.
Páll Hersteinsson
9í^v/'Á\\k\ - Gœðavara
Gjafdvara — inatar- oij kaffistell:
Allir veróflokkar. t
Heiiiisírægir liöiiniiðir
rn.a. Gianni Versace.
Í( \\\vv\ Yi-ifsLUNIN
Lítitgdi'egi 52, s. 562 4244.
81 tíi ótlanda!
ja 080
og síðan erlenda símanúmerið! Hafðu
samband og byrjaðu straxað spara!
Landsnet
http://www.landsnet.is
Hafnarstræti 15 Reykjavík Sími 562 5050 Fax 562 5066
IPURITAN’SI
fPRIDE8
ÍÍNSPIRED BYNATVU" :
SAW
PAIMETTI
227 mg
Dietary Supplement %
100 CAPSULES
Freyspálmi styrkir
blöðruhálskirtilinn
Apfttókið SmératofQÍ * Apótbkió Spðnginni
Apótekíó Krlnglunni • Apótckið Smiðjuvogi
Apótokið Suðvirströnð • Apótokið Iðufelii
Apótekió Hagkaup Skeifunni
Apótekið Hagkaup Akuroyri
Hafnarfjarðar Apótek
Apótskið Nýkaupuin Mosfellsbæ