Morgunblaðið - 05.02.2000, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000 53
BJORGVIN
MAGNÚSSON
+ Björgvin Magn-
ússon var fæddur
á Þúroddsstöðum í
V estur-Húnavatns-
sýslu 31. maí 1920.
Hann lést á heimiii
sínu á Hellissandi 25.
janúar síðastliðinn.
Múðir hans var Maria
Kristrún Ketilsdútt-
ir, f. 3. júní 1897, d.
17. júlí 1932, frá
Stakkabergi á Hellis-
sandi, og faðir hans
var Magnús Árnason,
f. 15. september
1890, d. 26. febrúar
1978 frá Kúvíkum á Ströndum,
síðar á Gjögri og í Reykjarfirði.
María múðir Björgvins giftist
nokkru síðar Eiríki Kúld Andrés-
syni, frá Bjamarhöfn í Helgafells-
sveit, f. 3. júlí 1903, d. 3. desember
1932. Þau áttu fjögur börn, Hin-
rik, f. 30. september 1921, d. 15.
oktúber 1992, Jún Þorstein, f. 4.
júlí 1927, Kristin BreiðQörð, f. 21.
oktúber 1928, og
Súlveigu Guðbjörgu,
f. 28. ágúst 1930.
Hálfsystir Björgvins,
samfeðra er Kristín
Herdís, f. 13. maí
1933, hún á nú heima
á Húlmavík, en áður
í Reykjarfirði á
Ströndum.
Björgvin úlst upp
hjá ömmu sinni og
afa, þeim Kristínu
Þorvarðardúttur og
Katli Björnssyni á
Stakkabergi á Hell-
issandi. Á heimilinu
voru einnig múðurbræður hans,
þeir Böðvar og Gísli. Eftir fráfall
Ketils og síðar Kristínar héldu
þeir Böðvar, Gísli og Björgvin
heimili saman. Nú er Gisli einn
eftirlifandi.
Útför Björgvins fer fram frá
Ingjaldshúlskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Ég vil minnast Begga bróður með
nokkrum orðum og draga fram
nokkrar minningar úr lífi okkar syst-
kinanna. Eftir að faðir okkar Eiríkur
andaðist 1931 og móðir okkar María
1932 var okkur systkinum komið í
fóstur nema Begga sem var áfram
hjá Kristínu ömmu. Hinrik fór að
Skjaldartröð, Jón var fyrst í Rifi og
síðan á Hólum í Helgafellssveit.
Kristinn fór til móðursystur sinnar,
Jóhönnu Ketilsdóttur í Reykjavík,
og Sólveig fór að Hofstöðum í Helga-
fellssveit.
Mér auðnaðist að halda góðu sam-
bandi við Begga bróður, því ég varð
þeirrar gæfu aðnjótandi að fara í
sveit til ömmu á Stakkabergi, en þar
voru auk ömmu og Begga móður-
bræður mínir, þeir Gísli og Böðvar.
Þaðan á ég margar dýrmætar minn-
ingar.
Beggi stundaði sjómennsku sem
aðalstarf og lenti oft í kröppum sjó.
Hann var alla tíð eftirsóttur dugnað-
armaður. Síðast á starfsferli sínum
vann hann í fiskvinnu í Jökli hjá
Skúla Alexanderssyni, en þeir voru
bræðrasynir. Böðvar móðurbróðir
Begga stundaði líka sjóinn, en var
jafnan eitthvað með kindur líka, eins
og algengt var í sjávarplássum. Gísli
móðurbróðir vann lengi í Kaupfélag-
inu, síðan sem vörubílstjóri og í 23 ár
rak hann Essostöðina á Sandi og
naut hann mikillar virðingar vegna
þess rekstrar svo og annarra starfa
sem hann annaðist.
Árið 1940 byggðu þeir nýtt hús
sem kallað var Þórsberg, en bærinn
á Stakkabergi var rifinn. Það eru því
60 ár sem þeir eru búnir að halda
heimili þar saman. Amma dó 1947 og
lengi eftir það höfðu þeir ráðskonu,
en svo sáu þeir um heimilið alveg
sjálfir. Síðustu 10 árin hafa þeir
fengið aðstoð með þvott og þrif og
ýmislegt annað tilfallandi. Þar hafa
þau Fjalar og Silla reynst þeim mjög
vel og eiga miklar þakkir skildar, svo
og margir aðrir sem hafa sýnt þeim
vináttu og hjálpsemi.
Eitt er það sem ekki má sleppa að
segja frá þegar talað er um Begga
bróður, það er hversu innilega gam-
an honum þótti að spila. Svo lengi
sem ég man var það aðalskemmtiefni
okkar þegar Beggi kom í bæinn að
spila og var sama hvers konar spil
það var, það var allt gaman. Nú síð-
ast þegar hann kom suður í október
sl. var heilu dögunum eytt í spila-
mennsku heima hjá Sollu systur.
Ég stend í mikilli þakkarskuld við
þetta heimili ömmu minnar, Böðvars
og Gísla móðurbræðra og Begga
bróður. Guð blessi minningu þeirra
sem látnir eru og vaki yfir Gísla, sem
lifir nú einn á Þórsbergi. Megi hann
eiga gott ævikvöld við minningar um
gott samferðafólk.
Kristinn Breiðfjörð.
Mér er það í barnsminni að Magn-
ús Árnason föðurbróðir minn var að
sýna foreldrum mínum mynd af
dreng, rétt innan við fermingarald-
ur, sem væri sonur hans. Þessi stund
kom upp í huga minn um tuttugu ár-
um síðar þegar ég var nýkominn sem
starfsmaður kaupfélagsins hér á
Hellissandi og einn viðskiptavinanna
spyr mig um það hvort það sé rétt að
ég komi norðan frá Árneshreppi á
Ströndum og ef svo sé, hvort ég
þekki þar mann að nafni Magnús
Árnason.
Þama var þá kominn drengurinn
sem myndin var af sem áður er
nefnd, var að leita eftir upplýsingum
um föður sinn. Tengsl milli þeirra
höfðu fallið niður, trúlega við fráfall
móður drengsins, og sonurinn vissi
Uklega ekki hvort faðir hans var lífs
eða liðinn. Þessi maður var Björgvin
Magnússon sem verður kvaddur frá
Ingjaldshólskirkju á Hellissandi í
dag.
Björgvin var ávöxtur sumarkynna
þeirra Maríu Ketilsdóttur og Magn-
úsar frænda míns en bæði voru þau
vinnufólk í Hrútafirði, María komin
til sumarvinnu héðan að vestan en
Magnús var á heimaslóð i Hrútafirði.
Leiðir þeirra lágu síðan hvor í sína
áttina - Maríu heim í foreldrahús og
Magnúsar norður í Árneshrepp.
Björgvin ólst upp hjá afa sínum og
ömmu og móðursystkinum. Móðir
hans dó aðeins 35 ára. María var þá
gift kona og fjögurra barna móðir
auk Björgvins sem þá var 12 ára.
Eftir spjall okkar Björgvins í
kaupfélaginu komst fljótlega á sam-
band milli þeirra feðga en Magnús
var þá ekkjumaður og hélt heimili
með dóttur sinni. Það voru gleðistun-
dir hjá þeim feðgum og hálfsystur-
inni þegar Björgvin fór í heimsóknir
til þeirra norður í Reykjarfjörð.
Starfsferill Björgvins var hinn
hefðbundni vettvangur erfiðismanna
sem fæddir voru á fyrri hluta 20. ald-
ar og hafa skilað þjóðinni afrakstri
vinnu sinnar með því að færa hana
frá fátækt til auðlegðar. Hann stund-
aði sjóinn, vann í fiski og var með
smábúskap. Björgvin var einn af
þeim síðustu sem setti farkost sinn
um Keflavíkurvör undir Jökli og hef-
ur með því átt þátt í að marka kjal-
förin þar í klappimar og vararhell-
urnar. Hann var þátttakandi á fyrstu
árum nýrrar útgerðarsögu Rifshafn-
ar, m.a. sem skipverji hjá tveimur af
fyrstu formönnunum sem réru frá
hinni nýju Rifshöfn, Sigurði Krist-
jónssyni á Armanni og Leifi Jóns-
syni á Hólmkeli. Sjómannadagsráð á
Hellissandi og Rifi sæmdi Björgvin
heiðursmerki Sjómannadagsins árið
1990.
Upp úr 1960 hætti Björgvin á
sjónum og frá þeim tíma vann hann
hjá okkur í Jökli hf. utan vor og sum-
armánuði - þá var hann við sauðburð
og heyskap. Hann hætti beinni dag-
launavinnu um 1990. Á starfsárum
hans í Jökli urðu kynni okkar nánari.
Björgvin var traustur og áreiðanleg-
ur starfsmaður og kunni vel til verka
- sérstaklega góður flatningsmaður.
Hann var léttur í lund - pínulítið
góðhrekkjóttur - og naut þess að
vera í góðum starfsmannahópi.
Björgvin hélt heimili með móður-
bræðrum sínum, þeim Böðvari og
Gísla, að Keflavíkurgötu 18. Böðvar
dó haustið 1992. Jafnframt því að
þeir stunduðu vinnu út á við höfðu
þeir nokkrar kindur sem þeir allir
sinntu af sérstakri natni. Björgvini
þótti vænt um kindurnar og var mik-
ill dýravinur.
Móðurfrændfólk Björgvins og
hálfsystkini hafa síðustu ár fylgst
með þeim frændum og látið sér annt
um þá, hlúð að þeim og hjálpað. Þau
eiga þökk fyrir þá aðstoð.
Björgvin sýndi mér og minni fjöl-
skyldu mikla vináttu sem við þökk-
um nú að leiðarlokum. Það voru
miklar ánægjustundir hvenær sem
Beggi frændi birtist brosandi með
gamanyrði á vörum. Mikið fannst
frændsystkinunum gaman að koma
til hans um sauðburðinn og sjá hjá
honum litlu lömbin og hann sem
lambafóstra í miðjum hópnum.
Hálfsystkinum Björgvins og
þeirra fólki vottum við samúð okkar
svo og frændfólki hans. Við biðjum
Gísla Ketilssyni góðra daga, vottum
honum samúð og óskum þess að allar
góðar vættir styðji hann og styrki.
Ég og fjölskylda mín þökkum þér
samfylgdina og óskum þér að lokum
góðrar ferðar, Beggi frændi.
Skúii Alexandersson.
t
Elskuleg móðir okkar,
GUÐRÚN PÉTURSDÓTTIR,
Bólstaðarhlfð 41,
óður Mávahlíð 39,
Reykjavík,
er látin.
Karl Friðriksson,
Sigríður Friðriksdóttir.
t
Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma,
ÞÓRDÍS S. GUÐMUNDSDÓTTIR,
Droplaugarstöðum,
áður Rauðarárstíg 40,
verður jarðsungin frá kirkju Óháða safnaðarins
þriðjudaginn 8. febrúar kl. 15.00.
Sæmundur Gunnarsson, Þórunn Jónsdóttir,
Sigrún Sæmundsdóttir,
Jón Sæmundsson, L. Ýr Sigurðardóttir,
Margrét Sæmundsdóttir
og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og
afi,
MAGNÚS JÓNSSON,
Sólvangsvegi 1,
Hafnarfirði,
lést á Sólvangi fimmtudaginn 3. febrúar.
Dagný Pedersen,
Jón Magnússon, Helen P. Brown,
Halla Magnúsdóttir, Þórður Bragason,
Anna Magnúsdóttir, Guðmundur Jóhannsson
og barnabörn.
Hjartkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang-
afi,
JÓN ELLERT SIGURPÁLSSON
fyrrverandi skipstjóri,
lést á hjúkrunarheimilinu Hornbrekku í Ólafs-
firði fimmtudaginn 3. febrúar sl.
Lárus Jónsson, Guðrún Jónsdóttir,
Guðrún Jónsdóttir, Valdimar Á Steingrímsson,
Þórleifur Jónsson, Elísabet F. Eiríksdóttir,
afabörn og langafabörn.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og dóttir,
VALGERÐUR EINARSDÓTTIR,
Silfurtúni 14c,
Garði,
lést á heimili sínu fimmtudaginn 3. febrúar.
Einar Jónsson, Kristfn Richards,
Benedikt Jónsson, Sigrún Halldórsdóttir,
Eyþór Jónsson, Anna Marta Karlsdóttir,
Halldóra Jónsdóttir,
Einar Jóhannsson, Sigríður Benediktsdóttir
og barnabörn.
t
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR ÁGÚSTSDÓTTUR BLÖNDAL
frá Sauðárkróki.
Sérstakar þakkir til starfsfólks öldrunardeildar
Héraðssjúkrahússins á Sauðárkróki.
Gunnar Blöndal Flóventsson, Ingibjörg Ó. Gunnarsdóttir,
Gyða Blöndal Flóventsdóttir, Bjarni A. Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HALLGRÍMUR J. STEFÁNSSON,
Háaleitisbraut 56,
Reykjavfk,
lést á heimili sínu föstudaginn 4. febrúar.
Vigdís Jónsdóttir,
Stefán Hallgrfmsson,
Jón Otti Ólafsson, Jónína M. Aðalsteinsdóttir,
Ásgeir S. Hallgrímsson, Steinunn J. Ásgeirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GESTUR MAGNÚSSON,
Rauðumýri 20,
Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri fimmtu-
daginn 3. febrúar.
Rut Ingimarsdóttir,
Sigurður og Viktor Gestssynir
og fjölskyldur.