Morgunblaðið - 05.02.2000, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000 63 v
UMRÆÐAN
Seldi „sægreifí“
fyrir slikk?
UM FÁTT er meira
rætt þessa dagana en
sölu Þorsteins Vil-
helmssonar á 21,6%
hlutafjár í Samherja hf.
fyrir um 3 milljarða
króna. Venjulegt fólk
með þetta 1-3 milijónir
í árstekjur og óvissa
inneign í lífeyrissjóði
spyr eðlilega hvemig
svona auðsöfnun sé
möguleg á 17 árum.
Enn aðrir velta fyrir sér
hvað það var sem Þor-
steinn seldi og hvað það
er sem Kaupþing
keypti? Margir hafa
bent á að saga Sam-
herja sé samofin sögu kvótakerfisins
og setja fram þá fullyrðingu að Þor-
steini hafi tekist að selja það sem í
orði kveðnu jafnt sem í lagatextum
frá Alþingi er kallað sameign þjóðar-
innar, fisk í efnahagslögsögu lýðveld-
isins. I framhaldinu koma gjaman
vangaveltur um siðfræði þessara við-
skipta. Loks eru þeir sem era miklu
jarðbundnari og velta fyrir sér hvem-
ig Kaupþing og Þorsteinn komust að
þeirri niðurstöðu að verðmæti 21,6%
af hlutabréfum Samherja væri rúmir
3 milljarðar króna.
Það er þessi síðasta spuming sem
ég vil reyna að kasta nokkra ljósi á
nú. Kaupandi og seljandi hlutabréfa
þurfa að komast að sameiginlegri nið-
urstöðu um hvers virði fyrirtæki sem
höndlað er með sé. Margar leiðir er
hægt að fara við að
verðmeta fyrirtæki. Ein
aðferð er að skoða svo-
kallað upplausnarverð
fyrirtækis. Upplausn-
arverð fyrirtækis er sú
fjárhæð sem fengist við
það að loka fyrirtækinu,
selja eigur þess og
greiða allar skuldir.
Hægt er að fá grófa
mynd af upplausnar-
verði Samherja. Eignir
Samherj asamstæðunn-
ar umfram skuldir era
um 4,5 milijarðar skv.
efnahagsreikningi (sjá
http://www.samherji.is/
adalfiykiltolur.htm).
Skv. ársreikningi Samherja fyrir árið
1998 vora 2,7 milljarðar la-óna í eign-
færðum veiðiheimildum. Hrein eign í
skipum, vélum, tækjum, húseignum
og öðrum búnaði vora því um 2 mill-
jarðar. Skv. upplýsingum á heimasíðu
Samheija námu veiðiheimildir fyrir-
tækisins ríflega 40 þúsund þorskí-
gildistonnum á síðasta fiskveiðiári.
Nú er kílóið af þorski í varanlegum
heimildum selt á 950 krónur á mark-
aði. Reiknað á því verði er verðmæti
þessara heimilda um 38 milljarðar
króna og upplausnarvirði Samheija
um 40 milljarðar króna. En þetta er
ofinat m.a. vegna þess að þorskígild-
iskíló af ýsu og ufsa selst ekki á 950
krónur. Sé stuðst við raunhæfara
verðmætamat á kvótanum fæst sú
niðurstaða að upplausnarvirði Sam-
Kvótakerfið
Viðskipti Kaupþings og
Þorsteins benda til þess
að á hlutafjármarkaði
séu aðilar orðnir sam-
mála um að gjald verði
tekið fyrir not af sjáv-
arauðlindinni, segir
Þórólfur Matthíasson.
Þegar gjaldtakan verð-
ur auglýst mun verð
hlutabréfa í útgerðar-
fyrirtækjum sem eru á
markaði tæpast breyt-
ast svo teljandi sé.
heija sé á bilinu 22 til 30 miHjarðar
króna.
Sé litið til þess verðs sem Þorsteinn
Vilhelmsson fékk fyrir hlutabréf sín
hjá Kaupþingi þá var sameiginlegt
álit þessara tveggja aðila að verðmæti
Samheija sé um 14 milljarðar króha.
Þessi upphæð er að stærðargráðu til
helmingi lægri en svari til upplausn-
arverðs fyrirtækisins. Hvað er hér á
Þórólfur
Matthfasson
seyði? Tókst Kaupþingi að plata Þor-
stein til aðselja hlutabréf sín á 2 millj-
arða króna undir upplausnarvirði?
Seldi „sægreifinn" fýrir slikk? Svarið
við þeirri spumingu er neikvætt.
Bæði Þorsteinn, ráðgjafar hans og
forráðamenn Kaupþings hafa lesið
blöð og fylgst með útvarpi og sjón-
varpi á íslandi undanfama tvo ára-
tugi. Allir þessir aðOar vita að stór
meirihluti þjóðarinnar er andvígur
gj afakvótafyrirkomulaginu sem svo
er nefnt. Þeir hafa lesið dóm Hæsta-
réttar í svokölluðu Valdimarsmáli.
Þeir hafa lesið dómsorð úr Hérað-
sdómi Vestfjarða í svokölluðu Vatn-
eyrarmáli. Þeir vita að ekki minna en
tvær nefndir era starfandi á vegum
stjómvalda með það verkefni að gera
tillögur um tOhögun greiðslna fyrir
aðgang að auðlindum í sameign þjóð-
arinnar. Þeir hafa fylgst með fram-
göngu Péturs Blöndals og Guðjóns A.
Kristinssonar og annarra á Álþingi.
Og hugsanlega hafa þeir lesið hug-
myndir áhugahóps um auðlindir í al-
mannaþágu. Hugmynd áhugahóps
um auðlindir í almannaþágu er að út-
gerðarmenn skili úthlutuðum kvóta í
áföngum og borgi svo markaðsleigu
fyrir afnot af auðlindum sjávar í
framtíðinni. Sé gengið útfrá því að
gjafakvótinn verði afnuminn á ein-
hveiju árabili minnka þau verðmæti
sem falin era í kvótaúthlutun Sam-
herja. Þar með er Ijóst að Kaupþing
hefði haldið Ola á sínum hagsmunum
hefði fyrirtækið keypt hluta Þor-
steins VOhelmssonar í Samheija á 5
milljarða króna.
Óbeint verðleggja Þorsteinn og
Kaupþing úthlutað þorskígildiskfló á
einhveijar 300 krónur eða um 1/3 af
verðmati þessa sama kflós á kvóta-
markaði. Þetta verðmat Þorsteins og
Kaupþings stenst ágætlega sé gengið
útfrá 10% ávöxtunarkröfu og því að
Alþingi lögfesti hugmyndir áhuga-
hóps um auðlindir í almannaþágu frá
og með næsta fiskveiðiári!
Ég vfl enda þetta mál á að draga
fram tvær ályktanir. Sú fyrri er að á
hlutafjármarkaði virðist sem menn
séu orðnir nokkuð sammála um að tO
þess muni koma mjög fljótlega að
gjald verði tekið fyrir not af sjávar-
auðlindinni. Af þessu leiðir að þegar
gjaldtakan verður auglýst mun verð
hlutabréfa í útgerðarfyrirtækjum
sem era á markaði tæpast breytast
mikið. Seinni ályktunin varðar þá
spumingu hvað það var sem Þor-
steinn Vilhelmsson var að selja. Það
er ekki einfalt mál að gefa tæmandi
svar við þeirri spumingu. En stór
hluti þeirra verðmæta sem hann var
að selja felast í þeirri staðreynd að Al-
þingi hefur verið svifasveint við að
koma á gjaldtöku fyrir afnot af sjáv-
arauðlindinni. Þessi vanrækslusynd
Alþingis kallar á að útgerðarmenn fái
allnokkum tíma tíl að laga sig að nýju
kerfi. Á þeim aðlögunartíma njóta
þeir áfram ókeypis afnota af hluta af
auðlindinni. Það vora þessi ókeypis
afnot, gjöf Alþingis og stjómvalda,
sem Þorsteinn Viihelmsson var að
selja.
Höfundur er dósent (hagfræði við
Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla
íslands.
TILBOÐSDAGAR
GLERAUGNABÚDIN
ítlmouiKreillcr
Laugavegl 36
5)
Umgjarðir, gler
og snertilinsur
oi
Mazda
kostar frá kr. 1.490.000
sknrar fram rrr
Mt/aiS rtorír oinn Kíl nJSmm hotri? RóH camcnil akctl ircpÍninlpiUa ^
Hvab gerir einn bfl öbrum betri? Rétt samspil aksturseiginleika,
öryggis og búnabar er lykillinn ab góbrí útkomu í samanburbl
bíla af svipabri gerb.
Komdu og gerbu raunhæfan samanburb.
Opib virka daga 9-18 og laugardaga 12-16.
Skúlagötu 59, slmi 540 5400 www.raesir.is
ísafjöröur: Bllatangi chf. Akurcyri: BSA hf. Egilsstaöir: Bllasalan Fell Selfoss: Betri bilasalan Vestmannaeyjar: Bifreiöaverkstaeöi Muggs Akranes: Bflás Kcflavík: Bílasala Keflavlkur Hornafjöröur: Vélsmiöja Hornafjaröa