Morgunblaðið - 05.02.2000, Qupperneq 75
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000 75./
FÓLK í FRÉTTUM
MYNDBÖND
Forvitnilegar plötur
Mafíósa-
grín
Sálgreindu þetta
(Analyse This)
gTmT¥my¥d
★★★
Leikstjóri: Harold Ramis. Handrit:
Ken Lonergan og Peter Tolan. Að-
alhlutverk: Robert De Niro, Billy
Crystal, Lisa Kudrow. (103 mín.)
Bandaríkin 1999. Warner-myndir.
Bönnuð börnum yngri en 12 ára.
ÞAÐ er í'yrst og fremst fag-
mennskan sem einkennir þessa
frambærilegu gamanmynd. Valinn
maður er í hverju rúmi og standa
flestir ef ekki allir vel fyrir sínu.
Hugmyndin er og frumleg. Maf-
íósar, eins og þeir hafa verið dregnir
upp í kvikmyndum
Hollywood, eru
hafðir að háði og
spotti og klisjurnar
undirstrikaðar.
Snjallræði var enn-
fremur að telja
Robert De Niro á
að leika mafíósa
sem þarf á sál-
fræðiaðstoð að
halda því hann virðist njóta þess að
fá tækifæri til þess að gera grín að
sjálfum sér og eldri hlutverkum sín-
um.
Einnig er ánægjulegt að sjá hinn
snjalla Crystal á ný í góðu formi og
er samleikur þeirra félagi smellinn.
Sem sagt prýðis mafíósagrín sem
auðveldlega má mæla með.
Skarphéðinn Guðmundsson
„ÞÝSKIR stríðs-
menn“ eða „Deutsche
Krieger" er stór-
magnaður diskur sem
er ávöxtur samstarfs
þýska tónlistarmann-
sins PD. Einheit og
leikritaskáldsins
Mark Ammer. Ein-
heit er þekktastur
fyrir að hafa verið
meðlimur þýsku
framúrstefnuhlj óm-
sveitarinnar Einzt-
urzende Neubauten.
PD. Einheit hætti f sveitinni fyrir
tveimur áram til að einbeita sér að
sólóverkefnum sínum.
Þetta er þriðja verkefnið sem
hann gerir í samstarfi við leikrita-
skáldið Mark Ammer. Áður gerðu
þeir saman verkin „Útvarp helvítis“
og „Heimsendir í beinni útsend-
ingu“. Það nýjasta frá þeim félögum
er þessi raf, sampl ópera sem nefnist
„Þýskir stríðsmenn“. Hún fjallar um
þrjár persónur sem ötuðu þýska
sögu blóði á öldinni sem leið. Hún
skiptist í þrjá þætti, sá fyrsti fjallar
um Vilhjálm keisara sem atti Þjóð-
verjum út í fyrri heimsstyrjöldina,
annar er um Adolf Hitler og sá þriðji
segir sögu Ulrike Meinhof, for-
sprakka Bader Meinhof hryðju-
verkasamtakanna frá 8. áratugnum.
Þættimir fjalla um upphaf, ris, bar-
áttu og loks ósigur og dauða „þýsku
stríðsmannana“.
Vilhjálmur, Hitler og Ulrica segja
sögu sína sjálf á gömlum upptökum
sem skeyttar era inn í tónlistina. Þau
era eins og poppstjörnur sem syngja
um raunir sínar meðan Ammer og
Einheit sjá um undirspilið.
Allir þættirnir hefjast á upphafs-
stefí ö. sinfóníu Beethovens og síðan
kemur elektrónísk geðveiki þar sem
klipptir era saman ótal hljóðbútar.
Einheit og Ammer vinna með
gamlar grammofónplötur úr fyrri-
heimsstyrjöldinni, útvarpsútsend-
ingar úr seinni heimsstyrjöldinni og
sjónvarpsupptökur frá áttunda ára-
tugnum. Tónlistinn styðst síðan við
„sömpl“ frá jafn ólíkum aðilum og
Charlie Chaplin og Kraftwerk. Hún
vísar til tíðarandans hverju sinni, til
dæmis er fönkuð diskóstemning í Ul-
riku Meinhof-þættinum og sveiflu
ztónlist er áberandi hjá Hitler. Úr
þessum sundurleitu bútum tekst
Ammer og Einheit að mynda sterka
dramatíska heild.
„Þýskir stríðsmenn" er langt í frá
rómantísk kertaljósatónlist, þetta er
harka af hörðustu gerð sem segir
sögu Þýskalands á nýmóðins og ögr-
andi hátt.
Ragnar Kjartansson.
Þýskir stríðsmenn
Ammer, Einheit.
Deutsche Krieger
Our choice records
Huldufólk með kreditkort?
SÍÐASTLIÐINN sunnudag flutti
Egill Helgason þátt í ríkisjónvarp-
ið um höfuðborg íslands aldamóta-
árið 2000 og maður bjóst við ein-
hverjum ósköpum í menningar-
vera, sem yrði bæði andstutt og
með magaverki. En ónei. Egill
Helgason lét ekki
menningaralvöra
andartaksins ógna
sér, hefur enda
starfað sem rann-
sóknarblaðamaður á pappír sem
hét Helgarpósturinn eða eitthvað
þvíumlíkt, raddmikill og hress og
branaði fram með pistil sinn um
höfuðborgina svo hún hresstist að
mun og er í dag töluvert meira en
andapollur og pissúar í miðborg-
inni. Egill bjargaði borginni sem
sagt út í alvörana, þótt hann leyfði
sér að álíta að huldufólkið í bænum
hefði krítarkort.
Heimsborgarhlutverk Reykja-
víkur er næsta sérkennilegt, þótt
ekki skuli gert lítið úr því. Heims-
borgardagskráin hófst með því að
afhjúpa ítalskan vita á Sandskeiði,
þar sem margur Sunnlendingur
mætti norðanhríðum á suðurgöngu
á tímum fiskiþorps á hinu gamla
Seltjarnarnesi. Einnig var hátíðin
hafin með þvi að rasla í dótakassa
Erlendar heitins í Unuhúsi, þar
sem m.a. vora geymd
bréf frá Halldóri Lax-
ness, Þórbergi Þórð-
arsyni og Stefáni frá
Hvítadal. Innihald
dótakassans hefur síðan verið til
sýnis almenningi. Maður býður
þess dags að hvolft verði úr ösku-
tunnu við hús vestast á Vesturgöt-
unni í menningarskyni á þessum
tímum post modernismans.
Svo vikið sé eftur að Agli Helga-
syni og prýðisgóðu erindi hans um
Reykjavík, þá var flutningur hans í
sérflokki. Það er nú orðið svo í út-
varpi þjóðarinnar, þessu sem við
verðum að borga fyrir, að það er oft
undir hælinn lagt hvort hægt er að
heyra eða skilja nokkurt orð sem
sagt er. Þetta stafar af þrálátri
kennslu í lestri, þar sem ein af
dauðasyndunum er að lesa upp-
hátt. Síðan kemst þetta ólæsa fólk í
þá aðstöðu að tala í útvarp og hafa
eins og kunnugt er próf í himin-
tunglafræðum, þótt varla skiljist
orð af því sem það segir í viðtölum
o.s.frv.
Ríkiskassinn virðist vera að
hressast undir nýjum dagskrár-
stjóra og er það gleðiefni. Þetta er
auðvitað bara spuming um að
skilja starfið rétt hvað snertir gam-
an og alvöra og hina hæfilegu
blöndu. 2. febrúar var fluttur annar
þáttur breska gamanþáttarins,
Mötuneytið (Dinnerladies) um kon-
ur sem vinna í mötuneyti í Ma-
nchester. Það var jafnvel látið að
því liggja, að svona mötuneyti gæti
fyrirfundist á íslandi - jafnvel við
Laugaveginn. En sleppum því.
Fleiri athyglisverðar sýningar
vora á döfinni hjá ríkiskassanum
og verður vonandi svo í framtíðinni.
Indriði G. Þorsteinsson
SJONVARP A
LAUGARDEGI
Vorvörurnar streyma inn
Verðdæmi:
Jakkar frá 4.900
Pils; frá 2.900
Buxur frá 2.900
BolÍr frá 1.500
Alltaf sama góða verðið!
Nýbýlavegi 12,
Kópavogi,
sími 554 4433
Norrœna húslð kynnlr f samvlnnu vlð
Bergens IntemcrHonella
i m * Teater (BIT) það besta frá yngrl kynslóð
llstamanna f Bergen.
Laugardagur 5. febrúar
15:00 Sýningaropnun á verkum Gisle Froysland. Innsetningar
og videólist.
20:30 Baktruppen - VERY GOOD.
Nýstárlegur leikhópur sem fer ekki troðnar slóðir í sýningum
sínum. Sýningin fer fram á ensku
.Aðgartgur 1000 kr
Sunnudagur 6. febrúar
15:00 Listamaðurinn Robert Sot fremur gjöming í anddyrinu.
20:30 Baktruppen - VERY GOOD. Sýningin fer fram á ensku.
Aðgangur 1000 kr
Sýnlngar:
Utandyra
Innsetning við Norræna húsið.
Elsebet Rahlff 29. janúar - 6. febrúar
FÁNAR HEIMS - hnattrænt verkefni á ferð.
í anddyri
Robert Sot 21. janúar - 20. febrúar. Innsetningar og gjömingur
í sýnlngarsal
Gisle Froysland 5. febrúar - 12. mars. Innsetningar og videólist
Nánar upplýsingar í símum 551 70 30 og 551 29 35,
fax 552 64 76 eða http:llwivw.nordice.is
Nœturgalinn
í kvöld leika Hilmar Sverrisson og
Anna Vilhjálms. Sími 587 6080.
Mikið úrval af
fallegtim
rúmfatnaði
Skólavördustíg 21, Reykjavík, sírai 551 4050
Yfir 1.500 notendur
KERFISÞROUN HF.
Fákaleni11 • Simi 568 8055
http://www.kerfisthroun.is/
LOKADAGAR RYMINGARSOLUNNAR
Mikil verðlækkun
Nýjar vörur beint á
rýmingarsöluna
Opið lau. 10-18, sun. 12-18
SPOBTVORUVERSLUNIN
SPARTA
Lauyavegt 49 -101 Reykjavlk - slmt 551 2024