Morgunblaðið - 05.02.2000, Síða 76

Morgunblaðið - 05.02.2000, Síða 76
k76 LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Kvikmyndahátíðin í Gautaborg Island: Allt önnur pláneta Hann veltir fyrir sér áhrifum skammdegis og sumarbirtu um leið og hann fangar um- hverfí, samstarfsmenn og kvikmyndagerð- armanninn sjálfan í heimildamynd um Friðrik Þór. Sigrún Davíðsdóttir hitti Alexander Bohr, þáttagerðarmann ZDF, á kvikmyndahátíðinni í Gautaborg. Eftir að ég kom fyrst til ís- lands og kynntist þessum töfrum, þessu yfirnátt- úrulega sem þar er að finna þá segi ég við þá, sem ekki hafa komið til Islands, að þeir verði að hugsa sér ísland eins og allt aðra ‘plánetu, ólíka öllu öðru, sem þeir þekkja." Það er hrifningarglampi í augum Alexanders Bohrs, þegar hann rifjar upp kynnin við Island, sem spruttu af kynnum hans af Friðriki Þór Friðrikssyni kvik- myndagerðarmanni á kvikmyndahá- tíð í Loearno 1987. íslenska um- hverfið setur svip sinn á myndir Friðriks Þórs að mati Alexanders, en þær bera líka vott um hvað kvik- myndagerðarmanninum þykir vænt um þennan uppruna sinn. Myndmál, sem styrkist „Það er erfitt að segja hvað ein- kennir myndir Friðriks Þórs,“ segir Alexander aðspurður. „Ef við tökum myndir eins og Skytturnar og Engla alheimsins þá eru þetta mjög ólíkar myndir og engin skýr þráður á milli þeirra. En það sem segja má um þann sem gerði þessar tvær myndir að þar er á ferðinni maður, sem þekkir kvikmyndir og áhrifamátt þeirra. Hann veit hvernig á að birta hlutina í kvikmynd, þýða þá yfir á myndmál." Alexander bendir á að strax í ann- arri mynd sinni, Börnum náttúrunn- ar hafi Friðrik Þór skapað listaverk. „Og því fleiri myndir sem hann gerir því meir breiðir myndmál hans úr sér.“ Annað sem Alexander nefnir sem einkenni á myndum viðfangsefnis síns eru hin sterku áhrif, sem stafa frá tjaldinu. „Það er alvöru fólk á tjaldinu, ekki leikarar klæddir í bún- Friðrik Þór, kvikmyndagerðar- maður, er viðfangsefni Alexan- ders Bohr í heimildarmyndinni sem sýnd var á Kvikmynda- hátíðinni í Gautaborg. inga. Alvöru fólk með alvöru sögu. Það er kannski rauði þráðurinn í myndum hans. Kraftur Friðriks Þórs sem kvikmyndagerðarmanns stafar af því að honum þykir einfald- lega vænt um persónur sínar. Þessi tilfinning hans fyrir persónunum ljær myndum hans sérstaka útgeisl- un. Það er erfitt að skýra áhrif mynda hans, en þeirra er ekki síst að leita í persónunum, held ég.“ Jafnvægi og ójafnvægi birtunnar Kynnin af íslandi eru Alexander hugleikin. Hann segist aldrei hafa verið á íslandi um vetur, svo hann þekkir aðeins sumarlandið ísland. Hann freistast til að álíta að birtu- sveiflur árstíðanna hljóti að hafa Úr mynd Friðriks Þórs, Börnum náttúrunnar. Sigríður Hagalin og Gísli Halldórsson í hlutverkum sínum. Baltasar Kormákur í hlutverki mannsins sem samdi öll bítla- lögin í nýjustu kvikmynd Friðriks Þórs, Englum alheimsins. áhrif á íslendinga, hafa áhrif á lífs- taktinn þar. „Annars staðar en nyrst í Evrópu erum við vön nokkum veg- inn jafnvægi í birtunni, en þetta ójafnvægi norðursins hlýtur að hafa áhrif á fólk,“ veltir hann fyrir sér og hugleiðir einnig hvemig fólk afberi myrkrið. „Það er ekki beint sam- band skammdegisins og Engla al- heimsins, en það má segja að í Engl- unum sé hin myrka hlið könnuð." Um önnur áhrif birtunnar á kvik- myndir Friðriks Þórs segir Alex- ander að hann taki eftir að Friðrik myndi helst á sumrin og vinni þá líka ótrúlega hratt. „Ég býst við að þetta sé einhver endurspeglun umhverfs- ins, en hin endanlegu áhrif er auð- vitað ekki hægt að fullyrða um.“ Þegar Alexander segir öðmm út- lendingum frá þeirri sérstöku upp- lifun, sem það er að heimsækja Is- land verður honum gjarnan rætt um þann vott af brjálsemi og yfirnátt- úrulegum íyrirbæram, sem honum finnst einkenna Island og Islend- inga. „Þegar ég segi að það sé ekki hægt að bera Island saman við neitt annað land er það meðal annars vegna þess hve náttúran og menn- ingin era nátengdar yfirnáttúralegri reynslu," segir Alexander, sem býst þó ekki við að íslendingar sjálfir taki eftir þessu. „Það sem í augum út- lendings virðist yfimáttúralegt verður náttúralegt í íslensku um- hverfi." Myndin um Friðrik Þór byi'jar á því að Páll Guðmundsson heggur drætti kvikmyndagerðarmannsins í stein og myndin endar á því að full- hoggið steinandlitið stendur á æsku- stöðvum Friðriks Þórs. Fundurinn við Pál er í huga Alexanders skemmtilegt dæmi um undarlega til- viljun, sem virðist svo eðlileg þegar hún gerist. Þeir Friðrik Þór fóru á eina bar- inn í Skagafirði klukkan tvö um nótt og hvern hitta þeir þá þar nema Pál, sem er að fara að opna sýningu. Upp úr þessum fundi sprettur sú hug- mynd að Páll verði með í myndinni og að myndinni séðri kemur í ljós hvað það er snjöll hugmynd. Alexander segist heillaður af verkum Páls og persónu hans. „Páll hefur til að bera þessa hógværð, sem einkennir íslendinga svo oft, líka Friðrik Þór. Eins og svo margir ís- lendinga þá era ekkert að hafa mörg orð um verk sín, gera bara hlutina án þess að fjölyrða um það.“ Eftir spjallið við Alexander vakn- ar sú hugmynd að hann sé kannski örlítið íslenskur í aðra röndina. Þeg- ar leiðir okkai- liggja saman seinna á hátíðinni og viðmælandinn fítjar upp á hve myndin af Friðriki Þór í mynd- inni sé hlý og einlæg segir Alexand- er feimnislega að það hafi kannski eitthvað að segja að þeir Friðrik Þór séu góðir vinir. En það þarf meira en vináttu til að gera jafn góða mynd og Alexander Bohr hefur gert um Friðrik Þór. Alexander gerir bara heillandi heimildamynd án þess að vera neitt að fjölyrða um það og allur bragurinn á mynd hans er hógvær og látlaus, rétt eins og hann sjálfur. Auglit víkingsins HEIMILDAMYNDIN um Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndagerðar- mann, sem sýnd var á kvikmynda- hátíðinni í Gautaborg, gefur heill- andi mynd af Friðriki Þór, uppruna hans og umhverfi. í myndinni segir Friðrik Þór frá sjálfum sér og vangaveltum sínum um kvikmynda- gerð og samstarfsfólk hans, vinir og kunningjar segja frá kynnum af honum og samstarfi við hann. Alexander Bohr hefur áður gert margar heimildamyndir um kvik- myndagerðarmenn og gengur markvisst til verks. Það er kvik- myndagerðarmaðurinn og tengsl hans við umhverfi sitt og uppruna, sem hefur fangað athygli Bohrs. Með því að tala við Friðrik Þór á æskustöðvum hans í Skagafírði úti í sumarnóttinni, ef marka má birtuna í viðtalsköflunum við Friðrik Þór, nær Bohr að tengja saman manninn og umhverfi hans. Eins og fleiri landar á kvikmyndagerðarmaður- inn það til að slá hlutunum upp í hálfkæring og gaman, en það er ekki sú hlið sem Bohr dregur fram. Það er þvert á móti einlægni og hlýja sem einkennir bæði frásögn Friðriks Þórs sjálfs og andann í myndinni. Á móti viðtalsköflum úti í náttúrunni eru svo kaflar þar sem Friðrik Þór les upp stuttar frásagn- ir, sitjandi í gömlum bfósal. Þessi samsetning bæði brýtur upp frá- sögnina á skemmtilegan hátt. Hún ljær kvikmyndagerðarmanninum yfirbragð sagnamanns, sem bæði kann að segja frá á innilegan hátt og með ákveðinni Qarlægð og minn- ir okkur á upprunann annars vegar og starfsvettvanginn hins vegar. Einkenni, sem koma fram í mynd- um hans. Hið íslenska undir erlendu sjdnarhorni Á meðan viðtölin við Friðrik eru tekin úti eða í bíósal er rætt við samstarfsmenn hans á heimilum þeirra eða skrifstofum, sem verður til þess að það skapast skemmtileg andstaða milli söguhetjunnar og aukapersónanna. í hópi viðmæl- enda er það ekki síst Ari Kristins- son, sem nær að bregða upp skemmtilegri mynd af samstarfi þeirra tveggja, líka af því að fram- koma Ara er svo sniðuglega óhátíð- leg og hann þvf mjög nálægur. Sem útlendingur lítur Bohr ís- land og íslenska kvikmyndagerðar- manninn vísast öðrum augum en landar hans gera. Myndin um Frið- rik Þór er þó á engan hátt haldin Sieim annmörkum að líta á ísland og slendinga sem einhver furðufyrir- bæri, eins og stundum gerist. Þvert, á móti er gestsaugað svo glöggt að það hlýtur að opna innfæddum nýja sýn, bæði á Friðrik Þór og á um- hverfi hans og viðfangsefni. Og svo er það þessi gegnumgang- andi hlýja og virðing fyrir við- fangsefninu, sem einkenna hana. Bohr hefur sagt að hlýjar tilfinning- ar Friðriks Þórs til sögupersóna sinna geri myndir hans svo áhrifa- miklar. Á sama hátt má segja að hlýjar tilfinningar Bohrs til við- fangsefnis síns ljái mynd hans dýpt og innileika, sem gera hana svo hrífandi. Morgunblaðið/Sigrún Davíðsdóttir Þýski sjónvarpsmaðurinn og kvikmyndagerðarmaðurinn Alexander Bohr: „Kraftur Friðriks Þórs sem kvikmyndagerðarmanns stafar frá því að honum þykir einfaldlega vænt um persónur sínar.“ Myndin hefur þegar verið sýnd á ur lýst áhuga á að sýna hana og það ZDF og Arte-sjónvarsstöðinni, sem væri sannarlega undarlegt er ís- sjónvarpar bæði til Þýskalands og lenska sjónvarpið hefði ekki áhuga Frakklands. Norska sjónvarpið hef- á að sýna hana.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.