Morgunblaðið - 03.03.2000, Síða 8

Morgunblaðið - 03.03.2000, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 3. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Eins og kálfar sem hleypt er út á vorin. Því Serta er leiðandi vörumerki á dýnumarkaðinum og ávísun á hágæða lúxus dýnu. Kauptu dýnu þarsem þú færð réttar upplýsingar, góða þjónustu, hámarks vörugæði, 15 ára ábyrgð og greiðsluskilmála sem henta þér. Millistíf Mjúk i Queen 54.360 59.840 King 79.980,- 84.600 Meiri gæði - betra verð Raðgreiðslur í allt að 36 mánuði tt HÚSGAGNAHÖLLÍN Bíldshöfði 20 - IIO Reykjavík Sími SIO 8000 www.husgagnahollin.is Alþjóðlegur bænadagur kvenna Yfirskriftin: Unga stúlka, rís upp! María Ágústsdóttir DAG verður alþjóð- legur bænadagur kvenna haldinn í Dómkirkju Krists kon- ungs, Landakoti, klukkan 20:30. Þetta er hluti af samkirkjulegu starfi um allan heim að sögn séra Maríu Ágústsdóttur, sem er formaður landsnefndar að undirbúningi bæna- dagsins á Islandi. „Hér á landi eru það níu hópar sem standa að bænadeginum í Reykja- vík. Þetta eru Aðventkir- kjan, Fríkirkjan í Reykja- vík, Hjálpræðisherinn, Hvítasunnukirkjan, Is- lenska Kristskirkjan, Ka- þólska kirkjan, KFUK, Kristniboðsfélag kvenna og þjóðkirkjan." - Er þessi alþjóðlegi bænadag- ur einnig haldinn hátíðlegur úti á landi? „Við sendum ár hvert dagskrá bænadagsins, sem er sú sama um allan heim, á marga staði úti á landi og víða hafa viðtökur verið góðar. Hingað til hefur bænadag- urinn verið haldinn hátíðlegur á Akureyri, í Keflavík og í Stykkis- hólmi og nokkrum öðrum stöð- um.“ - Hvernig er þessi dagskrá bænadagsins í ár? ,Ár hvert undirbýr ein lands- nefnd dagskrána og að þessu sinni eru það konur í Indónesíu sem undirbúa dagskrána. Þær leggja áherslu á ungu konuna og er yfirskriftin: Talíþa kúm! - Unga stúlka, rís upp! Konumar í Indónesíu búa við erfið kjör eins og fram hefur komið í fjölmiðlum, þær þarnast stuðnings okkar í orði og verki, staða þeirra er bág- borin og þrátt fyrir endurbætta lagasetningu hafa þær í raun lít- inn rétt. Vinnudagur þeirra er mjög langur, 18 tímar á sólar- hring, og fáar þeirra komast til mennta, kaup þeirra er oftast mun lægra en karla í sömu störf- um. Kristin trú er í miklum minnihluta, langstærstur hluti þjóðarinnar eru múslimar. Þrátt fyrir þetta hefur alþjóðlegur bænadagur kvenna verið haldinn í Indónesíu í rúma hálfa öld.“ - Hvað hefur alþjóðlegur bænadagur kvenna verið haldinn lengi hátíðiegur á Islandi? „Frá 1964 hefur bænadagurinn verið haldinn með þeim hætti sem við þekkjum hann í dag, í samstarfi kristinna trúfélaga. Áður höfðu íslenskar konur sem kynnst höfðu bænadeginum er- lendis komið saman til bæna þennan dag. Hjálpræðisherinn á Islandi hefur áratugum saman haft forystu um undirbúning bænadagsins en hefur nú látið þjóðkirkjunni eftir for- ystuna." - Hvenær var a 1- þjóðlegur bænadagur kvenna tekinn upp? „Upphaf bænadags- ins má rekja til 19. ald- arinnar þegar konur í Bandaríkj- unum hófu bænastundir fyrir kristniboði og fátæku fólki um allan heim. Um aldamótin komu konur í Kanada til liðs við þær og í lok þriðja áratugar síðustu al- dar voru löndin 33. Þá hafði fyrsti föstudagur í mars verið valinn sem alþjóðlegur bænadagur kvenna. Nú eru konur í yfir 170 ► María Ágústsddttir fæddist á Egilsstöðum 20. febrúar 1968. Hún lauk stúdentsprófi frá Eystri-borgaradyggðarskólan- um í Kaupmannahöfn 1986 og embættisprófi í guðfræði frá Há- skóla íslands 1992. Prófi í upp- eldis- og kennslufræði lauk hún frá sömu stofnun 1994. María var prestur í fjögur ár í Dómkirkj- unni í Reykjavík, siðan í Háteigs- kirkju, héraðsprestur í Reykja- víkurprófastsdæmi vestra, sjúkrahúsprestur á Landsspítal- anum en sinnir nú afleysinga- störfum og fræðimennsku. Maria er gift Þresti Jónssyni rafmagns- verkfræðingi og eiga þau tvö börn. löndum þátttakendur í bænadeg- inum, sem hefst við sólarupprás á eyjunum á Kyrrahafi og lýkur 40 klukkustundum síðar við strend- ur Alaska. Höfuðstöðvar bæna- dagsins eru í New York og þaðan er dagskráin send út sem borin er fram á nærri 200 tungumálum um allan heim 3. mars. nk.“ -Hafa svona bænadagar þýð- ingu fyrir konur? „Já, að okkar mati hafa þeir alla vega tvíþætta þýðingu, í fyrsta langi er mikill styrkur að því að vita að konur um allan heim biðja saman sömu bænirnar og að við biðjum hver fyrir ann- arri, þetta eílir kjark og samein- ingarmátt kvenna, í öðru lagi hef- ur samkirkjulegi þátturinn mikla þýðingu, að við konur úr ólíkum kristnum kirkjudeildum lærum að vinna saman og meta hver aðra. Loks má nefna að augu okkar opnast fyrir kjörum kvenna í ólíkum löndum, sögu þeirra og menningu." - Hvað er þessi bænastund löng? „Hún er ein og hálf klukku- stund. Að þessu sinni er bænast- undin heldur viðameiri en verið hefur, við byrjum á því að ungar konur ganga inn kirkjuna á leikrænan hátt, og fáum að sjá ungu stúlkuna reista við í táknrænum skilningi, við játum syndir okkar frammi fyrir Guði, þiggjum endurnýjun lífsins og heyrum lesið úr ritningunni hvatningarorð til ungra kvenna. Ung kona frá kristilegu stú- dentafélagi, Guðný Einarsdóttir, flytur okkur hugleiðingu. Allir eru velkomnir, karlar sem kon- ur.“ Indónesískar konur semja dagskrána núna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.