Morgunblaðið - 03.03.2000, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 3. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hlutverk samstarfsnefndar Sjúkraliðafélags Islands og ríkisvaldsins
Raðar í launaflokka og reyn-
ir sættir í ágreiningsmálum
SAMKVÆMT kjarasamningi Sjúkraliðafélags ís-
lands við ríkisvaldið hefur samstarfsnefnd aðila það
hlutverk með höndum að fjalla um röðun starfa í
launaflokka og ná sáttum í ágreiningsmálum sem
rísa kunna út af kjarasamningnum á samningstím-
anum, en samningur sjúkraliða gildir til 1. nóvem-
ber í haust.
Um 200 af rúmlega 560 sjúkraliðum sem starfa á
Ríkisspítölunum og Sjúkrahúsi Reykjavíkur sögðu
upp störfum fyrir síðustu mánaðamót og taka upp-
sagnir þeirra gildi 1. júní næstkomandi. Fram hef-
ur komið að launamál sjúki-aliða hafi verið til um-
ræðu í ofangreindum samstarfsnefndum án þess að
það hafi skilað niðurstöðu og var slíkur fundur
haldinn á þriðjudaginn var.
Hvor um sig tilnefnir tvo
Samkvæmt samningsákvæðinu skulu samnings-
aðilar hvor um sig tilnefna tvo fulltrúa og tvo til
vara í samstarfsnefnd sem hafi m.a. það hlutverk að
fjalla um röðun starfa í launaflokka og koma á sátt-
um í ágreiningsmálum sem rísa kunni út af samn-
ingnum. Eins skuli hún fjalla um röðun starfa sam-
kvæmt 25. gr. laga um kjarasamninga opinbeiTa
starfsmanna, en samkvæmt henni skal ákveða kjör
starfsmanna nýrra stofnana eða þegar um er að
ræða nýjar stöður með samkomulagi fjármálaráð-
herra og þeirra stéttarfélaga sem í hlut eiga.
Þá kemur einnig fram að hvor aðili um sig geti
skotið ági’einingsefnum tU til nefndarinnar og kall-
að hana til starfa og skal nefndin svara erindum
innan fimm vikna frá því þau voru fyrst borin form-
lega fram á fundum hennar. Verði nefndin sam-
mála um breytingar á röðun eða öðru því sem til
hennar hefur verið vísað skal breytingin gilda frá
og með næstu mánaðamótum eftir að erindið var
fyrst borið fram formlega í nefndinni nema annað
sé sérstaklega ákveðið.
Sveigjanleikinn meiri en viðurkennt er
Kiistín Guðmundsdóttir, foi-maður Sjúkraliðafé-
lagsins, segir að samstarfsnefndirnar eigi að taka
upp ágreiningsefni og túlkun á kjarasamningnum
og hún telji að sveigjanleiki gildandi kjarasamnings
sé miklu meiri en almennt sé viðiu-kennt. í umræðu
innan samstarfsnefndarinnar hafi sjúkraliðar ekki
sett fram neinar kröfur, en þeir hafi bent á þennan
sveigjanleika, til dæmis á ákvæði í honum þess efn-
is að það sé hægt að taka upp starfsmat.
Kristín sagði að mikU óánægja væri með kjörin
meðal sjúkraliða. Það ætti sér meðal annars þær
skýringar að samið hefði verið til mjög langs tíma
síðast og síðan hafi það gerst að milli kjai'asamn-
inga hafi ýmsir hópar verið að fá langt umfram
gerða kjarasamninga, til dæmis læknar og hjúkr-
unarfræðingar, og það hafi einnig orðið tU þess að
skapa óánægju.
Hægt að komast milli Reykjavíkur og Akureyrar fyrir 8.730 kr. báðar leiðir
Samkyn- i
hneigðir fái
að ættleiða
börn
RUMLEGA helmingur landsmanna
er þeirrar hyggju að samkynhneigð-
ir eigi að fá að ættleiða börn. I nýrri
skoðanakönnun Gallups kváðust j
22% aðspurðra mjög hlynnt þegar *
spurt var ertu fylgjandi eða á móti
því að samkynhneigðir fái að ætt-
leiða börn. 30,9% kváðust frekar
hlynnt. 12,2% sögðu hvorki af né á.
14,8% aðspurðra voru frekar andvíg
og 20,1% mjög andvígt.
Athygli vekur að konur eru mun
umburðarlyndari en karlar í þessu
efni. 60,8% kvenna kváðust fylgjandi
ættleiðingu samkynhneigðra, en að- j
eins 44,3% karla. Þegar úrtakið er j
greint eftir aldri er áberandi mest ‘
fylgi við að samkynhneigðir megi
ættleiða börn í aldurshópnum 18 til
24 ára eða 65,2%, en í aldurshópun-
um 25 til 65 ára var um helmingur
þeirrar skoðunar að það ætti að vera
leyfilegt. Þá mældist fólk á lands-
byggðinni heldur hlynntara ættleið-
ingum af þessum toga en íbúar á höf-
uðborgarsvæðinu.
Segjast í harðri
samkeppni við
einkabflinn
ÓDÝRASTA flugfargjald sem Flug-
félag íslands býður á flugleiðinni
Reykjavík-Akureyri er 8.730 kr.báð-
ar leiðir og er þar um að ræða svo-
kallað bónussæti. Þar er hins vegar
um takmarkað sætaframboð að ræða
og ýmsar kvaðir fylgja þessum
flugmiðum.
Dýrasta flugfargjaldið á þessari
sömu leið, sem hins vegar býður upp
á frelsi hvað fyrirkomulag ferðalag-
sins varðar, eru svokölluð forgangs-
sæti, en slíkur flugmiði kostar 14.330
kr. báðar leiðir.
Árni Gunnarsson, sölu- og mark-
aðsstjóri Flugfélags íslands,
leggur áherslu á að félagið muni
ekki hækka verð á fargjöldum í inn-
anlandsflugi vegna þeirra tíðinda að
Íslandsílug hætti áætlunarflugi til
Akureyrar, Egilsstaða og Vest-
mannaeyja, enda líti stjómendur
þess svo á að þeir séu í harðri sam-
keppni við einkabílinn hvað fólks-
flutninga varðar.
Ámi segir hins vegar ekki hægt að
útiloka verðhækkanir vegna t.d.
kjarasamninga og eldsneytissamn-
inga og bendir hann á að eldsneytið
hafi hækkað um 20% í vikunni. Hann
bendir jafnframt á að félagið sé ekki
með nema um 20% markaðshlutdeild
Fargjöld Flugfélags íslands frá Reykjavík 200C
FORGANGSSÆTI
Flug frá Reykjavík,
fram og til baka, Flug Fargjald Skattur SAMTALS
Ársmiði, má kaupa aðra leiðina,
1000 vildarpunktar aðra leið, ekkert
breytingargjald, endurgreitt að fullu
til Akureyrar Rek-AEY-Rek 14.000 kr. 330 kr. 14.330 kr.
til Egilsstaða Rek-EGS-Rek 16.000 kr. 330 kr. 16.330 kr.
til ísafjarðar Rek-IFJ-Rek 14.000 kr. 330 kr. 14.330 kr.
til Vestmannaeyja Rek-VEY-Rek 10.000 kr. 330 kr. 10.330 kr.
BÓNUSSÆTI
Frá Reykjavík,
flug fram
og til baka,_______Flug Fargjald Skattur SAMTALS
r Miði gildir í 1 mán., eingöngu hægt að kaupa
báðar leiðir, borgað við bókun, 0 vildarpunkt.,
lágmarksdvöl 2 nætur, breytingargj. 1.500 kr.,
endurgreitt að frádregnum 1.500 kr.
til Akureyrar Rek-AEY-Rek 8.400 kr. 330 kr. 8.730 kr.
tll Egilsstaða Rek-EGS-Rek 9.400 kr. 330 kr. 9.730 kr.
til ísafjarðar Rek-IFJ-Rek 8.400 kr. 330 kr. 8.730 kr.
til Vestmannaeyja Rek-VEY-Rek 6.900 kr. 330 kr. 7.230 kr.
á flutningum á fólki til Akureyrar, hækka ílugfargjöldin, þeir vilji jú
þar ríki hörð samkeppni við rútur og ekki missa fólk úr flugsamgöngum
einkabíla og því sé óviturlegt að yfir í frekari notkun á bílum.
Frama- _
dagar í HI
FRAMADAGAR 2000 eru at-
vinnulífsdagar Háskóla íslands
og verða haldnir í Háskólabíói í
dag í sjötta sinn. AIESEC, al-
þjóðlegt félag háskólanema, sjá
um skipulagninguna á dögun-
um og er tilgangurinn fyrst og
fremst að leiða saman atvinnu-
lífið og starfsemina innan Há-
skólans.
Hér gefst nemendum tæki-
færi til að kynna sér starfs-
hætti margra íslenskra fyrir-
tækja, sem mörg hver eru
leiðandi á sínu sviði. Frama-
dagar eiga erindi tii allra nem-
enda á háskólastigi og er þetta
stór liður í tengslum atvinnu-
lífsins og Háskólans, segir í
fréttatilkynningu. Framadagar
2000 verða í Háskólabíói í dag,
3. mars frá kl. 10:15-16:00.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Yfir eitt hundrað
seldir bílar
YFIR 100 notaðir bflar seidust í
gær á Tímasprengju Heklu, útsölu
á notuðum bflum. Utsalan hófst kl.
5 í gærmorgun og biðu þá um 50
manns eftir að vera hleypt inn.
Dæmi voru um að bflar seldust á
400 þúsund krónum undir ásettu
verði. Á myndinni er Jón Ragnar
Jónsson að skoða bfl snemma morg-
uns í gær.
Pappírslaust farsölukerfi
hjá Flugfélagi Islands
Hlynur Elisson, fjárrnálastjóri og verkefnisstjóri
MultiRes-kerfisins, Árni Gunnarsson, sölu- og
markaðsstjóri, og Jón Karl Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Flugfélags íslands.
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
FARMIÐAR munu heyra sögunni
til fyrir viðskiptavini Flugfélags ís-
lands, en félagið mun í lok mars taka
upp nýtt farsölu- og upplýsingakerfi
þar sem hætt verður að nota farseðla
og tekin upp rafræn viðskipti. Nýja
kerfið veitir viðskiptavinum aðgengi
á Netinu til þess að þóka sig sjálfir í
flug og ganga frá greiðslu, en einnig
verður bókað og selt í gegnum síma
eins og verið hefur.
Þessu nýja fyrirkomulagi er ætlað
að stuðla að betri þjónustu og draga
úr rekstrarkostnaði en Flugfélag Is-
lands gerir ráð fyrir að spara um 50
milljónir árlega með tilkomu pappír-
slausra farseðlaviðskipta. Jón Karl
Ólafsson, framkvæmdastjóri Flugfé-
lags Islands, segir farmiðaútgáfu
vera áratuga gamalt fyrirkomulag
sem ekkert hefur breyst þrátt fyrir
hraðar tækniframfarir og miklar
breytingar í samskiptum í viðskipta-
heiminum undanfarin ár. Rafræn
viðskipti séu í raun umhverfisvæn og
muni auk þess leysa af hólmi þung-
lamalegt kerfi sem byggist á pappír
og mikilli skriffinnsku.
Jón Karl segir það ekki vera hugs-
un félagsins að bókanir viðskiptavina
á Netinu komi til með að leysa sí-
mapantanir af hólmi, en hins vegar
sé um ótvírætt hagræði fyrir við-
skiptavini að ræða þar sem gert
verði ráð fyrir mun minni bið í innrit-
unarsal heldur en hingað til hefur
verið.
Þegar viðskiptavinur bókar sjálf-
ur sitt flugfar á Netinu getur hann
greitt fyrir flugfarið með kredit-
korti. Hann getur ennfremur bókað
farið sitt og greitt síðan fargjaldið
við brottför. Flugfélag íslands gefur
líka út sérstök flugkort sem hægt er
að greiða með og halda yfirlit yfir
innanlandsferðir. Þeir sem þui'fa
kvittanir eða ferðayfirlit geta fengið
þau send í pósti eða faxi og ennfrem-
ur er hægt að prenta út upplýsingar
af Netinu.
Einu pappíramir sem nauðsynleg-
ir era fyrir far-
miðalaust flug hjá
FÍ eru brottfarar-
spjöldin. Jón Karl
segir þessa breyt-
ingu hvorld leiða
til fækkunar
starfsfólks né j
heldur draga úr j
persónulegri og
staðbundinni
þjónustu, heldur
frekar gefa mögu-
leika til þess að
auka hana.
Flugfélag ís-
lands kaupir kerfi
þetta frá banda-
ríska hugbúnaðar-
fyrirtækinu Radixx og er eitt fyrsta
flugfélagið til þess að taka upp slíkt
kerfi. Jón Karl segir nýja farsölu-
kerfið, sem kallast MultiRes, fela í
sér mikla einföldun í notkun fyrir
starfsfólk og munu allir afgreiðslu-
staðir og umboðsmenn FI hafa sama
aðgang að skráningu og upplýsing-
um í nýja kerfinu. „Gamla Ámadeus-
kerfið þjónar okkur ekki lengur, er
þungt í vöfum og á meðan það tekur
starfsmann þrjár vikur á sérstöku
námskeiði að læra á gamla kerfið,
tekur það aðeins tvo daga í þessu
nýja,“ segir Jón Kari Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Flugfélags íslands.