Morgunblaðið - 03.03.2000, Page 18

Morgunblaðið - 03.03.2000, Page 18
18 FÖSTUDAGUR 3. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Reyðarfirði - Aimennur fundur með Sturlu Böðvarssyni samgönguráð- herra var haldinn á Reyðarfirði á þriðjudag. Tæplega 60 manns mættu til að hlýða á ráðherra. Jarðgangamál bar hæst í fyrir- Stunda kanínu- búskap Vaðbrekku - Bræðurnir Ævar Þor- geir og Marteinn Óli Aðalsteins- synir í Klausturseli stunda kanínu- búskap þó í litlum mæli sé. Þeir höfðu þrjár kanínur, en á dögunum fjölgaði þeim um helming þegar þrír litlir kanínuungar fæddust. Tveir þeirra voru hvítir eins og mamman en einn brúnleitur eins og pabbinn. Þeir bræður hafa yfir að ráða smá horni í hænsnakofanum undir kanínubúskapinn sem að vísu er ekki stór f sniðum svo hornið dugir alveg. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Ævar Þorgeir og Marteinn ÓIi sýndu Ijósmyndaranum stoltir kaninu- fjölskylduna sýna, foreldra með þrjá unga. Jarðgöng rædd á fundi með samgönguráðherra á Reyðarfírði Austfírðingum þykir hlutur fj ór ðungsins rýr spurnum og umræðum heimamanna. Eru þeir mjög ósáttir við hlut fjórð- ungsins í jarðgangaáætlun sem ný- lega var kynnt. Þykir hann lítill mið- að við þarfir fólks í héraði og einnig í samanburði við úthlutun til annarra fjórðunga. Kannanir hafa sýnt að á síðustu 5 árum hefur orðið 70% aukning umferðar eftir að Hvalfjarð- argöngin voru tekin í notkun, 1995 óku þá leið 1.842 bflar á dag en um göngin aka 3.139 bílar í dag. Einnig kom fram að 38% hring- vegarins er í Austurlandsumdæmi og vantar mikið á að hann komist í svipað horf og í öðrum fjórðungum. Flutningskostnaður er mjög hár, m.a. vegna þungaskatts sem kemur niður á þeim sem aka lengst og á leiðinni Reykjavík-Austurland eru brýr sem ekki bera leyfða hámarks- þyngd flutningabfla. Eru því allir að- drættir mun kostnaðarsamari en annars staðar á landinu. Töldu sumir að Islandspóstur hefði fundið út, að það væri jafnvel þrisvar sinnum dýr- ara að flytja pakka frá Reykjavík til Reyðarfjarðar en til Þórshafnar á Langanesi, hvað sem veldur því. Ferðamál, fjarskipti, vegamál, flugmál og hafnarmál eru þeir flokk- Jarðgöng voru efst á baugi á fundi ar sem tilheyra samgönguráðuneyt- inu og kom Sturla víða við í fram- söguerindi sínu. Ræddi hann um ferðamennsku sem þyrfti að skila meiri arði, lengja þyrfti ferðamanna- tímann, flytja þyrfti fleiri verkefni út á land t.d að heimamenn tækju að sér flugstöðvarekstur og Vegagerðin fengi fleiri verkefni heim í hérað. Leggja þyrfti áherslu á lagningu breiðbandsins og uppbyggingu ISDN-kerfisins. Undirbúa sölu Morgunblaðið/Hallfríður Bjamadóttir Sturlu Böðvarssonar á Reyðarfirði. Landssímans og að póstur verði bor- inn út 5 daga vikurnar. F arið var yfir fjárveitingar til samgöngumála kjör- dæmisins. Nokkur umræða varð um framtíð Reykjavíkurflugvallar og hvort þeir sem nota hann verði spurðir álits ef til atkvæðagreiðslu kemur um flutn- ing vallarins. Fyrirspurnir komu um m.a. veðurstöðvar, öryggismál sjó- manna og fjarskipti sem víða eru lé- leg í fjórðungnum. Ný brú yfír Hörgsá í V-Skaftafellssýslu Nýi vegarkaflinn mun liggja sunnan við núverandi veg, frá ásnum neðan Keldunúps vestan Hörgsár og að útihúsum Múla- kots austan ár. SKIPULAGSSTOFNUN ríkisins hefur fallist á lagningu nýs 1,8 kílómetra vegar um Hörgsá á Síðu í Vestur-Skaftafellssýslu og bygg- ingu tvíbreiðrar brúar yfir ána. Markmið framkvæmdarinnar er að bæta vegferilinn og auka um- ferðaröryggi á þessu svæði og er stefnt að því hefjast handa á fyrri hluta þessa árs. Nýi vegarkaflinn mun liggja sunnan við núverandi veg, frá ásn- um neðan Keldunúps vestan Hörgsár og að útihúsum Múlakots austan ár. Skipulagsstofnun sam- þykkir umrædd áform, með vísan í niðurstöður sínar á mati á um- hverfisáhrifum þeirra, með því skilyrði að samráð verði haft við náttúruvemd ríkisins um tilhögun framkvæmda og frágang vegar og námusvæða að framkvæmdum loknum. Einnig skal haft samráð við Landgræðslu ríkisins og veiði- málastjóra vegna heftingar land- brots á bökkum Hörgsár. Morgunblaðið/Ingimundur Samvinnunefnd um Svæðisskipulag Mýrasýslu ásamt starfsmönnum nefndarinnar og ráðgjöfum. Éf ‘1 \ ,B b ' m o x - , 'Á . /J Vorum að fá í sölu góöa 4ra herb., um 100 fm íbúð á tveimur hæðum, í litlu fjölbýli, á þessum eftirsótta stað. Gott skipulag. Parket og flísar. Grillsvalir. Sameign nýlega yfirfarin. Áhv. 4,1 m. húsbréf. V. 13,9 m. 2602 533 4800 Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is Bergþórugata Svæðisskipulag Mýrasýslu til ársins 2010 samþykkt Borgamesi - Samvinnunefnd um svæðisskipulag Mýrasýslu sam- þykkti á 26. fundi sínum, sem hald- inn var við Langá á Mýrum 24. febr- úar sl. tillögu að svæðisskipulagi Mýrasýslu 1998-2010. Nefndin var skipuð árið 1995. í henni áttu sæti tveir fulltrúar fyrir hvert sveitarfélaganna fimm sem þá voru í sýslunni auk formannsins Garðars Halldórssonar sem skipað- ur var af skipulagsstjórn. Ritari nefndarinnar kom frá Skipulagi rík- isins, nú Skipulagsstofnun. Hlutverk nefndarinnar var að vinna sameigin- lega eðlisræna landnotkunaráætlun fyrir allt svæðið og stuðla þannig að hagkvæmri nýtingu og fyrirhyggju við ákvarðanatöku um landnotkun. Nefndin réð sér skipulagsráð- gjafa, Hildigunni Haraldsdóttur arkitekt. Hefur hún aðstoðað nefndina við að koma forsendum, markmiðum og tillögum nefndarinnar, sveitar- stjóma og ýmissa hagsmunaaðila í þann búning sem krafist er skv. skipulags- og byggingarlögum. Þ.e. skipulagsuppdrátt og greinargerð, sem síðan hefur fengið meðferð sam- kvæmt lögum. Á vinnslutímanum fækkaði sveit- arfélögunum í tvö vegna sameining- ar og tekið hafa gildi ný skipulags- °g byggingarlög, sem. m.a. höfðu það í för með sér að skipulagsstjóm ríkisins var lögð niður. Meðan á vinnunni stóð var haft samband við íbúa svæðisins, opin- berar stofnanir og ýmsa aðra aðila auk þess sem kynningarfundir fyrir íbúa og hagsmunaaðila vom haldnir um tillöguna á vinnslustigi. Tillagan var tvívegis auglýst. Fyrst 9. júní 1999 og bámst ellefu athugasemdir. Breytt tillaga var auglýst 15. októ- ber 1999 og þá bárust fjórar athuga- semdir. Samvinnunefnd afgreiddi allar at- hugasemdir skriflega og sendi af- greiðslu sína sveitarstjórnunum tveimur, sem nú hafa samþykkt Svæðisskipulag Mýrasýslu 1998 - 2010, skipulagsuppdrátt og greinar- gerð. Á fundinum undiirituðu nefndar- menn uppdrætti og greinargerð, auk skipulagsuppdráttar sem ekki er ætlaður til staðfestingar en hugsað- ur sem tilmæli til nefndarinnar til nánari úfærslu í aðalskipulagsvinnu sveitarfélaganna. Samvinnunefndin afgreiddi síðan samþykkt Svæðis- skipulags Mýrasýslu 1998-2010 til Skipulagsstofnunar með ósk um staðfestingu umhverfisráðherra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.