Morgunblaðið - 03.03.2000, Side 30
30 FÖSTUDAGUR 3. MARS 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Vel kryddaður Sjeikspír
Morgunblaðið/Þorkell
Orka leikaranna og leikgleði er áþreifanleg og smitaði frá sér út um all-
an salinn, segir m.a. í umfjölluninni.
LEIKLIST
I ð n 6
SJEIKSPÍR EINS OG
HANNLEGGURSIG
Sjeikspírvinafélag Reykjavíkur
(SVR) og Leikfélag íslands. Höf-
undar: Jess Borgeson, Adam Long
og Daniel Singer. Islensk þýðing:
Gísli Rúnar Júnsson. Leikstjúri:
Benedikt Erlingsson. Leikarar:
Friðrik Friðriksson, Halldúr Gylfa-
son og Halldúra Geirharðsdúttir.
Leikmynd og búningar: Börkur
Júnsson. Lýsing: Kjartan Þúrisson.
Miðvikudaginn 1. mars.
„SJEIKSPÍR eins og hann leggur
sig“ er sýning fyrir alla þá sem alltaf
hafa ætlað að kynna sér Shake-
speare, en ekki mátt vera að því. Hér
er boðið upp á öll verk meistarans á
97 mínútum! Þetta er einnig sýning
fyrir alla þá sem þegar þekkja verk
Shakespeares (eða a.m.k. einhver
þeirra) þvi þeir munu eflaust
skemmta sér enn betur en hinir (sem
ég fullyrði þó að munu skemmta sér
konunglega). Hér er um fullkomlega
fáránlegt verk að ræða, sem engu að
síður er afbragðs skemmtun í alla
staði. Það er skapað af þremur ung-
um leikurum frá Kaliforníu - Borge-
son, Long og Singer - fyrir um
fimmtán árum og í því er gert kostu-
legt grín að verkum hins óumdeilda
meistara, svo og að fræðimönnum og
þeim sem taka Shakespeare of al-
varlega og hefja hann og verkin á
stall. Grín þeirra félaga nær reyndar
vel út fyrir verkin og þeirra sam-
hengi og það sama má segja um þá
íslensku uppfærslu sem frumsýnd
var í Iðnó í fyrrakvöld, en með
skemmtilegri staðfærslu spannar
grinið islenska samtíð ekki síður en
breskan bókmenntaarf. Islenska
staðfærslan tekur stað amerískra til-
vísana í „frumtexta" og er það vel.
Þetta leikverk mun hafa orðið til
við spunaleik og samvinnu hinna
þriggja höfunda og ber verkið með
sér þann uppruna, er „teygjanlegt“
og „eftirgefanlegt" og hafa hinir ís-
lensku flytjendur þess nýtt sér það.
Verkið minnir þó nokkuð á íslenskt
verk sömu ættar, þ.e. verk sem unn-
ið var út frá spuna og með fornan
bókmenntaarf, nefnilega sýningu
leikhópsins Ormstungu á Gunnlaugs
sögu Ormstungu, sem er með
skemmtilegri sýningum sem undir-
rituð minnist frá síðari árum. Það er
kannski ekki tilviljun að þau sem
stóðu að Ormstungu-sýningunni
skuli einnig vera hér að verki: þau
Benedikt Erlingsson (hér í hlutverki
leikstjóra) og Halldóra Geirharðs-
dóttir, en auk þeirra taka þátt í sýn-
ingunni þeir Friðrik Friðriksson og
Halldór Gylfason.
Mikið mæðir á leikurunum þrem-
ur; þau þurfa jú að leika öll hlutverk
(eða svo til) allra verka Shake-
speares á einni kvöldstund. Leikar-
arnir þrír eru á sviðinu án hvíldar
allan tímann og standa sig allir með
stakri prýði. Orka þeirra og leikgleði
er áþreifanleg og smitaði frá sér út
um allan salinn. Erfitt er að taka út
einstaka túlkanir í svo fjölbreyttri
flóru, en þó má nefna að Halldór
Gylfason var stórkostlegur Rómeó
og ekki síðri í hlutverki fóstru Júlíu.
Halldóra Geirharðsdóttir brá sér í
gervi kónga og drottninga með létt-
um leik og fór nýja leið í túlkun sinni
á drukknun Ófelíu. Friðrik Friðriks-
son naut sín einna best í hlutverki
hins ólánsama Hamlets - túlkun
hans þar er ógleymanleg.
Öðrum þræði fjallar þetta verk
um leikhúsið, eðli þess, takmarkanir
og möguleika. Verk Shakespeares
eru „leikrit“ í leikritinu og að þeim
eru farnar ýmsar mögulegar og
ómögulegar leiðir: Títus Andróníkus
sem matreiðsluþáttur; Óþelló rapp-
aður; sögulegu verkin sem hand-
boltaleikur; Makbeð sem bamaleikr-
it o.s.frv. Kenjar leikaranna og
skapsmunir þeirra fá einnig rými í
verkinu ekki síður en viðfangsefnið
sem þeir eru að fást við, þ.e.a.s. verk
Sjeikspírs. Margar af skemmtileg-
ustu senum leiksins tengjast einmitt
þessari vídd verksins og auka gildi
þess. Ein slík sena er þegar texti
Shakespeares nær slíkum tökum á
flytjanda (Halldóru) að hún ræður
ekki við sig og fer með hann af mik-
illi innlifun þótt ætlun hennar hafi
verið að „skauta" yfir hann í flýti.
(Þess má geta að þessi túlkun á sen-
unni er verk leikstjórans (eða leik-
konunnar?) þ.e. er ekki í frumtext-
anum og er dæmi um afar
skemmtilega útfærslu leikhópsins.)
Hamlet er það verk sem fær hvað
mest rými í leiknum og að því era
farnar ýmsar skemmtilegar og
óvæntar leiðir og er þessi hluti leik-
ritsins á köflum alveg stórkostlega
fyndinn.
Þýðing Gísla Rúnars Jónssonai- á
verkinu er afar vel gerð. Gísli Rúnar
hefur vissulega áður sýnt að honum
er einkar lagið að þýða gamanleiki
og honum bregst ekki bogalistin hér.
Hann notar að vild úr þeim íslensku
Shakespeare-þýðingum sem tiltæk-
ar era eða þýðir sjálfur þar sem það
hentar honum betur. Textinn í heild
er bráðskemmtilegur og ljómar af
hugvitssemi og góðum húmor þýð-
andans. Þá hefur hin íslenska stað-
færsla (sem leikhópurinn sjálfur á
mikinn þátt í) einnig tekist frábær-
lega, eins og fyrr er nefnt, og góðar
lausnir hafa fundist á ýmsum atrið-
um í framtexta sem ekki henta ís-
lenskum aðstæðum. (Þannig er t.d
útfærslan á Makbeð sem barnaleik-
riti íslensk uppfinning en höfundarn-
ir gera ráð fyiár að sá kafli sé leikinn
með skoskum hreim. Hvort tveggja
er bráðfyndið á sviði, þótt ólíkt sé.)
Leikhópurinn Sjeikspírvinafélag
Reykjavíkur á ekkert nema lof skilið
fyrir að setja þessa bráðskemmti-
legu sýningu á svið. Allt gengur hér
vel upp: leikarar fara á kostum í
gamanleik; sviðsmynd Barkar Jóns-
sonar er einföld og hnitmiðuð, hefur
allt sem til þarf, og búningar hans
eru í anda verksins, skoplegir og lit-
ríkir; lýsing Kjartans Þórissonar
skapar ætíð rétta stemmningu og
það sama gerir vel valin tónlistin.
Benedikt Erlingsson leikstjóri hefur
samþætt alla þræði af öryggi og
kómísku innsæi og getur verið
ánægður með verk sitt.
Að lokum má benda þeim sem
hyggja á ferð til London á næstunni
á að The Reduced Shakespeare
Company hefur sýnt The Complete
Works of William Shakespeare
(Abridged) í Criterion Theatre við
Piccadilly Circus um nokkurra ára
skeið. Eg mæli eindregið með þeirri
sýningu ekki síður en þeiiri í Iðnó.
Eg get tekið undir með leikstjóra
sýningarinnar sem sagði í viðtali við
Mbl. (29. feb.) að reyndar sé hann
„ekki viss“ um að fólk verði miklu
nær um snilli Shakespeares eftir
sýninguna en það er önnur saga.
Hitt má vel vera að einhverjir áhorf-
endur láti sýninguna verða sér
hvatningu til þess að blása rykið af
Shakespeare-þýðingunum uppi í
hillu og hefja lesturinn.
Soffía Auður Birgisdóttir
Leikdeild Eflingar sýnir Sfldina
Ljósmynd/Atli Vigfússon
Fjöldi fúlks úr nærliggjandi sveitum tekur þátt í uppfærslu leikdeildar
ungmennafélagsins Eflingar í Reykjadal á leikritinu Síldin kemur.
Laxamýri. Morgunbiaðið.
ÞAÐ var mikið um dýrðir í félags-
heimilinu Breiðumýri sl föstudags-
kvöld þegar leikdeild ungmennafé-
lagsins Eflingar í Reykjadal
framsýndi Síldin kemur og síldin
fer eftir Iðunni og Kristínu Steins-
dætur í leikstjórn Arnórs Benónýs-
sonar.
Fjöldi fólks úr sveitinni tekur
þátt í sýningunni og þetta er þriðja
árið í röð sem nemendur Fram-
haldsskólans á Laugum koma til
liðs við félaga í Eflingu. Þetta gerir
leikdeildinni fært að setja upp svo
fjölmenna sýningu sem hér um ræð-
ir og hópurinn er stór og kraftmik-
ill.
Söngur og dans er vinsælt efni
hjá leikdeild Eflingar og tónlistar-
stjórinn að þessu sinni er Eistlend-
ingurinn Jaan Alavere. Hann er
Þingeyingum að góðu kunnur sem
tónlistarkennari við Stórutjarna-
skóla og hann stjórnar einnig söng-
félaginu Sálubót auk þess að leika
með Sinfóníuhljómsveit Norður-
lands. Hann bjó um tíma í Tartu í
Eistlandi og spilaði klassíska tónlist
við eitt elsta leikhús landsins.
Með hlutverk Bergmundar síld-
arútvegsmanns fer Snorri Krist-
jánsson en aðrir helstu leikendur
eru Aðalbjörg Pálsdóttir, Ásgrímur
Guðnason, Guðmundur Arnarson,
Friðrika Illugadóttir, Hjörtur Hólm
Hermannsson, Hanna Þórsteins-
dóttir, Hörður Þór Benónýsson,
Ingólfur Ingólfsson, Jón Friðrik
Benónýsson, Karl Ingólfsson,
Kristjana E. Sigurðardóttir, Linda
Björk Guðmundsdóttir, Nanna
María Elvarsdóttir og Þorgerður
Sigurgeii'sdóttii-.
Leiksviðið hefur verið víkkað út
og fer leikurinn víða fram í húsinu.
Þama hefur myndast kaffileikhúss-
stemning þar sem gestir sitja allir
við borð og njóta veitinga meðan á
leiksýningu stendur.
I lok framsýningar var mikið um
dýrðir þar sem öllum leikendum og
þeim sem gerðu sýningu þessa
mögulega vora færð blóm auk þess
sem höfundarnir, þær Iðunn og
Kristín Steinsdætur, vora heiðraðar.
Þá ávarpaði Jón Friðrik Benónýs-
son, sem sjálfur fagnar 30 ára leika-
fmæli um þessar mundir, Sigurð
Hallmarsson frá Húsavík og þakk-
aði honum allt það starf sem hann
hefur lagt leiklistinni til í héraðinu.
Jón Friðrik hefur leikið í 35 verk-
um með mörgum stórum hlutverk-
um og vann hann heilt ár hjá Leik-
félagi Akureyrar og einnig um tíma
hjá Þjóðleikhúsinu og íslensku óp-
eranni.
Leiklistin í Reykjadal er orðin ár-
legur þáttur í menningarlífi Þingey-
inga, en mesta athygli vekur hversu
margir geta handleikið hljóðfæri og
sungið í ekki fjölmennari sveit.
Lófataki ætlaði seint að linna á
Breiðumýri þetta framsýningar-
kvöld. Svo vel var sýningu þessari
tekið.
Morgunblaðið/Kristinn
Arnar Júnsson og Júhann Sig-
urðarson í hlutverkum í leikrit-
inu Abel Snorko býr einn.
80. sýning
á Abel
Snorko
80. SÝNING á franska leikritinu
Abel Snorko býr einn verður á
Stúra sviði Þjúðleikhússins á laug-
ardag og verður síðdegissýning kl.
15.
Leikritið Abel Snorko býr einn
eftir Eric-Emmanuel Schmitt, sem
sýnt var á Litla sviði Þjúðleikhúss-
ins vel á annað ár, hefur nú verið
leikið nokkrum sinnum á Stúra
sviðinu.
Abel Snorko býr einn er lieim-
spekilegt leikrit um ástina, þar
sem gaman og alvara fléttast sam-
an.
Með hlutverk núbelsverðlauna-
höfundai'ins Abels Snorko fer Arn-
ar Júnsson en Júhann Sigurðarson
leikur blaðamanninn Erik Larsen.
Aðeins eru örfáar sýningar eftir.
Sýning
Helgu Ósk-
arsdóttur
NÚ stendur yfir sýning á verk-
um Helgu Óskarsdóttur, í hús-
tökuhúsinu á homi Frakka-
stígs og Lindargötu. (Litla
gula húsinu.) Helga stundaði
nám við Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands og útskrifaðist
með mastersgráðu úr Chelsea
College of Art í London árið
1998.
Sýningin er opin alla daga kl.
15—18 og stendur til 11. mars.
Borgarleik-
húsið inn á
vinnustaðina
BORGARLEIKHÚSIÐ mun á
næstu vikum bjóða uppá 20
mínútna kynningu á einleikn-
um Leitin að vísbendingu um
vitsmunalíf í alheiminum í skól-
um og á vinnustöðum. Leikritið
er eftir ameríska Emmy-verð-
launahafann Jane Wagner og
það er Edda Björgvinsdóttir
sem leikur.
M-2000
Föstudagur 3. mars
Myndlistarsýning Ævintýra-
klúbbsins II hluti.
Nýkaup, Kringlunni kl. 16.
Ævintýraklúbburinn, sem stendur
fyrir Listahátíð þroskaheftra í mars,
opnar annan hluta myndlistarsýn-
ingar sinnar í Kringlunni. Söngur og
dans krydda opnunina en samhliða
sýningunni verður
tekið við framlög-
um í húsakaupa-
sjóð Ævintýra-
klúbbsins. Sýn-
ingin stendur í
tvær vikur.