Morgunblaðið - 03.03.2000, Blaðsíða 50
60IT fóU McCANN'EtlCKSON ■ SlA
MORGUNBLAÐIÐ
fcg FÖSTUDAGUR 3. MARS 2000
EG Skrifstofubúnaður ehf.
Ármúla 20 sími 533 5900 fáx 533 5901
HESTAR
Litföróttur
undan tveim-
ur einlitum
Eftir að farið var að ræða um að litförótti
hrossaliturinn væri í útrýmingarhættu
hafa ýmsar nýjar upplýsingar komið í ljós.
*
Asdís Haraldsdóttir komst að því að Páll
Imsland hefur séð að litförótt getur komið
fram hjá afkvæmi tveggja einlitra hrossa
ef annað er hvítt. Það sannar hesturinn
Reglubrjótur frá Lágafelli.
PÁLL Imsland hóf tilraunir með lit-
förótta litinn sumarið 1996. Hann
vildi ganga úr skugga um að litforótt
gæti komið fyrir með öllum möguleg-
um grunnlitum í íslenska hrossast-
ofninum. Tilraunirnar fóru fram í
tveimur gangmálum og var annað á
Lágafelli í Austur-Landeyjum, en
hitt á Lambastöðum í Hraungerðis-
hreppi.
Grálitföróttur Reglubrjótur
Páll var staddur á Lágafelli vorið
1998 og var að skoða afrakstur til-
raunarinnar. Hann rakst þá á gráan
fola sem bar greinileg einkenni þess
að vera jafnframt litföróttur. Folinn
var ári eldri en tilraunafolöldin, eða
tveggja vetra þegar þetta var. Magn-
ús Finnbogason bóndi á Lágafelli
sagði folann undan Hrafnhildi frá
Lágafelli og Friði frá Kleifum. Þessi
hross eru bæði einlit og samkvæmt
kenningum um litförótta litinn átti
þetta því ekki að geta staðist, því
hingað til hefur verið talið að litförótt
sé til komið fyrir tilstuðlan ríkjandi
erfða og því þurfi annað hvort for-
eldrið að vera litförótt til að fá fram
litinn.
Enginn hafði orðið þess var að
hryssan hefði nokkru sinni strokið
burt, né heldur að annar foli hafi
komið í girðinguna til hennar. Við
eftirgrennslan kom í ljós að enginn
litfóróttur graður foli hafi verið í
Austur-Landeyjum þetta sumar.
Auk þess kastaði Hrafnhildur á rétt-
um tíma miðað við að hafa verið í
girðingu hjá Friði. Folaldið var
dökkt á lit, en Hrafnhildur er dökk-
jörp, nærri svört á bolinn. Friður er
hins vegar grár og var nærri alhvítur
þegar þetta var. Hann er fæddur
rauðbleikur. Þessi ungi og grunsam-
legi foli hlaut nafnið Reglubrjótur.
Erfir liti bæði frá
föður o g móður
Þegar Ijóst var að folinn væri að
sýna fram á brot á reglum um erfða-
lögmálin, sem hingað til hafa verið
taldar réttar, var Ijóst að nauðsyn-
legt væri að taka blóðsýni úr öllum
þremur hrossunum. Það var gert síð-
astliðið sumar og voru þau send til
Svíþjóðar til blóðflokkagreiningar.
Niðurstöður liggja nú fyrir og sýna
að ekkert mælir gegn því að báðir til-
greindir foreldrar séu í raun hinir
réttu, þrátt fyrir litina sem ekki eiga
að geta gefið litförótt.
Páll heldur því fram að Reglu-
brjótur erfi dökkbrúna litinn sem
hann fæddist með frá móður sinni, en
sá litur erfist aðeins á vindhárafeld-
Ljósmynd: Páll Imsland
Reglubrjótur frá Lágafelli. Grálitföróttur undan tveimur einlitum
hrossum. Á fyrri myndinni er hann í undirhárafeldi sem er að falla af,
en á seinni myndinni er hann í nýjum og dekkri sumarfeldi.
inn. Hins vegar erfir hann hvítan lit á
undirhárafeldinn frá föður sínum og
jafnframt þann eiginleika að lýsast
með aldri. Hann mun því með árun-
um hætta að sýna það á skrokki sín-
um að hann er litföróttur þótt hann
geymi eiginleikann í genasafni sínu.
Litir virðast alls ekki erfast þannig
að jafnaði að litur komi frá sitt hvoru
foreldri á sinn feldinn hvor, heldui-
erfist litur að jafnaði á báða feldina í
senn fyrir tilstuðlan sömu gena. Hér
er því á ferðinni einhvers konar af-
brigði í erfðum miðað við venjulegar
eða algengar erfðareglur, afbrigði
sem veldur því að við litaerfðirnar
skipast mismunandi litur á sitt hvorn
feldinn og koma litimir hvor frá sínu
hvoru foreldri.
Þannig varð litförótt fyrst til
A þennan hátt hefur litförótt
augsýnilega fyrst orðið til og síðan
haldist við í gegnum venjulegar ríkj-
andi erfðir og þannig kemur litförótt
samkvæmt þessu ennþá fram af og
til. Þannig mega menn jafnan vænta
þess að fá fram í einlitu stóði sínu lit-
förótt folöld, en aðeins ef þar eru
hvítar hryssur eða hvítur foli.
Páll segist eiga von á því að gegn
þessari frásögn verði sett fram sú
mótbára að Friður sé sjálfur litför-
óttur, en það sjáist bara ekki af því
hann er orðinn hvítur. Hann segir því
til að svara að undan Friði hafi komið
mörg afkvæmi fram á Lágafelli og
því ætti að vera orðið ljóst ef hann
bæri þessi gen sjálfur. Hann ætti þá
að hafa þau frá föður sínum, Gáska
920 frá Hofsstöðum, sem er grár,
fæddur rauðskjóttur. Ekki er vitað
um litförótt undan Gáska nema á
móti litföróttum hryssum, né heldur
IEíBÍEæsÉnss leysir vandann
Reflectix er 8 mm þvkk endurqeislandi einanqrun í rúllum.
7 lög en 2 ytri alúminíum-lög endurgeisla hitann.
Breiddir: 61 og 122 mm. Rúllulengdir: 15, 38 og 76m.
I hóaloft, bak við ofna, í fjós, hesthús, ú rör, ó veggi,
tjaldbotna, sessur, svefnpoka o.m.fl.
Skæri. heftibyssa og límband einu verkfærín.
PÞ
&CO
Þ.Þ0RGRÍMSS0N & C0
ÁRMÚIA 29 S: 553 8640 l 568 6100
S A
ÁÐUR EN LANGT UM LÍÐUR GETUR ÞÚ VERIÐ í