Morgunblaðið - 03.03.2000, Qupperneq 68

Morgunblaðið - 03.03.2000, Qupperneq 68
ÁREIÐANLEIKI ( FLUTNINGUM Leitið upplýsinga í síma 520 2040 www.atlantsskip.is GAMAN SAMAN MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNl 1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RTTSTJ@MBL.IS, AKUREYIII: KAUPVANGSSTRÆTII FÖSTUDAGUR 3. MARS 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. Söluskrifstofu SH - í Rússlandi lokað MEIRA en 500 milljóna króna tap varð á rekstri söluskrifstofu Sölu- miðstöðvar hraðfrystihúsanna hf. í Rússlandi á síðasta ári og verður skrifstofunni lokað. Tapið hefur þeg- ar verið afskrifað að fullu. Að sögn Gunnars Svavarssonar, forstjóra SH, hefur rekstur skrifstof- unnar gengið mjög erfíðlega eftir að efnahagskreppan skall á í Rússlandi árið 1998 og gengi rúblunnar hrundi. Fyrirtækið hafi tapað miklum fjár- munum á því flytja fisk til Rússlands og greiða fyrir hann í erlendum gjaldmiðli en selja hann síðan í rúbl- um. Því hafi verið ákveðið að hætta rekstrinum. Hann segir ástandið á rússneska markaðnum reyndar að batna en hér eftir muni SH selja þangað framleiðslu sína í gegnum söluskrifstofu félagsins í Noregi. Árið 1997 flutti SH 17.800 tonn af fiski og fiskafurðum til Rússlands og 34.000 tonn árið eftir. Þessi útflutn- ingur dróst svo verulega saman á síð- asta ári og var honum í raun og veru hætt um mitt árið og dregið úr allri starfsemi. SH gaf í gær frá sér afkomuvið- vörun en tap samstasðunnar mun aukast nokkuð frá sex mánaða upp- gjöri en þá nam tap af starfseminni í heild 154 milljónum króna. ■ Afkomuviðvörun/21 ■ Tapið meira/24 Fjölmennt var á fundi Flóabandalagsins í gærkvöld. Morgunblaðið/Jónas Oddsteinn Árnason úr Björgunarsveitinni Víkverja í Vík brýtur ís af rafmagnshnum. Til að komast að lfnunni þurfti hann að setjast í gröfu- skóflu yfir ánni Klifanda í Mýrdal. Ising á raflínum og brotnir staurar RAFMAGN fór víða í Vestur- Skaftafellssýslu í óveðrinu í fyrra- kvöld og í íyrrinótt. Mikil ísing hlóðst á raflínur, sem víða slitnuðu, og brotnuðu 30-40 rafmagnsstaur- ar, að sögn Örlygs Jónassonar, um- dæmisstjóra RARIK á Suðurlandi. Búist er við að rafmagn komist á alls staðar að nýju einhvern tímann í dag. Eftir er viðgerð á stofnlínunni frá Hvolsvelli til Víkur. Örlygur sagði mikla fsingu á lín- um ogþyrfti að berja hana af metra fyrir metra. Síðdegis í gær var Björgunarsveitin í Vfk kölluð út til að brjóta af raflínum. Einn þeirra bæja sem varð raf- magnslaus er Suður-Götur í Mýrdal. Jón Hjaltason bóndi sagði að lfnan að bænum hefði slitnað sjö eða átta sinnum frá því hún var lögð. Sagði Jón lfnuna liggja þvert á verstu vindátt á 300-400 metra kafla. Örlygur Jónasson sagði RARIK leggja tugi kílómetra af raflínum í jörðu á hverju ári, aðallega á þekkt- um ísingarsvæðum. Sfðasta sumar hefðu verið lagðar 30-40 km raflagnir í jörð á Suðurlandi. Mýr- dalurinn teldist ekki til mestu ísing- arsvæða, þótt ísingar yrði þar vissu- lega vart. Búið væri að leggja Ifnuna frá Skeiðsflöt og yfir Klif- andi í jörð, eins er línan í Reynis- hverfi komin í jörð en þar féll gamla lfnan nú að miklu leyti. Formaður Eflingar á fjölmennum fundi Flóabandalagsins Samningum ekki lokið án breytinga á sköttum Fallist á 2% hækkun á mótframlagi vinnuveitenda í lífeyrissjóð HALLDÓR Bjömsson, formaður Eflingar, sagði á fundi Flóabanda- lagsins í gærkvöldi að það væri sitt mat að ekki yrði hægt að Ijúka kjara- samningum við vinnuveitendur nema a(5 ríkið kæmi til móts við láglauna- fólk með breytingum á sköttum. Kröfur ASI í þeim efnum væru um að skattleysismörk hækkuðu til sam- ræmis við launaþróun á síðasta ári. Þetta kostaði ríkissjóð ekki neitt ef horft væri til skatttekna hans á síð- asta ári. Halldór fór yfir samningsstöðuna á fundinum og sagði að vinnuveitendur hefðu fallist á að greiða 75 milljónir í sameiginlegan starfsmenntasjóð fé- laganna sem mynda Flóabandalagið. Félögin myndu leggja fram 25 millj- ónir. Líkur væru á að krafan um 2% mótframlag vinnuveitenda í séreign- arsjóð gegn 2% framlagi launagreið- enda næðist fram. Hann sagði að enn væri ágreiningur um tryggingar samnings. Vinnuveitendur hefðu lýst sig tilbúna til að koma til móts við fé- lögin varðandi tengingu við launaþró- im annarra hópa, en hins vegar hefðu þeir algerlega hafnað kröfu þeirra um tengingu við verðbólgu. Halldór sagðist vænta þess að á fundi með Samtökum atvinnulífsins í dag myndu vinnuveitendur leggja fram tillögu um breytingar á grunnkaupi. Búast mætti við að hart yrði tekist á um þær. Halldór minnti á að helmingur félagsmanna í Flóa- bandalaginu væri með dagvinnulaun undir 95.000 kr. á mánuði. Krafa um 5% árlega launahækkun væri því raunhæf og sanngjöm. Heildarkostn- aður við kröfugerðina væri 7,51% á ári. Sigurður Sigurðsson, formaður Hlífar, sagði á fundinum að það væri sitt mat að ekki mætti hvika um fimm eyring frá kröfunni um 91.000 kr. lágmarkslaun og klöppuðu fundar- menn mikið íyrir því. Sigurður Bessason, væntanlegur formaður Eflingar, sagði að sérkjara- viðræður hefðu gengið hægar en hann vænti. Eimskip hefði t.d. slitáð viðræðum um sérkjarasamning nema að fallist yrði á kröfu fyrirtækisins um þrískiptar vaktir, en henni hefðu starfsmenn hafnað. Þá hefðu vinnu- veitendur í fyrradag hafnað því að gera sérkjarasamning við blaðburð- arfólk með þeim rökum að núverandi fyrirkomulag væri gott. Sigurður sagði að þetta fólk hefði til skamms tíma ekki haft lífeyrisrétt eða veik- indarétt. Samninganefnd Flóabanda- lagsins væri hins vegar sammála um að skrifa ekki undir samninga fyrr en fallist hefði verið á kröfuna um sér kjarasamning við blaðburðarfólk. Eimskip með 1.436 milljónir í hagnað REKSTUR Eimskipafélags íslands og dótturfélaga þess skilaði 1.436 milljóna króna hagnaði á árinu 1999, borið saman við 1.315 milljónir króna árið á undan. Rekstrar- tekjur samstæðunnar námu 15.370 milljónum króna árið 1999 en voru 16.573 milljónir króna árið 1998. Samdráttur í tekjum var einkum vegna minnkandi um- svifa félagsins í Rússlandi og Eystrasaltsríkjunum, en þyngst vegur að Maras Linija Ltd., dótturfélag Eimskips, hætti rekstri á fyrri hluta árs- ins. Þá leiddi efnahagslægð í Austurlöndum fjær til sam- dráttar í flutningum þangað. Alls nam söluhagnaður fé- lagsins 455 milljónum króna. Þar af nam hagnaður af sölu Skógafoss og Reykjafoss 164 milljónum króna og söluhagn- aður af hlutabréfum Burðar- áss hf. var 188 milljónir króna. Samtals námu fjárfestingar samstæðunnar á síðasta ári 6.442 milljónum króna. ■ Verðmætaaukning/20
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.