Morgunblaðið - 23.03.2000, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 23.03.2000, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000 11 FRÉTTIR Sjö dagar í verkfall 26 landsbyggðarfélaga Verkamannasambansins að öllu óbreyttu Segja að samnmgi Flóabandalagsins hafí verið hafnað Morgunblaðið/Arni Sæberg Pétur Sigurðsson, forseti Alþýðusambands Vestfjarða, Hervar Gunn- arsson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og Arnar Sigurmundsson, formaður Samtaka fískvinnslustöðva og fulltrúi SA í samninganefnd, ræða málin í húsakynnum sáttasemjara í gær. VERKFALL skellur á 30. mars nk. hjá 26 landsbyggðarfélögum innan Verkamannasambands Islands náist ekki samningar fyrú- þann tíma. Til greina kemur að endurtaka atkvæða- greiðslu í Vestmannaeyjum og Grindavík, þar sem felld var tillaga um verkfall og formenn félaga á Vest- fjörðum hittast á næstunni og taka af- stöðu til verkfallsboðunar, en ákvörð- un um slíkt hafði áður verið frestað. Lítið þokaðist á fundi deiluaðila hjá sáttasemjara í gær og er ljóst að enn ber mjög mikið á milli í viðræðum um launaþáttinn. Niðurstaða í atkvæðagreiðslu um verkfall lá að mestu leyti fyiir á þriðjudagskvöld, en tölur frá Vík í Mýrdal bættust þó við í gær. Þar var verkfallsboðun samþykkt. Alls tóku 42% þátt í atkvæðagreiðslunni, eða 4.089 manns af alls 9.747 sem voru á kjörskrá. 74% samþykktu verkfalls- boðun, 24% felldu hana og 2% at- kvæðaseðla voru auð eða ógild. At- kvæði voru ekki greidd um verkfallsboðun hjá Verkalýðsfélaginu Herði í Hvalíirði, enda eru 9 af hverj- um 10 í því félagi bundnir sérsamn- ingum vegna jámblendiverksmiðj- unnar og álversins á Grundartanga. Ekki var heldur kosið í Hrútafirði eða hjá Samherjum, Klaustri. Þau félög eru meðal þeirra smæstu innan VMSÍ og starfsemi í lágmarki. Framar öllum væntingum Aðalsteinn Baldursson, formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur og fisk- vinnsludeildar VMSI, sagði í gær að niðurstaðan úr atkvæðagreiðslunni hefði verið framar öllum væntingum. Aðeins niðurstaðan í Vestmannaeyj- um hafi komið sér á óvart. „Þegar við lögðum upp með at- kvæðagreiðsluna hafði ég vissar áhyggjur af hugsanlegri útkomu. A það hefur bæst að töluvert var unnið gegn okkur meðan á atkvæðagreiðsl- unni stóð. Þess vegna kemur mér þessi niðurstaða þægilega á óvart og hún staðfestir rækilega að fólkið okk- ar er að hafna þeim samningum sem Flóabandalagið gerði við Samtök at- vinnulífsins á dögunum. Þess vegna þýðir ekkert fyrir atvinnurekendur að bjóða okkur nú þann samning. Það er alveg tilgangslaust," sagði Aðal- steinn. Hann sagði augljóst að ef ætti að afstýra átökum á vinnumarkaði þyrfti ný spil inn í viðræðumar - þeim gömlu hefði verið hafnað á skýran hátt. Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, hélt á hinn bóginn fast við fyrri yfirlýsingar sínar í gær. „Eg held að allir geri sér grein fyrir því að kröfur VMSÍ eru miklu hærri en nokkur möguleiki er að fall- ast á. I raun vekur það furðu að tals- menn sambandsins skuli lýsa því yfir að þeir hafi ekki lagt saman kröfú- gerðina og hyggist ekki gera það til að sjá áhrif hennar á hagstærðir og þar með lífskjör þeirra sem þeir eru að semja fyrir,“ sagði Ari. 60% felldu verkfall í Eyjum Tæplega 60% felldu verkfaflsboð- unina í Vestmannaeyjum og hún féll á þátttökuleysi í Grindavík, enda þótt meirihluti hefði þar verið fylgjandi verkfalli. Aðalsteinn segir að vissu- lega væri óskastaðan sú að allir stæðu saman. Slíku væri þó ekki að heilsa og alltaf hefði mátt búast við að einhver félög heltust úr lestinni. „Við reiknum með Vestfii’ðingum þótt þeir hafi kos- ið að bíða um sinn. Onóg þátttaka í Grindavík varð til þess að fella málið, en ég viðurkenni að útkoman í Vest- mannaeyjum kom mér verulega á óvart," segh' Aðalsteinn og bætir við: „Þar hefur ávallt verið kraftmikið fólk í fiskvinnslunni og við höfum ein- mitt reynt í þessari baráttu að bæta kjör fólks í þeirri grein. Því komu úr- shtin mér á óvart - við þurfum svo sannarlega á stuðningi þeirra að halda.“ Guðný Óskarsdóttir, formaður Verkakvennafélagsins Snótar í Vest- mannaeyjum, túlkar niðurstöðu at- kvæðagreiðslunnar í Eyjum þannig að verkafólk hafi ekki fjárhagslega burði til að fara í verkfall. „Ég sé ekki aðra ástæðu fyrir þessu,“ segir hún. „Það vantaði 28 atkvæði til að tillagan yrði samþykkt og ég tel að mikill flensufaraldur hér í Eyjum að undanförnu hafi gert okkur erfitt fyrir.“ Guðný telur alls ekki rétt að líta á niðurstöðuna sem vantraust á forystu verkafólks í Eyjum. „Ég hef rætt við fjölda fólks um þetta mál og það seg- ist hreinlega ekki treysta sér út í átök, eins og nú stendur á. Sultariaun þessa fólks bjóða ekki upp á áhættu,“ sagði Guðný. Hún bætti við að vel kæmi til greina að efna til annarrar atkvæðagreiðslu, nú þegar fyrir ligg- ur verkfallsboðun hjá meirihluta fé- laga innan Verkamannasambandsins. Benóný Benediktsson, formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur, tók í sama streng; vel gæti komið til þess að efnt yrði til nýrrar atkvæða- greiðslu um boðun verkfalls. Hann vildi annars lítið tjá sig um ástæður þess að verkfallsboðun hefði verið felld í sínu félagi. Vestfirðingar láta ekki sitt eftir liggja Pétui' Sigurðsson, formaður Bald- urs á ísafirði og forseti Alþýðusam- bands Vestfjarða, segir Ijóst að Vest- firðingar muni ekki láta sitt eftir liggja til að knýja á um betri samn- inga. Hann segir ekkert launungar- mál að rekja megi ástæður þess að Vestfirðingar tóku ekki þátt í at- kvæðagreiðslunni nú til þess að félög innan Alþýðusambands Vestfjarða og félagsmenn þeirra hefðu fært miklar fómir í sjö vikna verkfalli árið 1997. „Við vildum sjá hvemig landið lægi eftir þessa atkvæðagreiðslu. Það hef- ur verið boðað til formannafúndar og þar verður ákvörðun tekin um fram- haldið,“ segir hann og bætir við að sérstaða Alþýðusambandsins flæki mál nokkuð; þar séu fimmtán sjálf- stæð félög sem öU verði að efna til at- kvæðagreiðslu fyrir sig. „Þetta er stijálbýlt hérað og veður hafa ekki beinlínis verið hagstæð upp á síðkast- ið og erfitt reynst að ná mönnum saman,“ segir Pétur. „Það yrði engin goðgá þótt við hæf- um verkfall viku á eftir hinum. Verk- falUð árið 1997 sýndi okkur að ekkert vopn annað dugir í þessari baráttu. Það mun ekki standa á okkur, fari svo hörmulega að komi til vinnustöðvun- ar,“ sagði Pétm'. Verður verkfalli skotið á frest? Bjöm Grétar Sveinsson, formaður VMSÍ, segir að eins og staðan sé nú stefni allt í verkfall. Hann bendir á að möguleiki sé til þess að fresta verk- falli um einhveija daga, geti það orðið til þess að þétta raðirnar, eins og hann orðar það. Einhliða réttur er til þess að skjóta verkfalli á frest í allt að 28 daga. Slíkt verður að gera með þriggja daga fyrirvara. Engin ákvörðun hefur verið tekin um frestun verkfalls. Heimildir Morgunblaðsins herma að slíkt verði aðeins gert, komi til þess að atkvæða- greiðsla verði endurtekin í Grindavík og Vestmannaeyjum og verkfall borið undir atkvæði á Vestfjörðum. Þannig sé unnt að hefja verkfall alls staðar á sama tíma. Aðalsteinn Baldursson segir að verkfall muni fljótlega hafa mikil áhrif, fyrst á landsbyggðinni en síðar á höfuðborgarsvæðinu. „Við getum lokað Austfjörðum og Norðm'landi strax og víða mun þetta hafa mikil áhrif,“ segir hann. Líklegt má telja að úrvinnsla á mjólkurafurðum muni fljótlega stöðv- ast á landsbyggðinni komi til verk- falls og líklegt er að truflun yrði fljót- lega á samgöngum. Fyrst í stað myndi áhrifa verkfalls þó helst gæta í fiskvinnslunni. Þar eru miklir hags- munir í húfi. Opið bréf samninganefndar VMSÍ/LÍ til ríkisstj órnarinnar Samningur RSI og SA Lág laun hamla viðhaldi byggðar Ætti að nást fyrir helgi KRÖFUGERÐ Verkamannasam- bandsins og Landssambands iðn- verkafólks að því er varðar lækkun lægstu launa felur í sér einarða viljayfirlýsingu um viðhald búsetu á landsbyggðinni og um leið að undir- stöðuatvinnuvegirnir fái þrifist. Þetta er meðal þess sem kemur fram í opnu bréfi til ríkisstjórnar íslands, sem samninganefnd VMSI og LÍ sendi frá sér í gær undir yfir- skriftinni ábendingar í tilefni kjara- samninga. Með bréfinu vill samninganefnd- in koma á framfæri tveimur megin- atriðum vegna vinnu við gerð kjara- samninga. Segir að ríkisstjórnin hafi gefið út yfirlýsingu vegna kjarasamninga árið 2000 og nefndin lýsi þungum áhyggjum vegna þeirr- ar aðferðar sem valin hefur verið til að leiðrétta kjör þess fólks sem fær atvinnuleysisbætur og bætur frá al- mannatryggingum. Prósenturnar leggjast á lágan grunn „Þar er valin sú leið að bæta prósentuhækkun ofan á bótagrunn- inn. Þó svo prósentuhækkunin sé e.t.v. sú sama og hjá öðrum og bet- ur stæðum hópum, þá er hækkunin umtalsvert minni í raun, því prósenturnar leggjast á lágan gi'unn. Þessi aðferð felur því í sér að bilið milli þeirra sem hafa fram- færi sitt af þessum bótum og lág- markslauna í landinu breikkar enn. Myndarleg krónutöluhækkun væri vænlegri leið í þessu sambandi," segir í bréfinu. Þar er ennfremur rifjað upp að sé tekið mið af þeim kjarasamningum sem hafa verið undirritaðir er gert ráð fyrir að lægstu laun verði 91 þúsund kr. á mánuði í lok samn- ingstímans. Miðað við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar eigi hæstu bætur almannatrygginga að nema 76.177 kr. á mánuði við lok samningstím- ans. Segir svo að flóknar reglur í bótakerfi almannatrygginga geri hlut hjóna- og sambúðarfólks þar sem báðir þurfti að lifa á bótum enn lakari. í lok samningstímans verði sameiginlegar tekjur þeirra tæpar 102 þúsund kr. á mánuði, eða aðeins tæpum 11 þúsund kr. hærri en lágmarkslaun einstaklings. Kjör aldraðra og öryrkja ákvörðuð einhliða „Undirstöðuatvinnuvegir þjóðar- búsins þarfnast þess að byggð sé við haldið úti um land. Laun í þess- um atvinnugreinum eru aftur á móti það lág að þau beinlínis hamla viðhaldi byggðar," segir í bréfinu og sett fram það álit að lykillinn að farsælli niðurstöðu þeirra samn- ingaviðræðna sem nú standi yfir sé umtalsverð leiðrétting lægstu launa í frumatvinnugreinunum og sýni- legt átak í að bæta kjör þeirra sem verst eru settir í þjóðfélaginu, aldr- aðra, öryrkja og atvinnulausra. „Samninganefnd VMSÍ/LÍ bend- ir að lokum á þá staðreynd, að verkalýðshreyfingin fer ekki með samningsumboð fyrir aldraða og öryi'kja. Kjör þeirra eru ákvörðuð einhliða af ríkisstjórninni og hún ein ber ábyrgð á þeim. Þróun kjara þessara hópa á undanförnum árum og það að þau munu enn dragast aftur úr ef svo fer sem horfir gerir það að verkum að nauðsynlegt er að bregðast við. Samninganefndin tel- ur að nú sé svigrúm til að gera það með myndarlegum hætti og skorar á ríkisstjórnina að standa undir pólitískri og siðferðilegri ábyrgð sinni á kjörum þeirra sem minnst mega sín. Undan því getur ríkis- stjórnin ekki vikið sér,“ segir enn- fremur í bréfinu. EKKI reyndist unnt að ganga frá kjarasamningi á milli Rafiðnaðai'- sambandsins og Samtaka iðnaðarins í gær, eins og stefnt hafði verið að fýrir helgi. Góður gangur var þó í viðræð- um aðila og er stefnt að því að ganga frá samningi síðdegis á föstudag. Foi-mlegur fundur samningsaðila er ekki á dagskrá í dag, en fufltrúar beggja aðila munu þó hittast til að vinna að texta samningsins. Sam- ræming þeirrar vinnu er svo áætluð á föstudag og gangi hún vel gæti orðið af undirritun samnings síðdegis. Guðmundur Gunnarsson, formað- AÐALSTEINN Baldursson, for- maður Vlf. Húsavíkur, segir að frá því samþykkt var að boða til verk- falls hafi síminn ekki stoppað hjá sér. Atvinnurekendur á hans fé- lagssvæði vilji setjast að samn- ingaborðinu, náist ekki almennir sampingar við SA. „Á Húsavík var mjög góð þátt- taka í atkvæðagreiðslunni og úr- slitin mjög afgerandi," segir Aðal- ur RSÍ, segir að fundurinn í gær hafi gengið rólega, en svo hafi komið kipp- ur í viðræðurnar um kvöldmatarleyt- ið. Hann staðfesti að nokkur bjai-t- sýni ríkti um framhaldið, en enn væru nokkur mál óleyst. Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, sagði að menn væru enn bjartsýnir á að unnt væri að sigla, málum í höfn, enda þótt það hefði tek- ið lengri tíma en ætlað hefði verið. „Þetta er ílókin og viðamikil vinna sem tekur sinn tíma. Það er engu hægt að lofa um niðurstöðuna fyrr en hún liggur fyrir,“ sagði Ari. steinn. „Þessi viðbrögð segja mér að komnir séu verulegir brestir í raðir atvinnurekenda og sumir þeirra séu tilbúnir að gera mun meira en aðrir. Ég er meira að segja með óformlegt tilboð frá ein- um aðila upp á 15% hækkun á einu ári í tveimur þrepum. Á sama tíma erum við að þrefa við atvinnu- rekendur fyrir sunnan um 3,9% hækkun,“ segir Aðalsteinn. „Bi’estir í röðum atvmmirekenda“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.