Morgunblaðið - 23.03.2000, Side 12

Morgunblaðið - 23.03.2000, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Verslunarráð vill halda sérstöðu V erslunarskólans Ljósmynd/Ólafur Örn Haraldsson Engan bilbug er að fínna á norðurpólsförunum þrátt fyrir smáóhöpp sem hafa hent þá. Farnir að kljást við vakir VERSLUNARRÁÐ íslands vill halda_þcirri sérstöðu sem Verslunar- skóli Islands hefur á íslensku fram- haldsskólastigi. Þetta segir Bogi Pálsson, formaður Verslunarráðs, en forseti nemendafélags skólans lýsti áhyggjum nemenda í Morgunblaðinu á þriðjudag vegna nýn-ar aðalnám- skrár fyrir framhaldsskólastigið. Ingólfur Snorri Rristjánsson, for- seti NFVÍ, sagði þá að nemendur hefðu einkum áhyggjur af því að sér; stöðu skólans væri teflt í tvísýnu. I skólanum hefðu verið brautir sem stæðu ekki til boða annars staðar, t.d. viðskipta- og hagfræðibraut, og nemendur óttuðust að fög innan þeirra myndu eiga undir högg að sækja þegar tekin yrðu upp sam- ræmd próf í hefðbundnum bóknáms- greinum. Bjöm Bjarnason menntamálaráð- herra hélt fundi með nemendum og kennurum Verslunarskólans á mánudag og sagði eftir þann fund að það væri ekki rétt að ætlunin væri að í UNDIRBÚNINGI eru margvísleg- ar breytingar á gjaldskrá Landssím- ans fyrir símaþjónustu og verða þær kynntar næstu dagana, samkvæmt upplýsingum Ólafs Stephensen, for- stöðumanns upplýsinga- og kynning- armála hjá Landssímanum. Islan- dssími kynnti á þriðjudag 18,90 kr. mínútuverð á símtölum til flestra helstu viðskiptalanda Islendinga frá og með næstu mánaðamótum. Ólafur sagði að breytingamar tækju til ýmissa þátta og miðuðust að því að færa verðskrána til samræmis við raunkostnað. Einn liður í þessum breytingum væri mjög umtalsverð lækkun á millilandasímtölum, en kostnaðurinn við að veita þá þjónustu færi sífellt lækkandi. Verð á milli- steypa alla skóla í sama mótið með nýrri námskrá. „Þótt skólar hagi skipulagi sínu samkvæmt nýrri nám- skrá er ekki þar með sagt að sér- kennum þeirra þui-fi að varpa fyrir róða,“ sagði Bjöm. Heyrir undir séreignarstofnun VI Verslunarskólinn og Háskólinn í Reykjavík heyra undir séreignar- stofnun Verslunarráðs um viðskipta- menntun. Bogi segir að afstaða Verslunarráðsins sé sú sama og ávallt hafi verið uppi; markmiðið sé að halda uppi öflugu og góðu námi í viðskiptagreinum hér á landi. ,Á því hefur sérstaða Verslunar- skólans byggst,“ segir Bogi. „í þá sérstöðu vill Verslunarráðið halda áfram. Vissulega þarf að taka tillit til þeirra kerfisbreytinga sem verið er að gera, svo fylgja megi þróun í þjóð- félaginu, en Verslunarráðið mun leggja áherslu í framtíðinni á að sérstaða skólans haldist,“ sagði Bogi. landasímtölum hefði verið of hátt, hafi verið að lækka að undanfömu, og muni halda áfram að gera það. Aðspurður hvort þessi verðlagning Íslandssíma á millilandasímtölum væri raunhæf og hvort Landssíminn hefði þá verið að innheimta óhæfilega hátt verð fyrir þessa þjónustu, sagði Ólafur að eins og margoft hefði komið fram hefði verðskrá gömlu símafyrir- tækjanna í Evrópu, þar á meðal Landssímans, verið háð pólitískum ákvörðunum og ekki endurspeglað raunkostnað við þjónustuna að því leyti meðal annars að millilandasím- tölin hefðu verið notuð til þess að nið- urgreiða ýmsa aðra þjónustuþætti. Endurskoðun á verðskrá Landssím- ans, sem að hluta til hafi þegar komið ÍSLENSKU norðurpólsfaramir em komnir yfir 50 km markið eftir að þeim tðkst að ganga 6,08 km á þriðjudag. Alls hafa þeir því gengið 51,3 km á 13 dögum. Haraldur Öm Ólafsson sagði að nístingskalt hefði verið á þriðjudagsmorgun og enn- fremur hefðu þeir Ingþór Bjarna- fram, miði að því að leiðrétta þennan mun. „Menn hafa í rauninni verið að inn- heimta of mikið fyrir suma þætti þjónustu og of lítið fyrir aðra. Þetta nýja samkeppnisumhverfi sem við störfum nú í gerir ráð fyrir að víxl- niðurgreiðslum af þessu tagi verði hætt,“ sagði Ólafur. Hann sagði að Landssíminn myndi áfram leita leiða til að lækka kostnað og veita þjónustu með sem hagkvæm- ustum hætti. „Við göngum ekkert að því gruflandi að markaðshlutdeild okkar mun lækka með vaxandi sam- keppni á þessu sviði, rétt eins og hef- ur gerst á farsímamarkaðnum. A móti kemur að lækkandi verð og auk- in samkeppni hefur stækkað fjar- son þurft að kljást við vakir í fyrsta sinn í leiðangrinum. „Við þurftum að fara yfir vök sem var mjög tæp og það var álitamál hvort ísinn á henni væri mannheldur, en allt gekk þó vel að lokum. Síðan tóku við erfið svæði sem við þurftum að hjálpast að yfir en um miðjan dag- skiptamarkaðinn, þannig að meira verður til skiptanna. Það gefur auga leið að það væri í hæsta máta óeðli- legt að eitt fyrirtæki væri áfram með allan markaðinn. Það var ekki það sem lagt var upp með þegar komið var á samkeppni hér í fjarskiptamál- unum,“ sagði Ólafur. Samkeppni innanlands í október Ný fjarskiptalög, sem samþykkt voru á Alþingi fyrir jól, taka gildi í áfongum á næstu mánuðum og miss- erum. Eftir 1. apríl næstkomandi verður ríkjandi samkeppni í milli- landasímtölum og munu þau gjald- færast sjálfkrafa hjá því fyrirtæki sem notandinn semur við. inn léttist færið og við gátum gengið hvor með sinn sleða án hjálpar frá hinum,“ sagði Haraldur við leiðangurs- stjórnina á Is- landi í gær. Veðrið hjá þeim félögum var ágætt í hádeginu í gær að i'slenskum tíma þegar þeir hringdu í leiðangurs- stjórnina. Frostið var um 40 stig, logn og heiðskírt. Blaðran á Ingþóri sprungin Blaðran sem Ingþór fékk eftir kal á þumalfingri er sprungin og lítur sárið ófrýnilega út að sögn Haraldar en engu að síður virðist hann á batavegi. Hann hefur einnig kal á öðrum fingrum að sögn Har- aldar en ekki eins alvarlegt og kalið á þumlinum. Ingþór varð fyrir öðru óhappi í gær er hann sneri sér við á skíðunum til að huga að sleða sín- um, sem valt á torfærum íshrygg. Hann datt aftur fyrir sig án þess að geta borið hönd fyrir sig og skall með hnakkann í í'sklump með þeim afleiðingum að hann vankaðist. Hann er þó búinn að jafna sig og er við góða heilsu. Stemmningin er þrátt fyrir þessi óhöpp mjög góð hjá þeim félögum og á þeim er eng- an bilbug að finna. Enn eru eftir 750 km á norðurpólinn og þrátt fyr- ir að þeim finnist hægt hafa gengið hingað til eru þeir sér þess meðvit- andi að öðrum leiðöngrum, sem náð hafa á pólinn, gekk ekkert betur á fyrstu vikunum. Landssíminn undirbýr margvíslegar breytingar á gjaldskrám sinum Umtalsverð lækkun millilandasímtala Bætur vegna tjóns af völdum eldsvoða 13,1 milljarður króna á árunum 1981-1999 Brunatjón á íslandi með því minnsta sem þekkist BRUNATJÓN á íslandi síðustu tvo áratugi er með því minnsta sem þekkist samanborið við nágranna- lönd hvort sem mælt er í mannslífum eða eignatjóni. Þetta er niðurstaða samantektar Guðmundar Gunnarssonar, verk- fræðings hjá Brunamálastofnun, um brunatjón hér á landi. Samantektin var gerð fyrir nefnd á vegum um- hverfisráðherra sem falið var að end- urskoða lög um brunavamir og brunamál. Hefur ráðherra nú lagt frumvarpið fram á Alþingi. Tveir farast í bruna hér að meðaltali á ári Fram kemur í samantektinni að banaslys hér á landi í brunum eru með því minnsta sem þekkist saman- borið við önnur lönd. Þegar mann- tjón er borið saman á milli landa og miðað við manntjón á hverja 100 þús- und íbúa á árunum 1994-96 kemur í ljós að hlutfall banaslysa af völdum bruna hér á landi er 0,75 af hverjum 100 þúsund íbúum. Á sama tímabili var þetta hlutfall banaslysa vegna bruna 1,32 í Svíþjóð, 1,42 í Kanada, 1,82 í Danmörku og 2,12 í Finnlandi. „Við athugun á manntjóni í brun- um er stuðst við upplýsingar frá Slysavamafélaginu Landsbjörg. Þar kemur í ljós að tveir farast í brunum hér á landi að meðaltali á ári,“ segir í samantektinni. Á þessu tímabili hafa orðið fjórir bmnar þar sem tveir hafa farist en annars er um eitt banaslys að ræða í hverjum einstökum bmna. Þegar skoðað er í hvers konar húsakynnum banaslys hafa orðið á tímabilinu 1979-1999 kemur í ljós að langflest eða 86% þeirra verða í heimahúsum. Flest slysin verða í skammdeginu (sérstaklega í janúarmánuði) en þau era mun færri að sumarlagi. 690 millj. kr. í bætur á ári að jafnaði vegna brunatjóna Á áranum 1981-1999 námu bætur tryggingafélaga vegna brunatjóna á íslandi samtals um 13.100 milljónum kr. eða um 690 millj. kr. á ári að jafn- aði. ,Á þessu tímabili urðu tjónabætur vegna brana á föstu verðlagi hæstar árið 1989 þegar þær námu alls 1.640 millj. kr. en það stafaði af tveimur stórbranum það ár, í Krossanes- verksmiðjunni á Akureyri og að Réttarhálsi 2 í Reykjavík. Hvort tjónið um sig samsvarar öllum branatjónum í landinu í meðalári á þessu tímabili. Þessir tveir branar hafa valdið hvað mestu eignatjóni á öldinni ásamt brananum í Sam- bandsverksmiðjunni á Akureyri sem varð 1969 (eignatjón 800-900 millj. kr.) og brananum í Borgarskála Eimskips 1967 (eignatjón 700-800 millj. kr.). Eignatjón í tveimur síð- asttöldu branunum er byggt á áætl- uðum tölum sem era framreiknaðar samkvæmt byggingarvísitölu og ber því að taka þær með nokkurri varúð,“ segir í samantekt Guðmund- ar sem fylgir greinargerð fram- varpsins. Brunatjón 0,13% af vergri þjóðarframleiðslu Við samanburð á bættum tjónum vegna brana á milli landa kemur í ljós að branatjón á íslandi á áranum 1994-1996 var 0,13% af vergri þjóð- arframleiðslu og með því minnsta sem þekkist. í Bretlandi var hlutfall- ið 0,14%, í Finnlandi 0,15%, Kanada 0,20%, í Danmörku 0,23% og í Noregi 0,24%. Meðaltal Norðurlandanna, að íslandi undanskildu, var 0,21%, sem jafngildir þvi að bætt branatjón hér á landi væra um 1.120 millj. kr. á ári eða næstum hálfum milljarði kr. meiri en verið hefur að meðaltali síð- astliðin 20 ár, að því er fram kemur í samantekt Guðmundar. Hann telur margar skýringar á að branatjón sé minna hér á landi en í flestum öðram löndum en bendir á að hér sé hlutfall gamalla húsa lágt og steinsteypa algengasta byggingar- efnið, auk þess sem tiltölulega lítið sé um stórar byggingar. „Hvað varðar manntjón má ætla að hátt hlutfall sérbýlishúsa hafi mikið að segja auk þess sem ekki hafa orðið mannskæð- ir branar, t.d. á hótelum og sam- komustöðum, á umræddu tímabili," segir m.a. í samantektinni. Mælt gegn sameiningu Bruna- mála- og Skipulagsstofnunar í greinargerð frumvarpsins kem- ur fram að eftir ítarlega umfjöllun í nefndinni sem samdi framvarpið hafi niðurstaðan orðið sú að leggja ekki til sameiningu Branamálastofnunar og Skipulagsstofnunar, eins og hug- myndirvora um. Sérstök áhersla er lögð á að sveit- arfélög auki samvinnu sína, bæði á sviði eldvarnaeftirlits og starfsemi slökkviliða.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.