Morgunblaðið - 23.03.2000, Page 26
26 FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Jóhannes Páll páfí messar í Bethlehem að viðstöddu fíölmenni
Jóhannes Páll páfí II heilsar Yasser Arafat, leiðtoga Palestínumanna,
við komu þess fyrrnefnda til borgarinnar Bethlehem í gær. Bcthlehem
er á yfirráðasvæði Palestínumanna og mun verða hluti af Palestínu-ríki
sem að líkindum verður stofnað á þessu ári.
Kyssti
krukku með
palestínskri
mold
Bethlehem. AP, AFP, The Washington Post.
JÓHANNES Páll páfi II kyssti gyllta
krukku með jarðvegi af yfiiráðasvæð-
um Palestínumanna við komu sína til
borgarinnar Bethlehem á Vestur-
bakka Jórdanar í gær. Kossinn og
ræða páfa við komuna til Bethlehem
þykja sæta tíðindum. Venjulega kyss-
ir páfi einungis jörð fullvalda ríkja og
eindregnar stuðningsyfirlýsingar
hans við málstað Palestínumanna
vöktu einnig athygli. Páfi kom til
ísraels frá Jórdaníu á þriðjudag og
mun á næstu dögum ferðast um sögu-
slóðir Biblíunnar í Landinu helga.
„Enginn getur lokað augunum fyr-
ir hinum miklu þjáningum palest-
ínsku þjóðarinnar á undanfomum
áratugum. Allur heimurinn sér þá
neyð sem þið hafið þurft að líða,“
sagði páfi í ræðu sem hann hélt við
komuna til Bethlehem.
Páfi sagði að Vatíkanið hefði ávallt
viðurkennt að palestínska þjóðin
hefði „náttúrulegan rétt“ til að eign-
ast eigið land og einnig „rétt til að lifa
í sátt og samlyndi við aðrar þjóðir á
svæðinu". Hann minnti einnig á að
hann og forverar hans á páfastóli
hefðu ítrekað lýst því yfir að það væri
engin von um að átökin í Landinu
helga tækju enda fyrr en réttindi allra
þjóða sem hlut eiga að máli yrðu við-
urkennd á grundvelli alþjóðalaga og
samþykkta Sameinuðu þjóðanna.
Jerúsalem, eilíf höfiið-
borg Palestínu
Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, tók á móti páfa og bauð hann
velkominn. „í nafni palestínsku þjóð-
arinnar og nafni sjálfs mín, bíð ég þig
velkominn til Palestínu og til Jerús-
alem, hinnar eilífu höfuðborgar Pal-
estínu, lands spámannanna, þessa
heilaga og blessaða lands, og til borg-
arinnar þar sem fæðing spámanns
friðar og kærleika, Jesú Krists, átti
sér stað,“ sagði Arafat. Palestínu-
menn gera enn tilkall til austurhluta
Jerúsalem sem ísraelar hernámu árið
1967 og neita að láta af hendi.
Að móttökuathöfn lokinni var páfa
ekið í skotheldri bifreið sinni að torgi í
miðborg Bethlehem, skammt frá
þeim stað þar sem sagt er að Jesús
hafi fæðst. Þar söng páfi messu fyrir
u.þ.b. 20.000 viðstadda. Hann hvatti
kristna Palestínumenn, sem eru
Reuters
Fáni Palestínu blaktir á Manager-torgi í miðborg Bethlehem í þann
mund sem páfi hefur messu sína á torginu í gær.
minnihluti á yfirráðasvæðum Palest-
ínumanna, til að halda kyrru fyrir í
landinu. „Verið ekki hræddir við að
varðveita hinn kristna arf ykkar á
þeim stað þar sem frelsarinn var
fæddur," sagði páfi. Athygli vakti að
hlé var gert á tveggja klukkustunda
langri messunni meðan kallað var til
bæna úr kallaratumi nærliggjandi
mosku.
Síðar í gær heimsótti páfi flótta-
mannabúðir Palestínumanna í Dheis-
heh, þar sem 10.000 flóttamenn hafast
við og einnig minnisvarða um palest-
ínska flóttamenn sem látist hafa
vegna stríðsátaka ísraela og araba.
Alls eru um 3,6 milljónir flóttamanna
skráðar hjá sérstakri stofnun á veg-
um Sameinuðu Þjóðanna sem fer með
málefni palestínskra flóttamanna.
Pólitískur koss
Forseti þings Palestínumanna,
Ahmed Qureia, sagði að með því að
kyssa palestínska jörð við komuna til
Bethlehem hefði páfi viðurkennt rétt
Palestínumanna til að stofna sjálf-
stætt ríki. En fulltrúar Vatíkansins
drógu úr mikilvægi atviksins og sögu
að kossinn hefði verið af trúarlegum
toga. „Hví skyldi hann ekki kyssa
jörðina í því landi þar sem Jesús
fæddist,“ er haft eftir einum þeirra í
gær. Engu að síður hefur verið bent á
að páfi hafi látið hjá líða að kyssa jörð
Austur-Tímors þegar hann var í opin-
berri heimsókn í Indónesíu árið 1989.
ísraelar sögðu að yfirlýsingar páfa
í Bethlehem fælu einungis í sér árétt-
ingu á hefðbundinni afstöðu Vatí-
kansins til málefna Palestínumanna.
„Þetta er vel þekkt afstaða sem Vatí-
kanið hefur haft í mörg ár og við
bjuggumst ekki við því að páfi hefði
breytt henni,“ sagði Shlomo Ban-Ami
einn ráðherra í ríkisstjóm ísraels.
Tilkynnt var í gær að ísraelsk lög-
regla hefði handtekið heittrúaðan
gyðing fyrir að hafa tekið þátt í athöfn
með öðrum heittrúuðum gyðingum
þar sem bölvun var lögð á páfa. At-
höfnin, sem tekin var upp á mynd-
band og hefur verið sýnd í sjónvarpi,
er sögð hliðstæð þeirri sem heittrú-
aðir gyðingar frömdu skömmu áður
en Yitzhak Rabin, fyrrverandi for-
sætisráðherra Israels, var myrtur
árið 1995.
Sala BMW á bflaverksmiðjum Rover vekur óánægju breskra verkalýðsfélaga
Mótmælagöngur boðaðar
Birmingham. AFP, Daily Telegraph.
BREZK verkalýðsfélög hyggjast efna til fjölda-
göngu hinn 1. apríl til að mótmæla áformum þýzka
bílaframleiðandans BMW um að selja brezku
Rover-bílaverksmiðjurnar. Að minnsta kosti
9.500 störf munu tapast ef af kaupum brezka
áhættufjárfestingafyrirtækisins Alchemy
Partners á Rover verður, að sögn Tony Woodley,
aðalsamningamanns stærsta verkalýðsfélags
verkamanna í brezkum bílaðiðnaði.
Woodley hélt þessu fram áður en hann og fleiri
brezkir verkalýðsfulltrúar gengu á fund forráða-
manna BMW í Miinchen í gær. Sögðust full-
trúarnir meðal annars myndu þrýsta á um það, að
BMW íhugaði aðra kaupendur en Alchemy
- Partners. Sagði Woodley að miðað við það sem
frézt hefði af því hvemig Alchemy hygðist breyta
rekstri Rover ættu Rover-bílar mjög skamma
framtíð fyrir sér.
Um 36.000 manns vinna hjá Rover, þar af um 9.000
í aðalverksmiðjunum í Longbridge á Mið-Englandi.
Síðustu daga hafa ásakanir gengið á víxl milli
forsvarsmanna BMW og brezku ríkisstjórnarinn-
ar um málefni Rover. Ríkisstjórn Verkamanna-
flokksins neitaði að verða við beiðni BMW um að
fordæma áskoranir brezkra verkalýðsleiðtoga til
brezkra bílakaupenda um að sniðganga BMW, til
að refsa hinu þýzka fyrirtæki fyrir að sleppa
hendinni af Rover. Gríðarlegt tap hefur verið á
Rover frá því BMW tók yfir reksturinn fyrir sex
árum, þrátt fyrir miklar fjárfestingar í honum.
Stephen Byers, iðnaðar- og viðskiptaráðherra
Bretlands, heldur á fund forráðamanna BMW í
Munchen í dag.
BMW tilkynnti í lok síðustu viku að verið væri
að ganga frá samningum við Alchemy Partners
um yfirtöku á Rover. Land Rover-jeppaverk-
smiðjurnar yrðu hins vegar seldar til Ford. For-
svarsmenn Alchemy hafa þegar sagt, að margir
starfsmenn Rover megi eiga von á að missa vinn-
una við væntanlega uppstokkun rekstrarins.
Tilraun gerð til annars tilboðs í Rover
Brezkur kaupahéðinn, John Hemming, sem á
sæti í borgarstjórn Birmingham, greindi frá því í
gær að hann væri að vinna að því að fá með sér
fjársterka aðila til að gera tilboð í Rover. Hann
sagði þó að erfitt yrði að bjóða betur en Alchemy.
Umboðsbílasölur Rover í Bretlandi, sem eru
294 talsins, hafa farið fram á skaðabætur frá
BMW vegna söluáformanna. Þeir hafi á sl. tveim-
ur árum fjárfest mikið í rekstrinnum og standi nú
frammi fyrir tekjutapi vegna fyrirsjáanlegs sam-
dráttar í sölu á Rover-bílum vegna óvissu um
framtíð framleiðslu þeirra. Hafa samtök umboðs-
bflasalanna farið þess á leit við iðnaðarráðherrann
Byers að hann beri erindi þeirra upp við forráða-
menn BMW.
Forkosn-
ingar í Illinois
Þriðjung-
urinn
kaus ekki
Bush
Chicago. AP.
GEORGE W. Bush, rfldsstjóri
Texas, og A1 Gore, varaforseti
Bandaríkjanna, fengu mikinn
meirihluta atkvæða í forkosn-
ingum repúblikana og demó-
krata í Illinois í fyrradag eins og
búist var við, þar sem helstu
keppinautar þeirra höfðu dreg-
ið sig í hlé. Athygli vakti hins
vegar að þriðjungur repúblik-
ana kaus ekki Bush og þykir
það benda tfl þess að honum
kunni að reynast erfitt að
tryggja sér stuðning þeirra sem
kusu John McCain, öldunga-
defldarþingmann frá Arizona,
áður en hann dró sig út úr kosn-
ingabaráttunni.
Bush fékk 67% atkvæðanna í
forkosningum repúblikana, Mc-
Cain 22% og Alan Keyes, fyrr-
verandi sendiherra, 9%.
Vildu láta óánægju
sínaíljós
Stjómmálaskýrendur töldu
að nokkrir kjósendanna hefðu
viljað láta í Ijósi óánægju sína
með Bush með því að kjósa
McCain og Keyes þótt öruggt
væri að hann yrði tilnefndur
forsetaefni repúblikana í sumar.
Nokkrir þeirra töldu að Bush
myndi takast að vinna stuðn-
ingsmenn McCains á sitt band
fyrir forsetakosningamar í nóv-
ember, en aðrir sögðu hugsan-
legt að þeir kysu íhaldsmanninn
Patrick Buchanan sem líklegt
er að verði í framboði fyrir Um-
bótaflokkinn.
í forkosningum demókrata
fékk Gore 84% atkvæða, en Bfll
Bradley, fyrrverandi öldunga-
defldarþingmaður frá New
Jersey, 14%.
Rúmenía
> ------------
Aframhald
umbóta
nauðsyn
Búkarest. AP.
MUGUR Isarescu, forsætisráðherra
Rúmeníu, hefur varað rúmenska
stjórnmálamenn við því að landið
geti tapað efnahagsaðstoð erlendra
ríkja ef það heldur ekki ótrautt
áfram á braut efnahagsumbóta, þótt
nú styttist í þingkosningar.
„Við verðum meira og meira varir
við að aðgangur okkar að erlendum
efnahagsstuðningi verður ekki opinn
nema við fæmm sönnur á að við
séum færir um að framfylgja umbót-
um, jafnvel á kosningaári," sagði Is-
arescu í viðtali við dagblaðið Eveni-
mentul Zilei.
í þessu fyrsta viðtali sem birtist
við Isarescu eftir að hann tók við for-
sætisráðherraembættinu í desember
sl., hvatti hann þingið til að sam-
þykkja fjárlagafrumvarpið fyrir
þetta ár þar sem Alþjóðagjaldeyris-
sjóðurinn, IMF, bíður eftir því að
það sé gert.
Að þing landsins samþykki fjárlög
þar sem gert er ráð fyrir 3% rekstr-
arhalla á ríkissjóði að hámarki er ein
lykilforsendan fyrir lánasamningi
IMF við Rúmeníu. í síðasta mánuði
tilkynnti IMF að sjóðurinn væri
reiðubúinn að íhuga að standa við ell-
efu mánaða framlengingu á gildandi
samningi við Rúmeníu, að uppfylltu
þessu skilyrði. Samningurinn, sem
hljóðar upp á 547 milljóna dollara lán
til Rúmeníu, rennur annars út í þess-
um mánuði.