Morgunblaðið - 23.03.2000, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000 28
Sendifull-
trúa Kína
boðið til
Taívans
Taipei. AFP, AP.
CHEN Shui-bian, sem var
kjörinn forseti Taívans í for-
setakosningum á eyjunni sl.
laugardag, bauð í gær Wang
Daohan, aðalsendifulltrúa Kína
í málefnum Taívans, að vera
viðstaddur innsetningu sína í
embætti 20. maí nk. En flokkur
Chen, Lýðræðislegi framfara-
flokkurinn, veltir nú fyrir sér
hvernig breyta megi afstöðu
flokksins til sjálfstæðis Taivans
til að bæta samskipti við Kín-
verja.
„Við viljum gjarnan bjóða
Wang Daohan að vera við-
staddur innsetningu Chen
Shui-bian og varaforsetans
Annette Lu í embætti, ef tím-
inn leyfir og hægt verður að
koma því við,“ sagði Chen við
fréttamenn og kvað heimsókn
Wangs bæta samskipti Taívans
og Kína.
Kínverjar hafa ekki tjáð sig
um boðið, en þetta yrði íyrsta
heimsókn Wangs til Taívans.
Að sögn sérfræðinga er hins
vegar talið ólíklegt að kín-
verska kommúnistastjórnin
þiggi boðið. „Enn sem komið er
vitum við ekki hvernig Chen
skilgreinir afstöðu Kínverja til
„eins Kína“. Pað er stór hluti
vandans...og hvað heimboðið
varðar, þá verður það að fylgja
vissum reglum og vera byggt á
einlægni," sagði Xin Qi, sér-
fræðingur við Taívan-stofnun-
ina í Peking.
Taívanskir sérfræðingar
voru sama sinnis og töldu til-
raunir til að friðmælast stranda
á kröfu Kínverja um „eitt
Kína“. Lítil von væri því til þess
að Wang myndi heimsækja
Taívan. Flokkur Chen hafi hug
á að sjá eyjuna verða sjálfstæða
á meðan Kínverjar krefjist þess
hún verði að fullu hluti Kín-
verska alþýðulýðveldisins á ný.
Lýðræðislegi framfaraflokk-
urinn veltir nú fyrir sér hvernig
hann geti breytt stefnu sinni til
sjálfstæðis Taívans. Slíkt kann
að auðvelda Chen að hefja við-
ræður við kínversku kommún-
istastjórnina, sem ítrekaði á
þriðjudag að hún muni ræði
aldrei málefni Taívans við sjálf-
stæðissinna.
Allt I einni töflu
Apftiekið Smóratoigi • Apótekið Spönginni
Apótekið Kringíunni • Apótekið Smiöjuyegi
Apótakið Suðurströnd • Apótekiá Iðufoili
ApóHskið Haykuup Skeifunni
Apótekið Hsgknup Akureyrí
Hafnarfjarðar Apótek
Apótekió Nýkaupttm Mosfeiiabro
Schussel vonast eftir þíðu
LEIÐTOGAR Evrópusambandsins (ESB) koma
saman til fundar í Lissabon í dag í þeim yfirlýsta til-
gangi að ýta Evrópu með markvissari hætti inn í
hina netvæddu tölvuöld, í þeirri von að það geti orð-
ið til að draga úr atvinnuleysi, auka hagvöxt og
bæta samkeppnisstöðu Evrópuríkjanna gagnvart
Bandaríkjunum. Einnig stendur til að ræða leiðir
til varanlegs friðar í Kosovo-héraði, réttu ári eftir
að hemaðaraðgerðir Atlantshafsbandalagsins hóf-
ust þar. Fyrir fundinn kallaði Romano Prodi, for-
seti framkvæmdastjómar ESB, eftir „róttækum
nýjum áætlunum“ um það hvemig koma skuli á
stöðugleika og friði á öllum Balkanskaga.
Leiðtogarnir standa ennfremur frammi fyrir því
að þurfa að finna lausn á misklíð í eigin ranni.
Wolfgang Schússel, kanzlari Austurríkis, hefur lýst
því yfir að hann muni skora á aðra „fjölskyldumeð-
limi“ að láta af pólitískum einangmnaraðgerðum,
sem hin ESB-ríkin 14 hafa beitt Austurríki frá því
þar var í byrjun febrúar mynduð samsteypustjóm
hins íhaldssama Þjóðarflokks og hins umdeilda
Frelsisflokks, lýðskrumsflokks á hægri vængnum.
Antonio Guterres, forsætisráðherra Portúgals,
sem þetta misserið gegnir formennsku í ESB, er í
mun að forðast neyðarlegar uppákomur á leiðtoga-
fundinum vegna deilunnar um austurrísku ríkis-
stjómina og bað leiðtogana bréflega um að mæta
allir til hinnar hefðbundnu „fjölskyldumyndatöku".
Leiðtogar Frakklands og Belgíu höfðu boðað að
þeir myndu ekki vilja láta sjá sig á mynd með
Schussel.
í viðtali við austum'ska vikublaðið News sagði
Schússel að hann vonaðist til að á þessum leiðtoga-
fundi yrði stigið fyrsta skrefið í átt að því að koma
samskiptunum í lag.
Fordæmdi Schússel „refsiaðgerðir" ESB. „Að
skella refsiaðgerðum [á aðildarríki] á grundvelli
gmnsemda á sér enga hliðstæðu í réttarsögunni,"
sagði hann.
Grunsemdir þær sem Schússel vísar hér til eru
þeir fyrirvarar sem ráðamenn ESB-ríkjanna 14
hafa lýst gegn stefnu Frelsisflokksins í málefnum
innflytjenda og varðandi stækkun ESB og gegn
ummælum sem Jörg Haider - sem nýlega lét af for-
mennsku í flokknum - hefur verið gagnrýndur fyr-
ir á stjórnmálaferli sínum og hafa m.a. verið túlkuð
þannig að hann hafi mælt vissum þáttum nazista-
tímans bót.