Morgunblaðið - 23.03.2000, Side 34

Morgunblaðið - 23.03.2000, Side 34
34 FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Lalo Schifrin stjórnar og leikur kvikmyndatónlist á Sinfóníutónleikum N am hj á Olivier Messiaen og Dizzy Gillespie Sinfóníuhljómsveit íslands leikur kvik- myndatónlist á tónleikum í Háskólabíói í kvöld og á laugardag. Margrét Svein- björnsdóttir ræddi við Lalo Schifrin, sem verður hljómsveitarstjóri og einleik- ari á tónleikunum, en sjálfur hefur hann einnig samið tónlist við fjölda kvik- mynda, svo sem Mission Impossible, The Fox, Bulitt og Dirty Harry. Morgunblaðið/Golli „Aðalatriðið er tónlistin,“ segir Lalo Schifrin, sem kveðst gera það sem gera þarf hverju sinni þegar tónlistin er annars vegar. A sinfóníutón- leikum í kvöld og á laugardag leikur hann á píanó og stjómar hljóm- sveitinni - auk þess að vera höfundur nokkurra iaga sem þar má heyra. LALO Schifrin er fjölhæf- ur listamaður: píanó- leikari, tónskáld, út- setjari og hljómsveitar- stjóri. Hann segist vera tónlistarmaður í viðasta skilningi þess orðs. „Það þýðir að ég skapa tónlist og flyt hana á hvern þann hátt sem ég get og þörf krefur hverju sinni. Ef það þarf að semja tónlist, þá sem ég tónlist, ef það vantar píanóleikara, þá spila ég á píanó - og ef þörf er á hljóm- sveitarstjóra, þá stjórna ég. Aðal- atriðið er tónlistin," segir hann. „Að stjórna hljómsveit er ekki eitthvert „egótripp" eins og margir virðast álíta. Einhver verður að stjórna - hljómsveit verður að hafa stjórnanda og stjórnandinn verður að hafa hljómsveit. Svo einfalt er það,“ heldur Schifrin áfram. Tvöfalt Iíf í París Hann er fæddur í Buenos Aires í Argentínu og hlaut sína fyrstu tónlistarmenntun í heimaborginni hjá þekktum tónlistarmönnum, þeirra á meðal föður sfnum, Luis Schifrin, sem var einn af stofn- endum Fílharmóníuhljómsveitar Buenos Aires og konsertmeistari hljómsveitarinnar í 35 ár. Hann stundaði framhaldsnám i París á fyrri hluta sjötta ára- tugarins og lifði þar tvöföldu lífí í tónlistarlegum skilningi. Hann stundaði nám hjá hinu þekkta tónskáldi Olivier Messiaen og vann fyrir sér með því að spila í djasshljómsveit. Sagan segir að hann hafi aldrei sagt djasstónlist- armönnunum sem hann „djamm- aði“ með á Vinstri bakkanum á laugardagskvöldum að hann færi snemma á hverjum sunnudags- morgni að hlusta á Messiaen leika á orgel Þrenningarkirkjunnar. Hann sagði lærimeistara sínum heldur aldrei af djassspila- mennskunni. Þetta staðfestir Schifrin og ypptir öxlum: „Á ein- hverju þurfti ég að lifa meðan ég var að læra. Ég var ungur þá og hafði næga orku - þurfti ekki að sofa nema þrjá eða fjóra tíma á nóttu. Og allt borgaði þetta sig að Iokum,“ segir hann. Það hefur sem sagt aldrei vafist fyrir hon- um að standa með annan fótinn f heimi hinnar klassfsku tónlistar og hinn í djassinum. Frekar að hann hafi brúað bilið þar á milli. „Messiaen kenndi mér að skynja nýjar víddir" Um lærimeistara sinn frá Pa- rísarárunum segir hann: „Messia- en var ekki einungis stórkostlegt tónskáld og stórkostlegur kenn- ari, heldur einnig stórkostlegur persónuleiki. Hann kenndi mér að skynja nýjar víddir í hlustun á tónlist, opnaði mér nýjan sjón- deildarhring." Síðar kynntist Schifrin öðrum listamanni sem hafði mikil áhrif á hann og tónlist hans. Maðurinn sá hét Dizzy Gillespie. „í mínu lífi hef ég haft tvo kennara, annar þeirra var Messiaen og hinn Dizzy GiIIespie. Og þótt ótrúlegt megi virðast, þá áttu þeir býsnamargt sameigin- legt,“ segir hann. Schifrin flutti til Bandaríkjanna árið 1958 og býr í Los Angeles. Hann hefur samið tónlist við rúm- lega 100 kvikmyndir, þeirra á meðal Mission impossible, Mann- ix, The Fox, Bullit og Dirty Har- ry, auk fjölda sjónvarpsþátta. Hann hefur fjórum sinnum hlotið Grammy-verðlaunin og nítján sinnum fengið tilnefningu til verðlaunanna, einu sinni hlotið Cable ACE-verðlaunin og verið tilnefndur sex sinnum til Óskars- verðlaunanna. Árið 1987 stofnuðu nokkrir af fremstu tónlistarmönnum Frakk- lands hljómsveitina Paris Philharmonic Orchestra í þeim tilgangi að hljóðrita kvikmyndatónlist, halda tónleika og leika fyrir sjónvarp. Þeir völdu Lalo Schifrin sem tónlistar- stjóra sinn á tónleikunum þegar hljómsveitin var formlega stofnuð í Theatre des Champs Elysees 26. janúar 1988. Schifrin gegndi þeirri stöðu þar til hann ákvað að snúa sér alfarið að tónsmíðum fimm árum síðar. Af frekari hljómsveitarstjórastörfum hans má nefna að hann hefur stjórnað hljómsveitunum London Philhar- monic, Los Angeles Philharmonic, London Symphony, Mexico Phil- harmonic, Vienna Symphony, Israel Philharmonic, Houston Symphony, Los Angeles Chamber Orchestra, Mexico City Philhar- monic, Atlanta Symphony, Saint Luke Orchestra (New York City) og Argentina National Symphony. Hæfileikar Schifrins í því að skipta algerlega um gír og leika djasstónlist hafa skipað honum sérstakan sess í tónlistarheimin- um. Sem slíkur hefur hann leikið með og hljóðritað tónlist með Dizzy Gillespie, Söru Vaughan, Ellu Fitzgerald, Stan Getz og Count Basie. Samið fyrir tenórana þrjá Eitt eftirminnilegasta verkið á ferli Lalos Schifrins var þegar tónverk hans, Cantos Aztecas, fyrir kór, einsöngsraddir og hljómsveit var frumflutt undir hans stjórn við Teotihuacan pýra- mídana í Mexíkó með Placido Domingo meðal einsöngvara. At- burðurinn var sýndur í sjónvarpi um heim allan 1989 og hljóðritað- ur á geisladisk ári seinna. Lalo Schifrin var falið að semja lokasönginn á hátfð sem fram fór í Caracalla á ítalfu 7. júlí 1990 í tilefni af lokum heimsmeistara- keppninnar í knattspyrnu þar sem tenórarnir þrír, Lucianno Pavarotti, Placido Domingo og Jose Carreras sungu saman í fyrsta sinn. Hljómsveitir Rómar- og Flórensóperuhúsanna léku undir stjórn Zubins Mehta. Lalo Schifrin var svo falið að útsetja tónlistina fyrir samskonar hátíð í júlí 1994 fyrir sömu listamennina og enn á ný fyrir tónleika tenór- anna þriggja í París í júlí 1998. Lalo Schifrin hefur hlotið margskonar viðurkenningar fyrir langt og mikið starf á sviði tón- listar. Israelsk stjórnvöld hafa heiðrað hann fyrir „framlag hans til aukins skilnings heimsbyggðar í gegnum tónlist", verslunarráð Hollywood sæmdi hann „Walk of Fame“-stjörnunni, og Rhode Is- land School of Design og háskól- inn í La Plata í Argentínu hafa báðir gert hann að heiðursdoktor. Hann var sæmdur einni af æðstu viðurkenningum menntamálaráðs Frakklands „Chevalier de l’Ordre des Arts et Lettres" og árið 1998 var honum veitt viðurkenningin „Distinguished Artist Awards" frá Los Angeles Music Center. Sama ár tilnefndi ríkisstjórn Ar- gentínu hann sem „ráðgjafa for- setans í menningarmálum" með setu í ráðuneytinu. „Það var þegar til alþjóðlegt tungumál“ Undir lok samtalsins er Schifr- in spurður hvaða þýðingu tónlist- in hafi í hans Iífi. „Þú tjáir þig með tungumálinu - ég tjái mig í tónlistinni. Hún er tjáningarmáti. Ef við getum ekki á einhvern hátt tjáð okkur, þá erum við mjög ein- mana. Ég get talað við fólk um allan heim með tónlistinni, hún er mitt tungumál," segir Schifrin og segir frá verkinu Esperanto sem hann samdi nýverið og var flutt á tónleikum í Köln. „Þú kannast við esperanto, er það ekki? Hug- myndin var sú að allir jarðarbúar ættu að geta talað saman á einu sameiginlegu tungumáli en út- breiðsla þess hefur ekki orðið sú sem menn vonuðust til í upphafi. En hvers vegna tókst það ekki? Svarið er einfalt: Það var þegar til alþjóðlegt tungumál - tónlist- in.“ Efnisskrá tónleikanna er fjöl- breytt. Auk verka eftir Schifrin sjálfan verður leikin tónlist eftir heimsþekkt tónskáld á borð við Bernstein, Williams og Manchini. Mcðal þeirra sígildu kvikmynda sem heyra má tónlist úr á tónleik- unum eru Casablanca, Dr. Zívagó og Grikkinn Zorba. Einnig má nefna Guðföðurinn, Galdrakarlinn frá Oz, The Good, the Bad and the Ugly og Star Wars. Tónleikarnir verða f Háskóla- bíói í kvöld kl. 20 og á laugardag kl. 16. Barátta við fíkn BÆKUR Trúmál TÓLF SPORIN Andlegt ferðalag. Vinnubók til að lækna skaddaðar tilfinningar. Höf- undar: Ýmsir en nafna er ekki get- ið. Þýðandi: Margrét Eggertsdóttir. títgefandi:Vinir í bata á íslandi. Stærð: 216 blaðsíður. í HVERRI viku safnast mörg þúsund íslendingar saman í kirkjum landsins undir merkjum AA-samtak- anna og fleiri skyldum félögum í glímu sinni við alkóhólisma og aðra fíkn. Grundvöllur þessa starfs er hið svokallaða tólf spora-kerfi sem varð til á fjórða áratug aldarinnar í Bandaríkjunum. Samkvæmt bókinni átti það rætur að rekja til hins svo- kallaða Oxfordhóps, trúarlegrar hreyfingar er varð til á meðal kirkju- fólks í Bretlandi og síðar Bandaríkj- unum. Upphafsmenn AA-samtak- anna, W.G. Wilson og R.H. Smith, tóku nokkrar af helstu kenningum þessa hóps er þeir settu fram tólf spora-kerfið og á það sér því trúar- legar rætur. Fyrsta sporinu í tólf spora-kerfi AA-samtakanna hefur verið breytt í þessari bók, með leyfi alheimssam- takanna, en hin eru óbreytt. Því hef- ur verið breytt þannig að í stað: „Við viðurkennum vanmátt okkar gegn áfengi...“ stendur: „Við viðurkenn- um vanmátt okkar vegna aðskilnað- ar frá Guði og að okkur var orðið um megn að stjóma eigin lífi.“ Þetta er gert til að tólf spora-kerfið falli betur að efni bókarinnar, en höfundar eru sannfærðir um að grundvöllur bata- ferils fólks sé að það eigi trúarsamfé- lag við Guð. Höfundar segjast vera „kristið fólk í bata“, bæði leikmenn og lærðir, sem hafa fengið hjálp af tólf spora- kerfinu. Þeir ganga út frá því að tólf- sporin og Biblían séu mikilvæg tæki til lækningar og telja að með því að nota þau reglulega geti fólk opnað sig fyrir og tekið á móti læknandi kærleika og náð Guðs. Bati er mögu- legur. Allir geta losnað að einhveiju leyti undan eyðileggjandi áhrifum í umhverfi sínu og orðið virkir í samfé- laginu. Bókin skiptist í fjölmarga kafla. Þeir fyrstu gera grein fyrir meðferð- arferli bókarinnar og hvað væntan- legur þátttakandi þarf að leggja á sig og hafa í huga þegar vinnan hefst. Síðan er hvert hinna tólf spora kynnt ítarlega. í hverjum kafla era verk- efni fyrir lesandann til umhugsunar og heimavinnu. Víða eru vers úr Biblíunni í samræmi við efnið sem fjallað er um hverju sinni. Hvarvetna er talað um Guð og trúna á hann sem eðlilegan og mikilvægan þátt í með- ferðinni. Traust á honum og íhugun á kærleika hans og góðum vilja gefur styrk í glímunni við vandann. f bók- arlok eru leiðbeiningar fyrir leið- beinendur, tillögur að fundaformi og notkun efnis bókarinnar fyrir mis- langt meðferðarferli. Þar er einnig að finna æðruleysisbænina, friðar- bæn Heilags Frans frá Assisí og Biblíuvers sem passa við hvert hinna tólf spora og fleira. Tólf sporin, andlegt ferðalag, er unnin af vandvirkni og alúð. Um- hyggja fyrir þeim sem glíma við ým- iss konar fikn skín hvarvetna í gegn- um textann. Það er ánægjulegt að sjá hvernig kristin trú er hagnýtt markvisst til hjálpar fólki í vanda. Hér er dæmi um kristna trú sem er meira en orð. Þessi bók á án efa eftir að verða mörgum til hjálpar. Bókin er gormuð. Kjartan Jónsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.