Morgunblaðið - 23.03.2000, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000 4^
UMRÆÐAN
Vatn er líf - vatn er
dýrmæt auðlind
VATN ER verð-
mætt. Það vita þeir
best sem skortir vatn.
Menn ætla að fjórar
milljónir bama deyi á
ári hverju vegna þess
að þau fá ekki hreint
ómengað vatn til
drykkjar og hreinlætis.
í tuttugu og sex lönd-
um hafa íbúamir ekki
nóg vatn til eigin nota
og fyrirsjáanlegt er að
innan fárra áratuga
muni vatnsskortur hrjá
íbúa í um sextíu þjóð-
ríkjum. A alþjóðavett- Anna
vangi hafa ýmsir aðilar Atladóttir
viðrað áhyggjur sínar
af því að vatnsskortur og átök um
vatn kunni að verða tilefni ófriðar og
átaka þegar fram líða stundir.
Til em þau ríki sem hafa nægjan-
legt vatn. Það á við um íslendinga og
ýmsar aðrar þjóðir, svo sem Kanada-
menn, en í Kanada er að finna fimmta
hluta af öllu ferskvatni heimsins. En
vatnið er lítils virði ef fólk hefur ekki
að því aðgang, býr við traustar og
góðar vatnsveitur sem veita vatninu
inn á heimili og á þá staði aðra þar
sem þess gerist þörf. í Kanada og á
íslandi, svo við höldum okkur við
þessi dæmi, búa menn við góðar og
traustar vatnsveitur sem sinna þess-
ari mikilvægu almannaþjónustu.
Fjölþjóðafyrirtækin
banka á dyrnar
Athygli vekur að í málgögnum
samtaka launafólks í almannaþjón-
ustu í Kanada fer nú sífellt meira fyr-
ir skrifum um mikilvægi þess að
bæta vatnsveiturnar, þá þjónustu
sem þær veita og að tryggja að þjón-
ustan verði áfram á vegum ríkis eða
sveitarfélaga. Astæðan er sú að í
Kanada sem víða annars staðar eru
stórfyrirtæki sem sérhæfa sig í því að
taka yfir einkavædda almannaþjón-
ustu farin að banka á dymar um að
vatnsveitur verði teknar undan al-
mannastjóm. Þetta hefur gerst víða
um heiminn, bæði í þróunarlöndum
þar sem Alþjóðabankinn og Alþjóða-
gjaldeyrissjóðurinn hafa stuðlað að
einkavæðingu og í þróuðum iðnríkj-
um. Og nægir þar að nefna Bretland
en þar hófst einkavæðing vatns-
veitna undh- lok níunda áratugarins.
Alls staðar er sami háttur hafður á:
byrjað er að búa til hlutafélög eða
„sjálfstæðar rekstrareiningar“ úr
vatnsveitunum, síðan em þau seld.
Hver er reynslan af þessu fyrirkomu-
lagi?
Reynslan af einkavæðingn
er hörmuleg
Fyrir notandann og skattborg-
arann hefur hún verið slæm. Um það
bera vitni ótal dæmi þar sem vatns-
veitukerfum er ekki haldið við, þjón-
ustunni hefur hrakað og það sem
verra er, markaðsvæðingin hefur
leitt af sér félagslega mismunun.
Þannig hefur það færst í vöxt að fyr-
irtæki sem sinna vatnsveitumálum
og líta á vatnið sem hverja aðra
markaðsvöru hafa skrúfað fyrir
rennslið hjá fátæku fólki sem ekki
gat borgað vatnsreikningana. Um
þetta er að finna mörg dæmi. Þannig
var umfjöllun um það í breskum
fjölmiðlum undir lok maímánaðar ár-
ið 1992 þegar slíkar lokanir áttu sér
stað í Staffordshire í Englandi svo
dæmi sé tekið. Læknar lýstu áhyggj-
um yfir smithættu þegar íbúar í fá-
I hreinsunin
Þuríður
Einarsdóttir
tækrahverfum voru sviptir vatni
þannig að hvorki kom dropi í vask
eða klósett. Hið athyglisverða í um-
fjöllun Finacial Times frá þessum
tíma er að vatnsfyrirtækin sýndu
stóraukinn hagnað meðan þessu fór
fram.
Vatn
Alls staðar er sami
háttur hafður á, segja
Anna Atladóttir og
Þuríður Einarsdóttir:
Byrjað er að búa til
hlutafélög eða „sjálf-
stæðar rekstrareining-
ar“ úr vatnsveitunum,
síðaneru þau seld.
Þetta er mergurinn málsins. Þótt
neytandinn blæði þá stórgræða fyrir-
tækin. Það er athyglisvert þegar litið
er yfir heiminn allan að þá eru það til-
tölulega fá fyrirtæki sem eru að ná
þessari starfsemi undir sig. Flest eru
þau bresk eða frönsk að uppruna en
löngu orðin fjölþjóðleg. Þar má nefna
Lyonnaise des Eaux, Générale des
Eaux, SAUR, Angilan Water, North
West Water, Severn Trent, Thames
Water og Aguas de Barcelona.
Mala gull á kostnað
notandans
Flest þessi fyrirtæki sinna öðrum
verkefnum einnig, vegagerð, síma-
þjónustu eða annarri starfsemi. Þeg-
ar rekstrarreikningar þeirra eru
kannaðir kemur á daginn að fjárfest-
ingar í vatnsveitum eru iðulega hlut-
fallslega litlar miðað við arðinn sem
frá vatninu kemur. Þetta á til dæmis
við bæði um „franska" fyrirtækið
Lyonnaise des Eaux og „bresku" fyr-
irtækin sem fyrr eru nefnd. Vatnið er
lítill hluti af fjárfestingum og sölu en í
arðsemisuppgjöri vegur vatnið
þungt.
Vatnið er þannig dýrmæt auðlind.
Sérhæfing fyrirtækja á þessu sviði
og samruni þeirra á heimsvísu hefur
fært okkur heim sanninn um að yfir-
lýst markmið um að einkavæðing
stuðli að samkeppni standast engan
veginn. Annað er að reynslan sýnir
að þegar fyrirtæki hefur komið sér
fyrir á þessum „markaði" er erfitt að
losna við það einfaldlega vegna þess
að á markaði er ekki að finna burð-
uga aðila aðra en fjölþjóðlegu risana
sem hirða upp hvem molann á fætur
öðrum. Og gullmolar eru þetta.
gSm897 3634
Þrif á rimlagluggatjöldum.
NetM^
ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR
Innréttingar
teiknivlnna og tilbobsgerb
Priferm
| HÁTÚNI6A (i húsn. Fðnix) SÍMI: 552 4420
Nú hefur það heyrst að svipaðar
hugmyndir séu uppi hér á landi og
víða annars staðar þar sem einka-
væðingin hefur rutt sér til rúms.
Byrjað er að tala um mikilvægi þess
að búa til hlutafélög og „sjálfstæðar
rekstrareiningar“ úr veitufyrirtækj-
um. Auðvitað er byrjað á því að full-
yrða að ekki standi til að selja, eins
og gert var þegar Póstur og sími var
gerður að hlutafélagi. Allir þekkja á
hvaða stigi sú umræða er nú. Þannig
mun það einnig verða með veitukerf-
in ef almenningur heldur ekki vöku
sinni. Það gera samtök launafólks í
almannaþjónustu um heim allan.
Þið eigið gullmola
Þessa dagana fer fram alþjóðleg
ráðstefna um vatn í Hollandi. Public
services intemational sem BSRB á
aðild að hafa hvatt til þess að af þessu
tilefni sé vakin athygli á þeirri auð-
lind sem vatnið er mannkyninu og
mikilvægi þess að allir hafi að því
jafnan aðgang. A Islandi getum við
stært okkur af frábæmm vatnsveit-
um. Undir lok síðasta árs kom til ís-
lands í boði BSRB Brendan Martin,
en hann hefur sérhæft sig í afleiðing-
um alþjóðavæðingai- fyrirtækja og
fjármagns. Hann flutti athyglisverð-
an fyrirlestur þar sem meðal annars
vom tekin dæmi af einkavæddri
vatnsveitu í Buenos Aires í Argen-
tínu og vatnsveitunum í Stokkhólmi
sem reknar em á vegum hins opin-
bera. Samanburðurinn var hinum
síðamefndu mjög í hag. Meðan á dvöl
Brendans Martins stóð hér á landi
skoðaði hann vatnsveitur og kynnti
sér rekstur þeirra. Okkur er minnis-
stætt hve vel honum þótti hafa tekist
til hjá íslendingum. Kvaðst hann full-
ur aðdáunar en bætti við: Þið eigið
hér gullmola og ég er án efa ekki einn
um að sjá hve verðmætur hann er.
Höfundar eiga sæti ístjóm BSRB og
eru í alþjóðahópi samtakanna.
Gólfefna
dai
ar
10-50%
afsláttur af öllum gólfeínum
HÚSASMIDJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
Parket
í miklu úrvali
Verádæmi
Eik stuttstafa
2.395 kr./m2
C
HjjlSUSSi'S'*1'
Ígusett
Yfir 1.500 notendur
CPI KERFISÞRÓUN HF.
ICI I Fákafeni 11 • Sími 568 8055
http://www.kerfisthroun.is/
Grensásvegi 16
Sprenghlægilegt verð!
Skart og klutar kr. 150 - Töskur kr. 500 -
Regnhlífar og sölgleraugu kr. 200 -
Hófur og hattar kr. 500-1000 - Buxur kr. 1000 -
Pils fra kr. 800-1.500 - Kjölar fra 1.250-3.000 -
Stutterma jakkar kr. 2.000 - Síðerma jakkar kr. 2.500
Opið alla daga frá kl. 12-18
<7