Morgunblaðið - 23.03.2000, Side 47

Morgunblaðið - 23.03.2000, Side 47
r MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN og búferlaflutningar sem eiga sér enga hliðstæðu í Islandssögunni, að því ástandi undanskildu þegar nátt- úruhamfarír eða drepsóttir hafa herjað á þjóðina. Eins og málum er nú háttað er hlutverk kvótakerfisins tvenns konar, það er eignatilfærslan annars vegar og hins vegar byggða- eyðingin. Pað er vísvitandi aðgerð að eyða byggð og búsetu á stöðum þar sem hagfræðiútreikningar sýna að byggð sé fjárhagslega óhagkvæm samkvæmt stöðlum sem ríkisstjórnin hefur gefið sér. Það dylst engum sem íhugar þessa hluti af fullri alvöru að það hlýtur að vera vísvitandi ákvörðun ríkisstjóm- arinnar að byggð skuli leggjast af á hinum minni stöðum víðsvegar um landið. Með því að svipta fólk lífs- björginni, eins og gert er með núver- andi kvótakerfi, er verið að neyða íbúana til þess að flytjast til fjöl- mennari byggðakjama, í leiðinni er svo kvótakerfið notað til þess að færa ógrynni auðs á hendur þeirra sem mestan auðinn hafa og stjórna í raun hagkerfi þessarar þjóðar. I bók sinni Steinamir tala, segir Þórbergur Þórðarson að græðgin sé það hungur sem ekki sé hægt að seðja. Hvergi sér maður þessari full- yrðingu meistarans betri stað en í þeim darraðardansi sem kvótaprang- ið er orðið. Þessa óláns- og slysastefnu hafa kjósendur Sjálfstæðis- og Fram- sóknarflokksins illu heilli kosið yfir íbúa þessa lands í síðustu alþingis- kosningum. Viðhald þessa ástands reyna forkólfar þessara flokka með öllum tiltækum ráðum að tryggja. Markmið þeirra er að eyða byggð í hinum minni sjávarplássum víðsveg- ar um landið og til þess að sú áætlun nái fram að ganga er ekkert hjálpar- tæki jafn mikilvirkt og árangursríkt og núverandi kvótakerfi. Ég þekki virtan útgerðarmann í Noregi, hann sagði: „Ef við Norð- menn tækjum upp svona kerfi hér í Noregi myndi allur Norður-Noregur fara í eyði á fjóram til fimm árum.“ í sama streng tók danskur útgerðar- maður sem gerir út skip í Grænlandi. Samkvæmt þeirra áliti er þetta kerfi ekki það besta í heiminum, að minnsta kosti ekki til þess að vernda fisk, þótt það sé mjög árangursríkt til stórfellds arðráns og siðlausrar eignatilfærslu. Það er sorglegt að heyra ágæta ís- lendinga mæla þessu kerfi bót og bera það á borð útlendra stjómmála- manna sem besta fiskveiðistjómun- arkerfi í heimi. Helst er þó á að skilja að það falli í góðan jarðveg hjá þeim þjóðhöfðingjum sem era hvað dug- legastir við að arðræna þegna sína. Við verðum að trúa því að boðberana bresti þekkingu á hinum hrikalegu afleiðingum þess. Hér verður að koma á fót sóknar- stýringu í stað aflamarkskerfisins, öðravísi er ekki hægt að laga þessi ósköp. Höfundur er skipstjóri. - I Mrm ■ Elizabeth Arden kynning í Hygea, Laugavegi, fimmtudag (í dag) og föstudag. Kynntur verður nýi varaliturinn LIP LIP HOORAY. Ath. Þessi glæsilegi kaupauki fylgir ef þú kaupir Arden-vörur fyrir 3.500 kr. trnxa. 8kr. á hvern lítra miðað við iistaverð gömlu olíufélaganna O bensín ÞAÐ MUNAR UM MINNA við öll tækifæri. 3 mismunandi gerðir bakka, fylltir girhilegum samlokum FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000 Pöntunarsími er 5656000, alla virka daga milli kl. 8 - 16 __ __ Breytt útlit með nýju vor- og sumarlitunum frá Helena Rubinstein — Glœsilegir kaupaukar — Kynningar á eftirtöldum stöðum: Fimmtudag, föstudag og laugardag: Föstudag og laugardag: (SNVRTIVÖRUVERSLUNIN GiÆsm Álfheimum 74 - slmi 568 5170 Rönglabakka, Mjódd - sími 587 0203 24*1* C0KPM Tæknival __ - H§ l mk m ' 1 f 1 ímt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.