Morgunblaðið - 23.03.2000, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000 53..
ATVINNUAUGLYSINGAR
Viltu vera í
fremstu röð?
íslandsbanki - upplýsingatækni leitar að metnaðarfullu
og framsýnu fólki til starfa í hópi helstu hugbúnaðar- og
tæknisérfræðinga landsins.
Viltu þróa með okkur lausnir fyrir vefinn?
Viltu þróa með okkur lausnir fyrir viðskiptaborð?
Viltu þróa með okkur lausnir fyrir margvísleg
upplýsingakerfi?
Helstu hugbúnaðarverkfæri eru Orade og Delphi. Helstu stýrikerfi eru Unix,
NT og VMS.
Leitað er að starfsmönnum með háskólapróf (tölvunarfræði, í verkfræði
eða sambærilega menntun. Umsækjandi þarf að hafa góða skipulags-
hæfileika, frumkvæði og eiga gott með að umgangast samstarfsmenn og
viðskiptavini deildarinnar. Hann þarf auk þess að vera jafnvígur á hópvinnu
og sjálfstæði í vinnubrögðum. Starfsreynsla æskileg. Um krefjandi störf er
að ræða og laun verða ! samræmi við það.
Nánari upplýsingar veitir Hákonía Guðmundsdóttir, forstöðumaður
hugbúnaðardeildar í síma 560 8000 eða í tölvupósti hakonia@isbank.is
Má bjóða þér í VINNINGSLIÐIÐ sem rekur eitt af
stærstu tölvukerfum landsins? Starfið fellst í rekstri
á Unix stýrikerfum og Oracle gagnagrunnum.
Við leitum að starfsmönnum með háskólapróf í verkfræði, tölvunarfræði
eða sambærilega menntun eða reynslu. Frumkvæði, sjálfstæði, skipulags-
hæfileikar, gott viðmót og þjónustulund eru nauðsynleg ásamt því að
umsækjandi þarf einnig að vera jafnvígur á hópvinnu og sjálfstæði í
vinnubrögðum. Starfsreynsla æskileg. Störfin eru mjög krefjandi og áhugaverð
og bjóðum við laun í samræmi við það.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Guðmundsson, tæknistjóri íslandsbanka
hf. í síma 560 8000 eða I tölvupósti siggi@isbank.is
Umsóknir berist til Guðmundar Eiríkssonar, starfsmannaþjónustu
íslandsbanka hf., Kirkjusandi, 155 Reykjavík, fyrir 1. apríl 2000.
Islandsbankl - upplýsingatæknl er eitt sjð sviða Islandsbankasveitarinnar. Upplýsingatækni
sérhæfir sig í ráðgjöf og lausnum á sviöi upplýsingatæknimála fyrir sveitina.
íslandsbanki er framsækið og traust fyrirtæki sem er í forystu með nýjungar í flármálaþjónustu
á íslandi. Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu, frekari starfsþjálfun og góðan starfsanda.
ISLANDSBANKI
HRAFNISTA
DVALARHEIMILI ALDRAÐRA SJÓMANNA
Hvaða vinnutími
hentar þér?
Hrafnista leitar að starfsfólki til framtíð-
arstarfa.
Komið og skoðið vinnustað með góðri
vinnuaðstöðu í fallegu umhverfi þar
sem ríkir heimilislegt andrúmsloft.
Hrafnista Reykjavík
Hjúkrunarfrædingar
Hjúkrunarfrædingar óskast í kvöld- og
helgarvinnu. Mismunandi starfshlutfall í
boði.
Sjúkralidar
Sjúkraliðar óskast í dagvinnu eða vakta-
vinnu. Mismunandi starfshlutfall í boði.
Adhlynning
Starfsfólk óskast í dagvinnu eða vakta-
vinnu. Mismunandi starfshlutfall í boði.
Þórunn A. Sveinbjarnar tekur vel á móti
ykkur á staðnum eða í síma 568 9500.
Á Hrafnistuheimilunum búa í dag 545 heimilismenn.
Stefna Hrafnistu er að bjóða starfsfólki upp á öruggt og
skapandi vinnuumhverfi, þar sem haefileikar hvers og eins
fái notið sín og veita heimilisfólki bestu umönnun og hjúkrun
sem völ er á.
Á báðum Hrafnistuheimilunum er rekin endurhæfingardeild
með sundlaug, tækjasal og hreyfisal, sem starfsmenn hafa
aðgang að. Mötuneyti á staðnum.
Vélamenn
— verkamenn
Jarðvinnuverktaka vantar vélamenn og verka-
menn í næg verkefni.
Upplýsingar eru gefnar í símum 855 2331 og
893 0487.
Múrarar
Óskum eftir múrurum í nýbyggingar.
Upplýsingar í síma 892 4560.
AUGLYSINGAR
UPPBOD
Uppboð á óskilahrossum
Uppboð á óskilahrossum fer fram fimmtudag-
inn 30. mars nk. kl. 14.00 við bæinn
Miðengi í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Um er að ræða rauðan hest, tvístjörnóttan með
hvíta slettu á vinstra fæti, 10 vetra eða eldri,
mark bitið aftan vinstra.
Sýslumaðurinn á Selfossi.
TIL SOLU
Glæsileg verslun
Ein glæsilegasta kvenfataverslun
landsins, við Laugaveginn,
er til sölu. Fyrir fjársterka.
Áhugasamir leggi inn upplýsingar
á auglýsingadeild Mbl., merktar:
„Ellert - 2324", fyrir 28. mars.
TILBOO / ÚTBOÐ
FERÐAFÉLAG
ISLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Útboð
Ferðafélag íslands óskar eftir tilboðum í að
steypa upp og gera tilbúna til flutnings rotþró,
sem verður sett niður við einn af skálum
félagsins. Verkið skal vinna skv. útboðs- og
verklýsingu, ásamt þeim gögnum, sem þar
ervísaðtil. Lýsingin liggurframmi á skrifstofu
félagsins, Mörkinni 6, Reykjavík. Verkinu skal
skila fullgerðu eigi síðar en 10. maí 2000.
Tilboð skulu hafa borist skrifstofu félagsins
fyrir kl. 14.00 fimmtudaginn 30. mars 2000.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri
sem hér segir:
Maríutröð 5b, 380 Reykhólum, þingl. eig. Ferðanetið ehf., gerðarbeið-
andi Vátryggingafólag íslands hf„ mánudaginn 27. mars 2000
kl. 9.30.
augl@mbl.is
Sparaðu þér umstang og tíma með því að
senda atvinnu- og raðauglýsingar til birtingar
í Morgunblaðinu með tölvupósti.
Notfærðu þér tæknina næst.
JUóíp0tinM*i&t&
Sýslumaðurinn á Patreksfirdi,
22. mars 2000.
Björn Lárusson, ftr.