Morgunblaðið - 23.03.2000, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 23.03.2000, Qupperneq 56
FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ B. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐMUNDA GUÐLAUG SVEINSDÓTTIR, Stigahlíð 43, Reykjavík, andaðist þriðjudaginn 21. mars sl. Jarðarför auglýst síðar. Þórir K. Valdimarsson, Sveinn J. Valdimarsson, Guðrún Hafberg, Magnús V. Valdimarsson, Linda Konráðsdóttir, Jónína S. Valdimarsdóttir, Þórunn Valdimarsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÖRNINGÓLFSSON prentsmiðjustjóri, Merkurgötu 9a, Hafnarfirði, sem lést föstudaginn 17. mars, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju föstudaginn 24. mars kl. 15.00. Hallgerður Jónsdóttir, Jón Arnarson, Ingólfur Arnarson, Friðrikka Sigfúsdóttir, Anna Vala Arnardóttir, Sigurjón Friðjónsson, barnabörn og barnabarnabörn, + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ÁSLAUGUR BJARNASON rafvirkjameistari, Laugarnesvegi 94, Reykjavík, verður jarðsunginp frá Laugarneskirkju föstu- daginn 24. mars kl. 13.30. Margrét Steinunn Guðmundsdóttir, Herdís Harðardóttir, Þorfinnur Guttormsson, Kristbjörg Áslaugsdóttir, Albert Örn Ásiaugsson, Björk Berglind Gylfadóttir, Reynir Áslaugsson, Anna Kristín Sigurbjörnsdóttir, Áslaug Rut Áslaugsdóttir, Þröstur B. Johnsen, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN ÁSBJÖRG FANNLAND frá Sauðárkróki, Faxabraut 13, Keflavík, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju föstu- daginn 24. mars nk. kl. 14.00. Ásta Pálsdóttir, Haukur Pálsson, Sigurlaug Steingrímsdóttir, Óskar Pálsson, Hörður Pálsson, Inga Sigurðardóttir, Kolbeinn Pálsson, Kolbrún Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Afe tí + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinar- hug við andlát og útför eiginmanns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUNNARS WEDHOLM STEINDÓRSSONAR, Tjarnarbóli 6, Seltjarnarnesi. Jóna Jóhannesdóttir, Bjarney W. Gunnarsdóttir, Gunnar Vilhelmsson, Soffía Wedhoim, Helgi Björnsson, Regína W. Gunnarsdóttir, Björn Gunnlaugsson, barnabörn og langafabarn. VILBORG ÁSA VILMUNDARDÓTTIR + Vilborg Ása fæddist á Vestur- götu 50b í Reykjavík 31. ágúst 1930. Hún lést á líknardeild Landspítalans að morgni 15. mars síð- astliðinn. Hún var sjöunda barn Vil- mundar Ásmunds- sonar, f. 9. desember 1879, d. 15. desember 1959, og Valgerðar Þorbjargar Jónsdótt- ur, f. 31. júlí 1895, d. 28 desember 1944. Systkini Vilborgar Ásu voru Þór- unn, f. 19. júní 1917, d. 17. mars 1920; Þórunn, f. 22. október 1920; Guðrún Lovísa, f. 4. september 1924; Jón Árni, f. 16. desember 1925; Valgerður Guðrún, f. 30. nóvember 1927; Ragnheiður Laufey, f. 31. júlí 1929, d. 6. janúar 1982, og óskírður, f. 11 nóvember 1934, d. 11. nóvember 1934. Hinn 31. desember 1948 giftist Vilborg Ása Einari Marinó Guð- mundssyni, f. 3. desember 1925, d. 27. janúar 1998. Foreldrar hans voru Guðmundur Július Jónsson, f. 14. júlf 1894, d. 15. júlí 1931, og Þorgerður Sigurbjörg Einars- dóttir, f. 20. ágúst 1895, d. 23. ágúst 1982. Börn Ein- ars og Vilborgar eru: 1) Jón Árni, f. 9. júní 1948, kvæntur Auði Friðriksdóttur. Dótt- ir þeirra er María Ósk. Sonur Maríu Óskar er Daníel Þór Jónsson. 2) Guð- mundur Einarsson, f. 16. júlí 1951, kvæntur Öldu S. Elíasdóttur. Börn þeirra eru Elías Einar og Ása. Sonur Ásu og Jóns Inga Ör- lygssonar er Óskar Marinó. 3) Þorgerður, f. 15. febr- úar 1953, gift Valdimar Valdi- marssyni. Börn þeirra eru Val- geir, Valdimar Þór og Sigrún Svava. 4) Einar Lúðvík, f, 20. júní 1960, sambýliskona hans er Sig- rún Ásgeirsdóttir. Dætur þeirra eru Eydís og Katrín Björk. Vilborg var húsmóðir en starf- aði jafnframt sem matráðskona, fyrst hjá Vöruflutningamiðstöð- inni, síðar hjá Matstofu Miðfells og síðast hjá Olíuverzlun íslands í Laugarnesi. Utför Vilborgar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Kallið er komið, komin er nú stundin, Vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margseraðminnast, margter héraðþakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margseraðsakna. Guð þerri tregatárin stríð. Farþúífriði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. GekkstþúmeðGuði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Eg vil með þessum sálmi þakka þér fyrir öll árin sem við fengum að njóta saman. Eg bið algóðan Guð að geyma þig um ókomna tíð. Sofðu nú rótt, elsku Lilla mín. Þín tengdadóttir Alda. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn og allt er orðið rótt. Nú sællersigurunnin, og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgar þraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að stólja, enþaðerGuðsaðvilja og gott er allt sem Guði er frá. (V. Briem) Elsku amma, loksins hlaustu frið- inn eftir hetjulega baráttu við illvíg- an sjúkdóm. Það eru margar minn- ingarnar um þig, allar svo yndislegar, sem koma mér til að brosa í hvert sinn er ég hugsa um þig. Það var alveg sama í hversu fúlu skapi ég var þegar ég kom í heim- sókn til þín, þá komstu mér alltaf til að brosa með öllum frábæru sögun- um sem þú sagðir mér. Þú tókst allt- af svo vel á móti öllum sem komu til þín í heimsókn, alveg sama hvernig stóð á. Því finnst mér sárt að hugsa til þess að hann Oskar Marinó hafi aðeins fengið að kynnast þér í átta mánuði, en ég lofa þér því að ég mun sjá til þess að hann fái að vita hversu yndislega og góða langömmu hann átti Núleggégaugunaftur, ó Guð, þinn náðarkraftur, mínverivömínótt. Ævirztmigaðþértaka, méryfirláttuvaka þinn engil svo ég sofi rótt (S. Egilsson.) Elsku amma, þú gafst öllum sem þér kynntust mjög mikið, með þínum jákvæðu lífsviðhorfum, góða skapinu og yndislega brosinu. Nú bið ég al- máttugan Guð að geyma þig, sofðu rótt Þitt hjartkæra barnabarn og bamabarnabarn, Ása og Óskar Marinó. Nú er víst komið að því að kveðja þig, amma Lilla mín. Það er sárt en ég veit að þér líður vel núna, laus við allar þjáningar og komin til afa. Eg veit að Einar afi verður mjög ánægð- ur að fá þig aftur til sín. Minningarnar um þig eru svo margar að engan veginn er hægt að skrifa þær allar niður. Minningarnar sem standa upp úr eru til dæmis þeg- ar þú galdraðir fram coke-dósir í úti- ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstofan sér um stóran hluta af útförum á höfuðborgarsvæðinu og er samkvæmt verðkönnun Mbl. með lægstu þjónustugjöldin v. kistulagningar og/eða útfarar. Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþjónustu. Sverrir Einarsson útfararstjóri. sími 896 8242 Sverrir Olsen útfararstjóri. HBaldur Bóbó sími 895 9199 Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is / legunni á Þingvöllum. Það var nú ekkert lítið merkilegt að eiga göldr- ótta ömmu. Og svo þegar við fórum í sumarbústaðinn í Dýrafirðinum og við keyrðum alla Vestfirðina á 40 kflómetra hraða. Svo voru þau ófá skiptin sem þú, ég og Valdi frændi sátum við litla eldhúsborðið í Grund- argerðinu og spiluðum rommý. Og svo man maður að sjálfsögðu eftir öllum sögunum sem þú varst alltaf að segja af hinum og þessum. Nú kveð ég þig með söknuð í hjarta og bið að heilsa honum Einari afa. Nú veit ég að þú og afi eruð sam- einuð á ný og sitjið saman, englarnh- tveir, og gætið okkar, eins og þið gerðuð alltaf. Þín sonardóttir, María Ósk. Bless, langamma mín. Takk fyrir allar góðu stundimar. Þinn, Daníel Þór. Mig langar í fáeinum orðum að minnast elskulegrar fjölskylduvin- konu. „Einstakur" er orð sem notað er þegar lýsa á því sem engu öðru er líkt faðmlagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð meðbrosieðavinsemd. „Einstakur“ lýsir fólki sem stjómast af rödd hjarta síns og hefur í huga hjörtu annarra. „Einstakur“áviðþá sem em dáðir og dýrmætir og skarð þeirra verður aldrei fyllt. „Einstakur" er orðið sem best lýsir þér. (Teri Femandez.) Mér finnst þessi tilvísun eiga vel við, því persónu eins og Lillu gleymh' maður ekki. Hún var ekki hávaxin en hún hafði mikla persónutöfra sem löðuðu að sér unga sem aldna. Ég verð ævinlega þakklát fyrir að hafa notið þeirra forréttinda að hafa kynnst henni en það eni forréttindi að eiga hlutdeild í lífi annarra. Þegar ég fiutti suður átti ég mitt athvarf í Grundargerði hjá Lillu og Einsa. Þau hjónin og mamma voru góðh' vinir sem náði aftur til þess þegar móðurbróðir minn giftist móð- ur Einsa. Síðar á síldarárunum dvaldist Einsi hjá foreldrum mínum og þau tengsl sem þá mynduðust héldust alla tíð. I Grundargerðið var gott að leita þar sem ég var ein í stórborginni, þau tóku á móti mér þegar ég kom og joað má segja að þau hjónin hafi tekið „sveitastelpuna" undir sinn verndar- væng. Tíminn leið, fjölskylda mín stækkaði en alitaf var nóg pláss fyrir okkur þótt fullt væri af fólki og þétt setinn bekkurinn. Minningarnar eru margar og góðar og þær sem ég á um ferðirnar okkar til Glasgow og Dubl- in skipa þar sérstakan sess. Lilla flutti í Blikahóla, í fallegu íbúðina sína, á síðasta ári en tíminn sem hún átti þar var skammur. Eftir að hún flutti var orðið stutt á milli okkar (þó aldrei hafi verið langt til Lillu) og ætluðum við með vorinu að labba í „hringnum okkar“. Ég talaði við þig daginn áður en þú fórst á fund Einsa og annarra ást- vina. Þú endaðir samtalið á orðunum „við sjáumst" og það vona ég svo sannarlega þegar þar að kemur. Elsku Nonni, Gummi, Gerða, Einsi og fjölskyldur, sem og aðrir ástvinir, sorgin er sár og tómarúmið sem myndast reynum við að fylla með sjóði minninga en það verður fjársjóður sem við munum varðveita. Er sárasta sorg okkar mætir og söknuður hug okkar grætir, þá líður sem leiftur af skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum. (Hallgr. J. Hallgr.) Elsku Lilla, takk fyrir allt og allt og „við sjáumst"! Fanney. GAR.ÐH EIMAR BLÓMABÚÐ • STLKKJ ARBAKKA 6 V SÍMI 540 3320
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.