Morgunblaðið - 23.03.2000, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
PIMMTUDAGUR 23. MARS 2000 63
H
Skemmtikraftar
en ekki
vændiskonur
Frá Sigurjóni Helga Kristjánssyni:
Siguijón Helgi
Kristjánsson
BRÉF frá Þráni Stefánssyni birtist
13. febrúar sl. í Morgunblaðinu, þar
sem spurt var hvort kynlífsþrælkun
væri að finna á íslandi.
Mig langar að gefnu tilefni að
varpa Ijósi á þetta
mál og hrekja
þessar órök-
studdu dylgjur
þessara kvenna í
Kvennaathvarf-
inu.
Á áttunda og
níunda áratugn-
um færðist í auk-
ana að menn
færu til útlanda
til að kvongast.
Var þessi „nýja hefð“ afleiðing af
kynningarefni sem var mikið auglýst
í erlendum tímaritum. Kynningar-
efnið var ekki pöntunarlistar, heldur
skrá yfir aðila sem voru að leita að
pennavinum eða nýjum kynnum og
hugsanlega með hjónaband í huga,
líkt og einkamáladálkarnir í dagblöð-
um.
Sjálfur hef ég kynnst mörgum
pennavinum á þennan hátt, og einnig
í gegnum sambærilega ókeypis þjón-
ustu á Netinu, og get ég fullvissað
landslýð að hér er ekki um neina
sölustarfsemi að ræða.
Margar stúlknanna telja sig enga
framtíð eiga í sínu heimalandi, þar
sem þær geta ekki fengið starf miðað
við menntun, og vilja því freista gæf-
unnar með að leita út fyrir landstein-
ana. Til að verja sæmd sína vilja þær
ganga í það heilaga áður en þær fara
úr landi.
Einnig vilja yfirvöldin þar ytra
vernda orðstír lands síns, og setja
fram þær kröfur, að báðir aðilar sýni
fram á, að þeir séu ekki í hjónabandi
(lögskilnaður hafi gengið í gegn ef
um slíkt er að ræða) og að bréfa-
skriftir hafi átt sér stað í a.m.k. eitt
ár (sannað með bréfum og umslög-
um með póststimplum). Ennfremur
má ekkert fé, eða annað sem fémætt
getur talist, ganga á milli foreldra
brúðar og væntanlegs tengdasonar.
Hvað varðar súludansarana svok-
ölluðu, þá vil ég upplýsa landslýð að
það eru þær sjálfar sem komið hafa
til íslands, þar sem íslendingar
sjálfir hafa auglýst eftir fólki í gegn-
um umboðsaðila erlendis.
Til að mynda er að finna fasta
auglýsingu í „The Stage“ (Sviðið) frá
fyrirtæki er nefnist Entertainment
International, þar sem leitað er að
„borðdönsurum" fyrir Bretland og
erlendis. Upphafstími samnings:
Strax. Lönd sem nefnd eru, eru: Is-
land, Kanada, Austurríki, Þýska-
land, Danmörk og fleiri. En ísland
er haft efst á blaði í upptalningunni.
Auglýsingar af þessum toga er einn-
ig hægt að finna á fleiri slóðum á ver-
aldarvefnum, s.s. www.thest-
age.co.uk/jobs
Til að gæta fyllsta réttlætis verður
að taka hér fram að stúlkurnar eru
ráðnar til íslands sem „skemmti-
kraftar" en ekki sem vændiskonur
(enda framboðið nóg fyrir). Hitt er
svo annað mál, að sumar hafa boðið
upp á að vera samkvæmisförunaut-
ar, eftir vinnu, gegn þóknun. Þessu
kynntist ég af eigin raun er ég var
beðinn að sækja nokkra vini á
skemmtistað í Reykjavík, er stúlka
ein frá slavnesku ríki gaf sig á tal við
mig og bauð fram slíka þjójustu, sem
ég hafnaði og var hún frekar súr á
svipinn.
Ég skil ekki æsinginn í konum
Kvennaathvarfsins nema ef þær eru
sárar út í kynsystur sínar að stunda
slíka „þjónustustarfsemi", en þær
ættu að muna að til var staður í
Klúbbnum, sem gekk undir nafninu
500-bekkurinn (nafnið breyttist síð-
an með tilliti til verðbólgu).
Hér í Bretlandi, þaðan sem þetta
bréf er ritað, eru á boðstólum fylgd-
arþjónustur, em bjóða fram fylgda-
raðila af báðum kynjum og öllum
kynhneigðum. Sumar eru heiðvirðar
og bjóða eingöngu upp á fygld eða
fylgd og/eða nudd, og hafa allir
fylgdaraðilar sérstök skilríki sem
fylgdaraðila ber að sýna í upphafi
kvöldsins til að tryggja öryggi við-
skiptavinarins. Aðrar eru ekki eins
vandar að virðingu sinni og eru á
boðstólum aðilar er sinna öllum þörf-
um viðskiptavinarins, gegn þakklæt-
isvotti.
Eftir því sem ég best veit bjóða
bæði kynin á íslandi upp á sambæri-
lega þjónustu, þó svo að ekki sé endi-
lega um neinn umboðsaðila að ræða.
Ég vona að bréf þetta hafi komið í
veg fyrir frekari útbreiðslu á þessum
sögusögnum/rógbm-ði og vil ég að
lokum óska Kvennaathvarfinu vel-
farnaðar í starfi þeiiTa, sem þær
vinna vel.
SIGURJÓN HELGI
KRISTJÁNSSON,
61F Logie Place,
Aberdeen AB17 /UP
Skotlandi.
Af ferðamönnum o g
kjúklingarækt í Taflandi
Frá Baldri Hannessyni:
MARGIR þekkja hina kínversku að-
ferð, að rækta saman kjúklinga og
fisk, sem mikið er notuð hér í Taí
landi. Hún byggist á þvi að kjúkl-
ingabúrunum er komið fyiir ofan við
fiskatjörnina og fiskarnir fóðraðir á
því sem hænsnin skila af sér reglu-
lega. Þannig næst hámarksnýting,
bæði á fóðri og landi. Þessi ræktun
skilar af sér vel vöxnu'm gripum
(kjúklingum og fiskum) á diska
ferðamanna og Taílendinga. En nú
hefur Peace Resort Hotel á Pattaya
ákveðið að ryðja nýjar brautir á
sviði ferðamennsku og ákveðið að
ala saman kjúklinga og hótelgesti.
Sett hefur verið upp kjúklingarækt
við sundlaugina og þrífast kjúkling-
arnir einstaklega vel. Óvíst er hvað
kjúklingarnir éta en eitt er víst að
hótelgestir borða kjúklingana að
lokum. Gaman væri að fá nánari út-
skýringar hjá hótelinu hvert er
raunverulegt markmið þessarar til-
raunar og hvort setja eigi t.d. fiska í
sundlaugina líka.
Sem hótelgestur komst ég því
miður að því að kjúklingarnir gengu
fyrir gestunum því sá ókostur fylgir
þvi miður kjúklingarækt að þeim
fylgja flær sem virðast sólgnar í
suma hótelgesti, eins og t.d. mig.
Einnig byrja hanarnir að gala eld-
snemma á morgnana (kl. fjögur) og
hindruðu eðlilegan svefn hjá undir-
rituðum. Þegar ég pantaði herberg-
ið bað ég sérstaklega um hljóðlátt
herbergi en morgunsöngur hananna
var greinilega ekki talinn til hávaða
á þessu hóteli þar sem stærsta
hanabúrið var beint fyrir aftan her-
bergið mitt. Undirritaður kvartaði
og var mjög reiður af svefnleysi og
flóabiti en enginn gat gert neitt þar
sem framkvæmdastjórinn var í fríi.
Þegar hann kom svo að lokum var
enginn vilji til að gera neitt og ég
beðinn lengstra orða að bóka mig út
og yfirgefa þetta hótel þar sem ég
passaði ekki inn í rekstur hótelsins
eða kjúklingaræktarinnar. Ég hafði
borgað fyrirfram einn mánuð og
fékk mismuninn endurgreiddan en
verð herbergisins var hækkað um
100 bath á dag, líklega vegna hinnar
óumbeðnu morgunhljómlistar og
flóabita, sem fæst (sem betur fer)
ekki á öllum hótelum.
Ég hef oft áður dvalið á sama hót-
eli, fyrir tíma kjúklingaræktarinnar,
stundum í langan tíma í senn og lík-
að vel, sérstaklega við starfsfólkið
sem er frábært í alla staði.
Ég ræddi við kunningja minn um
hugsanlega smithættu af völdum
salmonellu og fleiri skjúkdóma sem
eru fylgifiskar kjúklingaræktar og
þá sérstaklega vegna nálægðar
kjúklinganna við sundlaugina. Hann
taldi að kjúklingarnir væru nánast
ónæmir fyrir salmonellu og um-
ræddum sjúkdómum þótt þeir
dræpu suma ferðamenn. Einnig
kynnu kjúklingarnir ekki að synda
og færu því ekkert í laugina og væri
þess vegna alveg óhætt. Ef túristar
væru hins vegar að sulla í lauginni
Peysurnarfást
í Glugganum
Glugginn
Laugavegi 60. Sími 551 2854
og yrði á það slys að súpa á þá gætu
þeir bara sjálfum sér um kennt fyrir
óvarkárnina og tekið afleiðingunum.
Ekki veit ég hvort nokkurt heil-
brigðiseftirlit er til í Taílandi en ég
trúi ekki öðru en að umræddu hóteli
yrði lokað samdægurs á íslandi og
forsvarsmenn dregnir til ábyrgðar
fyrir margs konar brot á heilbrigðis-
löggjöfinni og ekki leyft að opna
hótelið aftur fyrr en búið væri að
skipta um allan hugsanlega sýktan
jarðveg á svæðinu.
Ég svaf reyndar eins og engill
næstu nótt, í kyrrðinni á Weekender
Hóteli (sem margir íslendingar
þekkja), þrátt fyrir flóabitin.
Að lokum vil ég bara leggja til við
eigendur umrædds hótels að nafni
þess verði breyt tí „Peace Resort
for Chickens" og nafni kaffistofunn-
ar, sem nú heitir „Parrot Coffee
Shop“ verði breytt í „Chicken Cof-
fee Shop“. Svo mætti líka setja upp
flóasirkus fyrir gestina.
BALDUR HANNESSON,
ferðamaður í Taílandi.
Bflastæ ðavanda-
mál við Mennta-
skólann í
Kópavogi
Frá Helgu Kolbrúnu Magnúsdótt-
ur og Hallfríði Gunnsteinsdóttur:
BÍLASTÆÐASKORTUR er mildll
við opinberar byggingar, tökum sem
dæmi framhaldsskóla. Við Mennta-
skólann í Reykjavík eru nánast eng-
in stæði og við Verslunarskólann eru
alltof fá stæði, sérstaklega eftir að
Viðskiptaháskólinn var stofnaður.
Eftir stækkun Menntaskólans í
Kópavogi fyrir rúmum þremur árum
varð bílastæðavandinn mikill. MK er
einnig ferðamálaskóli og hótel- og
matvælaskóli. Nemendurnir eru um
1.000 í heildina og af þeim eru um
260 á fyrsta ári og því flestir ekki
með bílpróf. Stæðin sem eru ætluð
nemendum eru um 150 talsins.
Fyrir 20 árum var mjög sjaldgæft
að krakkar fengju bíl í 17 ára afmæl-
isgjöf og ættu GSM síma 11 ára en
núna eru breyttir tímar. Núna telst
það sjaldgæft að menntskælingar
eigi ekki GSM og hafi ekki aðgang að
bíl. Hvemig ætli ástandið verði eftir
20 ár?
Staðreyndin er sú að á hverjum
degi leggja margir bílar við MK upp
á gangstéttir og út um allt vegna
skorts á stæðum. Samkvæmt bygg-
ingarreglugerð, 64. grein, segir að
við framhaldsskóla skulu vera a.m.k.
5 bílastæði á hverja skólastofu, auk
bílastæða fyrir starfsfólk. Miðað við
stofufjöldann í skólanum ættu að
vera a.m.k. 220 stæði fyrir nemend-
ur. Starfsfólk skólans er um 125 og
hefur það um 50 sérmerkt stæði. Má
til gamans geta að húsvörður skól-
ans lætur draga burtu bíla sem ekki
em merktir starfsfólki og oftar en
einu sinni hafa það verið bílar starfs-
fólks sem af einhverjum ástæðum
hafa ekki verið merktir. Með þessum
tölum er hægt að áætla að 5 nemend-
ur hafa eitt stæði og 2 kennarar með
eitt sérmerkt stæði. Einnig má geta
þess að sumir kennarar leggja ekki
alltaf í sérmerktu stæðin heldur nota
þeir stæði nemenda. Hvort sem er
vegna þess að kennarastæðin eru þá
orðin full eða gefa þeim kennurunt
sem koma seinna en klukkan átta í
skólann möguleika á að fá stæði.
Samkvæmt lauslegri könnun Lög-
reglunnar í Kópavogi hafa ökumenn
80-90 bifreiða verið áminntir eða
sektaðir fyrir að hafa lagt ólöglega
við MK síðan í september í fyrra.
Sektin er 4.000 krónur og gerir þetta
allt í allt um 340.000 kr. Sektirnar
gætu verið mun fleiri ef lögreglan
legði sig fram við að sekta.
Við skólann er grasflöt sem er
ónýtt, sem auðvelt og ódýrt væri að
breyta í bílastæði. Samkvæmt skól-
astjórn er ekki á áætlun að fjölga
bílastæðum nema skólinn verði
stækkaður.
Þetta er vandamál bæði fyris1
kennara og nemendur og mætti ætla
að það væri næg ástæða til breyt-
inga, þar sem þær eru ekki kostnað-
arsamar. Af hverju ekki að laga
þetta vandamál núna, hvort sem
stækkun skólans yrði framfylgt eða
ekki?
HELGA KOLBRÚN
MAGNÚSDÓTTIR,
HALLFRÍÐUR GUNN-
STEINSDÓTTIR,
nemendur við Menntaskólann í
Kópavogi.
Lipur bútsög
• 250mm blað
•1500w
• 45790°
16.995 kr.
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
1