Morgunblaðið - 23.03.2000, Qupperneq 76
Trausti
íslenska
murvorui
Síðan 1972 H
éSjf Leitið tilboða! ■! StBÍfipi
á'J/y.r 1
nifiNIR
Fáanleg 3 sóium yndtiandi
MORGUNBLAÐW, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF6691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBLJS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Þjóðhagsstofnun spáir 5,3% verðbólgu og 50 milljarða viðskiptahalla
V öxturinn teflir
stöðug’leika í tvísýnu
Morgunblaðið/Golli
Heilsað upp á staurana
ÞJÓÐHAGSSTOFNUN telur að
mikill vöxtur í efnahagslífinu tefli
stöðugleikanum í tvísýnu. Það birtist
í 5-6% verðbólgu og miklum og vax-
andi viðskiptahalla. Slíkt fái ekki
staðist til lengdar og því sé óhjá-
kvæmiiegt að hægja á efnahagsstarf-
seminni.
I yfirliti Þjóðhagsstofnunar um
stöðu og horfur í þjóðarbúskapnum
spáð 4% aukningu landsfram-
Ieiðslu í ár, sem er meira en áður hef-
ur verið reiknað með, og að atvinna
Félag um
rekstur rækju-
verksmiðju í
Kanada
~ H^NÆFELL hf., Nýsköpunarsjóður
atvinnulífsins, Samherji hf. og
kanadíska samvinnufyrirtækið Fogo
Island Co-Operative Society Ltd.
hafa stofnað félag, Fogo Island
Shrimp Ltd., um rekstur rækjuverk-
smiðju á Fogo Island á Nýfundna-
landi og hefst framleiðsla í sumar.
Að sögn Bjöms Z. Asgrímssonar,
framkvæmdastjóra Isheims hf., sem
átti frumkvæði að stofnun félagsins,
sjá menn það sem góðan fjárfesting-
arkost en í því geta falist tækifæri í
öðrum fisktegundum, til dæmis
botnfiski.
■ íslendingar/23
ÓVÍST er hvort skattleysismörk
hækka um næstu mánaðamót eins
og að var stefnt. Ekki er enn búið að
mæla fyrir frumvarpi til laga um
breytingar á tekjuskatti og frum-
varpið er ekki á boðaðri dagskrá Al-
„ bingis í dag. Ekki er fyrirhugaður
þingfundur á morgun. Verði frum-
varpið ekki að lögum fyrir helgi eru
engar líkur á að fyrirtækin í landinu
geti greitt laun í samræmi við breytt
skattalög, en þau eru þessa dagana
aukist jafnvel meira en á síðasta ári.
Á hinn bóginn versna horfur í verð-
þróun og viðskiptahalla. Spáð er
5,3% verðbólgu frá síðasta ári og að
viðskiptahallinn fari yfir 50 milljarða
kr., sem eru 7,2% af landsfram-
leiðslu.
Slaki hefiir einkennt hagstjórn
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Þjóðhagsstofnunar, segir að þetta sé
meiri verðbólga og viðskiptahalli en
þekkist í öðrum OECD-löndum. Seg-
ir hann mikilvægt að takast á við það
verkefni að draga úr verðbólgunni.
Þá segir hann að það misvægi sem
felst í miklum og vaxandi viðskipta-
halla sé óstöðugleiki sem ekki gangi
til lengdar.
Fram kemur í skýrslu Þjóðhags-
stofnunar að mikill slaki hafi ein-
kennt hagstjórnina undanfarin miss-
eri. Þótt slakinn hafi nú að hluta verið
halaður inn með aðhaldsaðgerðum á
sviði peningamála og ríkisfjármála sé
óvíst að nóg hafi verið að gert. Lík-
legt sé að eftirspurn í hagkerfinu
aukist eins mikið á þessu ári og í
fyrra og því megi búast við að áfram
ríki mikil spenna í efnahagslífinu.
Þórður segir að fylgjast verði vel
með framvindunni næstu mánuði
með það fyrir augum að grípa tíman-
lega fastar í taumana en gert hefur
verið. Nefnir hann ráðstafanir í pen-
ingamálum og ríkisfjármálum og
leggur áherslu á að tryggt verði að
þau markmið sem sett voru í fjárlög-
um verði ekki gefin eftir.
■ Spáir yfir/6
að undirbúa launagreiðslur fyrir
næsta mánuð. Ekki fengust skýring-
ar á því í gær að ekki væri búið að
mæla fyrir frumvarpinu, en það var
afgreitt í ríkisstjóm á þriðjudaginn í
síðustu viku.
Hækkun skattleysismarka var
hluti af yfirlýsingu sem ríkisstjórnin
gaf í tengslum við undirritun kjara-
samnings Flóabandalagsins og Sam-
taka atvinnulífsins. Atkvæðagreiðsla
um samninginn stendur nú yfir.
Eftir nýliðin vorjafndægur hefur
dagurinn borið nóttina ofurliði og
lengist nú óðum í upphafi ein-
mánaðar. Engu síður er nauðsyn-
legt að huga að ljósmeti innan
dyra sem utan enda er það mikið
öryggisatriði fyrir vegfarendur
að hafa góða götulýsingu að
kvöld- og næturlagi. í því skyni
heilsa eftirlitsmenn reglulega
upp á staurana á Reykjanesbraut-
inni og víðar og skipta um perur
í öryggisvörðunum hávöxnu.
Fólksbíll út af í
Staðarskriðum
Fór niður
70 metra
skriðu
FÓLKSBÍ LL lenti út af og valt
niður um 60-70 metra í Staðar-
skriðum í norðanverðum Fá-
skrúðsfirði í gærkvöld.
Ökumaðurinn var einn í bíln-
um og slapp ótrúlega vel, að
sögn lögreglu á Fáskrúðsfirði,
en hann lemstraðist nokkuð og
hlaut minniháttar skrámur.
Hann mun hafa verið í bílbelti
sem kom í veg fyrir að verr
færi. Grjót hafði hrunið úr hlíð-
inni ofan við veginn í sólbráð
fyrr um daginn. Þegar ökumað-
ur sveigði hjá því missti hann
stjórn á bílnum á hálkubletti.
Engin vitni voru að slysinu og
komst ökumaður af eigin
rammleik upp á þjóðveginn um
erfiðai- þverhníptar skriður. Að
sögn lögreglu þurfti kaðal til
stuðnings þegar farið var um
skriðumar til að ná bílnum upp.
Vattamesskriður em nyrst i
Staðarskriðum og hafa fjöl-
mörg umferðarslys átt sér stað
í skriðunum á undanförnum ár-
um.
Stefnt að
samningi
fyrir helgi
EKKI reyndist unnt að ganga frá
kjarasamningi milli Rafiðnaðar-
sambandsins og Samtaka atvinnu-
lífsins í gær, eins og stefnt var að
fyrir helgi. Viðræðurnar gengu þó
vel og er stefnt að því að ganga frá
samningi síðdegis á föstudag.
„Málin em nú í ákveðnu ferli og ef
vel gengur verður hægt að Ijúka
þeim innan þessara tímamarka,"
sagði Ari Edwald, framkvæmda-
stjóri SA.
Sjö dagar em nú í að verkfall
skelli á hjá 26 landsbyggðarfélögum
innan Verkamannasambandsins,
verði ekki af samningum við SA fyrir
þann tíma. Enn ber mjög mikið á
milli í viðræðum deiluaðila og miðar
lítið í samkomulagsátt.
Samninganefnd VMSÍ og LÍ sendi
í gær frá sér opið bréf til ríkisstjórn-
arinnar í tilefni kjarasamninganna.
Þar segir m.a. að undirstöðuatvinnu-
vegir þjóðarinnar þarfnist þess að
byggð sé haldið við úti um land.
■ Kjaramálin /11
Lögreglan á Húsavík rannsakar mannslát
Breytt skattleysismörk
V er ður hækk-
un frestað?
Laus sæti
í sólina!
Kanarí í apríl og
vorferö til Portúgal
á ótrúlegu veröi.
Samvinnuferðir
Landsýn
Ungur maður úrskurðaður í
gæsluvarðhald vegna málsins
LÖGREGLAN á Húsavík rannsak-
ar nú lát manns sem talið er hafa
borið að með voveiflegum hætti
snemma síðastliðinn laugardags-
morgun. Hefur karlmaður á þrí-
tugsaldri verið úrskurðaður í
þriggja vikna gæsluvarðhald vegna
rannsóknar málsins.
Hinn látni var á sjötugsaldri og
var í fyrstu talið að um sjálfsvíg
hefði verið að ræða. Á frumstigi
réttarkrufningar komu í Ijós atriði
sem bentu til að svo væri ekki. At-
burðurinn á að hafa átt sér stað í
íbúðarhúsi skammt frá Húsavík þar
sem maðurinn sem lést og sá sem
handtekinn var höfðu verið til heim-
ilis. Lögreglan á Húsavík krafðist
gæsluvarðhalds yfir hinum hand-
tekna og varð Héraðsdómur Norð-
urlands eystra á Akureyri við þeirri
kröfu í gær. Maðurinn hefur fallist
á að gangast undir geðrannsókn í
tengslum við rannsókn málsins.
Lögreglan á Húsavík fer með for-
ræði rannsóknar málsins, sem mið-
ar vel að hennar sögn. Lögreglan
hefur ennfremur notið aðstoðar
rannsóknardeilda ríkislögreglu-
stjóra og lögreglunnar á Akureyri.