Morgunblaðið - 26.03.2000, Page 58
>58 SUNNUDAGUR 26. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HÆTTU BARA!
PAÐ ER ENGINN VANDI
22&
«
m
Valgeir Skagfjörð
Pétur Einarsson
HRÍNGPU NÚNA!
Símar:
899 4094
898 6034
Allen Carr's EASYWAY á Islandí.
663 9690
fxí qliirTiir.irtækiQyeisTur
l^rérTpiJiQQveismr
Ttif^Qveislur
' >
Lótto oLLur sjó um
veisluna fyrir þig!
Við Lomum með
® koLka 09
ijfiSfc) kræsingar til þín
Verðfrá850,- ámQnninn
með heimLeijrslu
á höfuðborgarsvæðinu
FÓLK í FRÉTTUM
Virginie Ledoyen og Guillaume Canet úr Ströndinni
Að byggja sína
eigin paradís
Það eru fleiri stjörnur
en Leonardo DiCaprio
sem leika í Ströndinni.
Pétur Blöndal spjallaði
við Virginie Ledoyen og
Guillaume Canet.
ÞAU eru svo sæt, svo sæt
að sólin er feimin, er það
fyrsta sem blaðamanni
dettur í hug þegar hann
horfir á frönsku leikar-
ana Virginie Ledoyen og Guillaume
Canet. Pau eru brosmild og frökk,
hún með brúnu augun og hann með
hárið beint upp í loftið. Bæði hafa þau
verið tilnefnd til sesarsins sem efni-
legustu leikarar Frakklands, hún árið
1996 fyrir „La Fille seule“ leikstjór-
ans Benoit Jacquot og hann árið 1999
fyrir „En Plein Coeur“ leikstjórans
Pierre Jolivet, en í þeirri mynd lék
hann á móti Ledoyen. Ledoyen er í
stærra hlutverki í Ströndinni; hún
leikur stúlkuna sem sjálfur Leonardo
DiCaprio fellur fyrir. Pótt ekki sé hún
jafnfræg DiCaprio á alþjóðavettvangi
er hún afar þekkt í heimalandi sínu.
Hún var aðeins tveggja ára þegar
hún var fyrst ráðin til fyrirsætu-
starfa, um þessar mundir er hún
samningsbundin L’Oreal, og níu ára
lék hún í sinni fyrstu kvikmynd. Hún
var kjörin besta leikkona Kvik-
myndahátíðarinnar í París árið 1998
fyrir frammistöðu sína í „Jeanne et le
garcon formidable“, sem einnig var
valin besta kvikmyndin. Næsta verk-
efni hennar er Vesalingamir þar sem
hún leikur á móti Gérard Depardieu
og John Malkovich.
Þótt Guillaume Canet sé ungur að
árum hefur hann viðað að sér mikilli
reynslu í leikhúsi, sjónvarpi og kvik-
myndum og í næstu kvikmynd leikur
hann á móti Sophie Marceau í „La
Fidélité" undir leikstjóm Andrezj
Zulawski.
Frá bók til kvikmyndar
Pað verður að teljast athyglisvert
að í Ströndinni takast ástir með
ferðalangnum Richard, sem leikinn
er af DiCaprio, og Francoise, sem
leikin er af Ledoyen. í bókinni er hún
hins vegar alltaf trú kærasta sínum,
Etienne, sem leikinn er af Canet.
„Mér fannst þetta jákvæð breyt-
ing,“ segir Canet. „Fyrir vikið hafði
ég meiri efnivið í persónusköpunina.
Etienne hefur siðferðisþrek til að
standa gegn eyjarskeggjum í allri
vitfirringunni. Hann er einn á báti og
það að hann sé að missa kærastuna
sína eykur á einsemdina.“
„Francoise hefur engin sérstök
persónueinkenni í bókinni, hún er
bara fantasía," bætir Ledoyen við. „í
myndinni á hún í ástarsambandi við
Richard og verður þar með meiri
þátttakandi. Það skýrir líka löngun
Richards til að fara til eyjarinnar;
hann vill kynnast Francoise betur.“
Hvemig tilSnning var það þegar
ykkur var tilkynnt að þið hefðuð
fengið hlutverk í bandarískri stór-
mynd?
„Ég var í París þegar það gerðist
og lét alveg eins og krakld, hoppaði
og öskraði,“ segir Ledoyen. „Svo
hringdi ég í Guillaume. Við fórum
nefnilega saman í síðustu leikprufuna
og mig langaði að vita hvort hann
hefði einnig fengið hlutverk."
„Þótt það væru hundruðir kfló-
metra á milli okkar þá hoppuðum við
á sama tíma,“ skýtur Canet inn í.
„Mér leist vel á verkefnið í heild; að
vinna aftur með Guillaume og svo var
spennandi að kynnast Danny
[Boyle].“
, j>að fannst mér líka,“ segir Canet.
„Hann er einn af þeim leikstjómm
sem geta náð bæði listrænum og
Reuters
„Hann [DiCaprio] verðskuldar svo innilega að hafa náð svona langt,“
segir Canet sem hér ræðir við DiCaprio.
Ledoyen: „Mig Iangar ekki til að
flylja til Hollywood. Mitt „heima“
er í Frakklandi, þar býr fjöl-
skyldan mín og ég á enn eftir að
vinna með fjölmörgum hæfileika-
ríkum frönskum Ieikstjórum."
tæknilegum tökum á viðfangsefninu,
kvikmyndatakan í myndum hans er
framúrskarandi og svo á hann auð-
velt með að vinna náið með leikur-
um.“
Nú eruð þið á þröskuldi Holly-
wood. Ætlið þið að ganga inn fyrir og
getið þið hugsað ykkur að búa annars
staðar en í Frakklandi?
„Nei, það get ég ekki hugsað mér,“
segir Canet fljótur til svars. „Ég
myndi aldrei flytja til Bandaríkjanna.
Samt gæti ég ekki hafnað tækifæmm
á borð við þetta, að vinna með Danny
Boyle. Ef það væri tál að vinna með
leikstjórum á hans mælikvarða
myndi ég slá til en ef það væri bara til
að gera kvikmynd á ensku, bara af
því hún væri á ensku, þá myndi ég
ekki gera það.“
„Ég tek undir með síðasta ræðu-
manni,“ segir Ledoyen og brosir.
„Mig langar ekki til að flytja til Holly-
wood. Mitt „heima“ er í Frakklandi,
þar býr fjölskyldan mín og ég á enn
eftir að vinna með fjölmörgum hæfi-
leikaríkum frönskum leikstjórum.
Hins vegar langar mig sem leikkonu
að kynnast ólíkum menningarheim-
um. En ég held að það sé alltaf erfitt
fyrir leikara að ná fótfestu í framandi
landi.“
Boðskapur myndarinnar
Hvaða boðskap hefurmyndin að
ykkar dómi?
„Hún lýsir fólki sem er að leita að
paradís," svarar Canet. „Sú paradís
sem það finnur í myndinni reynist
vera tálsýn sem breytist í maríröð.
Það rímar við mína lífssýn; að mínum
dómi þarf ekki að leita langt til að
finna paradís. íbúamir hafa sólina,
hafið og sandinn en em ekki endilega
sérlega hamingjusamir. Það er gott
að ferðast og skoða sig um, því þegar
maður snýr aftur þá veit maður
hvemig heimurinn lítur út handan við
sjóndeildarhringinn og þá getur mað-
ur byggt sína eigin paradís. Það em
ein af skilaboðum myndarinnar. Mér
fannst það líka vera kaldhæðnislegt
að þegar einn eyjarskeggja slasast er
honum komið fyrir í skóginum svo
aðrir þurfi ekki að horfa upp á hann
kveljast á hverjum degi. Það er ná-
kvæmlega það sem er að gerast í
heiminúm. Við lokum augunum,
reynum að hugsa ekki um þjáningar
annarra, heldur einbeitum okkur að
því að fagna árþúsundamótunum og
vera hamingjusöm. Með þetta í huga
finnst mér þessi mynd ekíd aðeins
höfða til ungs fólks. Hún á einnig er-
indi við hina sem eldri eru; það þarf
að opna þeirra augu líka.“
„Eigingimi og mannúð em einnig
umfjöliunarefni myndarinnar," segir
Ledoyen. „Þetta unga fólk kynnist
sjálfu sér og eigin breyskleika. Það er
helst Etienne sem kemst heill frá
þvL“
„Ég er sá sem reynist vera full-
kominn," segir Canet blákalt.
Sumir eru á því að þetta sé bara
enn ein bandaríska unglingamyndin,
sem haS engu að miðla og sé ein
klisja út ígegn, - sumsé lýsandi fyrír
unga fólkið á okkar tímum.
„Guð minn góður,“ segir Ledoyen
og hváir. „Lífið er ansi alvarlegt
núna, meira en á sjöunda áratugnum.
Þá var svo margt sem hægt var að
berjast fyrir, borðleggjandi hugsjónir
eins og mannréttindi. Allt var svo
nýtt og spennandi. Núna er eins og
við búum öll í einu og sama landinu
með tilkomu Netsins og það sé búið
að vinna alla stóru sigrana fyrir
mannkynið. í stað þess að stíga upp í
flugvél til að kynnast framandi stöð-
um, sláum við inn slóðina á Netinu.
Vissuiega er það tímaspamaður og
greiðir fyrir samskiptum á milli fólks.
En það dregur líka úr samskiptum á
milli fólks. Ef tii vill er það þess vegna
sem sagt er að ungt fólk hafi frá engu
að segja. Og þegar allt kemur til alls,
hefur eldra fólk ekki alltaf haft for-
dóma gagnvart ungu kynslóðinni?"
Eylífið óspennandi
Gætuð þið hugsað ykkur að búa í
samfélagi eins ogí myndinni?
„Alls ekki,“ svarar hann. „Ég þoli
ekki reglur og vil hafa eitthvað um
það að segja hvaða fólk er í kringum
mig. Til þess að elska einhvem þarf
maður stundum að skilja við hann og
leika lausum hala. Það myndi aldrei
gerast á eyju. Þá sæi maður sömu
andlitin á hverjum degi og það yrði
leiðinlegt til lengdar." Hann hugsar
sig um og bætir við einstrengings-
lega: „Svo finnst mér fiskur ekki góð-
ur.“
Að síðustu, hvernig lynti ykkur við
Leonardo DiCaprio?
„Hann er hærri en ég bjóst við,“
svarar Ledoyen. „Ég hafði svo sem
engar væntingar, nema að hann væri
góður leikari. Hann reyndist vera
indæll náungi, vinalegur og frábær
leikari."
„Hann verðskuldar svo innilega að
hafa náð svona langt,“ segir Canet.
„Hann stóð sig einstaklega vel í
myndum á borð við Gilbert Grape.
Mér fannst það ósanngjamt að um
leið og Titanic var frumsýnd varð
hann skyndilega kvikmyndastjama
og alit gleymdist sem hann lék í áður.
Hann reyndist okkur afar vel á töku-
stað og hagaði sér aldrei eins og hann
væri yfir aðra hafinn.“