Morgunblaðið - 28.05.2000, Page 14
14 SUNNUDAGUR 28. MAÍ 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Listaháskóli Islands
Ljósmynd/Bragi Ásgeirsson
Eitt af því sem ég staðnæmdist lengst við voru hin undurfögru
Vetrarklæði Ragnheiðar Guðmundsdóttur textflhönnuðar.
LIST OG
HÖIVMM
Lislaháskóli
íslands
Laugarnesi
útskrift -
NEMENDUR SKÓLANS
Opið alla daga frá 14-18. Til 28.
maí. Aðgangur ókeypis. Sýningar-
skrá 1.000 krónur.
FYRSTA útskriftarsýning hins
nýstofnaða Listaháskóla Islands er
nú á fullu á jarðhæð sláturhússbygg-
ingarinnar á Laugamesi, og lýkur um
helgina. Sýningin er mikil um sig og
fjölþætt að venju en þó ekki frábrugð-
in sýningum MHI á sama stað á und-
anfómum ámm, staðfestir rækilega
sem jafnan áður, að íslendingar eiga
mikið af ungu hæfileikafólki. Það var
einmitt þetta vai'ðandi mannauðinn,
sem öllu öðro fremur hélt okkur
kennurom við efnið í gamla daga, að-
stæður frumstæðai', við lausráðnir og
réttindalausir með lélegustu laun á
byggðu bóli miðað við menntun okk-
ar, sem ekki var viðurkennd af opin-
berum aðilum. Gleymdum okkur
sjálfum sumir hvei'jir, slíkur var ákaf-
inn og áhuginn en á móti kom að þá
var gaman að lifa og minnast við hæfi-
leikarík og metnaðarfull ungmenni
sem skildu sinn vitjunartíma, engin
námslán í augsýn. Sýningin er þó mis-
jöfn og brotin sem áður, sem er eðli-
legasta mál undir sólinni. En það sem
maður verður ekki var við nema á
pappírunum er að skólinn sé kominn
á háskólastig að undanskilinni íburð-
armeiri sýningarskrá og litprentuð-
um póstkortum, sem jafnframt er sú
skilvirkasta og best hannaða sem ég
man eftir í augnablikinu. Skráin tek-
ur jafnvel sýningunni sjálfri fram,
sem er skiljanlegt í Ijósi þess að bygg-
ingin er, og að óbreyttu, afspymu erf-
itt sýningarhúsnæði, grófleikinn mik-
ill, náttúruljós Mtið og misvísandi. Fer
þar saman að það er ónothæft til
kennslu þótt skánað hafi frá því fyrr-
um, er það var heilsuspillandi gímald
og ruslagámur, enda hefði enginn
skóli á landinu látið bjóða sér það
nema MHÍ, sem ég hef fengið stað-
fest af virtum skóla-
mönnum.
Hjá gömlum nem-
anda, seinna læri-
meistara, sem var
með í því að byggja
upp skólann á mestu
uppgangsárum hans,
vekja þessi tímamót
jafnt upp ótal minn-
ingar sem spurning-
ar. Væri efni í langa
grein, enda fátt sjálf-
sagðara og heilbrigð-
ara en að hér á landi
séu í gangi umræður
og deilur um hlutverk
og tilgang listaskóla
eins og víða í útland-
inu. En að setja eitt-
hvað á blað um skól-
ann hér á útskerinu
er jafnað við niðurrif
og óeðli sem ber vott
um að skilningi á þýð-
ingu skoðanaskipta
og rökfræði sé nokk-
uð, að maður segi
ekki gróflega, ábóta-
vant. Hér skal ein-
ungis tæpt á málum
að sinni, Listahátíð á
fullu, við sem skrifum
um myndlist fáliðaðir
og alltof mikið á okk-
ar könnu.
í upphafi formála
Kristjáns Stein-
gríms, deildarforseta
myndlistíideildar,
getur þetta að lesa:
„Með stoftiun Lista-
háskóla Islands er
langþráðu marki náð sem mun þegar
til lengri tíma er litið efla íslenzka list.
Listaháskóli íslands útskrifar nú í
fyrsta sinn nemendur í myndlist og
hönnun. Að þessu sinni ýmist með
BA-gráðu eða diploma alls um 50
nemendur. Hér er um tímamót að
ræða í íslenzkri listmenntun.“
Við þetta er ýmislegt að athuga,
ekki má með öllu valta yfir fortíðina,
né gleyma að kennsla í myndlist við
MHÍ var lengstum á háskólastigi.
Kennaramir yfirleitt landsþekktir
listamenn, sem numið höfðu í listahá-
skólum og listaakademíum víða um
heim. Við stofnun og uppbyggingu
grunnnámsdeildar sem fékk fyrir um
sumt hið misvísandi nafn Forskóli I
og II, var stuðst við erlenda listahá-
skóla, ekki síst Folkvangs Schule fúr
Gestaltung í Essen og hvað litafræði
snertir við rit Johannesar Itten í Bau-
haus. Fomámsdeildin þannig í seinni
áfanga á háskólastigi. Um leið var
tekið mið af íslenzkum aðstæðum á
hvaða hátt heppilegast væri að þróa
hana, minna hugsað um það hvað
væri „trendy" í útlandinu. Allt var
þetta í fullum gangi og nemendur yf-
irmáta áhugasamir, til að mynda
vildu 80% þeirra framlengja fornámið
um eitt ár, bæta einu ári við þá tekin
var stefnubreyting að undirlagi
menntamálaráðuneytisins, námið
hins vegar stytt um eitt ár (!) og
margra ára uppbygging stöðvuð með
einu pennastriki.
Flest allt sem kennt
er í grunnatriðum
myndlistar í fram-
haldsskólum lands-
ins í dag eru leyfar
frá þessum blóma-
tímum innan skól-
ans, oftar en ekki í
útþynntu formi.
Hæfileikar og metn-
aður nú ekki lengur í
forgrunni heldm'
einingar, áfangar og
prófgráður. Það er
misvísandi að skól-
inn sé loks kominn á
háskólastig og engar
gráður og skraut-
skjöl geta bætt það
sem tapast hefur í
þessum eftium þá
metnaðarfull upp-
bygging við að gera
skólann að þaki allr-
ar listmenntunai' í
landinu var stöðvuð
og hann sviptur
sjálfstæði sínu. í
allri um 300 ára sögu
listaháskóla og
listakademía í
Evrópu hefur árang-
urinn verið í for-
grunni, alfa og om-
ega, en ekki
einhveijar mennta-
gráður né glitfagrar
umbúðir. Ber hér
mun frekar að stefna
að því að koma að-
stöðu nemenda og
kennara á háskóla-
stig en henni er ennþá stórlega ábóta-
vant ef tekið er mið af samsvarandi
skólum á Norðurlöndum einum. Öllu
öðru fremur ber þó að huga að sér-
hönnuðu húsi yfir myndlist, listiðnað
og hönnun, sem einmitt til lengra
tíma litið mun (stór)efla íslenzka list
og vel að merkja spara ómælt fé. Það
ero þannig ekki menntagráður né
diplom sem eru undirstaða og kjöl-
festa rismikils myndlistarskóla, held-
ur áhugi og metnaður, og einungis hið
besta samboðið íslenzkri æsku, hinn
eini og sanni háskóli.
Er hér athygli vakin á, og sýning-
unni um leið.
Bragi Ásgeirsson
í LEIT AÐ ÁSTINNI
LEIKLIST
Theatre., 0n the
Scene“ í lslenskn
«í |) c I' IIII ii i
GOBY NIGHT
Handrit: Stephen House. Leik-
stjórn: Nick Gill. Tdnlist: George
Kallika. Aðstoð við hreyfingar og
leikstjórn: Velalien. Ljós: Marie
Docking. Búningar: Mariot Kerr.
Leikari: Stephen Sheehan.
Fimmtudagur 25. maí.
LEITIN að ástinni er megin-
þemað í einleik þessum sem er
samstarfsverkefni Lunist
Productions í Ástralíu, Theatre „On
the Scene“ og Gay Pride í Reykja-
vík árið 2000 en sýningin markaði
upphaf Hinsegin daga á fimmtu-
dagskvöldið.
Þetta er einleikur sem segir ör-
lagasögu einnar persónu. Hann
byggist á beinni frásögn Johnnys
og einræðum hans sem beint er til
látinnar móður hans, einu mann-
eskjunnar sem nokkurn tíma elsk-
aði hann. Þegar leikarinn, Stephen
Sheehan, bregður sér örskotsstund
í einu í líki aukapersóna er eins og
Johnny sé enn að segja frá. Sagan
er þannig sögð með hans eigin orð-
um, hún einskorðast af hugmynda-
heimi hans og þess vegna mætti
ætla að höfundi sé töluverður vandi
á höndum að skapa trúverðuga
mynd úr sjálfsævisögulegri frásögn
þar sem aðrar persónur fá ekki að
tjá sig um söguhetjuna. En þannig
vill til með Johnny, eins og gjarnan
vill verða um fólk sem afneitar eig-
in tilfinningum, að hann á sér í
fýrstu enga sjálfstæða sjálfsímynd.
Alit hans á sjálfum sér byggist á
hugmyndum annarra um hvernig
hann eigi að vera, hann hegðar sér
og hugsar eftir forskrift umhverfis-
ins á meðan hann er á stanslausum
ílótta innra með sér undan tilfinn-
ingum sínum. Þegar þannig er í
pottinn búið verður sjálfsmat pers-
ónunnar aðeins endurkast hug-
mynda annarra um hana.
Johnny byggir upp flókinn blekk-
ingarvef til að kasta ryki í augun á
Doug, fyrirmynd hans í einu og öllu
og stóru ástinni í lífi hans. Til að
koma í veg fyrir að Doug geri sér
grein fyrir að Johnny vilji sofa hjá
körlum setur hann upp mikið sjón-
arspil og sefur hjá konu í augsýn
hans. Til að sanna að hann sé ekki
samkynhneigður tekur hann þátt í
líkamsárás á homma.
Þegar þar kemur í sögu í verkinu
að Johnny grunar að Doug hafi
komist að leyndarmáli hans neyðist
hann til að flýja heimabæ sinn og
halda til stórborgarinnar í leit að
nýrri imynd sjálfum sér til handa.
Þannig yfirgefur hann manninn
sem hann elskar til að eiga mögu-
leika á að hætta að flýja sjálfan sig.
í borginni leiðist hann fljótlega
út í vændi. Fyrst í stað heldur hann
uppi ímynd hins harðgera karl-
manns en kemst að því að hún kem-
ur í veg fyrir að hann geti tjáð sinn
innri mann. Það er ekki fyrr en
hann klæðist kvenmannsfötum, þar
sem slíkt gefur meira í aðra hönd í
vændinu, að hann fer að nálgast til-
finningar sínar og læra að tjá þær.
í uppeldi hans voru það einvörð-
ungu konur sem sýndu ást og tjáðu
tilfinningar sínar og niðurstaða
Johnnys verður að hann geti ein-
göngu sýnt og notið ástar klæddur
sem kona. En heimur klæðskipta-
vændis er harður og leit Johnnys
að ástinni verður sífellt örvænting-
arfyllri og eiturlyfjaneyslan meiri
uns hinum óumflýjanlegu endalok-
um er náð.
Þetta kann að hljóma eins og
dæmisaga um hvernig eigi ekki að
lifa lífinu, en í raun er þetta rökrétt
afleiðing þeirra forsenda sem gefn-
ar eru í verkinu. Johnny á hvergi
heima; hann er of viðkvæmur fyrir
hinn harða lágstéttarheim sem
hann er upprunninn í og í stórborg-
inni kemur það honum í koll að
hann hefur litla möguleika á að
framfleyta sér á öðru en vændi og
að viðhorf hans og sjálfsímynd ero
svo gjörólík hinum samkynhneigðu
millistéttaroppum sem þar ráða
ríkjum. Hann finnur sig bara í
draumaveröld stílfærðrar kven-
ímyndar þar sem hann neyðist til
að vera stanslaust í vímu til að
bægja burt raunveruleikanum.
Stíllinn á textanum er merkilegur
og kemur til skila jafnt harðneskju
lífsins og ljóðrænu draumanna í
einföldu og tróverðugu orðfæri.
Búningar og sviðsmynd eru einföld
og táknræn, tvær hauslausar gínur
- önnur einfætt - sín fyrir hvort
kynið gegna þar meginhlutverki.
Stephen Sheehan leikur hlut-
verkið af miklum krafti og þraut-
seigju. Það er farið hratt yfir sögu
á rúmum klukkutíma og miklu efni
komið til skila en hann lætur hvergi
deigan síga. Þetta er stólpaleikari
sem getur sýnt á sér mjög fjöl-
breyttar hliðar og komið flóknustu
tilfinningum til skila með einu til-
liti. Það var fyrst og fremst fyrir
hans tilstilli að þessi saga sem ætt-
uð er hinum megin af hnettinum
snart hjartastrengi áhorfenda.
Sveinn Haraldsson
M-2000
Sunnudagur 28. mai.
Stangveiðimót unglinga -
Helluvatni við Heiðmörk.
Mótið er ætlað 16 ára og
yngri. Það hefst kl. 13.30 og er
hluti af afmælisdagskránni
„Heiðmörk 50 ára“. Þátttaka er
ókeypis.
www.heidmork.is
Umhverfislistaverk - Akra-
nesi.
I tengslum við „Sjávarlist" á
Akranesi verða afhjúpuð um-
hverfislistaverk á Langasandi.
Dagskráin er hluti af samstarfs-
verkefni menningarborgarinn-
ar og sveitarfélaga.
www.akranes.is
Lífið við sjóinn - rannsókn-
arskipið Dröfn.
Dagskrá í tengslum við sýn-
ingu sem nú stendur yfir í Lista-
safni Reykjavíkur - Hafnar-
húsi. Almenningi verður boðið i
siglingu á vegum Hafrannsókn-
arstofnunar á rannsóknarskip-
inu Dröfn, ef viðrar. Fræðsla
um hafrannsóknir og lífríki
sjávar. Lagt verður upp frá
Faxagarði kl. 11,13 og 15.
Listahátíð
Salurinn, Tónlistarhús
Kópavogs.
Tónlistarmenn 21. aldar kl.
20.30.
Fulltróar framtíðarinnar ero
fjögur ungmenni sem enn ero í
námi. Þau eru Ari Þór Vil-
hjálmsson fiðluleikari, Guðrón
Jóhanna Ólafsdóttir mezzo-
sópran, Víkingur Heiðar Ólafs-
son píanóleikari og Árni Bjöm
Árnason píanóleikari.
Miðaverð: 1.500 kr.
Sameiginleg dagskrá
Borgarleikhúsið.
San Francisco ballet kl. 14
og20.
Einn virtasti ballettflokkur
heims sýnir „Svanavatnið" und-
ir stjóm Helga Tómassonar.
Borgarleikhúsið.
Einhver í dyrunum.
Forsýning á nýju verki eftir
Sigurð Pálsson. Verkið fjallai'
um fræga leikkonu (leikin af
Kristbjörgu Kjeld) sem hefur
lokað sig inni á heimili sínu og
neitar að fara út. Sýningin hefst
kl. 19 en veridð verður tekið til
almennra sýninga í haust. Aðr-
ar forsýningar eru 30. maí kl. 20
og3. júníkl. 14.
Leikstjóri er Kristín Jóhann-
esdóttir.
wap.olis.is
www.reykjavik2000.is
www.artfest.is
Mánudagur 29. maí.
M-2000
Sögubrot úr sjávarþorpi -
Bæjar- og héraðsbókasafnið
Aki'anesi.
í tengslum við „Sjávarlist" á
Akranesi verður opnuð sög-
usýning. Dagskráin er hluti af
samstarfsverkefni menningar-
borgarinnar og sveitafélaga.
www.akranes.is
www.reykjavik2000.is - wap,-
olis.is
Listahátíð
Broadway kl. 21.
Tónleikar með Cesariu
Evoru frá Grænhöfðaeyjum
ásamt 10 manna hljómsveit.
Þróunarsamvinnustofnun ís-
lands styrkir komu hljómsveit-
arinnar.
www.artfest.is