Morgunblaðið - 28.05.2000, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
SUNNUD AGUR 28. MAÍ 2000 19
Eins og getið er mætast ólikir
menningarstraumar í tónlistinni sem
Cesaria Evora syngur og síðasta
plata hennar, sem hún mun helst
syngja lög af á væntanlegum tónleik-
um, er eins og tekin upp á kaffihúsi í
miðju Atlantshafi þar sem mætast
straumar frá fjórum heimsálfum,
Evrópu, Afríku, Suður- og Norður-
Ameríku. Aðdragandi plötunnar var
að hún dvaldist á Kúbu í viku og
kynntist þar ýmsum tónlistarmönn-
um sem komu síðan að plötunni, en
einnig fékk hún til liðs við sig brasi-
lískan tónlistarstjóra sem kom með
sinn skammt af suður-amerískur
áhrifum.
Reykmettuð stemmning
Hún segist helga plötuna hafnar-
borginni Mindanao, heimabæ sínum,
og áhersla hafi verið lögð á að skapa
sömu reykmettuðu stemmningu og á
börunum sem hún söng sem ung
stúlka. Settur var upp slíkur „bar“ í
húsi í úthverfí Parísar þar sem tón-
listarmenn komu saman í sérstöku
hljóðveri og síðan var spilað og
spunnið í tvær vikur til að undirbúa
plötuna. Upptökur fóru síðan fram í
Suður-Frakklandi og tóku tuttugu
daga. Á tónleikum Cesariu í gríska
leikhúsinu í Barcelona síðasta sumar
var einmitt eins og tónleikagestir
væru staddir á slíkri krá og áþekk
stemmning verður áreiðanlega í
Broadway á mánudags- og þriðju-
dagskvöld.
Hefði viljað byrja fyrr
Cesaria syngur mornasöngva að
hætti heimamanna á Grænhöfðaeyj-
um, kryddaða saudade frá Portúgal
og Brasilíu og skreytta kúbverskum
rythmum. Hún segir að það eina sem
hún sjái eftir á sinni ævi sé að hún
skuli ekki hafa byrjað yngri að ferð-
ast um heiminn og syngja. „Ég á
nokkur ár eftir enn áður en ég fer
heim til Grænhöfðaeyja og sest í
helgan stein. Það eru mörg lönd sem
mig langar til að heimsækja, þar á
meðal Island, er ekki hægt að koma
því í kring?“ spurði Cesaria i viðtali
við Morgunblaðið fyrir tveimur ár-
um og svo fór að hún kemur til ís-
lands, syngur fyrir fullu húsi á
Broadway á mánudags- og þriðju-
dagskvöld. Af viðtökum að dæma
vita íslenskir tónlistarvinir vel á
hverju er von og í raun leitt að ekki
skuli hafa verið svo búið um hnútana
að fleiri kæmust að; hún hefði farið
langt með Laugardalshöll ef marka
má undirtektirnar, en kemur þá bara
aftur síðar.
Leiklistarhátíð á Akureyri
21. til 25.júní
Stærsta leiklist-
arhátíðin í sögu
Bandalagsins
BANDALAG íslenskra leikfélaga
gengst í sumar fyrir stærstu leik-
listarhátíð í sögu sinni á 50 ára af-
mæli bandalagsins. Leiklistarhá-
tíðin fer fram á Akureyri dagana
21. til 25. júní nk. með þátttöku
160 félaga í leikhópum víðsvegar
af landinu auk 40 félaga þriggja
erlendra leikhópa. Erlendu leik-
hóparnir koma frá Lettlandi,
Finnlandi og Noregi með sitt
leikritið hver í farteskinu.
Forseti íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, er verndari leiklistar-
hátíðarinnar, sem hefst miðviku-
daginn 21. júní klukkan 13 með
götuleikhúsi á Akureyri með þátt-
töku allra 200 þátttakendanna. Að
sögn. Lárusar Vilhjálmssonar,
formanns hátíðarnefndar, er því
viðbúið að opnunarsýningin muni
setja sterkan svip á bæjarlífið á
Akureyri þann daginn.
Alls verða 11 leikrit sýnd á há-
tíðinni að auk ýmissa uppákoma
og starfrækslu leiksmiðja. Má þar
nefna starfsemi í Listagilinu, m.a.
sérstaka vinnu með börnum undir
stjórn Önnu Jeppesen, trúða-
tækni undir stjóm Aðalsteins
Bergdals og leikhússport undir
stjóm Guðjóns Óskarssonar og
Gísla Björns Heimissonar.
Gagnrýnendur hátíðarinnar
em Sigrún Valbergsdóttir og Sig-
urður Hróarsson.
Sýningarstaðir em víða á Akur-
eyri og nágrenni, í Kompaníinu,
Samkomuhúsinu, Kjarnaskógi,
Glerársundlaug og einnig verður
sýnt á Húsavík.
Að kvöldi hvers hátíðardags
verður opinn hátíðarklúbbur í
veitingahúsinu við Pollinn.
Lokahóf og verðlaunaafhend-
ingar fyrir bestu sýningu hátíðar-
innar, besta leikara og fleira fer
síðan fram í KA-heimilinu á Akur-
eyri klukkan 20 sunnudaginn
25.júní.
hágæða ofnar
Einu ofnarnir sem hlotið hafa vottun frá
Rannsóknastofu byggingariðnaðarins á
fslandi.
Rekstrarþrýstingur MPa (10bar)
islenskur staðail. ÍST EN 442.
OFNASMIÐJA REYKJAVÍKUR
Vagnhðföa 11 • 112 ReyVjavík • Sfml: 577-5177 • Fax: 577-5178
ofnasmidjareykJavikur@simnet.is
MYNDLISTASKOLINN
THE REYKJAVÍK SCHOOL OF ART
í REYKJAVÍK
HRINGBRAUT 121 • 107 RETKJAVÍK • SÍMI 551 1990
Sumarnámskeið
2000
Námskeið barna 6-12 ára verða haldin vikurnar
5.- 9., 13.- 16., 19,- 23. og 26.- 30. júní.
Námskeið 13-16 ára verður haldið 5.-15. júní.
Einnig verður boðið upp á sérstakt námskeið
fyrir börn og foreldra 19. - 28. júní.
Alls 20 kennslustundir hvert námskeið.
Kennarar: Eygló Harðardóttir, ína S.
Hallgrímsdóttir, Kristín Reynisdóttir,
Valborg S. Ingólfsdóttir og
Þorbjörg Þorvaldsdóttir.
Námskeið á haustönn í barna- og
fullorðinsdeildum hefjast 25. september.
Sjá nánar auglýsingu í byrjun ágúst.
Nánari upplýsingar og innritun á skrifstofu skólans.
Opnunartími mán.-fös. 14-17. Sími 551 1990/551 1936
1 1
Tölvur og tækni á Netinu ^mbl.is ALLTAf= eiTTH\SAÐ A/ÝTl
1
Staðalbúnaður: Gott verð!
Carisma er aðlaðandi og ríkulega útbúinn fjölskyidubíli frá Mitsubishi
sem kostar mun minna en sambærilegir bíiar á markaðnum.
• 1,6 I vél - 100 hestöfl
• Álfelgur
• ABS-hemlalæsivörn
• 4 loftpúðar
• 5 höfuðpúðar
• Þrjú þriggja punkta öryggisbeiti
í aftursæti
• Hreyfiltengd þjófavörn
Gœði þurfa ekki að vera dýr
• Diskabremsur að framan og aftan
• Hástætt hemlaljós í afturrúðu
• Þokuljós að framan
• Forstrekkjarar á beltum
• Rafstýrðar rúðuvindur með slysavörn
• Hæðarstiilanlegt ökumannssæti
• Fjarstýrðar samlæsingar
• Niðurfellanleg aftursæti
Carisma sannar það.
Carisma 1,6 GLXi
1.495.000 kr.
m
HEKLA
- íforystu á ttýrri öld!
Laugavegur 170-174 • Sími 569 5500 • Heimasíða www.hekla.is • Netfang hekla@hekla.is