Morgunblaðið - 28.05.2000, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 28. MAÍ 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Einlæg- listakona
MY]\PLIST
L i s t h ú s H e y k j a v í k
STUTTSÝNING
Til 28. maí.
ÞAÐ telst naumast gild sýning til
umfjöllunar að hengja upp nokkrar
myndir í afmörkuðu rými innan um
fjölda annarra myndverka, þótt fram-
takinu íylgi einblöðungur. Frekar að
um kynningu sé að ræða sem í mjög
fáum tilvikum kallar á faglega rýni.
Eitt slíkra er þó óneitanlega stuttsýn-
ing Soffíu Ámadóttur sem hefur náð
að koma fyrir heilum 18 verkum á
veggjum og gólfi í suðurhorni efri
hæðar. Soffía er í senn vel menntuð
og einlæg listiðnaðarkona, sem vinn-
ur hluti sína afar hreint og klárt, leit-
ar ekki í ódýrar og fallegar lausnir og
fortíðarþrá hennar höfðar frekar til
hins menntaða Islendings en hins
breiða fjölda. Leirskálar listakonunn-
ar með fornum tilvitnunum og máls-
háttum eru þannig afar jarðbundnar
og hér er hún á merkilegri braut. En
ekki verður með neinu móti skilið af
hverju ekki skuli meiri metnaður
liggja að baki sýninga listakonunnar,
en hún finnur þeim helst vettvang í
listahomum hér og þar. Sýning henn-
ar í Listakoti á sl. ári er það helsta
sem rýnirinn hefur séð til hennar og
hún var mjög sérstök, hefði hvar-
vetna þótt hlutgeng úti í heimi og
höfðaði þó einkum til íslenzks vett-
vangs. Eitthvað er þetta svipminna í
Listhúsi Reykjavíkur, þótt fínir hlutir
finnist inni á milli til að mynda, Let-
urskál, (3) og Elds er þörf, borðskál,
(13). í ljósi þess sem Soffía Ámadótt-
ir hefur til brunns að bera gerir mað-
ur meiri kröfur, væntir svipmeiri at-
hafna og helst sem fyrst.
Bragi Ásgeirsson
-------*-+-*-----
Mynd- _
bönd í LÍ
MYNDBÖND em sýnd í Listasafni
Islands í tengslum við sýninguna ís-
lensk og erlend mynbönd, sem er lið-
ur í sýningunni Nýr heimur - Staf-
rænar sýnir.
í dag, sunnudag, kl. 12 og kl. 15,
verða sýnd verk eftir Lizu Steele/
Kim Tomczak: Working the double
shift or changing politics on the dom-
estic front, 1984.
■ ■ I■ 11111II■ ■ ■ ■ M M M ■■ ■ ■
V& máhitH HípUMáH,
ekki biíim
Hvernig kemur bíllinn þinn undan vetri?
Við gerum við rispumar og sjáum um blettanir með efni
sem gerir galdurinn. Þú sparar peninga og bíllinn er
tilbúinn samdægurs. Frábær útkoma og varanleg.
Sjón er sögu ríkarí
AK GUÐBERG EHF
Sími: 567 7523
Netfang: akchips@mmedia.is - Bíldshöfða 14 Reykjavík
!■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
m
" h ' ti g *
Vandað handunnið postulín.
Glæsilegir listmunir
framleiddir í takmörkuðu upplagi.
AUGDSTE RENOIR
VASI 0.12.900
verð írá
til 49.000
Hrund
Ólafsvík
Karl R. Guðmunds
Selfossi
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Jón & Óskar
Laugavegi 61
• -
Klukkan
Hamraborg
•
Georg V. Hannah
Keflavík
•
Úr og djásn
Garðabæ
•
Gullúrið
Mjódd
•
Jón Bjarnason
Akureyri
LE0NAR00 DA VINCI • MICHELANGEL0 • R0SINA WACHTMEISTER • PAVEL KAPLUN
P j ^ Morgunblaðið/^verrir
Mosaíkverk 1 Engjaskola
FJÖLMENNI var í Engjaskóla
þegar hringlaga mósaíkverk var af-
hjúpað í skólanum sl. fimmtudag.
Verkið táknar alheiminn eða
óendanleikann, það var unnið á
þessu skólaári og tóku allir nemend-
ur skólans þátt í því.
Listaverkið er tengt Reykjavík -
menningarborg Evrópu árið 2000 og
1000 ára afmæli kristni á Islandi.
Þóra Gréta Þórisdóttir, Andrés Þór Gunnlaugsson.
Djass í Listaklúbbnum
DJASS Dúett + er yfirskrift dag-
skrár í Listaklúbbi Leikhúskjall-
arans á morgun, mánudagskvöld,
kl. 20.30.
Tónleikarnir verða að mestu
tileinkaðir trompetleikurunum
Miles Davis og Chet Baker en
einnig verða leikin og sungin lög
eftir þekkt söngleikjatónskáld,
svo sem Cole Porter.
Hljómsveitina skipa Þóra Gréta
Þórisdóttir, Andrés Þór Gunn-
laugsson, Valdimar Kolbeinn Sig-
urjónsson og Birgir Baldursson.
Þóra Gréta Þórisdóttir söng-
kona útskrifaðist úr Tónlistar-
skóla FÍH vorið ’98 og Andrés
Þór Gunnlaugsson gítarleikari út-
skrifaðist sl. vor úr djassdeild
FÍH. Þau hafa starfað saman í
vetur sem dúett en á tónleikunum
munu Valdimar K. Sigurjónsson
kontrabassalcikari og Birgir
Baldursson trommuleikari (með-
limir Funkmaster) leggja þeim
lið.
Umsjónarmaður Listaklúbbsins
er Helga E. Jónsdóttir.