Morgunblaðið - 28.05.2000, Page 20
20 SUNNUDAGUR 28. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Blaðað í fjöl-
skyldualbúmi
þjóðarinnar
Draumalandið er yfírskrift tónleika í Saln-
um nk. þriðjudagskvöld kl. 20.30 en þar
munu fjórir ungir söngvarar syngja íslensk
einsöngslög ásamt Jónasi Ingimundarsyni
Morgunblaðið/Ásdís
Jónas Ingimundarson, Ágúst Ólafsson, Garðar Thor Cortes og Ásgerður Júníusdóttir.
píanóleikara. Margrét Sveinbjörnsdóttir
7 7 7
hitti þau Agúst Olafsson baríton, Asgerði
Júníusdóttur mezzósópran, Garðar Thor
Cortes tenór og Jónas í Salnum - og sló svo
á þráðinn til sópransöngkonunnar Valgerð-
ar G. Guðnadóttur sem var að búa sig af
stað frá Lundúnum.
ÞÓ AÐ einsöngslög í hefðbundnum
skilningi eigi sér ekki nema rétt
rúmlega hundrað ára sögu hér á
landi er safn íslenskra einsöngslaga
orðið býsna fjölskrúðugt. Á tónleik-
unum í Salnum á þriðjudagskvöldið
verður stiklað í gegnum þessa sögu
og mun þar hljóma fjöldinn allur af
vel þekktum lögum í bland við nokk-
ur minna þekkt. Tónleikarnir, sem
haldnir eru undir merkjum Listahá-
tíðar i Reykjavík, eru liður í annarri
tónleikaröð Tónskáldafélags ís-
lands, íslensk tónlist á 20. öld, auk
þess sem þeir eru á dagskrá Reykja-
víkur - menningarborgar Evrópu
árið 2000.
Aðspurður um tildrög tónleikanna
segir Jónas Ingimundarson að þegar
hann hafí verið beðinn um að hafa
umsjón með þeim hafi honum þótt
upplagt að kalla til liðs við sig nokkra
unga söngvara til þess að „líta í fjöl-
skyldualbúm þjóðarinnar og blaða í
því fram og til baka“, eins og hann
orðar það. „Við stöndum á tímamót-
um á árinu 2000 og þessi tímamót
fara saman við íslenska einsöngslag-
ið í eina öld en elstu lögin eru frá síð-
ustu árum nítjándu aldar. Það gaf
okkur tækifæri til að líta yfir farinn
veg. Við byrjum á Sveinbirni Svein-
bjömssyni, Sigfúsi Einarssyni og
Bjarna Þorsteinssyni og endum á
Tryggva Baldvinssyni og John
Speight," segir Jónas til að gefa hug-
mynd um breiddina í efnisskránni en
tekur þó fram að það sé ekki endi-
lega ætlunin að gefa sögulegt yfirlit
um þróun íslenska einsöngslagsins.
Hikar ekki þegar svona
tækifæri býðst
„Eg hef haft mjög gaman af að
vinna með þessu unga fólki, þau em
öll mjög músíkölsk og elskuleg - og
ég hef ekki orðið var við neinn
ágreining í tjáningunni. Við stingum
okkur hvert í samband við annað og
látum tónana leiða okkur inn í þenn-
an undraheim sem við öll elskum og
dáum,“ segir Jónas.
Söngvararnir em sammála um að
það sé frábært tækifæri fyrir þá að
Sara Haraldsdottir
Ibróttapíáffiart
Nýbýlavegi 24 - Kópavog!
Slml 564 1011 - spa@meccaspa.ls
www.meccaspa.is
Innifalið i verði
Einkatímar t tækjasai
Leikfími - hóptímar
Taibo tímar
Næringarráðgjöf
Sund, gufa og nuddpottur
Sloppur, skór og handklæði
Frábærir kennarar
Morgun- hádegis- og kvöldtímar
Tílboð 22*500 krónur
rafn Friðbjörnsson Goran Kristofer
Ukamsbiatfðrí Yflbidlfati
Erla Kjartansdottir
Ég byrjaói í þjálfun hjá Goran í
Mecca Spa i lok febrúar og
undir hans leiósögn með
frábæru æfingaprógrammi hef
ég misst 16 kíió á auóveldan
hátt, án þess aó neyta mér um i
gæði lífsins í mat og drykk. J
oley Johonnsdóttir Birna Guðmundsd
UkárnjWáifart IbrðttafitólBii
fá að kafa í brunn ís-
lenskra einsöngslaga
með Jónasi, sem þekki
þau manna best. „Mað-
ur hikar ekki þegar
svona tækifæri býðst,“
segir Ágúst Olafsson
en hann hefur síðast-
liðin þrjú ár stundað
nám við Sibeliusaraka-
demíuna í Helsinki.
Þar hefur hann fram
að þessu mestmegnis
verið í ljóðasöng en
þreytti nýverið inn-
tökupróf í óperudeild-
ina og hefur þar nám á
hausti komanda.
íslensku ræturnar
Ásgerður Júníusdóttir segir það
góðan skóla að vinna með Jónasi og
líkir þvi við „masterklass“-námskeið.
Hún hélt nýverið „debúttónleika"
sína og vinnur nú að gerð geislaplötu
með lögum eftir íslenskar konur við
ljóð íslenskra kvenna. Hún segir það
sérstaklega góðan grunn að byggja á
fyrir unga söngvara að leita til hinna
íslensku róta í einsöngslaginu í upp-
hafi ferilsins.
Garðar Thor Cortes segist dálítið
hafa fengist við íslensk einsöngslög
þegar hann var við nám í Söngskól-
anum í Reykjavík, auk þess sem
hann hafi gert dálítið af því að syngja
þau við jarðarfarir og brúðkaup, m.a.
ásamt Valgerði Guðnadóttur. Garðar
Thor hefur að undanförnu verið í
einkatímum hjá Andre Orlowitz í
Kaupmannahöfn en í haust heldur
hann til Lundúna þar sem hann
hyggst nema næstu tvö árin við óp-
erudeild Konunglegu tónlistaraka-
demíunnar. Á síðastliðnu ári gerði
hann hlé á námi til þess að syngja í
Óperudraugnum í Her
Majesty’s Theatre á
West End.
Á sviðinu
allan tímann
Valgerður, sem hefur
verið við framhaldsnám
við Guildhall School of
Music and Drama í
Lundúnum í vetur, seg-
ir að þó að hún hafi gert
þónokkuð mikið af því
að syngja íslensk ein-
söngslög, þá sé heilmik-
ið af lögum sem hún
syngur á tónleikunum í
Salnum sem hún hafi
aldrei komist í tæri við
áður. „Það er til dæmis eitt eftir
John Speight, sem heitir Prinsessan
á bauninni, sem er mjög skemmti-
legt og nútímalegt," segir hún. Val-
gerður hélt ásamt þeim Valdimar
Himarssyni og Hallveigu Rúnars-
dóttur tónleika í Guildhall á liðnum
vetri, þar sem þau sungu m.a. íslensk
lög, sem hún segir að hafi verið sér-
staklega vel tekið af áheyrendum.
Efnisskrá Draumalandstónleik-
anna er mikil að vöxtum og til þess
að eyða ekki óþarflega miklum tíma í
að ganga inn og út af sviðinu munu
flytjendur allir verða á sviðinu allan
tímann og stíga fram til skiptis.
Garðar Thor hugsar sér gott til glóð-
arinnar að geta sest niður eftir að
hafa sungið sín lög og hlustað á þau
hin. Félagar hans taka heilshugar
undir. Þegar þau eru spurð hvort
þau eigi sér einhver uppáhaldslög úr
þessu mikla safni vefst þeim tunga
um tönn og þau eiga erfitt með að
gera upp á milli þeiiTa. Ágúst nefnn-
Rósina sem sitt uppáhald en Ásgerð-
ur og Garðar Thor segja pass.
Valgerður Guðrún
Guðnadóttir
HADEGISVERÐARFUNDUR
Mánudaginn 29. maí
kl. 12:00 íVíkingasal á Hótel Loftleiðum
Evrópusambandið,
evran og Bretland
Ræðumaður: Kenneth Clarke
Kenneth Clarke er þingmaður fyrir
breska íhaldsflokkinn og fyrrverandi
ráðherra. Hann hefur lcngi verið
talsmaður aukinnar þátttöku Bretlands
í málefhum ESB og mun á fundinum
ræða um hugmyndir sínar um framtíð
Bretlands á þeim vettvangi.
Þátttökugjald er kr. 3000 (hádegisverður innifalinn).
Fyrirframskráning er æskileg: sími 510 7100, fax 568 6564,
tölvup. mottaka@chamber.is.
BRESK ÍSLENSKA
VERSLUNARRÁÐ
;