Morgunblaðið - 28.05.2000, Síða 22
22 SUNNUDAGUR 28. MAÍ 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Nuddpottar
Fullbúnir acryl nyddpottar
Vatnsnudd, hreinsitæki, ozintor, Ijós,
höfuðpúðar, trégrind, full einangraðir með
einangruðu loki. Uppsettir í sýningarsal okkar
OPIÐ 011KVOLD TILKL.Z1
ÍLÉ METRO
Skeifan 7 • Sími 525 0800
/HiND'
HAND
REPAIR
IRilSD = lilE!SD
Með því að nota TríND naglanæringuna faeróu
þínar eigin neglur sterkar og heilbrigðar svo
þær hvorki klofna né brotna.
Ií?íi\D handáburöurínn
Ný tækni í framleiðslu jjj
\ Hlf húðsnyrtivara, fallegri, |Éj:
~I teygjanlegri, þéttari húð.
í EINSTÖK GÆÐAVARA
IRiND
Fást I apótekum og snyrti-
vöruverslunum um land allt. |g§^
Ath. naglalökk frá Trhsd fást I tveimur stærðum
Vor naglalökkin eru komin í 6 nýjum bláum litum
ATH. nú! Frá Tana Maskara Stone (Köku-maskari). Þessi (svarti) gamli
óði með stóra burstanum. Uppl. í smáblaði sem fylgir augnbrúnalitnum
Vatnsþynnanlegt vax- og
hitatæki til háreyðingar. Vaxið
má einnig hita í örbylgjuofni.
Einnig háreyðingarkrem,
„roll-on“ eða borið á með
spaða frá
byly
Laboratorios bvly S.A.
Þýskar förðunarvörur
Ekta augnahára- og augnabrúnalitur,
er samanstendur af litakremi og geli
sem blandast saman, allt I einum
pakka. Mjög auðveldur I notkun,
fæst í þremur litum og gefur frábær-
an árangur. Hver pakki dugir í 20
litanir.
Útsölustaðin Apótek og
snyrtivöruverslanir
Útsölustaðin Snyrtivöruverslunin Nana, Rvík, Líbía, Mjódd, Hringbrautar Apótek,
Rima Apötek, Grafarvogs Apótek, Lyf & heilsa, Álfabakka, Lyf & heilsa, Háteigsvegi 1,
Borgarapótek, Álftamýri, Fína Mosfellsbæ, Sauðárkróks Apótek, Stykkishólms
Apótek, Fínar Línur, Vestmannaeyjum, Árnesapótek, Selfossi.
Dreifing: S. Gunnbjörnsson ehf. Sími 565 6317
||mbLis
_/KLLTAf= eiTTHVAÐ NÝTT
Ljós úr
norðri
TÖJVLIST
Hafnarborg
TÓNLEIKAR
Erlend og fslenzk lög eftir m.a.
Stefán S. Stefánsson á
brottfarartónleikum kvennakórsins
Áróra á leið til Rimini. „Night
Wave“ 2000 u. stj. Margrétar J.
Pálmadóttur. Stefán S. Stefáns-
son, S-saxófónn & conga;
Ástríður Haraldsdóttir, píanó.
Fimmtudaginn 25. maf kl. 20:30.
NÁNAST í kyrrþey kom hinn 23
kvenna kór Aurora, svo stafsett sé
upp á alþjóðsku, fram sl. fimmtu-
dag, en náði samt að fylla Hafnar-
borgarsalinn áheyrendum. Kórinn
birtist í hvítum búningum og var
hið mesta augnayndi, en óðara kom
fram að hann væri ekki síður eyrna-
yndi. Uppstillingin var frjálslegri
en maður á að venjast á hefðbundn-
um kórtónleikum, enda dansskáld
með í spilinu (Ólöf Ingólfsdóttir) og
hreyfingar og fettur partur af fram-
komunni. Einstaka sinnum fór mað-
ur örlítið hjá sér við fabúlöðurnar,
en vart er að efa að á hlýrri breidd-
argráðum en okkar, þar sem tilfinn-
ingar eru oftar bomar á torg, verði
slíku tekið fagnandi, og stúlkumar
að sama skapi óþvingaðri í fram-
komu.
Dagskráin var flokkuð í þrennt
undir yfirskriftum þriggja árstíða,
veturs, vors og sumars, og greini-
lega öðram þræði úthugsuð sem
landkynning erlendis. Þannig mátti
í upphafi heyra sjávarnið og klið
farfugla af segulbandi. Halla kerl-
ing tekur nú að deilast víðar en
Ingjaldsfíflið, því íslenzka þjóðlagið
Ljósið kemur langt og mjótt, sem
Björn Thoroddsen og félagar hafa
kynnt lands- og skólalýð undanfarið
í ýmsum framandi spjöram, reynd-
ist einnig hér rammi tónleikanna.
Fyrst sungið við latneskt 3-5 hryn
á orgelpunkti, síðan í hermikont-
rapunkti Jóns Ásgeirssonar. í tón-
leikalok kviknaði svo aftur á fífu-
stöngum við dunandi afró-arabískan
trommuundirleik af bandi í atriðinu
Menningarheimar mætast, þar sem
stúlkurnar dönsuðu um salinn með
sekvenza þjóðlagsins á vörum.
Jan Garbarek kom upp í hugann í
Hrafninn flýgur, þar sem angurvær
sópransax Stefáns S. Stefánssonar
tengdi saman hómófónískar söng-
hendingar kórsins. Madrigalettó
Atla Heimis, Við svala lind, var
sunginn hægt en ofurhreint a capp-
ella; fyi-sta vísbendingin af mörgum
um raddfarslegt einvalalið kórk-
venna. Hin óvenjuhreina inntónun,
ásamt hljómrænum þéttleika og
samstillingu á öllum styrkstigum,
átti sér vart hliðstæðu meðal hér-
lendra kvennakóra og mætti helzt
kalla hliðstæðu við úrvals skagfirzk-
an karlakór. Sömu frábæru radd-
gæði einkenndu Einum unni ég
manninum (úts. K.O. Runólfsson)
og Þjóðlífsmyndin Jóns Ásgeirsson-
ar - hið síðara kannski sungið
óþarflega hægt. Sígild bossa nova-
ballaða Stefáns S. Stefánssonar við
þuluna Tunglið, tunglið, taktu mig
var líkt og annað sem kórinn söng
að heita má vammlaust í flutningi.
Á hinn bóginn opinberaðist þar að-
alveikleiki heildarinnar, kraft- og
sveifluvana hrynsveit, þar sem
hvorki píanóleikur, congusláttur
Stefáns né rafbassaleikur óna-
fngreinds kórfélaga náðu að mynda
nógu sannfærandi mótvægi við seið-
andi sönginn. Eins og alltaf í af-
stæðum heimi sker agnúi sig þvi
meir úr sem bilið er stærra, og í
klénni kór hefði borið minna á.
Væri óskandi að hrynsveitin legði
kapp og metnað í að jafna sem mest
það sem upp á vantar fyrir tónleik-
ana suður á Ítalíaló.
Eftir Fylgd Sigurðar Rúnars
Jónssonar, þar sem sætleiki textans
nálgaðist hættumörk með vanga-
fettum kórstúlkna, söng Áróra Maí-
sól Jóns Ágeirssonar með innlifun
og Lóu, lag eftir F. Jörgensen, enn
betur. Hið rafmagnaða og þétt
raddfærða lappíska jojk-lag Mant-
yjai’vis „Peudo-Yoik Lite“ reif sal-
inn verðskuldað upp úr skónum, en
hefði án efa verið áhrifameira í
hressara tempói. Hreyfingarspuni
kórsins með skópör í hendi við
tangóspil hljómsveitar, þar sem af
bar saxófónblástur Stefáns, var
háður ofangreindum annmörkum
og sagði undirrituðum lítið, og þrátt
fyrir mikla fágun var madrígall
Marenzios, Amatemi ben mio, í
hægara og þyngslalegra lagi. Pyrr-
nefndur hrynsveitardoði dró einnig
úr áhrifum gamla ítalska slagarans
More; kannski mest áberandi var
hvað vantaði ákveðnara „off-bít“ í
píanói og trommuleik. Hinn frægi
söngur portrísku stúlknanna úr
West Side Story, America, var of
hraður og órólegur til að „sitja“
nógu vel í rytma, auk þess sem
söngtextinn fékk of lítinn tíma, og
svipað einkenndi Feeling Good eftir
Tyson/Scott (enn og aftur að hluta
vegna óskýrrar móthrynjandi á 2.
og 4. slagi). Þrátt fyrir þessar mót-
bárur var söngur Árórukvenna ótví-
rætt í sérflokki, enda man undirrit-
aður ekki í fljótu bragði eftir að
hafa heyrt betri íslenzkan kvenna-
kór. Margrét Pálmadóttir hefur
löngum verið til margs vís, en að
þessu sinni varð varla öllu lengra
komizt, og kæmi ekki á óvart ef
kórinn ætti eftir að leggja Rimini-
borg kylliflata að fótum sér.
Ríkarður Ö. Pálsson
Byggingaplatan
sem allir hafa beðið eftir
VIROCbyggingaplatan er fyrir
veggi, loft og gólf
VIROCbyggingaplatan er eldþolin,
vatnsþolin, höggþolin, frostþolin og
hljóðeinangrandi
VIROCbyggingaplötuna er hægt
að nota úti sem inni
VIROCbyggingaplatan
er umhverfisvæn
VlROCbyggingaplatan er platan
sem verkfræðingurinn getur
fyrirskrifað blint.
PP
&CO
Leitið frekari upplýsinga
Þ.bORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚLA 29 S: 553 8640 & 568 6100
KYNNING
SAMSTARF UM VEIÐAR
OG VINNSLU í PERÚ
Fulltrúar fyrirtækisins CopeMar S.A.C. í Perú hafa lýst yfir áhuga á samstarfi
(Joint Venture) við íslensk fyrirtæki um veiðar og vinnslu í Perú.
Af þessu tilefni munu fulltrúar fyrirtækisins halda kynningu og svara fyrirspurnum varðandi helstu
samstarfsmöguleika. CopeMar S.A.C. hefur yfir að ráða talsverðum fiskveiðikvótum í landhelgi
Perú m.a. smokkfisk, túnfisk, hvltfisk, sardínu, ansjósu, tannfisk og fleiri tegundum.
Kynningin fer fram á ensku og hefst kl. 10:00 mánudaginn 29. maí í húsnæði
Útflutningsráðs íslands að Hallveigarstíg 1.
ÚTFLUTNINGSRÁÐ ÍSLANDS
Hallveigarstígur 1 • 101 Reykjavík • Sími 511 4000 • Fax 511 4040 • icetrade@icetrade.is • www.icetrade.is
Veður og færð á Netinu