Morgunblaðið - 28.05.2000, Qupperneq 48
.48 SUNNUDAGUR 28. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Dýraglens
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
SLAPPAW AF! VEISTU EKKI Aö ÞAÖ ER
ÍHÆGTAÖ SÁLASTÁ MIKLU VERRIHÁTT?
Ljóska
DA6UR, PU ERTNÆST
BESTT FULITRUINN
SEM HEFUR STARFAI
IPESSU
FYRIRTÆKI
Láttu ekki svona.
Ég stökk lengra
en þetta.
Lengi getur
vont versnað
Frá Gunnari Vigfússyni:
ALLAR götur síðan á stríðsárunum
hefur verið mikill skortur á leigu-
íbúðum og ástandið fer versnandi;
heyrst hefur að meðalverð sé á milli
40 og 60 þúsund króna mánaðarleiga
á íbúð og allt upp í 100 þúsund krón-
ur. Borgin átti um 1100 íbúðir sem
yfirleitt voru leigðar út á lágu verði.
Fljótlega eftir að núverandi meiri-
hluti í borgarstjórn tók við stjóm
Reykjarvíkurborgar og fór að ráða
voru íbúðirnar skírðar upp á nýtt og
heita nú Félagsbústaðir og jafn-
framt var leigan hækkuð. Margir
sem kusu R-listann væntu þess og
hugsuðu að nú ætti að fara að byggja
leiguíbúðir, en ekki er vitað um eina
einustu íbúð sem byggð hefur verið
þrátt fyrir svo mikinn húsnæðis-
skort.
Það er vitaskuld ein af frumþörf-
um borgarbúa að hafa húsaskjól og
ætti að hafa algeran forgang. Núver-
andi borgarstjórnarmeirihluti hefur
alveg gleymt þessum lið en hækkar
þess í stað fasteignaskatt og bygg-
ingarlóðir eru slegnar hæstbjóðend-
um. Ekki lækkar byggingarkostnað-
ur við það. Það var á stríðsárunum
og upp úr þeim sem sá hreinskilni og
merki maður Bjarni Benediktsson
var borgarstjóri og beitti sér fyrir
því að heilt hverfi var byggt og leigt
út til bráðabirgða: Höfðaborgin. Mig
minnir að það hafi verið tveggja til
þriggja herbergja íbúðir. Þá höfðu
íbúarnir tíma til að byggja eða kaupa
húsnæði, t.a.m. í Smáíbúðahverfinu
og víðar. Mér finnst R-listinn standa
sig lakar en Sjálfstæðisflokkurinn í
því að byggja leiguíbúðir og er þá
mikið sagt.
Við gerð kjarasamninga íyrir
nokkrum árum var það oft í umræð-
unni að ef íbúðaverð væri lægra og
meira en framboð leiguhúsnæðis
væri auðveldara að semja um kaup
og kjör, en eftir því erfiðara í sam-
ræmi við það sem væri fyrir fólk að
ná endum saman til lífsframfæris
þegar búið er að greiða afborganir
og vexti af íbúðalánum eða húsa-
leigu. Félag einstæðra foreldra á
tvær stórar byggingar með smáíbúð-
um sem félagið leigir félagsfólki
sínu. Ekki væri það nú mikið í ráðist
fyrir borgina að fara nú að sinna bet-
ur efnalitlu fólkí í húsnæðismálum,
og slá því á frest að sóa meiru en
þessum 700 milljónum sem fóru í
gamla pakkhúsið við höfnina til að
gera þar listahús. Ekki sýnist mér
nú vera svo mikil örtröð innandyra á
Kjarvalsstöðum að þörfin hafi verið
knýjandi á þessu listhúsi við höfnina.
Eg sé ekki betur en þessir Alþýðu-
flokks- og Alþýðubandalagsmenn
séu að vinna fyrir aðra en efnalítið
fólk sem eflaust hefur komið þeim til
valda í borginni.
I síðustu samningum náðist 15.
þús. króna hækkun á lægstu launa-
taxtana á þremur árum. Ekki vegur
það nú þungt til að borga húsaleigu
eða háa vexti af íbúðarlánum. Eg
held að ef byggt yrði mikið af litlum
íbúðum með eins ódýrum hætti og
unnt er, útboðum og hagstæðum efn-
iskaupum væri hægt að láta húsa-
kynnin standa undir afborgunum á
lánum og vöxtum.
Sannfærður er ég um að ef nægi-
legt framboð væri á leiguhúsnæði
myndi byggingarkostnaður lækka.
Það að byggja litlar íbúðir hef ég
hugsað mér sem millibilstímabil,
sem byrjunarreit, og þegar fjöl-
skyldan stækkar er þörf á að stækka
við sig. Síðar, þegar fólk fer að
minnka við sig þá ungarnir eru
flognir úr hreiðrinu og karl og kerl-
ing eru aftur orðin tvö ein, þá myndu
mörg eldri hjón láta svona smáíbúðir
nægja. Það má aldrei vera gróðaveg-
ur að byggja og selja íbúðarhúsnæði
eins og raunin er. Vegna þess að ekki
var í önnur hús að venda -
leigumarkaðurinn eins og áður var
lýst - hafa margir gripið til þess
neyðarúrræðis að kaupa eða byggja
með of litla eignastæða stöðu og of
miklar skuldir. Þannig er eins gott
að vinnan fari ekki að dragast mikið
saman. Það gæti þó vel gerst.
Ég hef nú sett þessar hugleiðingar
á blað í fáum orðum vegna þess að
mér finnast þessi húsnæðismál í hinu
megnasta óstandi.
GUNNAR VIGFÚSSON,
Grettisgötu 80, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Smiðjuvegi 9 • S. 564 1475