Morgunblaðið - 28.05.2000, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 28. MAÍ 2000 51
I DAG
BRIDS
Umsjjón Guðmuiidur PáU
Arnarson
VÖRNIN er sannarlega
erfiðasti þáttur spilsins,
sem stafar ekki síst af því
að iðulega þarf að taka
lykilákvörðun snemma, of-
ast í fyrstu þremur slögun-
um. Lesandinn ætti að
tylla sér í austur og gera
upp við sig framhaldið í
öðrum slag:
Austur gefur; NS á
hættu.
Norður
A1Q652
¥ A1086
♦ DG8
* K9
Vestur Austur
A ♦ 874
V ¥G953
♦ ♦ ÁK7
+ 4.1043
Vestur Norður Austur Suður
- Pass 1 grand
Pass 2 lauf Pass 2 tíglar
Pass 3 grönd Allir pass
Suður hefur sýnt 13-15
punkta grandopnun og
neitað hálit. Makker kem-
ur út með tígulfjarka,
fjórða hæsta, sagnhafi
stingur upp gosa í borði og
þú átt á kónginn. Hvað
svo?
I'að er ljóst að makker á
slatta af spilum, 7-9 HP,
en er þó punktlaus í tígli.
Að því athuguðu virðist
skynsamlegt að fría tígul-
inn, þó svo að það kosti
kannski einn slag á litinn,
því makker á mjög senni-
lega innkomu til hliðar. Og
þannig vörðust menn á
borðunum þremur á lands-
liðsæfingunni, sem þáttur-
inn hefur verið helgaður
síðustu daga. En ekki með
góðum árangri:
Norður
A 10652
¥ A1086
♦ DG8
+ K9
Vestur Austur
aKG93 *874
¥D7 ¥G953
♦ 109642 4ÁK7
*D8 +1043
Suður
+ÁD
¥K42
♦ 53
+ÁG7652
Sagnhafi þarf ekki nema
fímm slagi á lauf og hefur
þvi efni á að toppa laufið í
öryggisskyni. í>að bar
óvæntan ávöxt þegar vest-
ur lét drottninguna treg-
lega undir ásinn.
Þegar állar hendur sjást
er einfalt að hnekkja þrem-
ur gröndum með því að
skipta yfir í spaða, því þá
neyðist sagnhafi til að spila
laufinu með líkum og svina
gosanum. En það er sitt-
hvað Jón og séra Jón, eða
„tvær hendur og fjórar".
Arnað heilla
O/AÁRA afmæli. í dag,
ÖU sunnudaginn 28. maí,
verður áttræður Finnur
Bergsveinsson frá Gufudal,
rafvirkjameistari, Laugar-
nesvegi 90, Reykjavík.
Finnur dvelst erlendis á af-
mælisdaginn.
O/A ÁRA afmæii. Á
O v/ morgun, mánudag-
inn 29. maí, verður áttræð
Halldóra Júlíusddttir,
Gnoðarvogi 68, Reykjavík.
Hún og eiginmaður hennar,
Magnús Finnbogason, taka
á móti gestum í Safnaðai--
heimili Langholtskirkju nk.
sunnudag, 4. júní, kl. 16.
FJ fk ÁRA afmæli. Nk.
I t) mánudag, 29. maí,
verður sjötíu og flmm ára
Andres Þ. Guðmundsson,
Hrauntungu 11, Kdpavogi.
Hann og eiginkona hans,
Sigríður WiIIiamsddttir,
verða að heiman á afmælis-
daginn.
pTO ÁRA afmæli. Á
OU morgun, mánudag-
inn 29. apríl, verður fimm-
tug Sigurdís Þorláksdóttir,
Arnardranga, Kirkjubæjar-
klaustri. Eiginmaður henn-
ar er Helgi V. Jdhannsson.
LiOÐABROT
LOAN
Einn um haust í húmi bar
hal að kletta sprungu,
úti kalt þá orðið var,
öngvir fuglar sungu.
Sá hann lóur sitja þar
sjö í kletta sprungu,
lauf í nefi lítið var
og lá þeim undir tungu.
Og hann sá, að sváfu þær
svefnamóki þungu;
læddist inn og einni nær
inni’ í kletta sprungu.
Gísli Brynjúlfsson.
ORÐABÓKIN
Dyrum og dyngjum
NÝLEGA rakst ég á frá-
sögn í tímariti, þar sem
sagt var frá manni, og
hefði lögreglan leitað „að
honum í dyrum og dyngj-
um“, eins og það var orð-
að. Ég skal játa, að ég
hnaut um þetta orðtak,
enda er ég ekki vanur
því í þessari mynd. Ég
tala um að leita að e-m
eða e-u dyrum og dyngj-
um, þ. e. leita að e-u
mjög rækilega, leita alls
staðar. Ég býst við, að
þeir séu fleiri en ég, sem
nota orðtakið í þessari
mynd. Við athugun á
Orðtakasafni Halldórs
Halldórssonar próf. kem-
ur sitthvað í ljós. Hann
nefnir annað afbrigði og
segir algengt í nútíðar-
máli, Er það að leita e-s
(að e-u) dunum og dynkj-
um, en um það hefur
hann svipað dæmi frá um
síðustu aldamót.
Benedikt Gröndal talar
um að leita dynum og
dynkjum að e-u. Elzta
dæmi, sem kunnugt er
um orðtakið, er frá 18.
öld: hann leitaði að henni
í dyrum og dyngjum. Er
þá komin hér sama gerð
orðtaksins og vitnað var
til hér í upphafi. Vel má
vera, að sá blaðamaður,
sem skrifaði frásögnina,
hafi lært þetta af bók
Halldórs, en það þarf
ekki að vera svo. Dyngja
táknaði að fornu kvenna-
hús, aðsetursstað kvenna
í baðstofu (skála). Hall-
dór telur, að hér merki
dyr hin ytri takmörk
hússins, en dyngjan hin
innri. Frummerking orð-
taksins er því sú „að leita
um allt húsið“. Hvað
segja lesendur annars
um orðtak þetta? - JAJ.
STJÖRIVUSPA
eftir Frances llrake
TVIBURAR
Þú ert sjálfstæður og sköp-
unargáfa þín ersterk. Listir
eru þér hugleiknar og þar
muntu njóta þín.
Hrútur
(21. mars -19. apríi)
Einhver vandræðagangur er
líklegur til þess að fara í taug-
amar á þér. Það er samt mik-
ilvægt að þú haldir ró þinni
meðan ósköpin ganga yfir.
Naut
(20. apríl - 20. maí) /a*
Þú átt margan greiðan inni og
þeir eru mai-gir sem eru boðn-
ir og búnir til að rétta þér
hjálparhönd, ef þú bara lætur
þá vita. Hikaðu ekki við það.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) AA
Einhverjar breytingar eru að
bijótast um í þér. Leyfðu
hlutunum að gerjast og taktu
svo málið skipulega íyrir.
Þannig færðu beztu niður-
stöðuna.
Krabbi
(21. júní-22. júlí)
Það getur verið notalegt að
láta hugann reika og skapandi
líka, ef þú hefur skriffæri við
hendina. Að setja saman sög-
ur og ljóð er góð dægrastytt-
ing.____________________
Ljón
(23.júlí-22. ágúst) m
Sýndu mikla varúð í fjármál-
um þessa dagana. Kannaðu
vandlega þá kosti sem fyrir
hendi eru og hiustaðu á sérf-
ræðingana áður en þú ákveð-
urþig.__________________
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.) (DlL
Sýndu samstarfsmönnum
þinum lipurð og sveigjanleika.
Þeir reyna sitt bezta. Líttu
frekar svo á að stundaglasið
sé hálffullt en hálftómt.
(23. sept. - 22. okt.) m
Það muna reynast þér ógjöm-
ingur að halda þig við fyrir-
fram ákveðna dagskrá í dag.
Taktu hlutunum samt með ró
og kláraðu það sem skiptir
máli.
Sporðdreki
(23. okt. -21. nóv.)
Komdu vinum þínum á óvart
með einhverju skemmtilegu
uppátæki. Það þarf ekki að
vera neitt stórbrotið, bara
smávottur um vináttu þína.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.) Afj)
Þú átt oft erfitt með að halda
hlutunum í röð og reglu. Þótt
sjálfur vitir þú vel hvar hver
hlutur er, kunna aðrir ekki að
meta þetta skipulagsleysi.
Steingeit
(22. des. -19. janúar)
Nú er dagurinn til þess að
leyfa hæfileikunum að njóta
sín óhindrað. Skrifaðu, mál-
aðu, syngdu, allt eftir þínu
höfði og þú munt yngjast um
mörg ár!
Vatnsberi
(20. jan. -18. febr.) kÉk>
Haltu fast utan um budduna.
Það er margt sem kallar, en
færra sem er nauðsynlegt. Og
oft eru beztu hlutirnir alls
ekki falir fyrir fé.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Láttu það eftir þér að gera
bara það sem þú vilt í dag. Þú
hefur reynzt öðrum tillits-
samur og hjálplegur og nú er
komið að þeim að gjalda líku
líkt.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindaiegra staðreynda.
Sushibakki
8 bitar
kr. 1.800.-
apótek
bar • grill
Austurstræti 16
Sími: 5757 900
/7
ÁSKORUN HUGLTÓMUNAR
(The Enlightenment Intensive)
í Bláfjölium 31. maí til 3. jdní.
Áskorun hugljómunar er krefj-
andi en magnað og hefiir sl. 30 ár
verið vendipunktur til aukinnar
meðvitundar fyrir þúsundir manna.
Engin reynsla af sjálfsvinnu er nauðsynleg.
Leiðbeinandi Guðfinna Steinunn Svavarsdóttir.
Nánari uppl. og skráning hjá Guðfinnu
í símum 562 0037 og 869 9293
og Óttari Ellingsen í símum 554 3930 og 899 5589.
Lokadagur til skráningar er sunnudagurinn 28. maí.
ASfiegja spegilinn
5umarbCi<í»rnar
Ævintýraland
Nýjar vörur í hverri viku
Verðdæmi:
Jakkar
Pils
Buxur
Bolir
frá kr. 4.900
frá kr. 2.900
frá kr. 1.690
frá kr. 1.500
kr. 2.500
Kvartbuxur
Stuttbuxur og
bermudabuxur frá kr. 1.900
QÍjBS Alltaf sama góða verðið!
Nýbýlavegi 12, Kóp., s. 554 4433.
IMýkomin vörusending Sófasett, bókahillur, stakir sófar, brúður, postulínsstyttur o.m.fl. Ýmislegt áhugavert fyrir safnara Raðgreiðslur
1 Antik er fjdrfesting Antik er lífstíll Opið mán.-fös. kl. 12-18, lau. kl. 11-17 og sun. kl. 13-17.
Viktoria Antik • Grensásvegi 14 • Sínii 568 6076
ER RAFLÖGNIN ORÐIN
GÖMUL EÐA ÚR
SÉR GENGIN?
HEFUR ÞÚ ÁHYGGJUR AF
ÖRYGGI FJÖLSKYLDUNNAR?
Við hjá Rafsól skoöum eldri
raflagnir og gerum kostnaöar-
áætlanir á þeim únbótum sem
þurfa þykir, húseigendum að
kostnaðarlausu. Upplýsingar
í síma 553 5600
FYRIRBYGGJUM SLYS -
AUKUM ÖRYGGI!
RAFSOL
SKIPHOLT 33 • REYKJAVfK
SÍMf: 553 5600
www.rafsol.is
Rafsól hf. er löggiltur rafverktaki og starfar í Reykjavík og nágrenni.