Morgunblaðið - 29.06.2000, Side 1
Skýrsla um viðskilnað
ráðuneytis Kohls
Gögmim
var eytt
Berlín. Reuters, AP.
í SKÝRSLU sem var lögð fyrir
sérskipaða rannsóknarnefnd þýzka
þingsins í gær kemur fram að á
þeim vikum sem liðu milli ósigurs
Kristilegra demókrata (CDU) í
þingkosningunum í Þýzkalandi
haustið 1998 og formlegs valdaafsals
Helmuts Kohls til arftaka síns, jafn-
aðarmannsins Gerhards Schröders,
var allt að tveimur þriðju þeirra
gagna eytt sem geymd voru í ráðu-
neyti Kohls, kanzlaraembættinu.
Burkhard Hirsch, þingmaður
frjálsra demókrata (FDP), sem
stýrði könnuninni á því hvað hæft
væri í ásökunum um að skjölum
hefði verið eytt í ráðuneyti Kohls,
sagði í gær að þrjú gígabæti af
tölvugögnum kanzlaraembættisins
úr stjórnartíð Kohls væru horfin.
„Eg fæ ekki séð að það sé nokkur
lagalegur grundvöllur fyrir eyðingu
þessara gagna,“ sagði Hirsch.
Skýrsla Hirsch, sem áður hafði
verið lekið í fjölmiðla, bætti nýjum
þætti við rannsóknina á hneykslis-
málum þeim sem hafa stórskaðað
orðstír Helmuts Kohls og valdið
flokki hans, CDU, miklum skaða.
Kohl ber vitni í dag
Kohl kemur fyrir rannsóknar-
nefnd þingsins í dag, fimmtudag, í
fyrsta sinn frá því nefndin tók til
starfa en hlutverk hennar er fyrst
og fremst að finna út úr því hvort
tengsl hafi verið milli fjárgreiðslna í
sjóði CDU á stjórnarárum Kohls og
ákvarðana ríkisstjórnar hans.
Langvinnum málaferlum vegna kúbversks drengs lokið í Bandaríkjunum
Elian Gonzalez og faðir hans veifa eftir að hafa stigið um borð í flugvél
sem flutti þá til Kúbu frá Washington í gærkvöld.
Elian
inn til
Washington, Havana. Reuters.
ELIAN Gonzalez, sex ára kúbversk-
ur drengur, fór til Havana á Kúbu í
gærkvöld eftir að hæstiréttur
Bandaríkjanna heimilaði föður hans
að taka hann með sér til heimalands
síns. Þar með lauk sjö mánaða for-
ræðisdeilu sem varð að tákni 40 ára
baráttu kúbverskra útlaga í Banda-
ríkjunum gegn kommúnistastjórn-
inni á Kúbu.
Hæstiréttur Bandaríkjanna hafn-
aði beiðni ættingja drengsins í Miami
um að hann fengi hæli í Bandaríkjun-
um sem pólitískur flóttamaður. Lög-
reglumenn íylgdu drengnum og fjöl-
skyldu hans á Dulles-alþjóðaflugvöll-
inn nálægt Washington þar sem
leiguflugvél beið þeirra. Faðir
drengsins sagði fyrir brottförina
laust fyrir klukkan níu í gærkvöld að
hann hefði eignast marga vini í
Bandaríkjunum og kvaðst vona að
þau vináttubönd leiddu til betri sam-
skipta milli stjórnvalda í Havana og
Washington.
Mikil reiði var meðal kúbverskra
útlaga í Bandaríkjunum og margir
þeirra grétu þegar þeir fréttu af
úrskurði dómstólsins en ekki var
reynt að hindra heimferð drengsins.
Janet Reno, dómsmálaráðherra
Bandaríkjanna, fagnaði málalyktun-
um. „Ég vona að allir virði ákvörðun
hæstaréttar og taki undir árnaðar-
óskir mínar til fjölskyldunnar, eink-
um litla drengsins.“
kom-
Kúbu
George W. Bush, forsetaefni
repúblikana, kvaðst hins vegar hafa
orðið fyrir miklum vonbrigðum.
„Vonandi getur Elian þó komið aftur
til Bandaríkjanna ef hann vill það
einhvern tímann síðar þegar
kúbverska þjóðin hefur öðlast
frelsi," sagði hann.
Ákvörðun dómstólsins er auð-
mýkjandi ósigur fyrir hörðustu and-
stæðinga kommúnistastjórnarinnar
í Havana meðal kúbversku útlag-
anna sem gerðu drenginn að tákni
þein-a þjáninga sem þeir segja
Kúbumenn líða undir stjóm Fidels
Castros. Fréttaskýrendur sögðu að
lyktir forræðisdeilunnar væru mikið
pólitískt áfall fyrir útlagana, sem
hafa verið mjög áhrifamiklir í
Bandaríkjunum.
Kúbumenn fagna
Heimkoma drengsins er hins veg-
ar sigur fyrir stjórn Castros, sem
hafði skipulagt fjölmenn mótmæli á
Kúbu til að krefjast þess að drengur-
inn yrði sendur heim.
Fyrstu viðbrögð stjórnarinnar á
Kúbu við niðurstöðu bandaríska
dómstólsins voru þau að hvetja þjóð-
ina til að „halda reisn sinni og aga“.
Engin götuhátíðahöld voru skipu-
lögð í tilefni af heimkomu drengsins
og embættismaður í Havana sagði
að Kúbumenn myndu „fagna í hjarta
sínu heima hjá sér“.
Rússneska stjórnin samþykkir efnahagsáætlun
Stefnt að 5% hagvexti
Moskvu. AP.
STJÓRN Rússlands samþykkti í
gær tíu ára efnahagsáætlun sem
miðar að því að auka hagvöxtinn í
landinu og treysta stöðu rússneskra
fyrirtækja á heimsmarkaði.
I áætluninni er stefnt að því að
hagvöxturinn verði a.m.k. 5% á ári
og verg þjóðarframleiðsla aukist um
tæp 150% fyrir árið 2010. Þá er gert
ráð fyrir því að verðbólgan verði ekki
yfir 10% á ári og fjárfestingar rúss-
neskra fyrirtækja aukist um 30%.
Til að ná þessum markmiðum
hyggst stjórnin grípa til ýmissa að-
gerða til að koma á frjálsum
markaðsbúskap, draga úr skrif-
finnsku, binda enda á vöruskipti,
stuðla að aukinni samkeppni og beita
sér fyrir réttarfarslegum umbótum.
Þá er lögð áhersla á að auka aðstoð
við fátækustu íbúa landsins, lækka
skatta og einfalda skattkerfið.
Efri deild þingsins hafnaði í gær
stjórnarfrumvarpi um að héraðs-
stjórar yrðu sviptir sætum sínum í
deildinni. Líklegt er þó að frumvarp-
ið verði að lögum því neðri deOdin
getur hnekkt neitunarvaldi efri
deildarinnar með því að samþykkja
það með tveimur þriðju atkvæða.
Vísindamenn f fímm löndum gagnrýna fískeldi í grein í Nature
Tekist á
um vatn
Sagt ógna vistkernnu
FISKELDI, sem margir telja nauðsynlegt til að
brauðfæða vaxandi mannfjölda, hefur skelfileg
áhrif á umhverfið og á villta fiskstofna. Er þessu
haldið fram í skýrslu sem hópur vísindamanna í
Bandaríkjunum, Skotlandi, Sviþjóð og Filipps-
eyjum hefur tekið saman, en hún birtist í dag í
breska tímaritinu Nature. Segja þeir að fiskeldi
eigi sinn þátt í hruni fiskstofna víða um heim.
Framleiðsla í fiskeldi var 10 milljónir tonna
1987 en var komin í 29 millj. tonna 1997. Er hún
langmest í Asíu eða um 90%. Fiskaflinn, eða
veiðarnar, hefur hins vegar ekkert aukist og er
85 til 95 millj. tonna árlega.
Vísindamennirnir segja að fullyrðingar um að
fiskeldi geti orðið uppspretta ódýrrar fæðu séu
vitleysa. Aðallega vegna þess að gífurlegu
magni af fiski, t.d. ansjósu og makríl, sé mokað
upp og gert að fóðri fyrir eldisfiskinn. Segja
þeir að um 8% af öllum fiski í vörpu og nót fari í
fiskeldið og með því sé verið að kasta gífurleg-
um verðmætum á glæ auk þess sem það ýti und-
ir ofveiði á tegundum sem oft eru mjög mikil-
vægir hlekkir í fæðukeðjunni.
Villtu stofnarnir hrynja
Því er haldið fram að fiskeldi sé víða beint til-
ræði við vistkerfið. Víða í Austur-Asíu hafi
strendur og strandskógar verið eyðilögð, af
fiskeldinu stafi mikil mengun og sums staðar
hafi borist frá því sjúkdómar í villta stofna.
Laxeldi, einkum í Noregi og Skotlandi, er
sagt stofna líffræðilegum fjölbreytileika í hættu
og fullyrt er að 40% af þeim laxi sem veiðist í
Norður-Atlantshafi sé eldisfiskur. Þá gerist það
æ algengara að sjómenn í austanverðu Kyrra-
hafi fái Atlantshafslax í net sín. Kynblöndun
þessa lax við náttúrulega stofna muni flýta fyrir
hruni þeirra.
Eins og fyrr segir er fiskeldi mest í Asíu,
einkum Kína, og þar hefur það verið hvað um-
hverfisvænast. Það hefur byggst mest á fersk-
vatnstegundum sem lifa á ýmiss konar gróðri og
þörungum en með aukinni áherslu á afköst eru
Kínverjar farnir að nota aðkeypt fóður í æ rík-
ari mæli.
PALESTÍNSKIR drengir keppast
um að ná vatnsflöskum sem hreyf-
ing ísraelskra vinstrimanna, Gush
Shalom, dreifír í bænum Yatta á
Vesturbakkanum. Vatnsskorturinn
í Miðausturlöndum kemur verst
niður á Palestinumönnum þar sem
ísraelar skammta þeim aðeins
þriðjung þess vatns sem ísraelsk
heimili fá. Deilur ísraela og Palest-
inumanna um nýtingu vatns eru á
meðal erfiðustu úrlausnarefnanna
í friðarviðræðum þeirra.
MORGUNBLAOW 29. JÚNÍ 2000