Morgunblaðið - 29.06.2000, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Kristinn
Geysir lætur á sér kræla
LITILL vafí er talinn Ieika á því að
aukinn hiti sé á Geysissvæðinu í
Haukadal í kjölfar jarðskjálftanna á
Suðurlandi og í gær minnti sjálfur
Geysir nokkrum sinnum á sig.
Áhöld eru reyndar um hvort um
raunverulegt gos hafi verið að ræða
úr hvernum og segja kunnugir að
hann hafi í raun aðeins skvett lítil-
lega úr sér. Starfsfðlk Hótels Geysis
í Haukadal taldi þó engan vafa leika
á því að hverinn hefði gosið í um 40
metra hæð um tvöleytið í gær og
sömuleiðis létu um 80 ítalskir ferða-
menn, sem staddir voru í matsal
hótelsins þegar Geysir yggldi brún-
irnar, sig litlu máli skipta hvort um
„alvöru" gos væri að ræða eður ei
heldur kættust einfaldlega yfir mik-
ilfengleik náttúruaflanna.
Forsætisráðherra segir viðskiptasið-
ferði spákaupmanna hæpið
Hefði getað haft
áhrif á milliupp-
gjör fyrirtækja
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
sagði í gær að hefði sú tilraun spá-
kaupmanna til að lækka gengi krón-
unnar tekist, sem gerð var sl. föstu-
dag og mánudag, hefði það getað haft
alvarlegar afleiðingar. Meðal annars
hefðu sex mánaða uppgjör fyrirtækja
ekki endurspeglað rétta stöðu þeirra.
Birgir Isleifur Gunnarsson seðla-
bankastjóri sagði í samtali við Morg-
unblaðið sl. mánudag að spákaup-
menn hefðu gert atlögu að gengi
íslensku krónunnar í þeim tilgangi að
hagnast á lækkun hennar. Seðla-
bankinn brást við með því að kaupa
krónur fyrir 2,3 milljarða til að vama
því að gengið félli.
Davíð sagði að flest benti til að
reynt hefði verið að beita handafli til
þess að fella gengið eða lækka það
verulega og koma þannig af stað
keðjuverkun. Það hefði ekki tekist
sem betur fer.
Voru að leika sér að eldinum
„Ef þessi atlaga hefði tekist hefði
það getað haft alvarlegar afleiðingar.
Þama vom menn að reyna að ná
fram skyndihagnaði með því að beita
aðferðum sem ég held að sé afar
sjaldgæft að menn grípi til innan-
lands. Þetta hefur aftur á móti aðeins
gerst á milli landa. Manni finnst þetta
vera á ystu mörkum þess sem unandi
er við og viðskiptasiðferði á bak við
slíka atlögu er náttúrulega afar hæp-
ið, svo ekki sé fastar að orði kveðið.
Ef þetta hefði tekist hefðu sex
mánaða uppgjör margra fyrirtækja
ekki endurspeglað rétta stöðu þeirra.
Þetta hefði þvi getað haft áhrif á verð
hlutabréfa í þessum fyrirtækjum þó
að það væru engar efnislegar for-
sendur fyrir því. Þannig að menn
vom þama að leika sér að eldinum,"
sagði Davíð.
Davíð sagði að Seðlabankinn hefði
bmgðist rétt við í þessari stöðu og
bankinn myndi væntanlega fara yfír
þetta mál á riæstunni.
Davíð sagðist hafa ákveðnar gmn-
semdir um hveijir hefðu staðið á bak
við þessa aðgerð en vildi ekki nefna
nein nöfn.
Með
fimm kiló
af hassi
TÆPLEGA þrítugur karlmað-
ur var handtekinn á Keflavíkur-
flugvelli með tæp 5 kg af hassi á
mánudag, að því er kemur fram
í fréttatilkynningu, sem Toll-
gæslan á Keflavíkurflugvelli
sendi frá sér í gær. Þá segir að
þetta sé mesta magn kannabis-
efna sem tekið hafi verið í einu
lagi frá því stóra fíkniefnamálið
svonefnda hafi verið upplýst.
Smásöluverðmæti fíkniefnanna
gæti numið 7-8 milljónum
króna.
Segir að hassið hafi fundist
við venjulega skoðun á farangri
mannsins sem hafí verið að
koma frá Amsterdam. Hann
hafi ekki áður komið við sögu í
fíkniefnamálum. Fíkniefnadeild
lögreglunnar í Reykjavík tók
við rannsókn málsins og hefur
maðurinn verið látinn laus þar
sem málið telst upplýst.
-Zg.6*
-&* ,K*
-ias*
Héraðsddmur Reykjavíkur dæmir í máli Eignarhaldsfélags DB hf.
Kröfum hluthafanna um
forkaupsrétt hafnað
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur heíúr hafnað kröf-
um 17 hluthafa í Eignarhaldsfélaginu DB hf. um að
forkaupsréttarákvæði, sem voru í samþykktum fé-
lagsins, væru enn í gildi. Hluthafarnir höfðuðu mál-
ið gegn Sveini R. Eyjólfssyni, fí’amkvæmdastjóra
félagsins sem var sýknaður af meginkröfum stefn-
enda. Dómurinn byggði niðurstöðu sína á því að
með lögum um hlutafélög frá árinu 1978 hefðu
hömlur á viðskipti með hlutabréf verið afnumdar í
félögum sem eru með fleiri en 200 hluthafa.
Agreiningur í máli þessu reis vegna ákvæða í
samþykktum Dagblaðsins hf. (síðar Eignarhaldsfé-
lagsins DB), en í 7. gr. var kveðið á um að hlutir
væru bundnir forkaupsrétti. Alþingi breytti lögum
um hlutafélög árið 1978, fjórum árum eftir að Dag-
blaðið hf. var stofnað. Samkvæmt lögunum var
bannað að leggja hömlur á viðskipti með hluti í
hlutafélögum þar sem hluthafar voru fleiri en 200. Á
aðalfundi félagsins 1982 voru samþykktar breyting-
ar á samþykktunum til samræmis við breytt lög um
hlutafélög. Tilkynning um breytingu á samþykkt-
unum var hins vegar aldrei skráð og lögformlega
birt. Sannað þótti að Hlutafélagaskrá hefði borist
endurrit úr fundargerðabók frá 27. ágúst 1982 inn-
an lögskipaðra tímamarka. Skjölin virðast hins veg-
ar hafa verið endursend vegna formgalla sem ekki
voru tilgreindir. Þau eru engu að síður árituð af
starfsmanni Hlutabréfaskrár og skráð sem „Ný“.
Forkaupsréttarákvæði andstætt landslögum
Héraðsdómur komst að þeii-ri niðurstöðu að
þrátt fyrir að forgangsréttarákvæðinu hefði ekki
lögformlega verið breytt hefði verið til staðar „skýr
og ófrávíkjanleg fyrirmæli landslaga um að hömlur
mættu ekki vera á viðskiptum með hluti í félagi sem
hefði 200 hluthafa eða fleiri og að hlutafélögum bæri
að leiðrétta samþykktir sínar í samræmi við það.
Samkvæmt þessu var forkaupsréttarákvæðið, sem
enn var í gildi samkvæmt samþykktum félagsins,
þar sem breyting á því hafði ekld verið lögformlega
skráð og birt, andstætt landslögum. Samþykktir fé-
lagsins víkja, samkvæmt eðli máls og almennum
lögskýringarreglum, fyrir ákvæðum landslaga.“
Þeir sem málið höfðuðu höfðu með vísan í lög um
hlutafélög óskað eftir á aðalfundi 1999 að fram færi
rannsókn á viðskiptum með hlutabréf í félaginu,
niðurfellingu forkaupsréttar að hlutum og sölu fast-
eigna félagsins. Jafnframt kröfðust þeir þess að
Sveinn R. Eyjólfsson greiddi ekki atkvæði um til-
löguna þar sem hún beindist að honum og ákvörð-
unum hans. Fundarstjóri hafnaði þessu og var til-
lagan felld á aðalfundinum. Fyrir Héraðsdómi var
þess krafist að úrskurður fundarstjóra yrði ógiltur
og féllst hann á kröfuna þar sem Sveinn hefði verið
vanhæfur til að taka þátt í atkvæðagreiðslunni.
■ Skýrog/12
Nokkuð
harðireft-
irskjálftar
TVEIR jarðskjálftar af stærðinni
3,3 og 3 riðu yfir Suðurland eftir
hádegi í gær með aðeins fimm mín-
útna millibili og um kl. 18 kom
skjálfti af stærðargráðunni 3,2.
Upptök skjálftanna voru 5 km til
suðvesturs frá Skeiðavegamótum á
milli Neistastaða og Þingdals. Þetta
eru með sterkustu skjálftum sem j
komið hafa síðan stóri jarðskjálft-
inn reið yfir 21. júní. í gær mældust
70-90 skjálftar að jafnaði á klukku-
stund.
Kortið er fengið af vef Veður-
stofu Islands, www.vedur.is/ja/
skjalftar/svest.html. Liturinn á
punktum táknar hversu langt er
síðan skjálftinn varð. Nýjustu
skálftarnir ei-u táknaðir með
dökkrauðum punktum en dökkbláir
punktar tákna skjálfta sem urðu
fyrir meira en 24 klst. Skjálftar
stærri en 3 á Richterskvarða eru
táknaðir með grænum stjörnum,
óháð því hvenær þeir urðu.
Sérblöð í dag
SSlBUR
Með Morgun-
blaðinu í dag fylgir
timaritið 24-7.
Útgefandi:
Alltaf ehf.
Ábyrgðarmaður:
Snorri Jónsson.
4SlMNt
Rúnar væntir tilboðs
frá Lokeren / C1
Genk setur Þórði stólinn
fyrir dyrnar / C1
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is