Morgunblaðið - 29.06.2000, Page 6
6 FIMMTUDAGUK29. JUNl 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sextíu félög í Skógræktarfélagi íslands sem fagnar 70 ára afmæli
Morgunblaðið/Árm Sæberg Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra boðaði í ræðu sinni að skógræktarfélögum yrði
Davíð Oddsson flutti ræðu í Stekkjargjá og Hamrahlíðarkórinn söng. gert kleift að taka að sér lausar jarðir í eigu ríkisins til að nýta til skógræktar.
30 til 40 millj-
ónir plantna
gróðursettar
Síðla kvölds hinn 27. júní árið 1930 komu
um 60 manns saman í Stekkjargjá á Þing-
völlum til að stofna Skógræktarfélag ís-
lands. Þá stóð Alþingishátíðin yfír þar.
Sjötíu ára afmælis félagsins var minnst í
fyrrakvöld á sama tíma og sama stað.
BLÁSARASEXTETT blés til af-
mælishátíðar Skógræktarfélags ís-
lands í logni og og blíðu í Stekkjar-
gjá og síðan setti formaður
félagsins, Magnús Jóhannesson
ráðuneytisstjóri, hátíðina. Innan
Skógræktarfélags íslands, lands-
sambands skógræktarfélaganna,
eru nú 60 félög með yfír sjö þúsund
félagsmenn. Fjögur ný félög hafa
slegist í hópinn á þessu ári.
Magnús Jóhannesson sagði að
einn helsti hvatamaður að stofnun
Skógræktarfélagsins hefði verið
Sigurður Sigurðsson búnaðarmála-
stjóri. Hann vitnaði til fyrstu gerða-
bókar félagsins þar sem fram kem-
ur að miklir möguleikar eru taldir á
skógrækt á íslandi. Magnús sagði
að ýmsir hefðu talið þá draumóra-
menn sem vildu ráðast í skógrækt á
þeim tíma og þeir jafnvel taldir
óraunsæir sérvitringar. Á stofn-
íúndinum í Stekkjargjá voru sam-
þykkt lög fyrir félagið og kjörin
stjórn sem var þannig skipuð: Ein-
ar Árnason fjármálaráðherra, Sig-
urður Sigurðsson búnaðarmála-
stjóri, Maggi Júl. Magnús læknir,
Jón Ólafsson alþingismaður og
Hólmjárn J. Hólmjám efnafræð-
ingur. í varastjóm sátu Valtýr Stef-
ánsson ritstjóri, Pálmi Einarsson
ráðunautur og Ásgeir L. Jónsson
ráðunautur. Magnús sagði nú rúm-
lega 200 skógræktarlönd vera í um-
sjá skógræktarfélaganna, alls um
20 þúsund hektarar að stærð. Talið
væri að milli 30 og 40 milljónir
plantna hefðu verið gróðursettar á
vegum skógræktarfélaganna sem
væri nærri helmingur þess sem
gróðursett hefði verið á öldinni.
Að lokinni ræðu formannsins
framflutti Guðjón Sveinsson, frá
Mánárbergi í Breiðdalsvík, ljóð sitt
Skógurinn kallar og Hamrahlíðar-
kórinn söng það við lag Atla Heimis
Sveinssonar undir stjórn Þorgerðar
Ingólfsdóttur. Kórinn söng einnig
Vormenn Islands eftir Guðmund
Guðmundsson skólaskáld við lag
Jóns Friðfinnssonar.
Ýmis rök fyrir skógrækt
Hátíðarræðu flutti Davíð Odds-
son forsætisráðherra. Hann sagði
það enga tilviljun að aldamótakyn-
slóðin hefði talið það eitt höfuðverk-
efni sitt að hefja landgræðslu og
skógrækt á íslandi. Það væri held-
ur engin tilviljun að skáld aldamót-
anna, t.d. Guðmundur skólaskáld,
Þorsteinn Gíslason, Einar Bene-
diktsson og Hannes Hafstein hefðu
allir ort um ísland viði vaxið. Hann-
es hefði bent á að sú tíð kæmi að
menning yxi í lundi nýrra skóga og
setti þar skógrækt við hlið hugsjóna
um að verslunin færðist inn í landið,
fossar væra virkjaðir og atvinnulíf
vélvætt. Davíð sagði rök fyrir skóg-
rækt meðal annars þau að hér væra
skilyrði til ræktunar nytjaskóga,
skógur styddi landgræðslu og aðra
ræktun og nefna mætti einnig fag-
urfræðileg sjónarmið. Ráðherra
kvaðst einnig vilja nefna hversu
mikla ánægju hann hefði sjálfur
haft af eigin skógrækt við sumar-
bústað þeirra hjóna. Með því að
hlúa að gróðri jarðar væri verið að
skapa eitthvað nýtt sem færði
mönnum gleði og lífsfyllingu.
Eftir athöfnina í Stekkjargjá hélt
dagskrá áfram í Valhöll og þar flutti
Guðni Ágústsson landbúnaðarráð-
herra ræðu. Hann sagði atorku,
framsýni og þollyndi einkenna starf
skógræktarmanna og óskaði þeim
til hamingju með tímamótin. Hann
sagði öldina framundan vera tíma
skógræktar sem stefndi að þvi
markmiði að skógurinn gæfi af sér
timbur, yki skjól og landgæði, skap-
aði atvinnu og stuðlaði að jákvæðri
byggðaþróun í landinu. Hann sagði
stjómvöld treysta á þann hugsjóna-
ríka her um landið allt sem nú stæði
fyrir skógræktarverkefnum. Ráð-
herra boðaði þá stefnu að selja ýms-
ai’ ríkisjarðir, sem væra betur
komnar í höndum einstaklinga,
eyðijarðir og aðrar sem hentuðu vel
undir skógrækt. Kvaðst hann munu
ræða það í ríkisstjórn hvort lausar
jarðir yrðu boðnar skógræktarfé-
lögum til að taka þar upp skógrækt-
arverkefni.
Bfll frá Toyota
Skógræktarfélaginu bárast einn-
ig gjafir og kveðjur. Páll Samúels-
son, stjórnarformaður Toyota-um-
boðsins, P. Samúelssonar, afhenti
Toyota-pallbfl sem fyrirtækið gaf
félaginu og tók Magnús formaður
við lyklunum úr hendi hans. Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga,
sagði samstarf sveitarfélaganna við
skógræktarfélög hafa verið mikið.
Hann varpaði fram þeirri hugmynd
að sambandið og Skógræktarfélag-
ið legðu fram 250 þúsund krónur á
ári í fimm ár til að stofna sjóð sem
styrkja myndi fólk til náms í skóg-
fræði.
röll og álfar, draugar,
huldufólk og fleiri þjóð-
sagnaverur slást í förina
og gera ferðalagið ^
ógleymanlegt.
Rfldsstj órnarfundur
Ákveðið að styrkja
lokun kjarnorku-
versins í Tsjernðbfl
Á RÍKISSTJÓRNARFUNDI í gær-
dag vora tekin fyrir nokkur mál á
vegum utanríkisráðuneytisins. Þar á
meðal var staðfesting tvísköttunar-
samnings milli Islands og Belgíu,
sem kemur í veg fyrir að fólk sé
tvískattað fyrir sömu tekjumar í
löndunum tveimur. Einnig var til
umfjöllunar skipun starfshóps sem
vinna á að mótun framtíðarstefnu
um þátttöku Islands í friðargæslu en
vinnuhópurinn mun leitast við að fá
heildarmynd af því hvernig þátttöku
íslands verður háttað í framtíðinni
og hvernig staðið verður að henni.
Á fundinum í gær var ákveðið að
haldið yrði áfram að styrkja Úkra-
ínumenn vegna lokunar á kjarnorku-
verinu í Tsjemóbfl. Islendingar hafa
ásamt öðrum Evrópuþjóðum veitt
fjármuni í þetta verkefni en gíf-
urlega kostnaðarsamt er að loka
kjarnorkuverinu. Umhverfisslys í
Tsjemóbfl gæti haft áhrif um alla álf-
una og því mikilvægt að kjarnorku-
verinu verði lokað.
Breytingar á viðaukum og bókun-
um við EES-samninginn vora einnig
teknar fyrir en þar era á ferðinni
ýmsar tillögur og ákvarðanir fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins um samræmingu laga aðildar-
ríkjanna sem lúta að ýmsum þáttum
þjóðfélagsins.
Kristnihátíð
Prestur
í hverju
héraði
SAMKVÆMT upplýsingum
Biskupsstofu verður prestur
til taks í öllum héruðum
landsins um næstu helgi þeg-
ar kristnihátíð stendur yfir á
Þingvöllum.
Að sögn Þorvaldar Karls
Helgasonar biskupsritara
verða prestar í öllum héruð-
um sem munu sinna prests-
störfum þar en ekki fara til
Þingvalla og á það sama við
um höfuðborgarsvæðið.
„Langflestir prestar fara til
Þingvalla en það er alltaf ein-
hver kirkja sem þjónar á
hverju svæði,“ sagði hann.