Morgunblaðið - 29.06.2000, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Faðir Martin tekur hér við framlagi fyrir þrælabörn á Indlandi hjá Karli Sigurbjörnssyni biskupi.
Þrjátíu milljónir til að leysa
indversk börn úr ánauð
BISKUP íslands, Karl Sigur-
björnsson, afhenti í gær föður
Martin, stofnanda og leiðtoga
Social Action Movement-
samtakanna í Indlandi 30 millj-
önir kröna til að leysa börn úr
skuldaánauð. Féð safnaðist fyrr í
sumar fyrir tilstilli Hjálparstarfs
kirkjunnar eftir að fréttir bárust
um barnaþrælkun þar í landi og
kvaðst biskup vilja þakka íslend-
ingum örlæti og góð viðbrögð.
Jónas Þórisson, framkvæmda-
stjóri Hjálparstarfs kirkjunnar,
kvaðst ekki hafa reynt slfkar
undirtektir áður og sagði ekki
síður hafa verið ánægjulegt að fá
svo mörg símtöl þar sem fólk
lýsti stuðningi sfnum og ánægju
ineð framtakið. Jónas sagði féð
yfirfært til Indlands smám sam-
an á næstu misserum eftir því
sem verkefnin þar krefjast enda
væri hér um langtímaverkefni að
ræða.
Biskup sagði þetta eins konar
þjóðargjöf Islendinga til að leysa
ánauðug börn á Indlandi í tilefni
af kristnihátíðinni, eins konar
upptaktur að henni. Hann sagði
þakklæti íslendinga endur-
speglast í þessum miklu við-
brögðum, þakklæti fólks fyrir
barnalán og það að búa í frjálsu
þjóðfélagi. Sagði biskup slíkt
þakklæti spretta af rótum þess
sem íslendingar væru nú að
minnast með kristnihátíðinni.
Mikil vinna að fá börn
leyst úr ánauð
Faðir Martin, eða séra Martin,
kvað sér heiður að því að taka
við þessum fjármunum og vildi
koma á framfæri þakklæti frá
skjólstæðingum sínum. Hann
sagðist vilja fullvissa Islendinga
um að féð yrði notað til að leysa
indversk börn úr ánauð vegna
skulda foreldranna. Social
Action Movement-samtökin beita
sér einkum í borginni Kanchip-
uram þar sem er mikil miðstöð
silkivefnaðar en þar er einnig há-
borg hindúismans.
Séra Martin sagði það oft
kosta mikla vinnu að fá börnin
leyst úr ánauð, greiða þyrfti
skuld foreldranna með einhverju
móti og siðan yrði að styðja börn-
in til náms. Þau hefðu hvorki efni
á að kaupa bækur né föt og því
yrði að styrkja þau áfram. Þá
væri oft erfítt að fá 12 til 13 ára
börn til að samþykkja að setjast
á skólabekk með 6-7 ára börnum
og því hefði verið stofnaður sér-
stakur undirbúningsskóli fyrir
þau. Einnig sagði liann það iðu-
lega koma fram að eigendur vef-
stofanna krefðust gífurlegra
vaxta sem gætu ekki verið eðli-
legir og sagði hann stundum
þurfa að leita réttar fyrir hönd
barnanna fyrir dómstólum.
300-400 millj. framkvæmdir til að
Norræna geti lagst að bryggju
Framkvæmdir í
Seyðisfirði ekki
inni á áætlun
STURLA Böðvarsson samgöngu-
ráðherra segir að ekkert erindi hafi
borist frá Smyril Line um hafnar-
framkvæmdir sem nauðsynlegar eru
í Seyðisfirði til að ný ferja fyrirtæk-
isins, Norræna, geti lagst að bryggju
þar. Hann segir að málið hafi lítillega
verið skoðað hjá Siglingamálastofn-
un en það sé á algeru framstigi.
Jónas Hallgrímsson, stjómarfor-
maðm’ Smyril Line, sagði í Morgun-
blaðinu í gær að mikilvægt sé að ís-
lensk stjórnvöld aðstoði fyrirtækið
við að fjármagna framkvæmdirnar
en þær eru taldar kosta 300 til 400
milljónir ki’.
„Framkvæmdirnar eru ekki inni á
neinni áætlun. Hafnaráætlun er í
endurskoðun og verður lögð fram á
Alþingi í haust. Þá verður væntan-
lega tekið tillit til Seyðisfjarðar eins
og annarra hafna og þá væntanlega
þessa stóra verkefnis," segh’ Sturla.
Hann lýsir ánægju sinni með það að
samningar skuli hafa verið gerðir um
smíði nýrrar Norrænu.
LítilJ áhugi á
kristnitökuhátíð
FÁIR virðast ætla á kristnitökuhá-
tíð á Þingvöllum ef marka má skoð-
anakönnun sem fyrirtækið Price-
WaterHouseCoopers gerði í júní-
mánuði. Könnunin fór fram símleiðis
og var úrtakið 1200 manns af öllu
landinu en svarhlutfall var 60%.
Þátttakendur voru spurðir hvort
þeir gerðu ráð fyrir því að fara á
kristnitökuhátíðina. Af þeim sem
tóku afstöðu segjast 10,2% gera ráð
fyrir því að fara en 82,8% sögðust
ekki ætla. Óákveðnir eru 6,7%.
Hlutfall þeirra sem gera ráð fyrir
því að fara er lægst hjá aldurshópn-
um 18 til 24 ára þar sem aðeins 6,7%
segjast ætla á hátíðina en 86,7%
búast ekki við þvi að fara. Hæst er
hlutfallið hins vegar hjá aldurshópn-
um 35 til 44 ára en af þeim gera 16%
ráð fyrir þvi að fara á hátíðina en
75,7% ætla ekki að fara.
Lítill áhugi á landsbyggðinni
Áhuginn á hátíðinni virðist vera
mismunandi eftir landshlutum.
Mestur er hann meðal höfuðborgar-
búa en samkvæmt könnuninni gera
17,5% þeirra ráð fyrir þvi að fara að
I PíPÍÍl 4£^ÚS JGNA5 JÓHAHM&X KKÍHAHf £SAÚ MAltiA KMJFAS J
m OOLÍAT AOAM 5VA HÓl AöftAHAM SAHA W>T S&MS&H úg gui $
$ TÓMA6 J“»Í.ArU5 UAHASBAS NTBUKADNtSAR ÍSAK íf>«ATl
JlASX KS.HÍÍK.KA SACGWHN CNROTTMIMGtM AF AAfíA JgSÓA JÓHAS .i,\d i
HiflWS WAH3A JHiORÉf. ?>ÍATT£UV LASAHtf*SÍMGK HÉTUHf i
1 gkáh? famiA kauœ hmmm, wtóv |
Im sáká im m ttútte&msAR fsm ímzmi mmmA
• ÚMf.US flUKÞúS WAHÍA AHVKt& MATTKUS UkSAmjS PÉTtitt I
, TA» SAWULL DAVÍIi MAttfA MAGDALBNA JÓS*|
í tilefni af þúsund ára afmæli kristnitöku
á íslandi hefur Háskólaútgáfan gefið út
bókina Fyrirheitna landið sem hefur
að geyma þekktustu frásagnir biblíunnar.
Fyrirheitna landið er úrval frásagna sem hafa
orðið kveikja sköpunar meðal rithöíunda, tónskálda
og listamanna í gegnum aldimar. Áhrifa biblíunnar
gætir á öllum sviðum mannlegra samskipta og í
daglegu máli. Hér eru saman komnar frásagnir
sem eru lykillinn að dýpri skilningi á menningu
okkar og samfélagi.
Nuddpottan
Fullbúnir acryl nuddpottar
Vatnsnudd, hreinsitæki, ozintor, Ijós,
höfuðpúðar, trégrind, full einangraðir með
einangruðu loki. Uppsettir í sýningarsal okkar
OPIÐ ÖLLKVÖLD TILKL 21
Jtfl METRO
Skeifan 7 • Sími S25 0800
Þingvöllum á meðan 74% ætla ekki.
Annars staðar virðist áhuginn vera
minni og í þremur landshlutum
kveðst enginn ætla að fara á hátíðina
ef marka má niðurstöður könnunar-
innar. Þetta eru Norðurland vestra,
þar sem 96% ætla að sitja heima en
4% eru óákveðin, Vestftrðir, þar sem
94,7% ætla ekki að fara en 5,3% eru
óákveðin, og Austurland, þar sem
enginn aðspurðra gerir ráð fyrir því
að fara. Rétt er að taka fram að til-
tölulega fáir eru á bak við svörin í
þessum landshlutum.
---------------------
Borgarráð
Borgarstjóri
tilnefni
fulltrúa
í BÓKUN Reykjavíkurlista, sem
lögð var fram á fundi borgarráðs í
vikunni í framhaldi af bókun Sjálf-
stæðisflokks vegna setu í stjóm
Línu-Nets hf., segir að oddviti sjálf-
stæðismanna geti sjálfum sér um
kennt hvemig farið hafi með stjórn-
arsætið. Sú almenna regla gildi um
hlutafélög í eigu borgarinnar að borg-
arstjóri tilnefni fulltrúa borgarinnar.
Fram kemur að allur gangur hafi
verið á því hvort þar hafi átt sæti póli-
tískir fulltrúar og þar með einstakl-
ingai’ úr meiri- eða minnihluta borg-
arstjórnar, segir ennfremur í
bókuninni. Bent er á að enginn full-
trúi minnihluta hafi verið í stjóm Afl-
vaka hf. fyrir árið 1994. Núverandi
meirihluti hafi hins vegar tekið upp
þau vinnubrögð að hafa samráð við
núverandi minnihluta um stjórnar-
sæti. „Fyrir aðalfund Línu-Nets hf. lá
ekkert fyrir um að sjálfstæðismenn
vildu gera breytingar á stjórninni og
Inga Jóna Þórðardóttir hafði hvorki
samráð við borgarstjóra né formann
stjórnar um breytingar á stjóminni,"
segir í bókuninni.
♦ ♦ ♦
Aukafundur í
borgarstjórn
BOÐAÐ hefur verið til aukafundar í
borgai’stjóm kl. 17 í dag en minnihluti
Sjálfstæðisflokks fór fram á aukafund
á fundi borgairáðs í vikunni.
I bókun minnihlutans, sem lögð var
fram á fundi borgarráðs, var ákvörð-
un borgarstjóra um að útiloka full-
trúa Sjálfstæðisflokkins úr stjóm
Línu-Nets hf. harðlega mótmælt. Að
sögn Ingibjargar Sólrúnar Gísladótt-
ur borgarstjóra var ákveðið að verða
við ósk minnihlutans um aukafund og
ákvörðun tekin um að halda hann á
venjubundnum fundai’tíma borgai’-
stjómar.