Morgunblaðið - 29.06.2000, Qupperneq 22
22 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/KVM
Magnús Gíslason borstjóri, Sigurður Hreinsson og Guðmundur Örn Hansson aðstoðarborstjóri.
Heitavatnsfundur í Eyja-
og Miklaholtshreppi
Grundarfirði - Heitt vatn hefur
fundist f Eyja- og Miklaholtshreppi,
nánar til tekið f landi Eiðhúsa,
skammt frá Vegamótum.
Það var fyrir tveimur og hálfu ári
að Sigurður Hreinsson, sem fæst
við hausaþurrkun á Miðhrauni í
Miklaholtshreppi, stuðlaði að og
hvatti til leitar að heitu vatni í ná-
grenni býlisins.
Eftir ákveðið ferli var hafist
handa við þessa framkvæmd á veg-
um hreppsins undir leiðsögn Krist-
jáns Sæmundssonar, jarðfræðings
hjá Orkustofnun, og með stuðningi
orkusjóðs.
Nokkur árangur er nú fenginn
því á laugardaginn var komu bor-
menn niður á sprungu á rúmlega
200 metra dýpi, sem gefur um 4
sekúndulítra af sjóðandi sjálfrenn-
andi vatni.
Að sögn Kristjáns Sæmundssonar
er verkefni þessu ekki lokið. Ætlun-
in er að finna legu sprungunnar en
vatnið í henni er 110-120 gráðu
heitt og bora sfðan dýpri holu ofan í
hana í von um að finna meira vatn,
sem nýst gæti íbúum hreppsins til
húshitunar og annarrar orkuþarfa.
Nýr golfskáli í
notkun í Miðdal
VÍGÐUR var nýr golfskáli Golf-
klúbbsins Dalbúa laugardaginn 23.
júní sl. Golfvöllurinn er í Miðdal,
rétt innan við Laugarvatn.
Skálinn er rúmlega 60 fm að
stærð og hinn veglegasti að allri
gerð. Hann stendur á fögrum stað
rétt ofan við hina aldagömlu kirkju
í Miðdal. Fagurt útsýni er yfir
golfvöllinn og mikinn hluta Laug-
ardals. Karl Eiríksson bygginga-
meistari reisti húsið en Laugardals-
hreppur veitti styrk til þess verks.
Að öðru leyti unnu félagsmenn að
byggingunni í sjálfboðavinnu.
I skálanum er daglega boðið upp
á veitingar og golfvörur og unnið er
af krafti við framkvæmdir á vellin-
um. Þessi nýi skáli gerbreytir allri
aðstöðu Dalbúa.
Fjölmenni var við opnunina og
blessaði sóknarpresturinn, séra
Rúnar Egilsson, húsið og starfsem-
ina þar. Formaður klúbbsins,
Gunnar G. Schram, prófessor, lýsti
framkvæmdum og þakkaði öllum
sem hönd höfðu lagt á plóginn við
gerð þessa glæsilega húss.
Stjóra Dalbúa við vígsluna. Siguróli Jóhannsson, Gunnar G. Schram for-
maður, Jón Þ. Hilmarsson, Olafur Pálsson og Þórir B. Guðmundsson.
Morgunblaðið/J6n Sig
Skemmtiferðabáturinn Kópur HU 2 frá Blönduósi mun sigla
um Húnaflóann f sumar.
Sæheimar á Blönduósi
Töfrar Húnaflóa í
boði fyrir almenning
Blönduósi - Fyrirtækið Sæheimar
ehf. á Blönduósi býður upp á dagleg-
ar skemmtisiglingar í Húnafirði í
sumar á farþegabátnum Kópi HU 2.
Báturinn, sem er keyptur frá Isa-
firði, getur tekið fimmtán manns og
er boðið upp á hvala-, sela- og fugla-
skoðunarferðir með leiðsögn og er
lagt frá bryggju frá Blönduósi kl. 10
og tekur hver ferð um eina og hálfa
til tvær klukkustundir.
í áætlunarferðum er siglt út að
Eyjarey sem er milli Blönduóss og
Skagastrandar eða Fásla-úð við
Vatnsnes ef veður leyfir. Á þessum
slóðum er mikið dýralíf. Landsþekkt
selalátur eru á þessu svæði og hvalir
ekki óalgengir. Auk þess sem að
framan greinir er boðið upp á
margskonar ferðir utan hefðbund-
inna áætlunarferða að sögn Unnar
G. Kristjánsdóttur, markaðsfulltrúa
fyrirtækisins. Nefndi hún m.a. sjó-
stangaveiði, siglingu til Skaga-
strandar með kvöldverði í Kántríbæ,
kvöldsiglingu inn í sólarlagið, ferðir
til Hólmavíkur og margt fleira.
Möguleikar á notkun bátsins ein-
skorðast ekki bara við það sem áður
er upptalið því töfrar Húnaflóans
eru óendanlegir þannig að verkefnin
ættu að vera næg. Unnur gat þess
að gott samstarf væri við kaffihúsið
Við árbakann á Blönduósi sem m.a.
sér um bókanir í ferðir og útbýr veit-
ingar.
Hitaveita Rangæinga í stórframkvæmdum
Ný hitaveitulögn kom sér
vel eftir jarðskjálftana
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
Starfsmenn Hitaveitu Rangæinga hífa rör og koma fyrir á sínum stað en
nýja lögnin gegndi stóru hlutverki í nýafstöðnum jarðskjálftum. Myndin
er tekin fyrir skjálftana.
Nýja lögnin er úr
foreinangruðum
stálpípum
Hellu - í nýafstöðnum jarðskjálft-
um fór heitt vatn af stóru svæði sem
Hitaveita Rangæinga þjónar. Það
tók ekki nema tvo daga að koma
heitu vatni á aftur til Hellu og ná-
grennis en örlítið lengri tíma til
Hvolsvallar. Skipti sköpum að
starfsmenn veitunnar hafa í vor
unnið að nýrri lögn í stað upphaf-
legrar asbestlagnar frá 1982.
Að sögn hitaveitustjórans, Ing-
vars Baldurssonar, er nýja lögnin
frá Laugalandi að Hellu um 10 kíló-
metra löng en gamla lögnin er enn í
notkun milli Hellu og Hvolsvallar,
um 16 km. Starfsmenn hafa þurft að
gera við hana á mörgum stöðum auk
lagna innan þorpanna sem skemmd-
ust nokkuð við skjálftana, aðallega
þó þann stærri á þjóðhátíðardaginn.
Gamla lögnin á svæði frá Rauða-
læk að Hellu skemmdist gífurlega
mikið og sagði Ingvar að þeir væru
sannarlega í mjög erfiðri stöðu núna
ef vinna við þessar framkvæmdir
hefði ekki verið komin eins langt og
raun ber vitni.
Framkvæmt fyrir
hundruð milljóna
„Vinna við þessa nýju lögn er
framhald af fyrra árs vinnu er ný
borhola var tekin í notkun í Kaldár-
holti, einmitt þar sem upptök fyrri
skjálftans voru. Leit hófst að heitu
vatni ’97-’98 er boraðar voru 36
rannsóknarholur sem endaði með
því að á þessum stað fannst nægi-
legt 70° heitt vatn.
Farið var út í 180 milljóna króna
framkvæmdir. Boruð var vinnslu-
hola og hún virkjuð, byggt dæluhús
og 10 km lögn lögð að dæluhúsi okk-
ar á Laugalandi. Nýja dælustöðin í
Kaldárholti var svo gangsett í jan-
úar sl. Við erum núna með tvær hol-
ur á Laugalandi þar sem vatnið er
um 100° heitt í annarri þeirra en
vatnsmagnið ekki nægilegt. í Kald-
árholti er nægilegt vatnsmagn og til
að geta nýtt það var nauðsynlegt að
skipta um lagnir. Asbestlagnir hafa
þann ókost að hitatapið verður allt
að 30%, þær liggja ofanjarðar í
moldargarði huldar grasi og það er
mikill kostnaður við að verja garð-
inn. Auk þess er lögnin, eins og
fram hefur komið, illa varin fyrir
jarðskjálftum.
Nýja lögnin er úr foreinangruð-
um stálpípum, grafin í jörð og á að
standast betur skjálfta eins og við
erum nýbúin að reyna. Áætlaður
kostnaður við nýju lögnina alla leið
á Hellu er um 100 milljónir króna,“
sagði Ingvar.
Hönnun nýju lagnarinnar var í
höndum WVS-verkfræðiþjónust-
unnar.
Ný sóknarfæri með nýrri lögn
Að sögn Ingvars hafa með auk-
inni afkastagetu skapast möguleik-
ar á að stækka þjónustusvæði hita-
veitunnar. I fyrra var lögð lögn að
Sumarliðabæ í Ásahreppi og að
kjúklingahúsum Reykjagarðs á Ás-
mundarstöðum í vor.
„Við erum í viðræðum við stóra
notendur í Gunnarsholti og Þykkva-
bæ og sumarhúsabyggðin við Gísl-
holtsvatn, á Ketilsstöðum og víðar
hefur einnig möguleika á að fá teng-
ingu eftir þessar aðgerðir,“ sagði
Ingvar.