Morgunblaðið - 29.06.2000, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000 41
„Frá augnabliki til augnabliks“.
Horft í gegnum hraunsjávarsjónauka.
vísa í þessi ólíku þemu með sömu að-
ferð.“
Verk í eigu margra safna
Verk Halldórs eru í eigu stærstu
listasafnanna hérlendis og íslenskra
stórfyrirtækja en auk þess eiga nú-
tímalistasafnið í Helsinki, Guggen-
heim-safnið í New York í Bandaríkj-
unum og Nútímalistasafnið í New
York verk eftir hann. „Yfirleitt reyni
ég að vinna verkin út frá þeim stað
sem þau eiga að tilheyra,“ segir
Halldór. „Verkið sem ég gerði fyrir
Islenska erfðagreiningu í fyrra var
til dæmis unnið út frá þeim stað,
bæði huglægt og í sambandi við
bygginguna." Mörg verk Halldórs
virðast ekki bjóða upp á miklar til-
færslur, vatn í opnum skálum, ör-
mjóir hraunþræðir, bambusstangir í
gömlum bát - verður hann ekki að
vera á staðnum til skapa verkið á
hverjum tíma? „Það er auðvitað mis-
jafnt. Þau verk sem eru hér verða
sennilega bara tekin niður og ekkert
geymd sem slík. Hins vegar get ég
endurskapað verkin eða fólk sjálft
tekið þátt í að skapa verkin með mér.
Ég gaf til dæmis verk í brúðargjöf
um daginn með leiðbeiningum um
hvemig á að útbúa það. Svo getur
fólkið ákveðið hvernig það vill hafa
verkið á hverjum tíma.“
Lífræn myndlist
framtíðarinnar
Halldór telur að list og hlutverk
hennar eigi eftir að breytast talsvert
í framtíðinni. „Ég held að myndlist
eigi eftir að verða lífrænni. Það tekur
auðvitað tíma fyrir fólk að aðlagast
og hætta að hugsa um myndlist bara
sem málverk eða höggmynd," segir
Halldór. „Ég sé það bara á því sem
er að gerast. Óhefðbundin söfn eins
og þetta held ég að eigi mikið upp á
pallborðið hjá listamönnum nútím-
ans og mér sýnist þróunin stefna
nokkuð í þá átt. Ef til vill verða ekki
til nein listasöfn eða gallerí í framtíð-
inni.“
Peysur Æk < I
Kvart- Æt * |
buxur ^ !
Bolir
Stretch-gallabux
tiskuverslun
v/Nesveg, Seltjarnarnesi. Sími 561 1680
Opið daglega kl. 10—18,
laugardag kl.10—14.
COMPAQ.
Tæknival
Tæknival býóur ávallt upp á það
nýjasta í tölvutækni frá Compaq,
sem er þekkt fyrir gæði og
áreiðanleika.
Compaq er leiðandi í framleiðslu
á tölvum í heiminum í dag.
Compaq tölvur hafa sannað
yfirburði sína og eru óstöðvandi,
á verði sem kemur þér á óvart.
Þú getur reitt þig á Compaq!
Skeifunni 17 • Reykjavík • Sími 550 4000 I
Furuvöllum 5 • Akureyri • Sími 461 5000 I