Morgunblaðið - 29.06.2000, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000 51.
UMRÆÐAN
Eg er ekki
guðfræðingur
MÉR varð það á í messunni að
vitna í Biblíuna (Lesbók 15/4, 29/4),
án þess að hafa próf upp á það, og
að draga upp eins milda mynd af
friðarhugtakinu þar og mér var
unnt. En megineinkenni hugtaks-
ins er að vegurinn til friðar er ein
skýrt afmörkuð braut og að friður-
inn er gefinn af Guði en ekki mönn-
um (24/4). Undir greinarnar var
ritað: „Höfundurinn er heimspek-
ingur.“
Ég er nefnilega ekki guðfræðing-
ur. En eftir að hafa íhugað það
vandlega, vegna tegundar gagnrýni
Skúla S. Olafssonar prests Islend-
inga í Svíþjóð (Lesbók 27/5, 3/6 og
23/6, verð ég að álykta að honum
finnist próf vera skilyrði þess að
vitna í hinn helga texta. Að
minnsta kosti felst aðalmálflutning-
ur hans í því að telja lesendum trú
um vanþekkingu mína á kristinni
guðfræði og einnig að íslenskir
heimspekingar séu léttvægir í sam-
anburði við kirkjunnar menn. Hann
skrifar um afrek guðfræðinga, en
erfitt er að greina áhuga hans á
friðarhugtakinu sjálfu því hann
gefur lítið af sér í þeim efnum, og
það er einmitt ástæðan fyrir því að
okkur tekst ekki að ræða saman
Heimspeki
Dapurlegust er
miðaldaleg andúð Skúla
á heimspekingum, segir
Gunnar Hersveinn, sem
vitna í ritninguna án
þess að vera með emb-
ættispróf.
um frið á jörðu. Hann langar mest,
að mínu mati, til að ræða um hug-
takið paradox eða þverstæðu, segir
það úr smiðju Sókratesar og að það
merki að það sé andstætt eðli
mannsins að vilja það sem illt er.
Honum til fróðleiks má nefna að
paradox er reyndar kennt við Zen-
on frá Eleu (f. 490 f.Kr.), nemanda
Parmendíesar. Eina slíka þver-
stæðu taldi Zenon að mætti leiða í
ljós með sögunni af Akkillesi og
skjaldbökunni. Zenon reyndi að
verja kenninguna um að breyting
sé röklega ómöguleg með því að
sýna fram á að þær kenningar sem
gera ráð fyrir að
breyting geti átt sér
stað feli í sér rökvill-
ur. (Heimspekisaga,
bls. 32, HÍB, 2000).
Petta er aukaatriði.
Dapurlegust er
miðaldaleg andúð
Skúla á heimspeking-
um sem vitna í heil-
aga ritningu án þess
að vera með embætt-
ispróf í þeim fræðum.
En kjarninn í gagn-
rýni hans, að mínu
mati, er einmitt
ímynduð, fyi’irfram-
gefin og óprófuð (van)
þekking mín sem
hann klifar á. Nú ætla ég að tiltaka
nokkur dæmi úr fyrsta andsvari
hans (27/5), þessari tilgátu til sönn-
unar, en vegna fullyrðinga hans í
garð heimspekinga, sem ég benti á
í Lesbókinni 10/6, álykta ég að
Skúli eigi við að stríða nokkra for-
dóma gagnvart heimspeki. En hér
eru dæmin um heimspekinginn
sem „gerir sig sekan um slíka
vankunnáttu". Ég vitna, að hans
mati, „samhengislaust í Biblíuna“,
geri „hvergi grein fyrir kristinni
guðfræði", „vinn undir merkjum
umburðarlyndis en þau bera frem-
ur merki hins gagnstæða“, vanvirði
„viðfangsefnið og eigin fræðihefð“,
„les Biblíuna eins og siðfræðirit en
ekki trúarrit", hef „ekki skilning á
grundvallaratriðum kristinnar
trúar“, og „enga slíka þekkingu um
slíkt er að finna í grein Gunnars
Hersveins".
Ég svaraði Skúla í
Lesbókinni 10/6 en
hann heldur áfram að
endurtaka trú sína á
vanþekkingu mína:
„Væri þekking Gunn-
ars á kristinni guð-
fræði betri hefði hann
getað lesið sér til um
þetta efni áður en
hann tók að fjalla um
það“ (23/6). Enn of-
metur Skúli þekkingu
sína á mér, leggur svo
áherslu á orð sín og
skrifar: „Leita ætti til
guðfræðinga þar sem
fjallað er um áhrifa-
sögu kristindómsins.“
Skúli segir hinsvegar að kjaminn í
gagnrýni sinni á túlkun minni á
friðarhugtakinu í Biblíunni standi
enn óhaggaður. Kjarninn er, að
hans mati: 1) Ekki er nægilega
gætt að því samhengi sem tilvitn-
aðar ritningargreinar standa í. 2)
Biblían er lesin sem siðfræðirit en
ekki trúarrit. Bæði þessi atriði eiga
enn að benda á vanþekkingu mína.
En hér er svarið því fullyrðingar
Skúla eru veikar: 1) Ég valdi sér-
staklega eina tilvitnun (ég var ekki
að skrifa bók) til að sýna að bæði
samhengið og innihaldið væri virt í
greininni: „Ætlið þér, að ég sé
kominn að færa frið á jörðu? Nei,
segi ég yður, heldur sundurþykki."
Ég reyndi m.a. að sýna fram á að
Jesús væri ekki með þessum orðum
að blása í herlúður, því hann leggur
ávallt áherslu á orðin: „Miskunn-
semi vil ég, ekki fómir.“ (15/4) 2)
Gunnar
Hersveinn
Skúli vill að ég sanni að ég lesi
Biblíuna sem siðfræðirit en ekki (
trúarrit. Ég get aðeins sagt að ég
geri það ekki. Ég skrifaði það skýrt ’
að friður mannsins fengist aðeins v i
samkvæmt heilagri ritningu frá
Guði. Guð gefur friðinn („Frið læt |
ég yður eftir, minn frið gef ég yð- i
ur.“ Jóh. 14,27). Friðurinn er skil-
greindur hér út frá sambandi Guðs ,
og manna. Þar af leiðandi les ég <
Biblíuna sem trúarrit, og gagnrýni
Skúla er fallin. (
Ég held að mergur málsins sé að i
undirskrift greinanna „höfundurinn
er heimspekingur" (og þ.a.l. leik- ,
maður í guðfræði) hafi villt Skúla <
sýn og slegið hann út af laginu, og
að í viðbrögðum hans hafi spennan ,
hjá honum milli guðfræði og heim- : \
speki opinberast. Dr. Sigurjón Árni '
Eyjólfsson gerir einmitt góða grein ,
fyrir þessari spennu í bók sinni <
„Guðfræði Marteins Lúthers"
(HÍB, 2000), t.d. í 14. kafla, „Trú og ,
skynsemi“, og í niðurstöðum sínum, l
þar sem hann hrej'fir við alvarleg- '
um málum. Ég hef sterkan gran ,
um að Skúli S. Ólafsson hafi hugs-
unarlaust ályktað að fyrst höfund-
ur greinanna um friðarhugtakið sé ,
heimspekingur geti skynsemi mín
ekki skilið kærleika Guðs og pro
me frelsun hans í Kristi. Ein af
bráðabirgðaniðurstöðum mínum
29/4 var að hlýða ætti Sókratesi um
„að verða sjálfur sem beztur og
vitrastur" áður en maður les öðram -
messuna. Um það getur Skúli lesið
í Síðustu dögum Sókratesar (HÍB).
Höfundur er heimspekingur.
y
0
Meira um „takt og trega“
ÉG ER búinn að
melta þetta allt í tvær
vikur og nú hef ég
ákveðið að bregðast við
gagnrýni þinni vegna
tónleika sem haldnir
voru 16. júní í Bláa
Lóninu.
Ég hef lesið grein
þína að minnsta kosti
hundrað sinnum tO að
vera viss um að ég hafi
ekki misst af neinu og
misskilji ekkert. Því
miður sé ég ekki eitt
orð um hvemig tónleik-
amir fóra fram og hvað
gerðist á meðan á þeim
stóð.
Ég byrja á smáatriði sem sló mig
alveg út af laginu. Þú hefur það eftir
tónskáldinu, sem leyfði sér að láta
þau orð falla á staðnum, að Tríó fyrir
klarinett, fiðlu og píanó hefði verið
undirbúið á 2 dögum?!!! Það er fyrst
og fremst ósatt og kemur að auki
engum við hve löngum tíma maður
eyðir í undirbúning. Það er útkoman
sem gildir og skiptir máli. Ég get að-
eins talað íyrir mig, en ég lagði hart
að mér um leið og nótumar komu til
landsins. Ég er viss um að það gildir
einnig um aðra aðila
sem hlut eiga að máli.
Til að nefna annað
dæmi þá datt engum í
hug að hugsa, eða
skrifa, að ballettinn
Svanavatnið hefði verið
undirbúinn á örfáum
dögum hér. Dóttir mín,
sem var þátttakandi á
frumsýningu, lagði
margra mánaða vinnu í
undirbúning og sama
gerðu allir hinir svo
hægt væri að setja sýn-
inguna upp í því þrönga
rými sem Borgarleik-
húsið býður upp á. Það
tókst vegna þess að all-
ir vora svo vel undirbúnir.
En förum nú aðeins yfir hvemig
tónleikamir fóra fram þann 16. júní.
Tónleikamir hófust á söngatriði.
Viðkvæm bandarísk söngkona, Lynn
Helding, kom fram og söng í tæplega
40 mínútur mörg sorgleg lög með fal-
legum undirleik Jennifer Blyth. Það
vora svo mikil læti á borðinu fyrir
aftan þig á meðan að tæplega heyrð-
ist í söngkonunni á sorglegustu og
veikustu stundunum. Borð með bæj-
arstjóranum í Grindavík og liði hans
Tónlistargagnrýni
Málefnið drukknar í
sýndarmennsku pistla-
höfunda, segir Szymon
Kuran í viðbrögðum við
tónlistargagnrýni frá
20. júní sl.
skilaði á sama tíma ákveðinni „sur-
realisma fílingu", því þaðan heyrðist
„HA, HA“ og „HA, HA, HA!“ í mik-
illi andstöðu við textann sem sunginn
var. Söngkonan söng áfram af mikl-
mn trega, lætin í salnum jukust..., og
þá gerðist kraftaverk! Það bilaði
vatnsdæla í miðjum salnum (ég biðst
velvirðingar, - listaverk með renn-
andi vatni, en tæknilega ekkert ann-
að en dæla) og vatn byrjaði að leka
um allt gólfið! Flestm gestir stein-
hættu að kjafta og einbeittu sér að
bleytunni. Það var náttúralega for-
vitnilegt að vita hvort pollurinn næði
alla leið að söngkonunni! Ki’akkar
sem vora á staðnum skemmtu sér
konunglega á meðan. Þrátt fyrir allt
þetta hélt tregafullur söngurinn
áfram. Starfsmenn Bláa Lónsins
hlupu á staðinn og reyndu að stoppa
bilunina í hvelli og með miklum lát-
um. Þetta fannst mér svo óþolandi að
ég varð að skipta mér af málinu. Ég
bað þá að stoppa þennan hamagang á
stundinni og gera við bilunina í
hléinu. Því var vel tekið, sem betur
fer, og Lynn Heldig gat nú klárað sitt
í friði.
Manstu eftir þessu?
Og svo kom hlé og listaverkið =
dælan komst í lag. Og þá var komið
að flutningi á Tríó (klarinett, fiðla og
píanó) eftir G. Shapiro. Ég hef á til-
finningunni að við skiluðum eldheit-
um flutningi og maður fann það á
mótttökunum. Shapiro sjálfur öskr-
aði að þetta væri besti „performans"
á þessu verki sem hann hefði orðið
vitni að fram að þessu.
Manstu eftir því!?
Varstu þarna!?
Að lokum kom fram karlakór og
söng hressilega af mikilli prýði og án
nokkurra traflana. Nokkrum Könum
sem mættu var þetta til mikillar
skemmtunar (?). Einn af þeim sat all-
Szymon
Kuran
an tímann með hatt sinn fyrir and-
litinu vegna þess að honum fannst
karlasöngur svo fyndið fyrirbæri að
hann vildi ekki trafla aðra áheyrend-
ur með flissi sínu. Svo ótrúlega kurt-
eist fólk þessir Kanar.
Manstu eftir þessu Ríkarður?
Ég held að þetta sé það sem í gróf-
um dráttum fór þarna fram þann 16.
júní og lesendur eigi skilið að fá að
vita það. Af hverju getur þú ekki sagt
frá eins og maður hvernig allt fór og
hvað átti sér stað? Ég dái tón-
listarkunnáttu þína, en eins og hjá
mörgum öðrum sem skrifa um list, og
tónlist, þá drakknar málefnið í sýnd-
armennsku pistlahöfunda og hræðslu
við að sýna sína eigin skoðun, að ég
nefni nú ekki mannleg viðbrögð og
tilfinningar - það er BANNAÐ!
Höfundur er fiðluleikari að mennt
og tónlistarmaður af ástrfðu.