Morgunblaðið - 29.06.2000, Page 54
J>4 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Biblían og
menningin
ÞAÐ hefur vakið athygli mína að
hafíð er kynningarátak á nýrri útgáfu
Bibh'unnar í kiijuformi undir heitinu:
„Bibhan er um þig.“ Mörgum finnst
ef til vill að Biblían sé hluti af fomleifð
heimsins og eigi því ekkert erindi við
nútímann. Vissulega er það að hluta
rétt. í Bibhunni er að finna hluti sem
flest okkar tökum ekki gagnrýnis-
laust upp en við getum samt ekki
hafnað henni á þeirri forsendu. Ég tel
að það sé jafnvel rangt að hafna mik-
ilvægi hennar og gildi á þeirri for-
sendu að maður sé trúlaus eða aðhyll-
ist önnur trúarbrögð. Ekkert hefur
haft eins mikil áhrif á menningu Vest-
urlanda og Bibhan. Því er erfitt að
skilja heimsmynd, siðagrundvöll og
listiðn Vesturlanda ef ekki er til stað-
ar grundvallarþekking á Bibhunni.
Góð Bibhuþekking er því lykill að
menningu stórs hluta mannkynsins.
Sjálfur hef ég rannsakað Biblíuna í
nútímamenningu en það hefur slegið
mig hve fólk er blint á tilvísanir í
hana. Kvikmyndaáhorfendur eru t.d.
nær ólæsir á margar nýjar kvik-
myndir sem byggjast á versum eða
sögum Bibhunnar. Hér
er ég ekki að tala um
hinar svokölluðu ,3ibl-
íumyndir" heldur
venjulegar spennu-
myndir, grínmyndir
o.s.frv. I þessum flokki
eru vinsælustu kvik-
myndir síðari ára, eins
og „Pleasantvihe",
„The Sixth Sense“ og
Clint Eastwood-mynd-
in „True Crime“.
En Bibhan hefur
ekki aðeins haft áhrif á
hstiðn okkar. Áhrif
hennar á hugsunar-
gang okkkar og sið-
gæðisvitund eru meiri en okkur órar
fyrir. Jafnvel þótt við séum ekki ahn
upp á kristnu heimili eða höfum ekki
lesið bókstaf í Bibhunni komumst við
ekki undan áhrifum
hennar. Biblían er ein-
faldlega það samofin
menningu, hugsunar-
gangi og siðgæðisvitund
þjóðarinnar að við fáum
hana með móðurmjólk-
inni. í raun má ganga
lengra og segja að ef
einhver vill losna undan
áhrifum Bibhunnar
verður sá hinn sami að
kynna sér hana því
helmingurinn af orðatil-
tækjunum sem hann
notar og siðgæðisaf-
staðan sem hann aðhyll-
ist eru komin úr Bibl-
íunni. Við vísum stöðugt í Bibhuna án
þess að gera okkur grein fyrir því.
Því fagna ég átaki Hins íslenska
biblíufélags og hvet alla, jafnt trú-
Biblíuútgáfa
>>
Ahríf Biblíunnar á hugs-
unargang okkar og sið-
gæðisvitund ei*u meiri,
segir Þorkell Ágúst
Ottarsson, en okkur
órar fyrir.
lausa sem trúaða að hressa upp á
Biblíuþekkingu sína í sumar. Sagt er
að blindur sé bóklaus maður. Sá sem
ekki þekkir Bibhuna er kannski ekki
blindur en hann er að minnsta kosti
verulega sjónskertur.
Höfundur er guðfræðinemi.
Þorkell Ágúst
Óttarsson
Taktuþátt i
íleiknumá ^
www.bt.is
[Igikur.
ætlum ekki að ^
reyna sannfæra þig um
ao þetta sé góður sími.
Spurðu einhvem Nokia
eiganda!
BT Skeifunni - S: 550-4444 • BT Hafnarfirði - S: 550-4020
BT Kringlunni - S: 550-4499 • BT Reykjanesbæ - S: 421-4040 • BT Akureyri - S: 461-5500
TRYCCÐU
P>ÉR IXIOKIA
KROIMU
m M M
Pað er enginn
tiíviíjun að fíeiri
hafa vaiið Nokia
5110 en nokkurn
annan GSM síma!
Sími sem
kíikkar ekkí! I
• Þyngd 170gr.
• 270 tíma
rafhlaða
• 5 tfmar f tal
• Sendir og
móttekur
SMS
• Klukka og
vekjari
• Möguleiki
á tenginu
við fartölvu
• Leikir o.fl.
Góð
ending
rafhlöðu,
frábært
úrval auka-
hluta og
hreint ótrú-
lega iág
bilanatfðni
eru kostir
sem ekki er
hægt að Ifta
framhjá...
Veldu þér framhlið með
þinu íiði til að hafa til
skiptanna • þér að
kostnaðarlausu!
TAL12 er 12 mánaða áskrift hjá T,
krónur 400 á mánuði ásamt föstu
þjónustuleiða sem eru Eintal, Frftal og Tfmatál.
\Lþar sem sfminn er niðurqreiddur og eru greiddar
áskriftargjaldi. Hægt er ao velja á milli þriggja
I og Tfmatal. TAL12 er bundið við kredit kort, Vlsa, Euro
la Veltukort. Sfmkort og sfmanúmer kosta kr. 1999 og er greitt fyrir það sérstaklega.
Góðsemin
í garð Fram-
sóknarfiokksins
UNDANFARNA daga og vikur
hafa hvað eftir annað birst ummæh
ýmissa valinkunnra sjálfstæðis-
manna um borgarmál,
þar sem fram hefur
komið ótrúleg um-
byggja fyrir Fram-
sóknarflokknum. Rauði
þráðurinn í þessum
skrifum er sá, að bráð-
nauðsynlegt sé fyrir
Framsóknarflokkinn
að losa sig út úr
Reykjavíkurhstanum
svo að Framsóknar-
flokkurinn verði sýni-
legri í borginm, eins og
það er orðað.
Þetta kemur fram
bæði í Reykjavíkur-
bréfi Morgunblaðsins
sl. sunnudag og grein
Vilhjálms Þ. Vilhjálms-
sonar, borgarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins, sl. þriðjudag í sama blaði.
Ósýnileiki Framsóknarflokksins er
þó ekki rneiri en svo, að Vilhjálmur
og hinn póhtíski skriffinni Reykja-
víkurbréfsins telja áhrif framsókn-
armanna í borgarstjórn vera svo
mikil, að þeir ráði jafnmiklu eða
meiru en sjálfur borgarstjórinn í
Reykjavík.
Með minnihluta kjósenda
á bak við sig
Mikillar grunnhyggni gætir í
þessum skrifum. Ekkert - alls ekk-
ert - truflar starf Sjálfstæðisflokks-
ins meira en áhrifaleysið í höfuð-
borginni. Reykjavíkurlistinn er að
því leyti til eins og fleinn í holdi
íhaldsins. Og sjálfstæðismenn gera
sér grein fyrir því, að eini möguleik-
inn til að ná völdunum í Reykjavík
jJjjJjjjsíujj
UTANBORÐS-
MÓTORAR
aftur er að sundra andstæðingunum.
Til þess eru refimir skornir nú með
blíðmælgjum til framsóknarmanna.
Aratugum saman
héldu sjálfstæðismenn
völdum í Reykjavík,
þrátt fyrir þá stað-
reynd að hafa minni-
hluta kjósenda á bak
við sig. Það er ekki fyrr
en Reykjavíkuriistinn
kemur til skjalanna, að
atkvæði andstæðinga
þeirra nýtast að fullu
og óréttlætið er afnum-
ið.
Framsóknarmenn í
Reykjavík, eins og aðr-
ir þorgarbúar, eru
meðvitaðir um störf
borgarfulltrúa Fram-
sóknarflokksins í borg-
arstjórn. Þeir þekkja
störf Sigrúnar Magnúsdóttur í
skólamálum, sem lyft hefur Grettis-
taki í þeim málaflokki eftir slæman
viðskilnað sjálfstæðismanna. Reyk-
Sveitarstjórnarmál
Ekkert bendir til ann-
ars á þessari stundu,
segír Alfreð Þorsteins-
son, en að Reykjavíkur-
listinn muni bjóða fram í
þriðja sinn árið 2002.
víkingar eru einnig meðvitaðir um
uppbygginguna í orkumálum undir
stjórn framsóknarmanna. Áhrif
Framsóknarflokksins hafa aldrei
verið jafnmikil í borgarmálum og
eimmitt nú.
Framsóknarfólk ánægt með
störf meirihlutans
Framsóknarflokkurinn vinnur
með Sjálfstæðisflokknum við stjóm
landsmálanna. Árangur ríkisstjóm-
arinnar byggist á trausti milli sam-
starfsflokkanna með sama hætti og
árangur Reykjavíkurlistans í borg-
armálum byggist á trausti milli
þeirra flokka, sem þar vinna saman.
Auðvitað em skiptar skoðanir
meðal framsóknarmanna á ágæti
þess að starfa með Sjálfstæðis-
flokknum í ríkisstjórn eins og að
starfa með vinstri flokkunum í borg-
arstjóm. Ég get þó fullyrt af samtöl-
um mínum við framsóknarfólk í
Reykjavík, að almenn ánægja er með
störf meirihlutans í Reykjavík undir
stjóm Ingibjargar Sólrúnar Gísla-
dóttur. Þess vegna bendir ekkert til
annars á þessari stundu en að
Reykjavíkurlistinn muni bjóða fram
í þriðja sinn árið 2002.
Höfundur er borgarfulltrúi
( Reykjnvík.
Alfreð
Þorsteinsson