Morgunblaðið - 29.06.2000, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000 65
Morgunblaðið/Arnór
Frá leik Norðraanna og Finna í kvennaflokki á Nordurlandaraótinu í brids.
Islendingar í 3. sæti
eftir þ rj ár umferðir
BRIDS
Hðtel Órk,
Hveragerðí
NORÐURLANDAMÓT
Norðurlandamótið í brids er
haldið iHveragerði dagana
26. júnítil 1. júli. Netfang
mótsins er www.bridge.is
ISLENDINGAR hafa farið ró-
lega af stað á Norðurlandamótinu í
brids. Eftir nauman sigur á Færey-
ingum í opna flokknum í fyrstu um-
ferð fylgdi annar naumur sigur, 16-
14, á Norðmönnum á þriðjudags-
kvöld, og í þriðju umferð í gær-
morgun gerði íslenska liðið jafntefli,
15-15, við Finna. Eftir þrjár umferð-
ir var íslenska liðið í 3. sæti með 48
stig, Svíar voru efstir með 66,5 stig
en Normenn voru í öðru sæti með
49,5 stig.
í kvennaflokki tapaði ísland fyrir
Norðmönnum, 10-20, á þriðjudags-
kvöld og í gærmorgun hrundu vam-
irnar gegn Finnum og úrslitin voru
4-25 tap. Finnar voru efstir í
kvennaflokki eftir þrjár umferðir
með 69 stig. Danir höfðu 56 stig og
Svíar 44. Islendingar voru með 33
stig í 5. sæti.
Spiluð er tvöföld umferð í Hvera-
gerði og lauk þeirri fyrri í gær en þá
átti ísland að spila við Svía og Dani í
báðum flokkum. I dag er frídagur en
síðari umferðin hefst á morgun. Mót-
inu lýkur síðan á laugardagskvöld.
Doblað við bæði borð
Það er ekki ólíklegt að það verði
Islendingar, Svíar og Norðmenn
sem koma til með að beijast um sig-
urinn í opna flokknum. Norðmenn
eru núverandi Norðurlandameistar-
ar og þeir unnu Dani, 21-9. Þeir riðu
þó ekki feitum hesti frá þessu spili
þar sem dönsku spilaramir náðu að
dobla þá norsku við bæði borð.
Vestur gefur, NS á hættu
Norður
* 1043
♦ ÁD9
+ KD1084
Vestur Austur
+ 95 + ÁKD762
v 32 v DG76
♦ 10875432 ♦ -
+ 75 * ÁG2
Suður
+ G8
v ÁK10985
♦ KG
+ 963
Við annað borðið sátu Danimir
Jens Ove Henneberg og Flemming
Pedersen NS og Norðmennimir
Tom Höiland og Geir Brekka AV.
Þar byijaði vestur á að passa, norður
opnaði á eðlilegu laufi og austur
stökk í 4 spaða. Það doblaði Petersen
í suður og allir sögðu pass.
Suður spilaði út hjartaás og skipti
í tromp. Höyland tók heima með
drottningu og spilaði hjartagosa.
Besta vömin hjá suðri hefði verið að
gefa slaginn; þá hefði norður getað
trompað og spilað trompi, en suður
drap með kóng og spilaði spaða og
eftir það slapp sagnhafi tvo niður,
300 til Dana.
Við hitt borðið sátu Danimir Nils
Mönsted og Johan Hammelev NS og
Norðmennimir Boye Brogeland og
Erik Sælensminde AV. Þar tóku
sagnir lengri tíma:
Vestur Norður Austur Suður
pass 1 lauf dbl 1 hjarta
pass 21auf 2spaðar 4hjörtu
pass pass dobl//
Sælensminde í suður gaf ekkert
eftir en uppskar ekki vel í þetta sinn.
Vömin byijaði á að spila þrisvar
spaða og suður trompaði þriðja spað-
ann með áttu. Eins og sést á opnu
borði ætti vömin auðveldlega að
geta tekið spilið þijá, ef ekki fjóra
niður, en Sælensminde fékk afslátt
og slapp tvo niður, 500 til Dana og 13
Guðm. Sv. Hermannsson
FRETTIR
Félagsstofnun veitir verkefnastyrk
Kvæðahandrit
og greindarpróf
FÉLAGSSTOFNUN stúdenta út-
hlutaði í gær tveimur verkeíhastyrkj-
um til nemenda sem brautskráðust
frá Háskóla íslands 24. júní síðastlið-
inn. Annan styrkinn hlaut Drífa Krist-
ín Þrastardóttir fyrir B A-verkefni sitt
í sagnfræði, sem nefnist „Skreytilist
og sköpunargleði í kvæðahandritum
frá 17. og 18. öld“ en hinn styrkurinn
féll í skaut Eyrúnar Kristínu Gunn-
arsdóttur og Hinriks Sigurðar Jó-
hannessonar fyrir BA-verkefni þeirra
í sálfræði, sem nefnist „Ravens
Progressive Matrices: Viðmið fyrir ís-
lensk böm á grunnskólaaldri.“
Drífa vann verkefhi sitt undh- leið-
sögn Más Jónssonar lektors en hún
rýndi í myndlistararfinn sem býr í
kvæðahandritum 17. og 18. aldar. í
ritgerðinni vekur Drífa athygli á
þeirri myndlist sem geymd er í hand-
ritunum og leitast við að lýsa helstu
einkennum hennar. Einnig sýnir hún
fram á hvemig í sumum tilfellum má
nota handritaskreytingar til að tengja
á milli handrita sem hafa ekki verið
sett í samhengi áður.
Drífa kannaði þá þætti sem höfðu
áhrif á handritaskreytingar á tímabil-
inu, meðal annars prentaðar bækur,
og kemst að þeirri niðurstöðu að þótt
merkja megi umtalsverð áhrif prent-
aðra fyrirmynda beri myndskreyting-
amar fyrst og fremst vitni um lifandi
alþýðulist og ftjálsa sköpimargleði
einstaklingsins á 17. og 18. öld.
Eyrún og Hinrik unnu verkelhi sitt
undir leiðsögn Jörgens Pinds, prófess-
ors í sálarfræði. Viðfangsefni þeirra
var að afla viðmiða fyrir Ravens-prófið
meðal íslenskra bama á aldrinum 6 til
16 ára, en Ravens-prófið er greindar-
próf sem er mikið notað í fjölþjóðleg-
um rannsóknum. Viðmiðin sem Eyrún
og Hinrik hafa aflað munu nýtast í
klínískum prófunum á íslenskum böm-
um í framtíðinni en einnig við aðrar
rannsóknir. Hirnik segir í samtali við
Morgunblaðið að fjölþjóðleg rannsókn
sé að fara af stað á Islandi þar sem
Ravens-prófið verður notað og þá komi
viðmiðin að góðu gagni.
Niðurstöður gefa aðra mynd en
samræmd próf í grunnskóla
Hinrik segir að í prófinu, sem lagt
var fyrir 700 skólaböm um allt land,
hafi enginn munur komið fram á
kynjunum en einnig sé athyglisvert
að munur milli landshluta sé enginn
sem sé ekki í samræmi við það sem
samræmd próf í grannskóla sýni en
þar nái skólabörn á landsbyggðinni
að meðaltali slakari árangri en börn
á höfuðborgarsvæðinu.
Félagsstofnun stúdenta veitir 4
verkefnastyrid á ári, við útskrift í júní
veitir hún 2 styrki, 1 í október og 1 í
febrúar. Styrkurinn nemur 100.000
krónum og markmiðið með honum er
að hvetja stúdenta til markvissari
undirbúnings og metnaðarfyllri loka-
verkefna en einnig að koma fram-
bærilegum verkefnum á framfæri.
Morgunblaðið/Þorkell
Drífa Kristín Þrastardóttir og Hinrik Sigurður Jóhannesson taka við
styrkjunum úr hendi Guðjóns Ólafs Jónssonar, stjórnarforinanns FS.
Eyrún Kristín Gunnarsdóttir hlaut einnig styrk en var ekki viðstödd
afhendinguna.
HÚSNÆOI í BOÐI
Goðheimar — sérhæð
í einkasölu mjög góð 121 fm íbúð á 2. hæð,
auk 30 fm bílskúrs í fjórbýli. Tvennar svalir og
gott útsýni yfir Laugardalinn. Mjög vel byggt
steinhús. Verð 16,2 millj.
Laugavegur — 3ja herb.
Rúmgóð og notaleg, tæplega 80 fm íb. á
3. hæð í góðu steinhúsi. Góð geymsla. Verð
8,3 millj.
Eignahöllin fasteignasala,
Hverfisgötu 76, Reykjavík,
sími 552 4111.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
KROSSINN
í kvöld kl. 20.30 verður
kveðjusamkoma fyrir Curtis
Silcox. Við erum búin að marg-
blessast á undanförnum dögum
é stórkostlegum samkomum
með einlægum guðsmanni og
nú kveðjum við hann í kvöld.
Allir velkomnir.
Kristnitökuhátíð: Við minn-
um á Gospeltónleikana á hátíð-
arsviði kl. 19.30 á laugardegin-
um og einnig á sameiginlega
samkomu frjálsra safnaða kl. 17
á sunnudeginum á þingpalli
neðan við Lögberg.
Samkomur í Hlíðasmáranum
um helgina falla niður vegna
Kristnitökuhátíðar.
Guð er góðurl
fomhjálp
Almenn samkoma í Þribúðum,
Hverfisgötu 42, í kvöld kl. 20.00.
Fjölbreyttur söngur.
Ræðumaður Kristinn Birgis-
son. Allir velkomnir.
www.samhjalp.is.
í kvöld kl. 20.30:
Fagnaðarsamkoma. 30 manna
lúðrasveit frá Hjálpræðishernum
í Drammen í Noregi leikur Hjálp-
ræðisherstónlist, marsa og ein-
leikaraverk. Magne Heimark
syngur. Kafteinn Chris Pender
talar. Deildarstjórinn, major Knut
Gamst, stjórnar.
Allir hjartanlsga velkomnir.
Laugardagur 1. júlí
Kl. 8.30 Fjallasyrpan, 4. ferð.
Hekla (ca 1500 m y. s.). Gengið
frá Skjólkvíum á Hátind Heklu.
Um þessar mundir eru 250 ár frá
því fyrst var gengið á Heklu.
Verð. 3.000 kr. f. félaga og 3.300
kr. f. aðra. Brottför frá BSI.
Kl. 9.00 Hvert liggur mín
leið?
Fræðslu- og skemmtiferð
Jeppadeildar.
Brottför frá Esso, Ártúnshöfða.
Lónsöræfi 2.— 5. júlí
(4 dagar).
Örfá sæti laus. Gist i Múlaskála.
Fararstjóri: Gunnlaugur Ólafsson
frá Stafafelli. Miðar á skrifst.
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Biskupaleið,
þriðji og síðasti áfangi
I kvöld kl. 19.00 frá BS( og Mörk-
inni 6. Verð kr. 1.900.
Guðrún Ása Grfmsdóttir, höf-
undur nýútkominnar bókar um
leiðir Skálholtsbiskupa um
Lyngdalsheiði, verður með í för.
Bókin verður seld á félagsverði í
ferðinni.
Vinnuferð í Landmanna-
laugar 30. júnf—2. júlí.
Vinnufúsar hendur hjartan-
lega velkomnar. Skráið ykkur
á skrifstofu félagsins.
Nokkur sæti laus í gönguferðir
um hinn forna Kjalveg.
www.fi.is og Textavarp RUV,
bls. 619.