Morgunblaðið - 29.06.2000, Page 66

Morgunblaðið - 29.06.2000, Page 66
66 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Bjóða við- skiptavinum ísund SJÓVÁ-ALMENNAR í samstarfi við fimm bæjarfélög bjóða nú Stofn- félögum félagsins í sund í sumar. Petta er í fyrsta sinn sem slíkt er gert en alls eru Stofnfélagar, sem eru viðskiptavinir félagsins með allar tryggingamar sínar sameinaðar, rúmlega 25.000 talsins. Þau bæjar- félög sem að samstarfinu standa ei-u Borgames, Húsavík, Egilsstaðir, Hella og ísafjarðarbær, þ.e. ísa- fjörður, Flateyri, Þingeyri og Suður- eyri. Með framtakinu vilja Sjóvá-Al- mennar stuðla að auknum ferða- lögum innanlands og hvetja um leið til hollrar hreyfmgar. Sundmiða á ofantalda staði hafa viðskiptavinir fengið senda með fréttablaði félagsins, Bót í máli, en hver miði gildir fyrir allt að fjóra í eitt skipti. Með því að skipuleggja ferðalagið hringinn í kringum landið geta því viðskiptavinirnir farið frítt í sund og um leið heimsótt bæjarfélög- in sem öll hafa upp á að bjóða fram- úrskarandi afþreyingar- og gistiað- stöðu,segir í fréttatilkynningu. Nýr bandarísk- ur ísbrjótur til sýnis NÝR ísbrjótur bandarísku strand- gæslunnar, USCGC Healy, hefur viðdvöl í Helguvík dagana 29. júní til 2. júlí. Skipið er 16.000 lestir að stærð og er í reynsluför. Það kemur hingað til lands frá Labrador og Baffinflóa þar sem það hefur verið við reynslusiglingar í ís síðan í apríl- mánuði og heldur áleiðis til Irlands. Isbrjóturinn Healy er stærsta skip bandarísku strandgæslunnar, 128 m að lengd, 25 m á breidd og rist- ir 10 metra. 80 manna áhöfn er á skipinu auk 25 vísindamanna en skipinu er m.a. ætlað að stunda rannsóknir á heimskautasvæðum. Tvær þyrlur af Dauphine-gerð eru um borð í skipinu. Almenningi er boðið að skoða skipið frá kl. 13 til 16 fimmtudaginn 29. júní, föstudaginn 30. júní og laug- ardaginn l.júlí. 196 nemendur útskrifast frá Endurmenntunarstofnun HÍ Morgunblaðið/Jón Svavarsson Páll Skúlason, rektor Háskóla Islands, afhendir nemendum Endurmenntunarstofnunar HÍ skírteini. Aldrei áður hafa fleiri útskrifast í einu 196 nemendur voru útskrifaðir 23. júní sl. úr lengra námi Endurmennt- unarstofnunar HÍ. Aldrei hafa fleiri útskrifast í einu frá stofnuninni og fór útskriftin fram í Háskólabíói. Útskrifað var af átta námsbraut- um, þar af fjórum nýjum. Nýju námsbrautimar eru: Viðbótamám í hjúkrun sem síðan skiptist í þijár sérgreinar; svæfingar-; gjörgæslu- og skurðhjúkmn. Námið var skipu- lagt í samstarfi við námsbraut í hjúkmnarfræði og stóð í fjögur misseri. 31 nemandi var útskrifaður. Faghandleiðsla og handleiðslutækni sem skipulagt var í samstarfi við Tengsl sf. og stóð í þrjú misseri. Átján nemendur útskrifuðust úr því námi. Námskrárfræði og skólanám- skrárgerð sem skipulagt var í sam- starfi við menntamálaráðuneytið. Tók námið tvö misseri og 29 fram- haldsskólakennarar útskrifuðust úr því. Rekstur og stjómun í matvæla- iðnaði stóð yfir þrjú misseri og út- skrifuðust þrettán nemendur úr náminu. Aðrar námsbrautir vom rekstrar- og viðskiptanám sem 36 nemendur útskrifuðust úr, tólf nemendur vora útskrifaðir úr rekstrarfræði, 35 úr markaðs- og útflutningsfræði og loks 22 úr námi í opinberri stjórnsýslu og stjórnun. Endurmenntunarstofnun HÍ bauð íyrst upp á nám samhliða starfi árið 1990 og útskrifuðust fyrstu nemend- urnir í júní 1991. Frá þeim tíma hafa um 1200 nemendur útskrifast úr lengra námi frá stofnuninni. Lengra nám hjá EHI er nám sam- hliða starfi sem tekur tvö til fjögur misseri og hefur aðsóknin aukist ár frá ári. Ný námsbraut um bama- vernd verður í boði í haust. Námskeið um iðjumiðað mat hjá börnum NÁMSKEIÐ um iðjumiðað mat hjá bömum verður haldið dagana 29. og 30. júní. Námskeiðið er haldið á veg; um Endurmenntunarstofnunar HÍ og fræðslunefndar Iðjuþjálfafélags Islands. Áhersla verður lögð á tvö matstæki; „Schooi Function Assess- ment“ (SFÁ), sem þýtt hefur verið sem skóla-fæmi-athugun og „Pedi- atric Evaluation Disability Invent- ory“ (PEDI). Kennari er dr. Wendy Coster, prófessor í iðjuþjálfun og yfirmaður náms í iðjuþjálfun við Háskólann í Boston. Hún er jafnframt einn að að- alhöfundum þessara matstækja. SFA kom fyrst út árið 1998. Það byggist á flokkunarfræði Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (ICIDH II), hugmyndafræði iðju- þjálfunar og nýjustu kenningum inn- an sérkennslufræða og endurhæf- ingar. Metin er þátttaka og frammistaða barna á aldrinum 6-12 ára í skólastarfi, segir í fréttatil- kynningu. Með hugtakinu skólafæmi er átt við færni nemandans til að fram- kvæma mikilvægar athafnir sem styðja við eða efla þátttöku í námi og félagsfæmi í skóla. Virk þátttaka byggir á ákveðinni gmnnfæmi s.s. að beita skriffæri, biðja um upplýs- ingar eða aðstoð, fara um kennslu- stofu og skólabyggingu, sinna per- sónulegum þörfum á viðeigandi máta og hafa samskipti við bekkjarfélaga við verkefnavinnu, svo eitthvað sé nefnt. Til þess að nemandi nái ár- angri þarf hann að taka virkan þátt á öllum sviðum skólastarfsins. SFA veitir sértækar upplýsingar um þátttöku barna með sérþarfir við mismunandi viðfangsefni í skólan- um. Það fjallar um kröfur innan kennslustofunnar og tekur einnig til athafna við aðrar aðstæður, þ.á m. á snyrtingu, skólalóð og við að fara um. Gert er ráð fyrir að ýmsir, sem þekkja til nemandans, geti lagt matstækið fyrir, svo sem kennarar, sérkennarar, iðjuþjálfar, talmeina- fræðingar, sjúkraþjálfarar og stuðn- ingsfulltrúar. Til að matstækið nýtist sem best hefur nú þegar farið fram talsverð vinna við að þýða matshefti og leið- beiningar yfir á íslensku. Tveir nem- endur við námsbraut í iðjuþjálfun við Háskólann á Akureyri hafa verið styrktir af Nýsköpunarsjóði náms- manna til að vinna við þýðinguna, undir leiðsögn kennara og starfandi iðjuþjálfa. Þar að auki hafa fengist veglegir styrkir frá fleiri aðilum til verkefnisins, segir í tilkynningunni. ■ VERKALÝÐSHREYFINGIN, verkfallsrétturinn ogverkfall Sleipn- is verður umræðuefni málfundar fimmtudaginn 29. júní kl. 20 á Klapp- arstíg 26, 2. hæð. Ræðumenn verða félagar í Eflingu í Reykjavík og full- trúi verkfallsmanna í Sleipni. Fyrir- spumir og umræður. Að fundinum standa aðstandendur vikublaðsins Militant og Ungir sósíalistar. ■ FEGURÐARSAMKEPPNI ís- lands hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsinígu: „Vegna fréttaflutnings í fjölmiðlum undanfarna daga um „fegurðiu-drottningar á torfæmtröll- um“ skal það tekið skýrt fram að þama var ekki um að ræða keppend- ur úr Fegurðarsamkeppni Islands og var uppákoma þessi fegurðar- samkeppninni alls óviðkomandi." LEIÐRÉTT Nafnið misritað í VTÐTALI við þýska þingmann- inn Karl-Heinz Hornhues, sem birt- ist á miðopnu í gær, var nafn hans misritað. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.