Morgunblaðið - 30.06.2000, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 30.06.2000, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2000 63 BRÉF TIL BLAÐSINS Aldraðir skulu lifa á bjartsýni Fyrr má nú dæma en dauðadæma Frá Karli Gústafi Agústssyni: MIKIÐ var ánægjulegt að hlusta á forsætisráðherra okkar, herra Dav- íð Oddsson, er hann ávarpaði þjóð sína á þjóðhátíðardaginn. Þar talaði hann um að þeir eitt hundrað og þrjátíu þúsund Islendingar sem byggðu Island og tóku þá ákvörðun um og stóðu að stofnun lýðveldis ættu skilið æðstu bjartsýnisverð- laun. Það lá við að maður táraðist við að hlusta á þetta, en það breytt- ist fljótlega þegar mér var hugsað til þess að þeir íslendingar sem hann talaði um og eru enn á lífí eru flestir ellilífeyrisþegar, sem búa við sultarlaun, verða að lifa af naumt skömmtuðum ellilífeyri og tekju- tryggingu, því flestir þeirra hafa ekki nema mjög lítinn lífeyrissjóð sem þeir fá greitt úr. Ég held að þessum íslendingum sem forsætis- ráðherra vildi verðlauna kæmi það best að kjör þeirra yrðu bætt þannig að þeir gætu lifað mannsæmandi lífí af sínum lífeyri, ellilífeyri og tekju- tryggingu, og að þessi lífeyrir fylgdi almennri launaþróun í landinu. Nýlega var í sjónvarpi viðtal við fjármálaráðherra um kjör aldraðra og áhrif jaðarskatta á kjör þeirra, en það er staðreynd að ef eftirlauna- þegi eða maki vinnur sér inn nokkr- ar krónur er tekjutryggingin skert að stórum hluta. Ráðherra sagði að verið væri að skoða þessi mál og að búið væri að skipa nefnd til að kanna og vinna að tillögum um þessi mál og væri niðurstöðu að vænta. Ekki heyrði ég hvenær niðurstaða kemur hvort það er á þessu ári, næsta ári eða þarnæsta. Éina leiðin sem fjár- málaráðherra sér er að skipa enn eina nefndina þó svo að fjölmargir aðilar bæði innlendir og erlendir hafi með rannsóknum og könnunum á undanförnum árum staðfest að ellilífeyrisþegar hér á landi búi við mikið lakari kjör en ellilífeyrisþegar í nágrannalöndum okkar. Allir sem hafa kynnt sér þessi mál komast að sömu niðurstöðu, nema sérfræðing- ar ríkisstjórnarinnar, sem geta reiknað það út að kjör ellilífeyris- þega hér á landi séu allaf að batna. Það er kannski hluti af bjartsýnis- verðlaununum, sem forsætisráð- herra talaði um, að í sömu viku til- kynnti heilbrigðis- og trygginga- málaráðherra hækkanir á lyfja- kostnaði þeirra sem þurfa að nota lyf, með því að hækka hlut sjúklinga og draga úr kostnaði ríkisins. Þama er enn einu sinni verið að vega að ellilífeyrisþegum og skerða kjör, því stór hluti þeirra þarf á lyfjum að halda og margir í verulegu magni. Nýlega var verið að lækka tolla á lúxusbifreiðum, sem nam mörg hundruðum þúsunda króna á hverja bifreið og má ætla að með hækkun lyfja til sjúklinga sé verið að fjár- magna tollalækkunina á þessum lúxusbílum, eða er ekki eðlilegt að tengja þetta saman þegar svona skammt er á milli? Ég hef rakið í nokkrum greinum undanfarna mánuði þau fjölmörgu atriði þar sem við ellilífeyrisþegar erum beittir óréttlæti og verið sviptir góðærinu, sem allir sjá nema við og öryrkjar, og enn er haldið áfram. Það virðist alltaf vera að styttast í það að við verðum að lifa á bjartsýn- inni einni saman, en það get ég sagt forsætisráðherra og ríkisstjórn af eigin raun, að bjartsýni vegur ákaf- lega létt í maga. KARL GÚSTAF ÁSGRÍMSSON, formaður Félags eldri borgara í Kópavogi. Frá Sigrúnu Stefánsdóttur: SJALDAN hef ég orðið jafnundrandi og reið og við lestur pistils Víkveija miðvikudaginn 14. júní sl. Þar fer pistilhöfundur, sem nýtur nafnleynd- ar, með niðrandi fullyrðingar og al- hæfír um tregt gáfnafar íslenskra unglinga út frá afar undarlegum for- sendum. Af frásögn vinkonu sinnar af óþarflega góðum undirtektum ungl- inga við sviðsframkomu Blóðhunda- gengisins á tónleikum í Laugardals- höll ályktar þessi Víkveiji: Islenskir unglingar eru heimskir, hafa á sér óorð sem varla er á bætandi og munu ekki kaupa sér Biblíu eða mæta á kristnitökuhátíð á Þingvöllum! Þvílík röksemdafærsla. Ég er móðir og uppalandi þriggja ungmenna (þar af eins sem var á um- ræddum tónleikum) og hef í gegnum þau, sem og á öðrum vettvangi, kynnst stórum hópi unglinga. Þetta eru upp til hópa greind og glæsileg ungmenni með heilbrigð og skemmti- leg áhugamál og sum hver meira að segja þátttakendur í kristilegu starfi ef Víkveija er einhver huggun í því. Hann virðist hins vegar vera dæmig- erður „vegprestur" sem vísar öðrum veginn en fer hann ekki sjálfur, predikar virðingu fyrir hverri einustu Kfveru en skrifar svo af dæmalausu virðingarleysi um stóran hóp fólks. Auðvitað geri ég mér grein fyrir því að í hópi unglinga, sem og í hópi okkar fullorðinna, finnast einhverjir sem kalla mætti svarta sauði. Þessir ein- staklingar eru þó sjálfum sér verstir og ég get ekki með nokkru móti fallist á að þeir komi óorði á aðra sem til- heyra af tilviljun sömu aldursflokkum en eiga ekkert annað sameiginlegt. En ég vildi þó síður vera í hópi starfs- fólks Morgunblaðsins um þessar mundir, einhveijum gæti nefnilega með ofanskráðri röksemdafærslu dottið í hug að á þeim bæ væru allir fullir af fordómum og mannfyrirlitn- ingu. Ekki dettur mér í hug að mæla aumkunarverðri framkomu Blóð- hundanna bót (þeir eru víst reyndar komnir af unglingsaldri) en vænti þess að þeir áheyrendur, sem í hóp- hrifum staðar og stundar tóku undir uppátækin, bíði þess fljótlega bætur. Víkveiji telur sig hafa komist til manns eftir unglingsárin. Ég ætla að hann eigi þar nokkuð í land, að minnsta kosti hvað umburðarlyndi og stafsetningu eða prófarkalestur varð- ar (ritar t.d. „að búazst" og „háttar- lag“) en það hefur vonandi ekkert með gáfnafar að gera. SIGRÚN STEFÁNSDÓTTIR, Kambaseli 49,Reykjavík. Merkingar í föt og skó yLaugalækur 4 • S: 588-1980^ Silki-damask í metratali í úrvali Póstsendum riiði» Skólavördustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.