Morgunblaðið - 05.07.2000, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR5. JÚLÍ2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Arnaldur
Einsamall í sveitinni
ÞAÐ getur verið ljúft að leika sér í sveitinni á sumrin, Á sólríkum dögum breytist litróf náttúrunnar og hún
jafnvel þó maður sé bara einn með sjálfum sér, því í virðist full af lífi, þá er eins og blómin dansi í kringum
sveitinni leiðist manni aldrei, þar er alltaf nóg að gera. mann og þá er gaman að vera til.
• 0
Ossur hf. hyggst auka hlutdeild sína
á heimsmarkaði
Á höttunum
eftirfyrirtæki á
sviði stoðtækja
JÓN Sigurðsson, forstjóri stoð-
tækja- og hátæknifyrirtækisins Öss-
urar hf., segir ekkert launungarmál
að fyrirtækið sé á höttunum eftir er-
lendu fyrirtæki eða fyrirtækjum á
sviði stoðtækjaframleiðslu til kaups.
Hann segir ekki rétt að segja að við-
ræður hafi farið fram við erlenda að-
ila en staðfestir að óformlegar þreif-
ingar hafi átt sér stað.
Óssur hf. keypti í mars sl. banda-
ríska fyrirtækið Flex-Foot Inc. fyrir
5,3 milljarða króna og saman eru
fyrirtældn tvö annar stærsti framleið-
andi stoðtækjalausna á heimsmarkaði.
Jón Sigurðsson segir að áfram sé unn-
ið eftir þeirri áætlun að geta boðið
heildarlausn á sviði stoðtækja.
Mikil áhersla á
eigið þróunarstarf
„Við leggjum afar mikla áherslu á
eigið þróunarstarf en hinn möguleik-
inn er að taka stærri stökk fram á
veginn með kaupum á réttu fyrir-
tækjunum á þessum markaði. Össur
er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu
hulsa og með kaupunum á Flex-Foot
náðum við góðri stöðu í smíði gervi-
ökkla. Eftir stendur að við þyrftum
að bæta stöðu okkar í gervihnjáliðum
og alls kyns íhlutum," segir Jón og
bætir við að stefnan sé einnig að
styrkja markaðsmál fyrirtækisins á
erlendum vettvangi.
Talið er að heimsmarkaður á sviði
stoðtækja nemi um 1-1,2 milljörðum
dala eða um eitt hundrað milljörðum
króna. Markaðurinn hefur aukist að
umfangi um 5-6% á ári, en stefna
Össurar er að auka markaðshlutdeild
sína tvö- til þrefalt á næstu árum.
Fjármagnið til
„Fjármagnið er til finnist rétta
fyrirtækið," segir Jón, aðspurður um
hvort fjármögnun verði vandamál við
frekari fjárfestingar á erlendum
vettvangi, sé haft í huga að kaupin á
Flex-Foot voru þau stærstu sem ís-
lenskt fyrirtæki hafði gert á erlend-
um markaði. „Það er í sjálfu sér nóg
framboð á fyrirtækjum en hvort þau
eru þau réttu er annað mál.“
Sjúkralið-
ar vænta
kjarabóta
UM átta af hveijum tíu sjúkraliðum
sem sögðu upp á Landspítala - há-
skólasjúkrahúsi í vor hafa tekið upp-
sögn sína til baka. Kristín A. Guð-
mundsdóttir, formaður Sjúkra-
liðafélags íslands, segir að komin sé
ró í starf sjúkraliða við spítalann en
ljóst sé að sjúkraliðar bindi miklar
væntingar við kjarabætur í væntan-
lega kjarasamningnum en núgildandi
samningar renna út í lok október nk.
Um 65% allra sjúkraliða á Land-
spítalanum sögðu upp starfi sínu í vor
vegna óánægju með kjör en Kristín
segir að komist hafi á réttur skilning-
ur á núgildandi kjarasamningi og því
hafi velflestir sjúkraliðar kosið að
draga uppsagnir sínar til baka. „Ein-
hverjir hafa engu að síður kosið að
skipta um starfsvettvang í von um
betri laun,“ sagði hún.
Samkvæmt könnun Landlæknis-
embættisins frá síðasta ári er mikill
skortur hér á landi á sjúkraliðum.
Þannig kom fram í könnuninni að á
landinu öllu eru 1.364 stöðugildi fyrir
sjúkraliða en þeir fylli þó í reynd að-
eins 994 stöðugildi.
Erfitt að fá ungt fólk í námið
Kristín segir ekkert launungarmál
að framtíðin sé ekki ýkja björt í þess-
um geira heilbrigðiskerfisins. Erfitt
sé að fá ungt fólk í sjúkraliðanám og
þrátt fyrir mikinn skort á sjúkralið-
um um land allt séu kjörin lítt eftir-
sóknarverð.
Framkvæmdastj óri ASÍ segir kiarasamninga í hættu vegna verðlagsþróunar
Allt bendir til að uppsagn-
arákvæðið verði virkt
ARI Skúlason, framkvæmdastjóri Alþýðusam-
bands íslands, segir að það þurfi nánast krafta-
verk til að koma í veg fyrir að verðlagsforsendur
kjarasamninga bresti ekki um áramót í kjölfar
verðhækkana undanfarið. Sér sýnist allt benda til
að uppsagnarákvæði samninganna verði virkt.
Enginn aðili í þjóðfélaginu virðist vinna að því að
tryggja stöðugleika. Hann telur boðaða hækkun
Sjóvár-Almennra á ábyrgðartryggingum bifreiða
vond skilaboð frá aðila innan Samtaka atvinnu-
lífsins.
Undur og stórmerki
þurfa að gerast
Ari segir að sér sýnist núna allt benda til þess að
uppsagnarákvæði kjarasamninga verði virkt
vegna verðlagsþróunarinnar. „Það eru 3-4 mánuð-
ir síðan fyrstu samningar voru gerðir og þeir voru
gerðir á þeim grunni að verðlag færi hratt lækk-
andi en verðlag hefur ekki farið hratt lækkandi
heldur hækkandi," segir Ari. „Það þurfa að gerast
undur og stórmerki á þeim tíma sem eftir er fram
að áramótum, til að þetta fari á þann stað sem
menn höfðu óskað sér. Mér sýnist á öllu að það
þurfi að gerast kraftaverk til að það náist.“
Hann sagði að staðan mundi væntanlega skýrast
á haustmánuðum. „Ef heldur áfram í sama horfinu
- og það er ekkert sem bendir til annars - þá sjá
menn fljótlega í hvað stefnir."
Hann sagði að þegar könnun á því hvort upp-
sagnarákvæði kjarasamninga væru orðin virk væri
lokið stæðu menn frammi fyrir þeirri spumingu
hvað væri skynsamlegast að gera. „Það gefur
augaleið að við fórum út í það að gera það sem kall-
að var raunhæfír eða skynsamlegir kjarasamning-
ar. Það voru mjög miklar væntingar um launa-
hækkanir en það var slegið á þær, t.d. var slegið
verulega af kröfum innan Verkamannasambands-
ins í ljósi þess að það næðist að halda stöðugleikan-
um og tryggja hann.“
Ari sagði að sér virtist hins vegar enginn vera að
vinna sérstaklega í því að halda stöðugleikanum
eða tryggja hann. „Stjómvöld segja að það sé allt í
fínu lagi. Við emm búnir að heyra forsætisráð-
herra tala um það aftur og aftur að það sé allt í
góðu lagi.“
Fólki fínnst það gabbað
„Stundum hefur verið talað um að það þurfi að
bíða aðeins og menn era búnir að bíða aðeins
nokkram sinnum og þetta er orðið töluvert langt
tímabil. Þannig að ég held að það sé full ástæða til
að hafa mjög miklar áhyggjur af þessu,“ sagði Ari,
sem segir að ekki sé ástæða til að ætla að launafólk
muni eitt vilja taka á sig ábyrgð á því að halda hér
stöðugleika.
„Það er augljóst mál að forysta hreyfingarinnar
tók að sér að tala félagsmenn inn á það að sýna
ábyrgð með því að slá af launakröfum. En mér sýn-
ist að það taki enginn þátt í að tryggja forsendur-
nar þannig að verðið lækki. Mér finnst mjög líklegt
að fólki finnist að það hafi hreinlega verið gabbað."
Ari sagði að boðaðar hækkanir á ábyrgðatrygg-
ingum bifreiða hjá Sjóvá-Almennum væra mikið
högg. Erfitt væri að ráða við verðhækkanir á fast-
eignum, olíu og bensíni og fleira.
Hvað varðar bensínið mætti að vísu hugsa sér
grandvallarbreytingar á verðlagningu í þá átt að
ríkið taki minna til sín af verðinu en verið hefur en
það væri meira en að segja það að gera slíkar
breytingar.
Sjóvá-Almennar aðili að SA
„En þessar hækkanir á tryggingunum finnst
mér vera vont merki. Þetta segir manni að þessir
aðilar hafa engar áhyggjur af þessu. Sjóvá-Al-
mennar era aðilar að Samtökum atvinnulífsins. Við
gerðum samninga við Samtök atvinnulífsins, sem
eru byggðir á ákveðnum forsendum, en það virðist
ekki vera nein binding þarna til þess að tryggja að
þær forsendur haldi. Eg hef áhyggjur af því og líka
af því að þetta séu skilaboð til annarra um að það
sé í lagi að halda áíram á sömu braut." sagði Ari.
Hann sagði að tryggingaiðgjöldin hefðu hækkað
veralega í fyrra og aftur núna og kvaðst sannfærð-
ur um að í nágrannalöndunum gætu hækkanir af
þessu tagi ekki orðið án þess að virk samkeppni á
markaði gerði þær að engu. Hann kvaðst hins veg-
ar sannfærður um að önnur tryggingafélög ættu
eftir að fylgja í fótspor Sjóvár-Almennra með
hækkanir. „Það segir mér að það sé ekki nokkur
samkeppni á markaðnum og enginn hafi viðleitni
til þess að vera öðra vísi en hinir til þess að laða til
sín viðskiptavini. Þetta finnst mér vera mjög slæm
boð og alls ekki passa við það að við lifum hér í
stöðugleikasamfélagi. Þetta er nákvæmlega sama
ferlið og nákvæmlega sami hugsunarhátturinn og
gilti hér fyrir 15-20 árum síðan.“
Sérblöð í dag
—--------------
í VERINU í dag er farið í róður með loðnuskípinu Súl-
unni EA, sagt frá úthafskarfaveiðum á Reykjan-
eshrygg og síldveiðum. Þá eru í blaðinu hefðbundnar
uppiýsingar um aflabrögð og staðsetningu f iskiskipa
á Islandsmiðum.
Liam O’Sullivan kallaður
f rá Keflavlk / B1
FH skellti Stjörnunni
í Bikarkeppni KSÍ / B2
■
4 ZlDDli
► Teiknimyndasögur
► Myndir
► Þrautir
► Brandarar
► Sögur
► Pennavinir