Morgunblaðið - 05.07.2000, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 2000 41
HESTAR
Talsverð
aðsókn út-
lendinga
ÚTLENDINGAR voru áberandi á
landsmóti hestamanna og komu
þeir víða að. Þó voru Þjóðverjar
og Bandaríkjamenn mest áber-
andi í hópi mótsgesta.
Sarah Jones og Stan Hirson
hafa bæði komið áður til landsins
og eiga þrjá íslenska hesta.
Of lítið gert fyrir erlenda
gesti
„Við skemmtum okkur mjög vel
og það er frábært að sjá alla
þessa góðu hesta,“ sagði Sarah.
Stan tók undir með Söruh en
fannst allt of lítið gert fyrir er-
lenda gesti og ferðamenn. „Við
eigum íslenska vini og vitum því
hvað um er að vera. Aðrir ferða-
menn hafa hins vegar örugglega
litla hugmynd um hvað er að ger-
ast hér. Það eru engar auglýsing-
ar í miðbæ Reykjavíkur og upp-
lýsingar um mótið fyrir
ferðamenn eru af mjög skornum
skammti. Það er meira að fá upp-
lýsingar um hvernig á að komast
hingað," sagði Stan. Sarah tók í
sama streng.
„Ég kom hingað til að fræðast
eins mikið um íslenska hestinn og
hægt er. í Bandaríkjunum er
þekking á íslenska hestinum ekki
eins mikil og hér. Þess vegna
Morgunblaðið/Kristinn
Boliart-fjölskyldan frá Kaliforníu á nú 11 íslenska hesta. F.v. Randy,
Bonnie, Kelly og Cliff Bohart.
Morgunblaðið/Kristinn
Áhugi fýrir íslenskum hestum fer vaxandi í Finnlandi. F.v. Laura Pi-
hlcala-Posti, Katie Brumpton, Sirpa Brumton og Heidi Mikkola.
væri gaman að sjá hvernig hross
eru kynbótadæmd. Það er hins
vegar erfítt þegar það er ekki
hægt að fylgjast með úrslitum í
kynbótadómum vegna þess að það
er engin stigatafla," segir Sarah.
íslenskir hestar í Kaliforníu
Bandarísku hjónin Randy og
Bonnie Bohart eiga níu hesta f
Bandaríkjunum, þeirra á meðal
stóðhestinn Demant frá Bólstað í
Landeyjum. Þau voru nýbúin að
kaupa tvo íslenska hesta í viðbót
þegar þau komu til landsins og
sáu þá fyrst sl. mánudag. „Mér
líkar mjög vel við íslenska hest-
inn, sérstaklega er gangurinn
skemmtilegur og geðslagið gott,“
sagði Bonnie. „Börnin hafa keppt
á íslenskum hestum í Banda-
Morgunblaðið/Kristinn
Stan Hirson og Sarah Jones töldu ekki nógu mikið gert fyrir erlenda
ferðamenn á landsmóti.
ríkjunum og gengið vel, jafnvel
unnið til verðlauna.“
Vaxandi áhugi í Finnlandi
f brekkunni fyrir ofan
Hvammsbraut sátu nokkrar ung-
ar fínnskar konur og fylgdust
með keppni í barnaflokki. Þeim
leist vel á landsmótið og hlakkaði
mikið til að fylgjast með helstu
gæðingum íslands. Sirpa Brum-
ton var að fylgjast með landsmóti
hestamanna í fimmta sinn en hún
flytur íslenska hesta til Finn-
lands. „Mér líst vel á staðsetning-
una og bíð bara eftir að allt verði
tilbúið,“ sagði Sirpa. „Áhugi fyrir
íslenska hestinum fer vaxandi í
Finnlandi og það eru a.m.k. 50-60
íslenskir hestar fluttir til Finn-
lands á hverju ári,“ sagði Sirpa.
RAÐAUGLVSIINJGAR
KENNSLA
Líföndun
Að anda er að lifa
Guðrún Arnalds verður með
sumarnámskeið í líföndun 9, —11.
júlí. Hvernig væri að hefja sumar-
fríið á því að anda djúpt og slaka
vel á? Líföndun er leið til að losa
um spennu og létta á hjartanu.
Gefur þú þér tíma til að lifa?
Guðrún Arnalds, s. 551 8439/896 2396.
TiLKYIMIMIIVIGAR
Happdrætti Félags
heyrnarlausra
heyrnaSliiusSa Útdráttur 1. júlí 2000.
Bifreið af gerðinni Fiat Punto kr. 1.112.000:
2678
Ferðavinningar frá Samvinnuferðum/Landsýn
kr. 130.000:
4998 12339 13982
Ferðavinningar frá Samvinnuferðum/Landsýn
kr. 60.000:
4799 8023 9679 10831
Vöruúttekt frá Japis kr. 50.000:
4866 7554
Vöruúttekt frá Nanoq kr. 25.000:
474 2583 5223 9113 11779
562 3176 8707 9214 13379
2356 3321 8872 11091 13636
Ferðaspilari með fjarstýringu frá Heimilistækj
um kr. 25.000:
588 4392 7471 12435 13930
Vöruúttekt hjá Nanoq kr. 15.000,-
35 2748 7465 8939 12518
2716 5072 7916 9132 14102
Vöruúttekt hjá Heimilistækjum kr. 5.000:
839 4121 5060 9778 11066
1929 4173 6286 10206 13777
3261 4404 7124 10867 14401
4043 4636 9675 10922 14407
Birt með fyrirvara um prentvillur.
Þökkum veittan stuðning.
Félag heyrnarlausra,
Laugavegi 26, (Grettisgötumegin),
101 Reykjavík, sími 561 3560.
BORGARSKIPULAG REYKJAVIKUR
BORGARTÚN 3-105 REYKJAVÍK • SlMI 563 2340 • MYNÐSENDIR 562 3219
Auglýsing um deili-
skipulag og breytingu á
deiliskipulagi í Reykjavík
Kjalarnes, Árvellir
í samræmi við 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með
auglýst til kynningar tillaga að deili-
skipulagi að Árvöllum á Kjalarnesi. Gert er
ráð fyrir að auk núverandi húss megi reisa
innan tilgreinds byggingarreits: allt að
300m2 vistheimili, 250m2 áhaldahús og
geymslu, 180m2 starfsmannabústað auk
gróðurhúss, tengiganga og skjólveggja.
Selásbraut 109, Seljaskóli
í samræmi við 25. gr. skipuiags- og
byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með
auglýst til kynningar tillaga að breytingu á
skipulagi lóðar Seljaskóla. Lóðirnar nr. 6 og
8 við Viðarás sameinist skólalóðinni og
skólabygging stækki um u.þ.b. 1500m2.
Laugarnes, deiliskipulag
í samræmi við 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með
auglýst til kynningar tillaga að deili-
skipulagi Laugarness.
Tillögurnar liggja frammi í sal Borgar-
skipulags og Byggingarfulltrúa Reykja-
víkur, Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl.
10:00 - 16:00 frá 5. júlí til 2. ágúst 2000.
Ábendingum og athugasemdum skal skila
skriflega til Borgarskipulags Reykjavíkur
eigi síðar en 16. ágúst 2000.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við
tillögurnar innan tilskilins frests, teljast
samþykkir.
__________________________
Auglýsing
um deiliskipulag frístundabyggðar í
landi Snóksdals II í Dalabyggð
Sveitarstjórn Dalabyggðar auglýsir hér með
tillögu að deiliskipulagi sumarbústaðabyggðar
í landi Snóksdals II, skv. 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1993.
Tillagan tekurtil 15 sumarbústaðalóða, 5 rækt-
unarsvæða og aðkomu að þeim. Skipulags-
uppdráttur ásamt greinargerð er til sýnis á
skrifstofu Dalabyggðar, Miðbraut 11 í Búðardal,
frá 5. júlí 2000 til 2. ágúst 2000.
Þeim, sem telja sig eiga hagsmuna að gæta,
er hér með gefinn kostur á að gera athuga-
semdir við tillöguna. Athugasemdum skal skila
til sveitarstjóra Dalabyggðarfyrir 16. ágúst og
skulu þær vera skriflegar.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir innan tilskil-
ins frests, teljast samþykkir tillögunni.
Sveitarstjóri Dalabyggðar,
Einar Mathiesen.
FÉLAGSLÍF
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund ( kvöld kl. 20.00.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Kvöldganga á Mosfell í kvöld
kl. 19.00. Brottförfrá BSÍ og
Mörkinni 6, verð kr. 500.
Fjölskylduferð í Þórsmörk
7.-9. júlí.
Fimmvörðuháls 7. —9. júlí.
Nokkur sæti laus í ágústferðir
um hinn forna Kjalveg, bókið
strax.
Munið aukinn opnunartíma
á skrifstofu í sumar kl. 9.00—
18.00.
www.fi.is og textavarp RUV,
bls. 619.
^ SAMBAND ÍSLENZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Háaleitisbraut 58.
Samkoma í kvöld kl. 20.30
Sverrir Axelsson segir frá ferð
sinni til landsins helga.
Sr. Frank M. Halldórsson flytur
hugleiðingu.
Árni Gunnarsson syngur.
http://sik.is/
DULSPEKI
Lífsins sýn
Viltu skynja fortíð, nútíð og
framtíð?
Uppl. og tímapantanir í sím-
um 561 6282 og 692 0882.
Geirlaug.