Morgunblaðið - 05.07.2000, Blaðsíða 35
(í IQ A J BM nOfflö M
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Meiri pappír og
stærri nytjaskógar
Á DÖGUNUM
barst kynningar-
bæklingur frá Prent-
smiðjunni Odda hf.
inn um bréfalúgur
þeirra landsmanna
sem ekki hafa af-
þakkað fjöldasend-
ingar af þessu tagi.
Bæklingurinn er
vandaður að allri
gerð, eins og vænta
mátti, en fyrirsögn
bæklingsins gefur þó
tilefni til umhugsun-
ar. Þar standa þessi
orð: „Notaðu Odda
pappír og stækkaðu
nytjaskóga Evrópu".
Vissulega er það rétt, sem fram
kemur í bæklingi Odda, að pappír-
inn sem við notum kemur ekki úr
regnskógum hitabeltisins. Það er
líka rétt að norrænir skógarbændur
(pappírsframleiðendur) hugsa svo
vel um skógana sína að lífmassi
þeirra eykst ár frá ári. Þannig er
vafalaust rétt farið með tölur úr um-
hverfisbókhaldi UPM í Finnlandi,
þar sem fram kemur að árlegur
vöxtur í skógum fyrirtækisins nemi
3,5 milljónum rúmmetra en árleg
grisjun aðeins 2,1 milljón rúmmetra.
Það sem er villandi er hins vegar sú
staðhæfing að aukin pappírsnotkun
leiði til stækkunar nytjaskóga. Auð-
vitað væri hægðarleikur að planta
trjám, þó að framleiðsla og notkun
pappírs væri minni en raun ber
vitni.
Það er óumdeilanlegt að skógar
eru mikilvæg auðlind sem víða er
nytjuð með skynsamlegum hætti.
Hitt er svo annað hversu sjálfbær
ræktun nytjaskóganna er ef grannt
er skoðað. Trén sem felld eru til
pappírsvinnslu eru fjölmargir ólíkir
einstaklingar af nokkrum mismun-
andi tegundum. Trén sem plantað
er í staðinn eru einræktaðir ein-
staklingar af einni eða örfáum teg-
undum. Nýting nytjaskóga, eins og
hún er stunduð í dag, hefur því tölu-
verð neikvæð áhrif á líffræðilegan
fjölbreytileika í skóginum, bæði
hvað varðar tegundafjölbreytni, en
þó sérstaklega hvað varðar erfða-
fræðilega fjölbreytni innan sömu
tegundar. Þar að auki skiptir miklu
máli hvernig staðið er að fellingu
skóganna, til dæmis hvort þess er
gætt að skilja eftir nægjanlega stór
búsvæði fyrir aðrar tegundir
plantna og dýra í skóginum og hvort
þessi búsvæði séu nægjanlega vel
tengd saman til að tryggja eðlilegan
samgang milli svæða sem áður voru
hluti af sömu heild.
Skógar eru víða mikilvæg útivist-
arsvæði. Það er óumdeilt að nytja-
skógar eru ekki jafnáhugaverðir
sem útvistarsvæði og skógar sem fá
að vaxa á eigin forsendum með fjöl-
breyttu lífríki. Það má því segja að
útvist sé að einhverju leyti í sam-
keppni við nytjaskógrækt og því
skynsamlegt að nýta ekki meira af
landsvæði undir nytjaskóga en
nauðsynlegt er. Þá er ljóst að óhóf-
leg nytjaskógrækt með tilheyrandi
áburðargjöf getur spillt jarðvegs-
gæðum.
Annað sem ástæða er til að
staldra við í bæklingi Odda eru
ábendingar sem þar koma fram um
endurvinnslu pappírs. Þar segir
m.a. „að þegar að því kemur að
farga endurunna pappírnum þá er
hann orðinn meiri mengunarvaldur
en ef honum hefði verið fargað
strax.“ Líklega á þetta við um allar
vörur ef málið er skoðað frá svona
þröngu sjónarhorni. Auðvitað hefur
varan sem slík meiri neikvæð áhrif á
umhverfið eftir því sem hún er not-
uð lengur og endurunnin oftar, þvi
að allri notkun og meðferð hljóta að
fylgja einhver neikvæð umhverfis-
áhrif. Eftir sem áður getur notkunin
og endurvinnslan haft langt um
minni neikvæð áhrif en þau sem
verða við förgun vörunnar og frum-
vinnslu annarrar í hennar stað.
Nýtni er grundvallarregla í um-
hverfisvernd.
Pappírsvinnsla er orkufrekur iðn-
aður og töluverður hluti þeirrar
orku kemur frá jarðefnaeldsneyti
(kolum og olíu) eða kjarnorku. Við
framleiðsluna er einnig notað mikið
af vatni. Framleiðsla á nýjum papp-
ír útheimtir meiri orku og meira
vatn en framleiðsla á endurunnum
pappír. Þar að auki inniheldur frá-
rennslisvatn frá nýframleiðslunni
meira af mengandi efnum en frá-
rennslisvatn frá endurvinnslunni.
Almennt talað er endurunninn
pappír betri en nýr pappír frá um-
hverfissjónarmiði, öfugt við það sem
gefið er í skyn í bæklingi Odda hf.
I almennri umræðu og í markaðs-
setningarstarfi fyrirtækja gleymist
gjaman að benda á að minni neysla
er ævinlega besti kosturinn frá um-
hverfissjónarmiði. Jafnframt er það
ekki sjálfgefið að minni neysla dragi
úr velsæld og því getur það ekki
verið markmið íyrir samfélagið að
auka pappírsnotkun, þótt það geti
þjónað hagsmunum einhverra fyrir-
tækja.
Aukin pappírsnotkun, hvort sem
pappírinn kemur frá Odda eða öðr-
um söluaðilum, mun aldrei hafa
bætandi áhrif á umhverfið. Endur-
notkun er alla jafna næstbesti kost-
urinn og endurvinnslan kemur þar á
eftir. Förgun á vöru sem hægt er að
endurnýta eða endurvinna og fram-
leiðsla nýrrar vöru í hennar stað
hlýtur alla jafna að hafa meiri skað-
leg áhrif á umhverfið en aðrar leiðir.
Pappír er nauðsynlegur í nútíma-
samfélagi. Þeir sem vilja að papp-
Pappír
Aukin pappírsnotkun,
segja Stefán Gfslason
og Tryggvi Felixson,
hvort sem pappírinn
kemur frá Odda eða
öðrum söluaðilum, mun
aldrei hafa bætandi
áhrif á umhverfið.
írsnotkun þeirra hafi sem minnst
neikvæð áhrif á umhverfið ættu að
hafa eftirfarandi ábendingar í huga:
1. Spörum pappír; því minni papp-
írsnotkun, því minni neikvæð áhrif á
umhverfið.
2. Afþökkum auglýsingapóst ef
við teljum hann óþarfan.
3. Kaupum umhverfismerktan
pappír.
4. Prentum og ljósritum báðum
megin á blöðin, sé þess kostur.
5. Notum bakhliðar og misheppn-
aðar útprentanir fyrir uppköst og
rissblöð.
6. Skilum notuðum pappír til end-
urvinnslu.
Sem betur fer er auðvelt að nálg-
ast umhverfismerktan skrifstofu-
pappír í verslunum hérlendis. Þar
hefur Prentsmiðjan Oddi hf. vissu-
lega lagt sitt af mörkum þó að þess
sé hvergi getið í nýlegum bæklingi
fyrirtækisins.
Stefán er umhverfísstjómunar-
fræðingur og verkefnisstjóri
Staðardagskrár 21 á fslandi.
Tryggvi er hagfræðingur og
framkvæmdastjóri Landvemdar.
MIÐVIKUDAGUR5. JUUÍ200Ö 35'
KIRKJUSTARF
Safnadarstarf
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10.
Orgelleikur á undan. Léttur málsverð-
ur á eftir.
Háteigskirkja. Kvöldbænir og fyrir-
bænir kl. 18.
Neskirkja. Bænamessa kl. 18.05. Sr.
Frank M. Halldórsson.
Seltjarnameskirkja. Kyrrðarstund
kl. 12. Söngur, altarisganga, fyrirbæn-
ir. Léttur hádegisverður í safnaðar-
heimilinu.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbæn-
ir. Léttur málsverður í safnaðarheimil-
inu á eftir.
Fella- og Hölakirkja. Helgistund í
kirkjunni á fimmtudögum í júh' kl.
10.30-12. Ýmislegt til fróðleiks og
skemmtunar, kaffi á könnunni. Umsjón
hefur Lilja G. Hallgrímsdóttir, djákni.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund
í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir
velkomnir. Tekið á móti fyrirbænaefn-
um í kirkjunni og í síma 567-0110.
Hafriarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund
kl. 12. Hugleiðing, altarisganga, fyrir-
bænir, léttur málsverður á eftir í Ljós-
broti, Strandbergi kl.13.
Akraneskirkja. Unghngakórinn.
Söngæfing í Safnaðarheimilinu Vina-
minni kl. 17.30.
Kletturinn, kristið samfélag. Bæna-
stund kl. 20. Allir velkomnir.
Hólaneskirkja, Skagast rönd. Bæna-
og kyrrðarstund kl. 18.
OTTO pöntunarlistinn
Laugalækur 4 • S: 588-1980
«S2S flísar
Slórhöfða 21, vid Gullinlmi,
sínii 545 5500.
\\A\Av.flis.is • nctfang: flisO' flis.is
'Seqty*'
íhreinsunin
gsm 897 3634
Þrif á rimlagluggatjöldum.
Skólavörðustíg 7, sími 551 5814
Sterku, röndóttu
poharnir bomnir
aftur. Verð br. 400.
Feel The Action
IRONFEATHER flugustöngin er hönnuð úr CoFi grafiti, sem ekki hægt. IRONFEATHER er með hjólafestingu úr nickel- og
veitir stönginni frábæran styrk og ber línuna í löngum köstum, silfurblöndu með innlögðum harðviði. Lykkjurnar eru úr
jafnvel þegar flugulínan er öll úti. Mikil kastfjarlægð og ryðfríu stáli með Silicon Carbide fóðringum. Hverri
nákvæmni veitir góða tilfmningu og þú nýtur þess að leggja út IRONFEATHER flugustöng fylgir sterkur álhólkur til flutnings
flugunni með IRONFEATHER á staði sem þú áður hélst að væri og geymslu.
IR0NFEATHER
IR0NFEATHER
TEGUND HLUTIR LENGD LÍNUTEG TEGUND HLUTIR LENGD LÍNUTEG
IFF 904-2E 2 9 0 /270 cm «4 IFF 998-2E 2 9 6 7293 cm (l 8
IFF905-2E 2 9 0 7274 cm «5 IFF 999-2E 2 9 6 7 293 cm tt 9
IFF 906-2E 2 9 0 7274 cm «6 IFF 1008/9-2E 2 10 0 /3Ó5cm »8/9
IFF 906-2E 2 9 0'7274 cm \n IFF 1409/10-2 E 3 14 0 /427 cm #8/10
IFF 906-2E 2 9 0 7274 cm f\Q IFF 1501011- 3E 3 15 0 457 cm »10 11
60 /hi/