Morgunblaðið - 05.07.2000, Blaðsíða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Þrjár nýjar myndir á lista vikunnar
Klofinn Carrey
á toppnum
AUÐVITAÐ rat-
aði Jim Carrey
beint á topp list-
ans yfir aðsóknar-
mestu kvikmynd-
ir á Islandi en
mynd hans, Me,
>Myself and Irene,
var frumsýnd fyr-
ir helgi. Það eru
hinir smellnu
Farrelly-bræður
sem leikstýra
Carrey að þessu
sinni en þeir hafa
áður haft hann
undir sinni stjóm,
eða í myndinni
Dumb and Dumb-
er. Renée Zell-
weger leikur ást-
konu Carreys í
myndinni en þau
felldu hugi saman
meðan á tökum
' stóð og eru elskendur í raunveruleik-
anum líka. í myndinni leikur Carrey
náunga sem er klofinn persónuleiki,
þegar hann gleymir að taka lyfin sín
brýst óþokkinn Hank fram í sviðs-
Tveir ólíkir persónuleikar tak-
ast á í Jim Carrey í toppmynd
vikunnar, Me Myself and Irene.
Ijósið. Ekki er
hægt annað en
að vera ánægður
með opnunina á
Irenu. „Þrátt
fyrir æðislegt
veður þrjá daga í
röð með yfir 20
stiga hita sem
gerist ekki oft
hérna á íslandi
opnaði írena á
toppnum með
tæpa 8000
gesti,“ segir
Guðmundur
Breiðfjörð
markaðs- og
kynningarstjóri
kvikmyndadeild-
ar Skífunnar.
„Þetta er stærri
opnun en á „Ma-
ry“ á sínum tíma
og í krónum talið
stærsta opnum á mynd með Jim
Carrey síðan óháðar mælingar hóf-
ust árið 1996. Myndin gekk mjög vel
á kvöldsýningunum og á flestum
þeirra var uppselt og mikið hlegið og
Nr.: var
vikur; Mynd
Ný ; Me,Myself and Irene
3 ; Gone in 60 sec.
5 j 101 Reykjovik
7 j Gladiator
1 j Frequency
2 j The Next best Thing
4 j 28 Doys
7 j Three to Tango
Ný j Sweet and lowdown
Ný j The Muse
Framl./Dreifing I Sýningarstoður
2.
3.
4.
Ný
1.
2.
7.
5. j 3.
6. j 5.
7. j 8.
8. j 6.
9. i Ný
10. ! Ný
j East is east
j Rules of Engagment
j Stuart Little
j Toy Story 2
j Ninth Gate
j Kevin and Perry
j I Kina spiser de Hunde
j Boy's don't cry
Erin Brockovich
! Fox
: Wolt Disney Prod.
j 101 ehf
jUIP
j New Line Cinemn
j Paramounf
j Columbia Tri-Star
j Warner Bros
j Intermedia Pictures
! October Films
ósbíó, Borgarbíó Ak., Sambíó, Nýja bíó Kef.
j Bíóhöll, Bíóborg, Kringlubíó, Nýja Bíó Akureyri, ísafjörður
j Hóskólabió
j Laugarósbíó, Hornafjörður, Húsavík
j Laugarósbíó, Bíóborgin
j Hóskólabíó
j Bíóhöll, Kringlubíó
: Hóskólabíó
11. i 4.
12. : 9.
13. | 13.
14. j 11.
15. j 15.
16. j 14.
17. ; 10.
18. ; i7.
19. : Ai
20. ; 12.
: lcon
i
j Channel Four Films
j Seven Arts
j Columbia Tri-Star
j BVI
j Summit
ilcon
j Scanbox
j Fox
j Columbia TrFStar
j Hóskólabíó
j Sambíóin Álfabakka
j Stjörnubíó, Borgarbíó Akun
: Bíóborg, Kringlubíó
j Regnboginn, Borgarbíó Akureyri
! Hóskólabíó
j Regnboginn
miimmnfi
klappað. Hún er að spyrjast vel út og
ég er bjartsýnn á framhaidið."
Þrjár myndir voru frumsýndar
um helgina og auk toppmyndarinnar
eru það Sweet and Lowdown og The
Muse. Sú fyná er gerð af Woody All-
en en hann á marga dygga aðdáend-
ur hér á landi. Að þessu sinni fangar
Allen anda djasstímabilsins á þriðja
áratug aldarinnar í Bandaríkjunum
og lýsir þvx með augum Emmets
Rays. Sean Penn fer með hlutverk
söguhetjunnar en auk hans má með-
al annars sjá hina þokkafullu Umu
Thurman í myndinni.
The Muse er eftir leikstjórann og
handritshöfundinn Albert Brooks
sem einnig fer með eitt aðalhlutverk-
anna í myndinni auk Sharon Stone.
Stúlkan sú hefur gert upp hug sinn
og ákveðið að leika í framhaldsmynd
hinnar lostafullu Basic Instinct. Þá
ættleiddu hún og eiginmaður hennar
son á dögunum.
MiðasalaS. 555 2222
The Hammer of Thor
A mythological action-comedy
fim. 6/ kl. 14.30 aukasýning
Rm. 6/7 kl. 20 uppselt
Fös. 7/7 kl. 20
Sýningartími 50 mínútur.
Ath. Takmarkaður sýningafjöldi.
T EIKFFIAG ÍSI.WDS
Ltfls1flENlJ 552- 3000
THRILLER
frumsýning fös. 7/7 kl. 20.30
nokkur sæti laus
lau. 15/7 kl. 20.30 laus sæti
fös. 21/7 kl. 20.30 laus sætí
N áum til
barnanna
með opnu
hjarta
FJÖLBREYTT dagskrá fyrir börnin á Æsku-
völlum fór fram undir umsjón Ásu Hlfnar
Svavarsdóttur á Kristnihátíð um helgina. Auk
hennar voru það um 20-25 starfsmenn hátíðar-
innar sem sáu um að skemmta börnunum. Var
Ása Hlín afar ánægð með hvernig til tókst en
var jafnframt orðin býsna þreytt að kvöldi
sunnudagsins.
„Þetta hefur verið eins og lítil leiklistarhátíð
hérna hjá okkur,“ sagði hún þegar hún var
Morgunblaðið/Arnaldur
Ása Hlín Svavarsdóttir.
innt eftir því hvernig til hefði tekist. „Hér hafa
verið fjölmargar leiksýningar og þær allar
mjög ólíkar hver annarri en alveg stór-
skemmtilegar."
Sagði Ása Hlín að það væri sjálfsagður hluti
af hátíð sem þessari að hafa auðuga og góða
dagskrá fyrir börnin, því þau væru jú stór
hluti hátíðargesta. „Þessi hátíð er fyrir fólkið í
landinu og börnin eru þar með talin og því
sjálfsagt að sinna þeim eins og öðrum.“
Aðspurð urn það hvort börn væru kröfuharð-
ir neytendur svaraði Ása Hh'n því til að höfuð-
atriðið í starfi sem þessu væri að það sem gert
væri fyrir börnin væri gert af heilum hug.
„Þegar maður er kominn með hóp af börnum
skiptir engu máli hversu snjall eða klár maður
er. Til að ná til barna verða hlutirnir að vera
gerðir af einlægni og opnu hjarta.“ Þetta taldi
Ása Hlín að hefði tekist vel og bætti því við að
sérstaklega gantan hefði verið að fylgjast með
foreldrunum gefa sér tíma með börnum sínum
við að taka þátt í þeim fjölmörgu möguleikum
sem í boði voru á Æskuvöllum um helgina.
Kristnihátíðin á Þingvöllum
530 3030
Hádegisleikhús með stuðningi
Símans — BJÖRNINN
fim. 6/7 kl. 12 örfa sæti laus
fös. 7/7 kl. 12 nokkur sæti laus
lau. 8/7 kl. 12 nokkur sæti laus
fim 13/7 kl. 12
Miðasalan er opin frá kl. 12-18 I Loftkastalanum
og frá kl. 11-17 I Iðnó. Á báðum stöðum eropíð
fram að sýningu sýningarkvöld og um helgar þegar
sýning er. Miðar öskast söttir I viðkomandi leikhús.
(Loftkastalinn/lðnó).
Ath. Ösóttar pantánir seldar 3 dögum fyrir sýningu.
PABBl /MAMMA
Allt lyrir iiiinnsia barnid
Þuntalína, Pósthásstr. 13
Morgunblaðið/Jim Smart
Jón Þór Jóhannsson og Bryndís Þorleifsddttir voru kát á Þingvöllum.
Einstaklega
ánægjulegt
ÞEIM þótti Kristnihátíðin hafa
heppnast vel, hjónunum Jóni Þór Jó-
hannssyni og Bryndísi Þorleifsdótt-
ur, sem komu til Þingvalla úr sumar-
húsi sínu við Álftavatn á
laugardeginum.
„Þetta er einstaklega ánægjulegt,"
sögðu þau um hátíðina og viðburði á
henni og bættu við að einmuna veður-
blíða gerði daginn enn minnisstæð-
ari,
„Við erum afskaplega ánægð með
þetta og höfum reynt að fá eins mikla
tilfinningu fyrir þessum atburði og
kostur er. Við urðum alls ekki fyrir
vonbrigðum,“ sagði Jón Þór.
Morgunblaðið/Jim Smart
„Skipulag til
fyrirmyndar“
ÞAU voru svo sannarlega sátt í veð-
urblíðunni á Þingvöllum á laugar-
dag, Þórður Sigurðsson, Dóra Vigdís
Vigfúsdóttir og Ilelga Sigurðardótt-
ir, sem komu á Kristnihátíð frá
Reykjavík. Þau voru á einu máli um
að hátíðin væri frábær og nefndu
sérstaklega að öll skipulagning væri
til mikillar fyrirmyndar.
„Við erum rosalega ánægð,“ sagði
Þórður og nefndi sem dæmi um frá-
bæra þjónustu á hátíðinni að menn
hefðu rokið til við stigana niður á
svæðið til að aðstoða þau með barna-
vagninn. „Þjónustan er til fyrir-
myndar og hér hefur verið yndislegt
að vera,“ sagði Þórður.
Vel kom tii greina hjá þeim að
koma aftur á sunnudaginn, sérstak-
lega ef veðrið héldist jafn gott.
„Þessu hefðum við ekki viljað missa
af.“