Morgunblaðið - 05.07.2000, Blaðsíða 24
64 .Ulin IKbUAliLK;). J ULl iiUUU
MUKUi.'iNKLiUn^
ERLENT
Nýkjörins forseta
Mexíkó bíða
ærin verkefni
Mcxíkóborg. AP, Reuters.
Unnið var að því að fjarlægja verksummerki kosningabaráttunnar í
Mexíkó í gær. Hér tekur verkamaður í Mexíkóborg niður mynd af
Francisco Labastida, frambjóðanda PRI-flokksins, sem tapaði.
EFTIR fognuðinn og sigurvímuna í
kjölfar sögulegs kosningasigurs
stjómarandstæðings í mexíkósku
forsetakosningunum á sunnudag
standa götusóparar, hinn nýkjömi
forseti, Vicente Fox, og PRI, fráfar-
andi stjómarflokkur frammi fyrir
umfangsmikilli tiltekt. Á Angel-
torgi, þar sem þúsundir fagnandi
stuðningsmanna Fox söfnuðust sam-
an eftir að úrslit kosninganna voru
kunngerð, varð vart stigið niður fæti
á mánudag fyrir msli eftir mann-
fagnaðinn og hvarvetna um Mexíkó-
borg mátti sjá borgarstarfsmenn
rífa niður gamlar kosningaauglýs-
Ástandinu í
Tsjetsjníu líkt
við Afganistan
Moskvu. AFP.
RÚSSNESK stjórnvöld em ófær
um að ráða við ástand mála í Tsjet-
sjníu, að því er rússnesk dagblöð
sögðu í gær, í kjölfar þess að tugir
rússneskra hermanna féllu í fjölda
sjálfsmorðsbílsprengjutilræða upp-
reisnarmanna í héraðinu um helgina.
„Bandíttamir em brjálaðir," sagði
í dagblaðinu Kommersant. „Dráps-
vélin fer í gang í Tsjetsjníu," sagði í
fyrirsögn fréttar blaðsins Sevodnía
um tilræðin í bæjunum Argun, Gud-
ermes, Uras-Martan og Nojbíora í
Tsjetsjníu á sunnudagskvöld.
Herfréttastofan AVN hafði eftir
heimildamönnum innan yfirstjómar
rússneska hersins í Tsjetsjníu að 50
hefðu fallið í tilræðunum og 170
særst sem em mun hærri tölur en
opinberlega höfðu verið tilkynntar.
Aðstoðaryfirhershöfðingi Rússlands
sagði í gær að tala fallinna væri 33,
særðir væm 84 og þriggja væri
saknað. Áður hafði verið tilkynnt að
49 hefðu fallið.
„Harmleikurinn í Argun sýnir að
yfirmennimir sem ríkisstjórnin hef-
ur tilnefnt hafa engin áhrif á upp-
reisnarmennina og era ófærir um að
ráða við ástandið," sagði Sevodnía.
.Átökin í Tsjetsjníu era farin að líkj-
ast stríðinu í Afganistan. Rússneskir
hermenn era stungnir í bakið á
„frelsuðum“ svæðum."
Rússum gerðir tveir kostir
Öryggisgæsla var hert í Tsjetsjníu
í gær og uppreisnarmenn hótuðu að
halda hermdarverkum áfram. Rúss-
neski herinn lokaði algerlega öllum
leiðum til og frá bæjunum þar sem
tilræðin vora framin. Er hafin um-
fangsmikil leit að mönnunum er
stóðu að þeim.
ingar Franciscos Labastidas, fram-
bjóðanda PRI. „Tími breytinga er
ranninn upp,“ sagði einn götusópar-
inn við fréttamann CNN.
Verðandi forseta og flokks hans,
íhaldsflokksins PAN, bíður ærinn
starfi á næstunni ef honum á að tak-
ast að hrinda kosningaheitum sínum
í framkvæmd og losa mexíkóskt
stjómkerfi við þann spillingarstimpil
sem einkennt hefur 71 árs órofa
valdatíð PRI.
Landsföðurhyggjan að baki
„Landsföðurhyggjan er að baki,“
sagði Fox nýverið í viðtali við frétta-
stofu AP. „Við munum veita öllum
tækifæri. Við munum breyta ríkis-
stjóm útilokunar í ríkisstjóm sam-
einingar. Ríkisstjóm sem hugsaði
eingöngu um sig og sína í ríkisstjóm
sem talar máli fólksins og hefur
skuldbundið sig framþróun."
Sergio Aguayo, mexíkóskur
stjórnmálaskýrandi, sagði í gær að
meginvandinn væri nú hvemig
virkja mætti lýðræðisstofnanir
landsins og að í raun væri sú spum-
ing alls ótengd þeirri hvort kosning-
ar væru frjálsar og hver úrslitin
vora. „Kosningamar vora frjálsar.
Og nú verðum við að virkja lýðræðið
til að sigrast á þeim vandamálum
sem við höfum erft.“
í viðtali við Reuters á mánudag
sagðist Fox vilja stýra landinu í anda
fyrirtækis og að hann mundi gera
allt sem í hans valdi stæði til að losa
landsmenn undan fjötrum klíku-
skapar og frændhygli. Sagðist hann
munu beita sér fyrir því að störf yrðu
veitt hæfu fólki að uppfylltum skýrt
skilgreindum skilyrðum, ekki ólíkt
því sem gerist í einkageiranum.
Þá er almennt talið líklegt að Fox
muni beita sér fyrir miklu aðhaldi í
ríkisfjármálum og skera niður yfir-
byggingu ríkisstofnana. Ennfremur
þykir líklegt að hann muni þrýsta á
um að mexíkósku fylkin 31 afli sér
eigin tekna með skattlagningu, með
það að markmiði að efla skattheimtu
sem hingað til hefur verið afar slök.
Ekki Mexíkó hf.
„Hann hefur viðmót fram-
kvæmdamannsins úr einkageiran-
um, sem er afar ólíkt því sem við eig-
um að venjast frá fyrri leiðtogum,“
sagði Josefina Franzoni, sérfræðing-
m- Mexíkósku stjómmálastofnunar-
innar, í samtali við Reuters. „Hann
mun ekki skapa Mexíkó hf. í þeim
skilningi að allt sé til sölu, en hann
mun færa með sér nýjan stfl: aukna
stjómun, aukið samráð og aukið
raunsæi," sagði Javier Hurtado,
yfirmaður stjómmálafræðiskorar
Guadalajara háskóla.
Rogelio de la 0, einn viðmælenda
Reuters, sagði að Fox biðu erfið
vandamál úrlausnar.
„Framganga efnahagslega líkans-
ins er á góðri leið vegna fríverslunar-
samninga okkar við Evrópu og
Bandaríkin og Kanada, aúk rétttrún-
aðar í stýringu efnahagskerfisins.
Þetta era ekki hlutir sem hann getur
breytt og vegna þessa mun hann
þurfa að gera mun umfangsmeiri
breytingar á stjórnmálakerfi lands-
ins hvað varðar gagnsæi. Og þá þarf
hann að hlusta á vilja þjóðarinnar."
Og perúski rithöfundurinn Mario
Vargas Llosa, sem sjálfur reyndi for-
setaframboð í heimalandi sínu árið
1990, spáði því í viðtali við mexíkóska
dagblaðið Reforma á mánudag að
leiðin frá flokksræði PRI að raun-
veralegu lýðræði yrði þymum stráð.
„Vicente Fox bíður gríðarlegt verk,
því ef leysa á upp alræðissinnað kerfi
sem haldið hefur fast um stjómar-
taumana í 71 ár, þýðir það að endur-
skapa verður rfldð frá granni og upp
úr.“
Skipst á skotum við
þinghús Fídjí-eyja
Suva. AFP, Reuters.
AP
Hermaður stendur vörð við
vegartálma fyrir utan þinghús
Fídjí-eyja, þar sem 28 meðlimir
fyrri ríkisstjómar eru enn í
haldi Georges Speights.
HERINN á Fídjíeyjum og stuðn-
ingsmenn Georges Speights, for-
sprakka uppreisnarmanna, lentu í
skotbardaga við þinghúsið í höf-
uðstaðnum í gær og særðust að
minnsta kosti fimm manns, að
sögn hersins. Nokkram klukku-
stundum áður hafði ný bráða-
birgðaríkisstjórn tekið við völd-
um, skipuð af hernum, þvert ofan
í vilja uppreisnarmanna.
Um það bil 300 óbreyttir borg-
arar sem fylgja Speight að málum
urðu fyrir skothríð er þeir reyndu
að flýja þinghúsið, þar sem upp-
reisnarmenn hafa haldið fyrrver-
andi forsætisráðherra og 25 öðr-
um í gíslingu í tæpa tvo mánuði.
Greindi útvarpsfréttamaður, sem
er inni í þinghúsinu, frá þessu.
Félagar í Anduppreisnarher-
deild Fídjí, sem aðstoðuðu
Speight við að taka þingið í nafni
frumbyggja eyjanna, svöraðu
skothríðinni til þess að verja
borgarana svo þeir gætu komist
aftur inn í þinghúsið, að sögn
fréttamannsins. „Það er blóð út
um allt,“ bætti hann við.
I tilkynningu frá hernum sagði
að fjórir óbreyttir borgarar og
einn hermaður að minnsta kosti
hefðu særst í átökunum, en á
vefsíðunni Fijilive.com sagði að
sjö hefðu særst, þar af tveir upp-
reisnarhermenn. Einn uppreisn-
armannanna í þinghúsinu sagði
ríkisútvarpi Fídjí að fleiri lægju
sárir skammt frá.
Skotbardaginn stóð í um fimm
mínútur og braust út eftir að
Speight hélt fréttamannafund þar
sem hann fordæmdi bráðabirgða-
stjórnina sem herinn útnefndi og
sagði hana skipaða „pólitískum
tækifærissinnum". Speight og
menn hans hafa krafist þess að
fólki af indversku bergi brotið,
sem er í minnihluta á Fídjí, verði
bannað samkvæmt stjórnarskrá
að sitja í valdastöðum.
Utvarpsfréttamaðurinn í þing-
húsinu sagði að skotbardaginn
hefði hafist þegar óbreyttu borg-
ararnir hefðu flúið þinghúsið eftir
að hafa komið auga á hermenn í
leynum skammt frá. „Hermenn-
irnir komu eins og skrattinn úr
sauðaleggnum og hófu skothríð,"
sagði hann.
Talsmaður hersins sagði at-
burðina „óheppilega" og hafa orð-
ið vegna þess að tveir reynslulitlir
hermenn hefðu misreiknað sig og
farið of nálægt þinghúsinu.
Bandarísk stjórnvöld fagna tilkynningu Saudi-Araba um væntanlega aukningu olíuframleiðslu
Kom öðrum OPEC-
í opna skjöldu
SÚ tilkynning Saudi-Araba að þeir
hyggist auka olíuframleiðslu sína tíl
þess að lækka hráolíuverð kom öðr-
um aðildarríkjum Samtaka olíuút-
flutningsríkja (OPEC) á óvart að því
er breska ríkisútvarpið, BBC, greinir
frá á fréttavef sínum í gær.
,Áður en Saudi-Arabía tekur
nokkra ákvörðun er nauðsynlegt að
halda samráðsfundi. Hingað til höf-
um við ætíð tekið ákvarðanir á
grandvelli einróma samkomulags,"
hefur BBC eftir Ali Rodriguez, for-
seta OPEC.
Saudi-Arabar tílkynntu á mánu-
dag að þeir myndu „mjög fljótlega"
auka dagframleiðslu sína um 500.000
föt til þess að reyna að halda hráoh'u-
verði um 25 Bandaríkjadali.
Óánægja neytenda hefur stórauk-
ist bæði í Bandaríkjunum og Bret-
landi undanfarið vegna hækkandi
ríkjum
bensínverðs. Embættismenn í Saudi-
Arabíu óttast að viðskiptavmir muni
snúa sér til annarra seljenda ef ekki
verði gerðar ráðstafanir til að lækka
verðið.
„Ef verð lækkar ekki mun Saudi-
Arabía, að höfðu samráði við aðra
framleiðendur, auka framleiðslu um
500.000 fot á dag á næstu dögum,“
hafði saudi-arabíska fréttastofan
SPA eftir Ali al-Naimi, olíumálaráð-
herra Saudi-Arabíu, á mánudaginn.
Fregnimar komu róti á olíumark-
aði þar sem verð hafði farið stöðugt
hækkandi þrátt fyrir að OPEC hefði
þegar aukið framleiðsluna. Verð á
hráolíu féll um rúmlega einn Banda-
ríkjadal á Asíumörkuðum í fyrrinótt í
kjölfar tílkynningar Saudi-Áraba.
Þrýstingur frá
Bandaríkjunum
í síðasta mánuði samþykktu OP-
EC-rfldn að auka framleiðslu sína um
708.000 föt á dag í von um að verð
lækkaði. Hefur aukningin þó haft lítil
áhrif á verðið og við lokun markaða á
mánudag var það 31,25 Bandaríkja-
dalir.
A1 Gore, varaforsetí Bandaríkj-
anna, fagnaði ákvörðun Saudi-Araba
og kvaðst vona að hún leiddi til lægra
bensínverðs í Bandaríkjunum. Hvattí
Gore olíufélögin til að sjá til þess að
verðlækkun skilaði sér til neytenda.
Fréttaskýrendur segja að tilkynn-
ing Saudi-Áraba hafi komið í kjölfar
stöðugs þrýstings frá Bandaríkja-
mönnum. „Það er ekki svo að skilja
að Bandaríkjamenn hafi einfaldlega
beitt þumalskrúfum á Saudi-Ara-
bana,“ hafði BBC eftir Roger Diwan
hjá ráðgjafafyrirtækinu Petroleum
Finance í Washington í Bandaríkjun-
um.
„Hagsmunir þeirra era hinir sömu.
Saudi-Arabar vilja ekki lenda upp á
kant við Bandaríkjamenn og þeir
vilja ekki að olíuverð sé svo hátt að
það bitni á OPEC til lengri tíma lit-
ið.“
í Bretlandi era skattar á olíuvörur
mun stærra hlutfall verðsins á
bensínlítranum og hafa stjómvöld
verið hvött til að lækka skattana og
þar með verðið. En um síðustu helgi
lét Tony Blair forsætisráðherra þau
boð út ganga að skattalækkun væri
ekki i farvatninu því slíkt myndi leiða
tíl samdráttar í nauðsynlegri þjón-
ustu, t.d. heilsugæslu.