Morgunblaðið - 05.07.2000, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 2000 37
HARALDUR
ÁGÚSTSSON
unarheimilinu Grund síðustu tvö og
hálft ár ævinnar og undi hag sínum
þar vel.
Sigurður Kristjánsson.
BJÖRK
DUADOTTIR
+ Haraldur Ágústs-
son fæddist í
Reykjavík 31. maí
1910. Hann lést 26.
júní siðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Ágúst Kristján Sig-
urðsson, f. 23.6.1873,
d. 27.4.1943, prentari
í Reykjavík, og Ingi-
leif Anna, fædd Bar-
tels, f. 25.1.1878, d.
27.5.1958.
Haraldur kvæntist
17.12.1949 Baldvinu
Halldóru Hafliða-
dóttur, f. 25.11.1908,
d. 23.7.1991. Foreldrar Baldvinu
voru Hafliði Baldvinsson, fisksali í
Reykjavík, og Ágústina Margrét
Aradóttir. Bræður Haraldar voru:
Sigurður, f. 6.4.1903, d. 28.5.1979
og Henrik Wilhelm, f. 19.3.1905,
d. 11.11.1966.
Haraldur var
teiknikennari við
Iðnskólann í Reykja-
vík árin 1937 til
1981, þar af yfir-
kennari frá árinu
1976. Hann var
teiknikennari við
Iðnskólann á Pat-
reksfirði árið 1947,
við Gagnfræðaskóla
verknáms árin 1951
til 1960, kennari í
teiknifræði við verk-
fræðideild Háskóla
íslands árin 1962 til
1975 og aðjúnkt árið
1969, stundakennari í teiknifræði
við MT árin 1972 til 1976, auk þess
sem hann kenndi teiknun og
viðarfræði á fjölda námskeiða.
Útför Haralds fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Þegar undirritaður gerðist kenn-
ari við Iðnskólann í Reykjavík
haustið 1950 hófust kynni okkar
Haraldar Ágústssonar. I þau nærri
50 ár sem síðan eru liðin höfum við
átt margvísleg og góð samskipti,
sem starfsmenn skólans og einnig í
27 ár sem nágrannar.
Þegar við fyrstu kynni kom í ljós
að Haraldur var fús til að styðja
þennan reynslulausa byrjanda
fyrstu sporin í kennarastarfinu og
entust hjálpsemi hans og góðvilji í
öll þau 30 ár sem við störfuðum
saman við skólann. Haraldur var
kennari við Iðnskólann í 44 ár og
kenndi jafnframt tímabundið við
aðra framhaldsskóla. Einnig kenndi
hann við verkfræðideild Háskóla
Islands í 13 ár. Hann bar hag Iðn-
skólans ætíð mjög fyrir brjósti og
sér þess víða stað. Næmt auga hans
STEINUNN
ÁRNA-
DÓTTIR
+ Steinunn Árnadóttir fæddist í
Reykjavík 14. janúar 1951.
Hún lést á Landspítalanum 17.
júní siðastliðinn og fór útför henn-
ar fram frá Hallgrímskirkju 29.
júní.
fyrir því sem betur mátti fara varð
til þess að hann kom ýmsu til betri
vegar í því efni, m.a. með því að
bæta kennslugögn í sínum greinum,
skrifa kennslubækur o.fl. Margt af
því sem hann þannig gerði tengt
skólanum og kennarastarfinu náði
langt út fyrir veggi skólans. Þannig
stóð Haraldur oft fyrr á árum fyrir
námskeiðum fyrir iðnskólakennara,
einkum utan af landi, sem þá áttu
ekki í annað hús að venda með leið-
beiningar. Haraldur var mikill
áhugamaður um ýmis fræðistörf,
t.d. orðasöfn og orðasmíði og hafði
samstarf við marga vísindamenn og
aðra kunnáttumenn, sem oft leituðu
ráða hjá honum eða vísuðu til hans.
Merkur þáttur í fræðimennsku
hans eru rannsóknir í viðarfræði og
hið mikla safn hans yfir meira en
1600 viðarsýni, sem talið er hið
stærsta sinnar tegundar á Norður-
löndum. Hann var í mörg ár félagi í
alþjóðlegum samtökum fræði-
manna á þessu sviði.
Eftir að ég varð nágranni
Haraldar og elskulegrar eiginkonu
hans Baldvinu Hafliðadóttur árið
1973 urðu samskipti okkar meiri en
áður hafði verið. Þá átti ég að fagna
mörgum heimboðum og öðrum
samskiptum með þeim hjónum. Eft-
ir að Baldvina lést hafði ég nánast
daglega samband við Harald. Ég
mun ávallt minnast þeirrar vin-
semdar og miklu gestrisni með
þakklæti sem ég naut hjá þeim.
Haraldur dvaldi á elli- og hjúkr-
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
1 m blómaverkstæði I
I lllNNAte |
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sínii 551 9090.
Langri lífsgöngu Haraldar
Ágústsonar eða Halla eins og við
kölluðum hann er nú lokið. Við höf-
um þekkt Halla alla okkar ævi og
voru hann og Vina okkur sem amma
og afi. Minningarnar hrannast upp
á stundu sem þessari og erum við
komnir á Brávallagötuna litlir
hnokkar í heimsókn til Vinu og
Halla. Það var gott að hafa þau þar
enda við búsettir á Hringbrautinni.
Þau fluttu sig þó um set en ekki of
langt og nú á Miklubrautina. Þar
eyddum við ófáum stundum og
mörgum nóttum. Það var alltaf svo
spennandi að gista uppi í í kvisther-
berginu, dunda við hefilbekkinn,
spila og spjalla, fá sér svo brauð
með bönunum og kókóið hennar
Vinu fyrir svefninn. Heilræði og
skipulagning Halla er eitthvað sem
við munum búa að alla ævi, hver
hlutur á sínum stað allt skráð og
merkt. Nýtinn var hann með ein-
dæmum og hvað hann fór vel með
hluti t.d. seðlaveskið sem hann hef-
ur átt í yfir 70 ár var eins og nýtt og
enn í notkun, svona má lengi telja.
Hans uppáhaldsstaður var við
skrifborðið sitt, þar sat hann tímun-
um saman, pikkaði á ritvélina sína,
réð danskar krossgátur, las yfir
dagatalið sem sagði honum svo
margt, hver ætti afmæli, hvar og
hvenær hver hefði komið í það og
það skiptið. Allt var skrifað niður í
röð og reglu.
Halli og Vina spiluðu mikið og
ekki setti það strik í reikninginn þó
að eitthvert okkar barnanna væri
hjá þeim, okkur voru kennd ótal
spilin og spiluðum við mikið.
Reglurnar voru stundum öðruvísi í
þessu húsi, Halli bjó t.d. til sínar
eigin Ólsen Ólsen reglur sem við
varðveitum nú sem okkar.
Vina og Halli voru mjög samrýnd
hjón og höfðu lag á að gera heimili
sitt fallegt. Vina lést fyrir 9 árum.
Við dáðumst að hugrekki Halla við
andlát hennar. Það var svo fyrir um
það bil einu og hálfu ári að Halli
fluttist aftur vestur í bæ, nú á litlu
Grund. Honum leið vel að vera
kominn aftur vestur í bæ þar sem
hann og Vina byrjuðu búskap. Halli
hefur nú fengið þráða hvíld og í
hjarta okkar trúum við því að nú sé
hann kominn til Vinu sinnar.
Elsku Halli, við kveðjum þig með
hjartans þökkum fyrir allt. Guð
blessi minningu þína.
Baldvin Guðmundsson,
Albert Guðmundsson
og Hreiðar Þór Björnsson.
13lómabúðiri
öaúðskom
v/ Fossvogskipkjw^ar'ð
Sími» 554 0500
Legsteinar
í Lundi
SOUSTEJNAK við Nýbýlaveg, Kópavogi
Sími 564 4566
Kveðja til systur
Hryggð mín mun fylgja þér
þegar fellur að
og augu mín leika við brimið
síþyrst eins og svart bergið
Hrynjandi blóðs þíns
berst mér
frá hvítum strengjum
næturinnar.
Náttfjólur
er ég tíni í fjörunni
og fel í barmi mér
Spor þín
orpin sandsins mýkt
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður
Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við
útfararþjónustu.
Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni.
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri,
sími 896 8242
Sverrir
Olsen
útfararstjðri.
Baldur
Frederiksen
útfararstjóri,
sími 895 9199
Síðan fellur að
(Þ.G.)
Guðmundur
og Guðbjörg.
Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
ðw Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is
V---------------:---------:----------------------------------------J
+ Björk Dúadóttir
fæddist á Akur-
eyri 1. apríl 1951.
Hún lést í bflslysi 21.
júní sfðastliðinn og
fór útfor hennar
fram frá Akureyrar-
kirkju 29. júnf.
Elsku frænka mín.
Það er skrýtið að
hugsa til þess að þú
eigir ekki eftir að
birtast með brosið
þitt bjarta en það lifir
í minningunni sem við
munum öll geyma vel í hjarta okk-
ar. Ég man svo vel eftir öllum
stundunum sem ég var hjá ykkur í
Hjallalundinum, ég var alltaf að
laga til hjá þér og gisti oftar en
ekki heilu næturnar hjá ykkur.
Einnig man ég eftir því þegar
þú reyndir að koma slátri ofan í
mig en ég var svo rosalega mat-
vönd að ég hreinlega ældi ef ég
fann svo mikið sem lyktina en það
tókst alltaf á endanum hjá þér, en
það var einmitt bara hjá þér sem
ég borðaði slátur, ekki hjá neinum
öðrum.
Mér leið alltaf svo vel hjá þér
því þú varst alltaf svo góð við mig
enda hændust vel flestir að þér
vegna þessara kosta í fari þínu. Þú
máttir varla sjá neitt aumt, þá
varstu til staðar fyrir þann sem
þurfti á því að halda.
Síðan byrjaði heimsóknunum til
þín að fækka eins og gengur og
gerist. En alltaf varstu duglega
frænka mín sem átti orðið tvo litla
sólargeisla, Bjarka Jón og Elísa-
bet Helgu. Andlitið á þér lýstist
upp þegar þau voru með þér enda
góð amma þar á ferð og ekki fór
það fram hjá þeim. Þegar ég hitti
þig í síðasta skiptið gat ég séð í
augunum þínum hvað þú varst orð-
in hamingjusöm og ánægð.
Við tvær höfðum einmitt verið
að passa köttinn hennar Tinnu
systur minnar og fór-
um til skiptis að kíkja
á hana. Þú komst til
mín í vinnuna og hafð-
ir einhverjar áhyggjur
af því að kötturinn
væri svo einmana. En
ég veit að þú verður
ekki einmana þvi
Benedikt hennar
ömmu Diddu á eftir
að taka vel á móti þér.
Elsku Björk mín,
ég vildi að ég hefði
sagt þér þetta seinast
þegar ég talaði við þig
en mér þótti rosalega
vænt um þig og mun alla tíð
geyma góðar minningar um þig vel
í hjarta mínu. Takk fyrir allt sem
þú gerðir fyrir mig og systkini
mín. Við verðum þér ævinlega
þakklát, elsku frænka.
Tinna Rut vildi senda þér góðar
kveðjur en hún er stödd í Þýska-
landi núna, hún sendi þér þetta
ljóð sem henni fannst passa svo vel
við þig.
Við látumst skilja lífsins duldu rök
og leitum skammt á meðan værðar
njótum
Er dagar heyrast voðans vængjatök
í veruleikans myrkri blind við hnjótum.
Svo þegar æskublóma burt er kippt
oss brestur þroska drottins ráð að skilja.
En þá fær sorgin hug til hæða lyft,
í hennar þögn við greinum eilífs vilja.
Við munum þig sem fagurt Ijúflingslag,
sem Ijúfast bros frá sól í austur heiði,
og harmi lostin syrgir sveit í dag,
hún signir þögui óskabams síns leiði.
(Hjörtur Gíslason.)
Ég sendi Nonna, Lilju, Steina,
Kristófer, Bjarka Jón og Elísabet
Helgu mínar innilegustu samúðar-
kveðjur og bið góðan Guð um að
styrkja þau í sinni miklu sorg.
Sólveig Rósa
Sigurðardóttir.
+
Elskuleg móðir okkar, systir og amma,
INGIBJÖRG VILBERTSDÓTTIR,
lést miðvikudaginn 28. júní.
Útförin fer fram frá Innri-Njarðvíkurkirkju föstu-
daginn 7. júlí kl. 13.00.
Jóhann R. Sigurðsson, Steinunn J.L. Þórisdóttir,
Hafdís Ó. Sigurðardóttir, Jakob Yngvason,
Kolbrún S. Sigurðardóttir,
systkini og barnabörn.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
STEFÁN Á. GUÐMUNDSSON,
Sólhlíð 19,
Vestmannaeyjum
sem lést 22. júní sl., verður jarðsunginn frá
Landakirkju laugardaginn 8. júlí kl. 14.00.
Sigríður E. Guðmundsson,
Jóhann E. W. Stefánsson,
Guðmundur W. Stefánsson,
Sigurður W. Stefánsson,
Guðmar W. Stefánsson,
Elías W. Stefánsson,
Katrín Stefánsdóttir,
Hjördís Guðmundsdóttir,
Ellý Elíasdóttir,
Ásta Traustadóttir,
Ragnhildur Ragnarsdóttir,
Hjördís Guðbjartsdóttir,
Steingrímur Svavarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
Lokaö verður dagan 7. júlí og 10. júlí vegna andláts
JÓHANNESAR HELGA JENSSONAR forstjóra.
Hífir — Kjarnaborun ehf.