Morgunblaðið - 05.07.2000, Síða 8

Morgunblaðið - 05.07.2000, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Graðhestur í stuði í Garðabæ: Þetta er nú alveg eins henni að kenna Grána mín, hvað var hún að vilja með því að vera að juða sér upp við rimlana, góða???? Varðeldur á Laugar- vatni Morgunblaðið/Jóra VEÐURBLÍÐA hefur verið á landinu síðustu daga og á Laugarvatni nýttu menn veðrið til hins ýtrasta og vöktu frameftir við varðeld. Þau Jakob, Friðrik og Sonja sáu um að kveikja bálið og virðist það hafa tekist einkar vel. HORNSOFAR JE5 /ffll -kfflBUÁffl Horn 1 t 2 SUÐURLANDSBRAUT 22 • SÍMI 553 7100 & 553 6011 Þjóðgaröurinn í Jökulsárgljúfrum Fjölbreyttar gönguleiðir Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir SUMAR gefst ferða- mönnum tækifæri til þess að fara um fjöl- breyttar gönguleiðir í þjóðgarðinum í Jökuls- árgljúfrum. Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir er þjóðgarðsvörður þar. „Annars vegar getur fólk gengið á eigin vegum um margar gönguleiðir í þjóðgarðinum hér í Jök- ulsárgljúfrum eða farið í fylgd með landverði um svæðið," sagði Sigþrúður. - Er margt að sjá í Jök- ulsárgljúfrum ? „Það er mjög margt að sjá í Jökulsárgljúfrum, þetta er fjölbreytt land- svæði, vestan Jökulsár á Fjöllum, sem nær frá Ás- byrgi í norðri suður að Dettifossi. Þekktustu staðirnir eru Ásbyrgi sjálft og Hljóðaklettar, Hólmatungur og Dettifoss. Landslagið er fjöl- breytt, Jökulsárgljúfur og foss- arnir í Jökulsá á Fjöllum, Detti- foss, Hafragilsfoss og Selfoss. Þá eru Hljóðaklettar og svæðið þar í kring þar sem eru gamlar eldstöðvar sem liggja meðfram Jökulsá. Hólmatungur er gróð- urríkt svæði með fallegum skógi og fallegum lækjum og upp- sjjrettum sem renna út í Jökulsá. Ásbyrgi er skjólsælt byrgi, þakið birkiskógi. Það er vinsælasti við- komustaður ferðamanna í þjóð- garðinum í Jökulsárgljúfrum." -Koma margir ferðamenn í þjóðgarðinn? „Já, það koma nokkuð margir ferðamenn. Á hverju ári eru hér á milli 14 og 16 þúsund gistinæt- ur og daggestir eru á bilinu 40 til 60 þúsund.“ -Eru erlendir gestir þar í meirihluta? „Af þeim sem gista eru íslend- ingar í meirihluta og eru þeir um tveir þriðju af þeim sem koma í þjóðgarðinn. Ég held að það sé nokkuð almennt líka hvað varðar daggesti, við höfum bara ekki eins skýrar tölur um það.“ - Hafa miklar framkvæmdir verið að undanförnu í þjóðgarð- inum? „Á hverju ári eru einhverjar framkvæmdir varðandi stíga- gerð og merkingar og bætta að- stöðu fyrir ferðamenn. Hins veg- ar vantar okkur fjármagn til þess að ráðast í stórar fram- kvæmdir sem nauðsynlegar eru. Þar á ég við bætta salernisað- stöðu og stærri framkvæmdir á stígum. Síðan vantar einnig fé til þess að bæta vegi þjóðgarðsins." - Hvað er þetta stórt svæði? „Þjóðgarðurinn er að flatar- máli 120 ferkílómetrar. Göngu- leiðir liggja meðfram gljúfrum Jökulsár á Fjöllum allt frá Ás- byrgi suður að Dettifossi og er vel aðgengilegt að komast að gljúfrunum fótgangandi. Bfla- stæði eru við helstu áningastað- ina, Ásbyrgi, Hljóða- kletta, Hólmatungur og Dettifoss. Fólk þarf hins vegar að ganga nokkra vega- lengd að Dettifossi eða um fimmtán mín- útna gang. Styttra er að ganga að fossinum austan Jökulsár á Fjöllum." - Hvað getur þú sagt mér um hinar ýmsu gönguleiðir á svæð- inu? „Frá öllum helstu áningastöð- um í þjóðgarðinum liggja bæði skemmri og lengri gönguleiðir og síðan er tveggja daga gangur frá Ásbyrgi og suður að Detti- ► Sigþrúður Stella Jóhannsdótt- ir fæddist 20. júní 1966 á Húsa- vík. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1986 og BS-prófi í líffræði frá Háskóla fslands 1992. Hún hefur starfað sem þjóðgarðsvörður í þjóðgarðinum í Jökulsárgljúfr- um frá 1994. Hún er gift Aðal- steini Erni Snæþórssyni kcnnara og eiga þau tvo syni. fossi. Þá getur fólk gist á tjald- stæðinu í Ásbyrgi annars vegar og í Vesturdal hins vegar. Ef við ræðum svo um gönguleiðirnar enn frekar þá er hægt að velja á milli gönguferðar meðfram gljúfrum Jökulsár og svo aðrar leiðir fjær gljúfrunum.“ - Veitið þið fólki leiðbeiningai• um gönguleiðirnar? „Já, við segjum því hvað er að sjá á hverri leið og einnig förum við í skipulagðar gönguferðir með gesti. Við erum með sér- staka dagskrá þar sem við förum í gönguferðir með fólk. Dagskrá- in er í jpldi frá 16. júní til 20. ágúst. I boði eru bæði stuttar ferðir, um það bil klukkustund, um Ásbyrgi eða Hljóðakletta og lengri gönguferðir, sem taka tvær til fjórar klukkustundir. Þetta er ókeypis þjónusta." -Hvað er þetta garnall þjóð- garður? „Þjóðgarðurinn var stofnaður 1973, þá hafði undirbúningur undir stofnun hans staðið yfir í nokkurn tíma. Tilgangur friðlýs- ingarinnar var að vernda gljúfur Jökulsár á Fjöllum og svæðið þar í kring.“ - Er þetta merkilegt svæði frá náttúrunnar hendi? „Já, þetta er einstakt svæði, gljúfur Jökulsár á Fjöllum eru mjög sérstök frá náttúrunnar hendi, náttúruperla, fyrst og fremst af því hvernig þau eru mynduð, en þau mynduðust í hamfarahlaupum. Landslags- gerðir eru hér mjög fjölbreyttar og skemmtilegt samspil er á milli gróðurs, dýralífs og landslags. Mikil náttúrufegurð er hér og það er kannski það sem fólk laðast mest að.“ - Eru margir sem vinna í þjóðgarðinum ? „Það eru ellefu starfsmenn yf- ir sumartímann, hlutverk þeirra er þríþætt, í fyrsta lagi er um- sjón með tjaldstæðum, í öðru lagi er eftirlit með svæðinu og viðhald og framkvæmdir með göngustígum og mannvirkjum, í þriðja lagi erum við með fræðslu og upplýsingagjöf fyrir ferða- menn eins og áður kom fram.“ Gljúfur Jökulsár á Fjöllum náttúruperla

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.